Þjóðviljinn - 24.02.1979, Side 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. febrúar 1979
Umsjón:
Guðrún Ögmundsdóttir
Hallgerður Gísladóttir
Kristín Ástgeirsdóttir
Kristín Jónsdóttir
Sólrún Gísladóttir
Kapprætt um kvennahreytingu
í siðustu viku gafst
félögum Rauðsokka-
hreyfingarinnar og 8.
mars-hreyfingarinnar
tækifæri til að reifa
málefni kvennabarátt-
unnar á kappræðufundi
sem bar yfirskriftina
„Hvernig skal byggja
baráttuhreyfingu
kvenna” og var boðað-
ur af Eik-ml.
I hitamollu og loftleysi opin-
beraöist sá sannleikur aö Eik-
ml hefur fengiö senda kenningu
austan um haf um þaö hvernig
byggja eigi upp hreyfingu
kvenna, sem gagnast megi i
baráttunni gegn risaveldunum i
austri og vestri og veröa
væntanlegum kommúnista-
flokki maóista stoö og stytta i
baráttunni. Kenningin er á þá
leiö aö fyrst kemur kommún-
istaflokkurinn (Eik-ml), þá
kvennahreyfingin (8. mars-
hreyfingin) og siöan samfylking
um brýn málefni sem þýöir að
Eikarar munu um stund gleyma
.. gagnrýni sinni á endurskoö-
unarsinna eins og Rauösokka-
hreyfinguna og starfa meö
þeim. Þarna er sem sagt
■ dæmigeröur piramidi á feröinni
þar sem flokkurinn er æöstur.
1 ljósi þessarar kenningar
veröur margt augljóst sem áöur
var sjónum hulið og skiljanlegt
aö hiö lausbundna og lýöræöis-
lega skipulag Rauösokka-
hreyfingarinnar fari ákaflega i
taugarnar á Eikurum.
Þessa aöila greinir á um
skipulag eins og svo margt
fleira. Til aö mynda kom fram i
máli einnar ræöukonu Eik-ml aö
og frekar en aö kljúfa á þvi máli
einbeitir hreyfingin sér aö verk-
efnum sem brenna á konum og
eru i samræmi viö grundvöll
hreyfingarinnar.
Nokkrar umræður uröu um
upphaf kvennakúgunar og
snerust þær m.a. um skrif
Engels á öldinni sem leiö og
kenningar nútima mannfræö-
inga en hér veröa þau mál látin
liggja milli hluta, enda flóknari
en svo aö þeim veröi gerö skil i
stuttu máli.
1 heild var fundurinn heldur
þrasgjarn, spurningar dundu
yfir á báöa bóga, sem enginn
timi vannst til aö svara, en eink-
um veröur þaö aö skrifast á
reikning Eikara aö svo fór, þvi
þeir hópuöust I ræöustól um leiö
og umræöur hófust og dembdu
spurningum yfir Rauösokka.
Afleiöingin varö sú aö mönnum
hætti til aö festast i fortiðinni,
en umræöuefniö gaf svo sannar-
lega tilefni til aö ræöa um bar-
áttuaöferöir og framtiöarmark-
miö. Þegar allt kemur til alls
eru þessar hreyfingar þó sam-
mála um aö kvennabaráttuna
Framhald á 18. siöu
Það var þröngt setinn pallurinn á kappræðufundinum, en þráttfyrir hitamollu og loftleysi urðu fjörugar
umræður.
Samstarf
8. mars
milli Raudsokka-
hreyfingarinnar
og 8. mars-
hreyfmgarinnar
Að undanförnu hafa viðræður
átt sér stað milli Rauðsokka-
hreyfingarinnar og 8. mars-
hreyfingarinnar um samstarf i
aðgerðum á aiþjóðlegum
baráttudegi verkakvenna.
Hreyfingarnar stefna að þvf að
halda sameiginlegan kvöidfund
þann 8. mars. Hvor hreyfingin
um sig hefur tilnefnt fulltrúa i
fundarhóp, en hann hefur það
hlutverk að sjá um fundinn.
Jafnréttissiðuna langaði til að
fá nánari fregnir af starfi hóps-
ins og brá sér þvf til Margrétar
Rúnar Guðmundsdóttur, eins
fulltrúa Rauðsokkahreyfingar-
innar f fundarhópnum og spurði
hana nánar um gang mála.
M.R.G.: Já, viö stefnum aö þvi
aö á þessum fundi veröi 3
örstuttar ræöur, þ.e. ein frá
hvorri hreyfingu og sú þriöja frá
utanaðkomandi verkakonu og
hafa komiö upp hugmyndir um
verkakonur frá Akranesi. Ræöa
Rauösokkahreyfingarinnar
mun fjalla um hvers vegna
kvennabaráttan er nauösynleg,
en ræöa 8.-mars-hreyfingarinn-
ar um alþjóölegu baráttuna.
Verkakonan mun aö öllum lik-
indum fjalla um refsibónusinn
eöa eitthvert annaö mál sem er
ofarlega á baugi i verkalýös-
baráttunni. Nú, svo munu koma
fram sönghópar á vegum hreyf-
inganna.
Aöalatvinna okkar I fundar-
hóp felst þó I samningu
samfelldrar dagskrár sem á aö
fjalla um barniö og konuna i
kapitalisku þjóöfélagi. Þar tök-
um viö m.a. fyrir fjandsamlega
afstööu atvinnurekenda til
(barnshafandi) kvenna,
fæöingarorlofið, meölags-
greiöslur og stööuna i dag-
vistarmálum. Grunnskólann
Margrét Rún Guðmundsdóttir
fulltrúi Rsh. I fundarhóp.
fjöllum viö einnig um, tökum
fyrir félagslegt hlutverk hans,
kynfræöslu, vinnuálag i skólum
o.s.frv. Siöan fjöllum viö um
barnamenningu, barnaofbeldi,
barnavinnu, æskulýösmál og
eldri börn og svo aö lokum
fóstureyöingar.
Þetta spannar mjög vitt sviö
eins og menn vafalaust sjá, en
ætti aö geta oröiö mjög
skemmtilegt. Form dagskrár-
innar veröur svolitil nýbreytni
þvi aö i henni veröa stuttir
leikþættir sem leikarar munu
flytja; tveir lesarar sjá um les-
textann og svo er söng blandaö
inn á milli. Viö erum vel á veg
komnar meö dagskrána, fórum
m.a. upp I ölfusborgir um
siöustu helgi til aö vinna aö
henni.
— Er ljóst hvar fundurinn
verður haldinn?
M.R.G.: Rauösokkahreyfingin
er búin aö fá Félagsstofnun
stúdenta þann 8. mars, en viö
erum hins vegar aö garfa i þvi
aö fá hátiöarsal Menntaskólans
við Hamrahliö þvi aö aöstæöur
þar eru öllu heppilegri. — En
hvar svo sem fundurinn veröur
haldinn þá liggur alla vega ljóst
fyrir aö hann veröur aö kveldi 8.
mars kl. 20.3ften fólk er hvatt til
aö fylgjast meö nánari fregnum
af fundarstaö.
— Hvernig hafa samstarfs-
viðræður hreyfinganna gengið?
Framhald á 18. siðu
jafnréttisbarátta á heimilunum
muni aöeins til aö þreyta alþýö-
una. Samkvæmt þessu eiga kon-
ur bara að þola misréttiö
heimafyrir og biöa eftir bylting-
unni. Þá lagast þetta allt.
Greinarhöfundur er aftur á móti
þeirrar skoðunar aö jafnrétti
innan veggja heimilisins sé afar
nauösynlegt til aö létta vinnuá-
lagi af konum og reyndar al-
gjört jafnréttismál. Meö þvi
ættu þær aö eiga auöveldara
meö aö komast út og gerast
virkar I baráttunni.
Annaö atriöi sem vert er aö
minnast á er afstaöan til fjöl-
skyldunnar. Þar er mikill á-
greiningur. Annars vegar virö-
ist sem Eikarar taki undir meö
ihaldinu um varöveislu fjöl-
skyldunnar sem grunneiningar
og þeim er beinlinis I nöp viö
hugmyndir um ný sambýlis-
form, enda er fjölskyldunni nú
ákaft hampaö I Kina (i sam-
ræmi viö önnur smáborgaraleg
viöhorf sem þar vaöa uppi) og
auövitaö tekur Eik-ml upp þá
stefnu umhugsunarlaust. Hins
vegar lita Rauösokkar á fjöl-
skylduna i núverandi mynd sem
afsprengi stéttaþjóöfélagsins,
til þess ætiaöa aö viöhalda
borgaralegum hugmyndum,
misrétti i uppeldi og verkaskipt-
ingu og þar meö kúgun kvenna.
Rauðsokkum finnst aö ný sam-
býlisform séu nauösynlegur
valkostur, svo og aukin
samneysla á öllum sviöunven aö
sjáifsögöu eiga slikir draumar
langt i land.
Spörfugl á
fílsrassi
Heimsvaldastefnu bar mikiö
á góma. Eikarar fylgja þar
kenningum Kinverja um risa-
veldin og heimsvaldastefnu
Sovétrikjanna og telja óhjá-
kvæmilegt að kvennahreyfingar
taki afstööu i þvi máli. 1 ræöum
rauðsokka kom fram aö innan
hreyfingarinnar eru skiptar
skoöanir á heimsvaldastefnunni
Nýliöahópur á vegum
Rauðsokkahreyfíngarinnar
I dag, laugardaginn 24. febrú-
ar, kl. 14.00. byrja Rauðsokkar
með hóp fyrir nýliða í hreyfing-
unni. Jafnréttissfðan fór á stúf-
ana tii að leita nánari fregna um
tilvonandi starfsemi þessa hóps,
og hitti að máli eina af um-
sjónarkonum námskeiösins.
Hver er tilgangurinn með þvf að
starfrækja nýliðahóp?
— Tilgangurinn meö nýliöahóp
er fyrst og fremst sá, aö gefa
konum, sem áhuga hafa á
kvennabaráttunni, kost á aö
afla sér undirstööuþekkingar á
henni og tækifæri til aö ræöa
hana frá ýmsum hliöum. Meö
þessu móti kynnast konurnar
lika Rauösokkahreyfingunni og
helstu baráttumálum hennar af
eigin raun, án þess þó aö þær
séu á nokkurn hátt skuldbundn-
ar tilaö starfa meö henni.
Hvernig fer starfsemi nýliða-
hópsins fram?
— Viö höldum átta fundi og á
hverjum þeirra er tekiö fyrir af-
markaö efni s.s. fjölskyldan,
konur I atvinnulifinu, rétturinn
yfir eigin likama, kynferöisleg
og efnahagsleg kúgun kvenna,
konur og sósialismi, saga nú-
timakvennahreyfingar o.fl. A
hvern fund mætir einhver sem
er virk i hreyfingunni og hefur
smá innlegg i byrjun fundar,en
aö ööru leyti byggist þetta mest
á umræðum um efnið. Þar sem
hægt er aö koma þvi viö munum
viö benda á lesefni um hvert
efni, en þar sem mjög litiö hefur
veriö skrifaö um málefni
kvennabaráttunnar á Islensku
veröur þaö liklegast af skornum
skammti.
Verða allir sem vilja starfa með
Rauðsokkahreyfingunni að fara
i gegnum nýliðahóp?
— Nei alls ekki. Meö nýliöahóp
erum viö fyrst og fremst aö
bjóöa upp á ákveöna fræöslu
sem er erfitt aö afla sér hér-
lendis vegna skorts á lesefni og
gefa konum kost á aö ræöa mál
sem liggja þeim á hjarta. Ef
konur kæra sig ekki um aö fara i
nýliöahóp þá þurfa þær þess
ekki. en geta byrjað strax aö
starfa meö hreyfingunni aö
ýmsum málum. Þær sem eru i
nýliöahópnum geta jafnframt
veriö i ööru starfi i hreyfing-
unni. Viö höfum hins vegar
heyrt konur kvarta undan þvlaö
þaö sé erfitt aö nálgast
hreyfinguna og komast inn I
starf hjá henni, og þetta viljum
viö endilega laga. Meö þvi aö
taka þátt I nýliöahópnum ættu
konur aö geta kynnst Rauð-
sokkahreyfingunni og þeim sem
i henni starfa og þá ætti næsta
skrefiö ekki aö veröa eins erfitt.
Aö lokum vona ég svo aö konur
sýni nýliöahópnum áhuga og
mæti i Sokkholt, Skólavöröustig
12, kl. 14.00 I dag.