Þjóðviljinn - 09.03.1979, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 09.03.1979, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJöÐVtLJINN'’ Föstudagur 9. mars 1979 UOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs hreyfingar og þjóðfrelsis (Jtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson. Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Erla Sigurö- ardóttir, Guöjón Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Mar- geirsson, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. iþróttafrétta- maöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. útlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson. Ilandrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar. Safnvöröur: Eyjólfur Arnason Auglýsingar: SigríÖur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson. Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson. Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristln Pét- ursdóttir. Sfmavarsla: ólöf Halldórsdóttir, SigriÖur Kristjánsdóttir. Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir Húsmóöir: Jóna SigurÖardóttir Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson. Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Sföumúla 6, Reykjavfk, sfmi 8 13 33. Prentun: Blaöaprent hf. Eymd og áform Sjátfstœðisjlokksins • Margir verða til þess undanfarna daga að tala um eymd Sjálfstæðisf lokksins. Alþýðublaðið hef ur talað um liðónýta stjórnarandstöðu með svo einkennilegum sökn- uði að engu er líkara en að blaðið vilji hafa Sjálfstæðis- f lokkinn sem vasklegastan. Ólafur Jóhannesson for- sætisráðherra neitar að taka þingrofstillögur Geirs og félaga alvarlega, og snýr umræðunni upp í vangaveltur um framúrstefnu í hegðun og stílbrögðum. • Vissulega hef ur frammistaða Sjálfstæðisf lokksins og forystumanna hansekki verið uppá marga fiska að und- anförnu. Þetta kom mjög átakanlega fram á dögunum, þegar flokkurinn kynnti texta einn sem hafði fengið nafnið efnahagsmálastefna í skírnargjöf. Flestir létu sér að vonum fátt um finnast: flokkurinn gekk öðrum lengra í loðnum formúlum og almennri óskhyggju. Eins og Svavar Gestsson viðskiptaráðherra benti á í ræðu sinni í útvarpsumræðunum á þriðjudaginn var, þá þýða tillögur Sjálfstæðismanna í raun og veru uppgjöf í bar- áttunni fyrir efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar. Þar er ráð f yrir því gert, að gengisskráning verði látin laus, verðlagið gefið frjálst eins og það heitir og sömuleiðis ákvarðanir um vexti. Einnig megi tengja allar fjár- skuldbindingar innanlands gengi erlendra gjaldmiðla, sem í raun þýðir að íslensk mynt sé lögð niður. Þetta er svo kórónað með því að gera ráð f yrir því, að opna land- ið f yrir erlendum lánum af hvaða tagi sem er. • En framganga Sjálfstæðisf lokksins verður ekki að- eins kennd við ringulreið/óskhyggju eða uppgjöf. Eins og Svavar Gestsson bendir á, þá talar það sem í uppgjafar- stefnunni felst skýru og ótvíræðu máli um stéttareðli Sjálfstæðisflokksins, um þá hagsmuni sem þessi flokkur þjónar. Ráðstafanir hans taka ekki mið af þörf um vinn- andi fólks, þær eru allar miðaðar fyrst og fremst við þarfir þeirra sem fjármagn eiga og fyrirtæki. Þar er gert ráð fyrir skattfrelsi eða frestun skattlagningar fyrirtækjum til handa. Þá er gert ráð fyrir því.að eigna- skattar á fyrirtækjum lækki, nýbyggingargjald á að fella niður og að sjálfsögðu þann sérstaka skatt sem rík- isstjórnin hefur lagt á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Sömuleiðis á að heimila á ný stórauknar fyrningar til skattafrádráttar. „Samtals'/ sagði Svavar,/yætlar Sjálf- stæðisflokkurinn að fella niður skatta af fyrirtækjum upp á nærri tug miljarða króna. Á móti á síðan að draga úr niðurgreiðslum,og ef miðað er við þær niðurgreiðslur einar sem núverandi ríkisstjórn hefur bætt við, nema þær um 8% i kaupi. Auðvitað ætlar Sjálfstæðisf lokkurinn ekki að hækka kaup sem þessu nemur; kauplækkun er hans æðsta boðorð, eins og einnig gengur f ram af nef nd- um efnahagstillögum... • Ránfuglarnir biða tilbúnir að hremma ránsfenginn. Þeir eru reiðubúnir að hleypa erlendum hagsmunum inn á gaf I, þeir ætla að skerða iífskjörin, ætla að veikja for- sendur efnahagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar, afnema ís- lenskan gjaldmiðil og að sjálfsögðu að afhenda auðstétt- inni aftur þá miljarði sem núverandi ríkisstjórn hefur lagt á til þess að greiða niður landbúnaðaraf urðir og til þess að fella niður söluskatt af matvælum". • Það er að sjálfsögðu höf uðnauðsyn í stjórnmálum að menn vanmeti ekki andstæðing sinn. Einnig að baki því ásigkomulagi Sjálfstæðisflokksins sem kennt verður til ráðleysu og uppgjafar vakir raunveruleg hætta fyrir hag alþýðu og það sem enn má kenna við efnahagslegt sjálfstæði landsins. Þetta er brýnt að hafa í huga þegar metnir eru valkostir í stjórpmálum um þessar mundir. —áb j Afmælisfyrir- ! vararnir enn II þessum þætti i gær var get- um aö þvi leitt af hverju Bragi , Sigurjónsstm heföi valiB 20. Iapril sem siðustu forvöð til þess að mynda nýja rikisstjórn. Þar sem hann vildi forðast 1. april ■ rambaði hann á niræðisafmæli IAdolfs sáluga Hitlers. Á hinn bóginn er talið fullvist að varöandi 17. mars, en þá eru » samkvæmt tillögu Braga Isiðustu forvöð fyrir núverandi rikisstjórn aö koma sér saman um efnahagsmálin, hafi Bragi ■ litið sér nær og miðað við Iafmælisdag Höllustaða-Páls, Páls Péturssonar alþingis- manns.Er það ekki i fyrsta sinn ■ sem kratar miða fyrirvara sina Ivið afmælisdaga Framsóknar- þingmanna, oger sá háttur mun , gæfulegri en að leita út fyrir ) landsteinana um viömiðanir i | almanaksáráttunni. • Réttmæt I gagnrýni ■ II einum punkti lagöi Sjálf- stæöisflokkurinn fram veiga- mikla gagnrýni á stjórnarstefn- ■ una i þingrofsumræöunum. Þaö Ivar rökstudd gagnrýni dr. ‘Gunnars Thoroddsens á þá samdráttarstefnu sem veriö » hefur höfuðverkefni Alþýöu- Iflokksins að berja i' gegn á stjórnarheimilinu. Dr. Gunnar sagði i ræðu sinni: » „Einn þáttur efnahags- Imáianna liggur þó fyrir Aiþingi nú, þótt efnahagsfrumvarp forsætisráðherra hafi ekki litið J dagsins ljós á Alþingi. Það er I stjórnarfrumvarp um lántökur, I fjárfestingu o.fl. og tel ég nauö- ‘ synlegt að gera þaö að umtals- J efni hér. Aö því er varðar fjárfestingu | og verklegar framkvæmdir i J landinu, þá verður að vara við Iþeirri allt of Utbreiddu kenn- ingu, aö mikil fjárfesting sé bölvaidur og meginorsök verð- , bólgunnar. Þvert á móti veröa Imenn að gera sér grein fyrir, að fjárfesting i atvinnufyrirtækj- um, samgöngu- og orkumálum , og ýmsum öðrum opinberum Iframkvæmdum, er undirstaða framfara I iandinu og grund- völlur vaxandi velmegunar. ■ Endurnýjun atvinnutækja Ibættur vélakostur, næg orka, greiðar samgöngur, — alls þessa má þjóðin ekki án vera, et • hún vil sækja fram. Þess vegna Iá ekki að stefna að þvi, að fjár- festing I þjóöarbúskapnum fari minnkandi I hlutfalli vil^ rekstarútgjöld, heldur fremur að setja það mark að draga út rekstrarútgjöldum hins opinbera. Varhugaverð regla Það er lika varhugavert að búa sér til þá reglu fram I timann, að f járfesting I landinu megi til dæmis ekki vera nema 24 1/2% af þjóðarframleiösl- unni. Hér veröur að greina glöggt I sundur, hvers eðlis framkvæmdirnar eru. Þótt stefnt sé að þvi að draga úr erlendum lántökum, getur verið hyggilegt að taka erlent lán, ef sú framkvæmd sparar meira i erlendum gjaldeyri en vöxtum og afborgunum lánsins nemur. Þá væri það glapræöi að neita um slikt erlent lán vegna þess að einhverri fyrirfram tilbúinni hámarkstölu væri náð. t fjárfestingaráætiun og lántökufrumvarpi rlkisstjórn- arinnar ber of mikiö á slikum almennum reglum og þar er ekki alltaf tekiö mið af heilbrigöri skynsemi. Hér skulu nefnd dæmi. Atvinnuleysi Samdráttaraðgerðir . stjórnarfiokkanna eru þegar farnar að hafa alvarleg áhrif. t byggingariðnaðinum hafa verkefni minnkað og þó að þau séu viða talin viðunandi sem stendur, þá eru svo iskyggilegar horfur i haustog næsta vetur, að búast verður við verulegu at- vinnuleysi meðal byggingar- manna. Það hefði þvi veriö full- komin ástæða til að auka fjár- magnsmöguleika i þeirri grein. En stjórnarflokkarnir fara þveröfugt að. t ofúrkappi sinu aðskera niður fjárfestingu sjást þeir ekki fyrir. Þeir leggja til I 11. gr. stjórnarfrumvarpsins að By ggingarsjóður sé sviptur i ár > 2000 miljónum kr. af starfsfé sinuog þvi ráöstafaö tU annarra verkefna.” Þótt Alþýöubandalagiö sé al- farið á móti þvi aö tekin séu erlend eyðslulán eins og rikis- stjórn Geirs Hallgrimssonar gerði sig seka um felst I þessari gagnrýni Gunnars Thoroddsen ýmislegt af þeim meginrökum sem Alþýðubandalagiö hefur beitt gegn þeirri óskynsamlegu samdráttarstefnu sem gegn- sýrði efnahagsfrumvarp for- sætisráðherra i upphafi meöan hann var pólitiskt trúlofaöur Vilmundi Gylfasyni. Efasemdir krata Kratar hafa jafnan lagt mikið uppúr skoðanakönnunum siðdegisblaðanna. Nú þegar Dagblaðið kunngerir að þeir hafi tapaö þriðjungi fylgis síns meöal kjósendadregur úr kjaft- hættinum um stund og upp koma efasemdir um eigin ágæti og stefnunnar sem fylgt hefur verið með ærnum fjölmiðla- trikkum. Finnur Torfi segir i Alþýðublaðinu að endurskoða verði vinnubrögðin og skýtur þar eflasut á Vilmund og Sighvat. Sighvatur trúir ekki á svona stóra sveiflu á stuttum tima og skammar kjósendur Alþýðuflokksins fyrir að hengja bakara fyrir smiö. Það séu samstarfsflokkarnir sem séu erfiðir, ekki Alþýðuflokkurinn. Vilmundi list illa á þetta, þvl enda þótt skoðanakannanir væruekki nákvæmarsýndu þær tilhneigingu meðal kjósenda. Þvi þurfi nú aö endurmeta stöðuna. Botna ekki í kjósendum 1 Alþýðublaðinu I gær getur einnig að lita efasemdaleiðara mikinn. Hvernig stendur nú á fylgishruninu? spyr BPM. „Eru það stóryrðin um dag- setningarnar, sem and- stæðingarnir hafa svo oft kiifaö á aöenga þýðingu hafi haft aðra en þá að niðurlægja flokkinn vegn a þess að jafnoft h afi fk>kk- urinn runnið á rassinn?” En það gæti llka veriö að stefnan i verðbólgumálum félli ekki I geð almennings. „Þaö skiptir þvifyrst og fremst máli i þessu sambandi að komast að þvi hvort ástæðan fyrir þvl aö andstæðingunum hehir tekistað gera stefnu Alþýöuflokksins tortryggiiega stafi ekki af áróðurslegri stöðu flokksins og þvi hve erfitt hann á með að kynna til hlltar erfíð og flókin mál eins og lagafrumvarp um nýsköpun efnahagsmála. Það verður þvi fyrst að láta á það reyna hvort ekki má meö ein- hverjum hætti efla skilning aimennings á þvi að aögerðir þær sem flokkurinn leggur slikt ofurkapp á að framkvæma munu ótvirætt stuðla að þvi að ná þeim markmiðum sem kjósendur kunnu vel að meta 1 vor.” Hvað segja þeir um skoð- anakönnun Dagblaðsins fylgi JUþýduflokksins mimikað stódcga sjmkreort tímmmmm AlþýOuflotikurlnn myndl t»M mlkh, lytai, »1 *lnt varl tll k**ntnfA nú. *4 þvl • >k*mur tram I tkaAMwUnnun in Mrtbt I DnfvUMnu 1 *»r. I«»r knmur I l|M. • Ilokkurlnn l*n«l ***ln» 15,1% atkvato. *n I *Wu*tu kctnlngum lékk hcnn t>% «t ‘ 'aWv*hUUM UltaM tll þrtfíl* þtngnunna A*y*ulUkk»ln» cg Mml þá *m» !Verðum að endurskoða ,okkar vinnubrögð sr I tyr»l» U*l trUlíókkilM. •• kWM IWkk ‘T*Mr.W|l þyrlt. Alþ»». nukiw.no •» nWnkitk ..M*r M HU t þcu*. cf "STZr? '.SSJy .. *g MW c» vU Alþýóu- iiwnW cl«» •» u*. |M.r l tUfckmwmk urUni — w..j.r twti «>i «»».t. Það er verið að hengja 'bakara fyrir smið ( itfir Sidiatv ..M4r tý»t náttúruUfC •kkl v.1 t M*tc. •« ** I k*U ct þcttc u •Inum •• | mlkll »v«tlU t iktmmum ' llmc tll hait ct hct it Mér líst illa á þetta ugir VihiMáw tjtttf ..Mtr lltl ||U t þuti n*t þýttr •kkart ct U •ufunum tyrtr þrk þat hctvr v«rU *t mu þc»»cr «kctcn*kcnn» •cflðl Vllmun* .rmatur þlngllckki | AtþýtutUkkdnv «r kcnn » vcr Inntur »111« t þtuari 53.2««“?- w.....« þ.« rr::,‘L-;íiu feHrfcSvsS M.nlW.1 •« þ. ., kr.ytw«.rl Bf nl».r«l.»c þm BPM telur einnig hugsanlegt að kjósendur flokksins telji að flokkurinn hafi ekki verið nógu haröur I glimunni við sam- starfsflokkana eöa þá að hann eigi að vera i stjórn upp á hvaöa býti sem er „og vera ekki með allt þaö bramboit sem honum hefur fylgt á síöustu mán- uöum.” Forystumenn Alþýðuflokks- ins botna semsagt hvorki uppné niöur I kjósendum sinum og viðhorfsbreytingum þeirra, en hafa nú uppi hverskyns efa- semdir um eigið ágæti. Ef til vill mun sú hógværð sem hér brydd- ar á verða betra vegarnesti en barsmíöin I tómu tunnunum. — e.k.h.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.