Þjóðviljinn - 10.03.1979, Síða 9
Laugardagur 10. mars 1979. ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 9
Þaft þarf mikinn áhuga til að koma upp óperusýningu: Myndin er tekin i Háskólabiói á efingu á
dögunum — um mibnætti. (Ljósm.Leifur).
íslenska óperan:
nt
•m
Bókakynning í dag,
laugardag, kl. 16:00
Sendikennararnir
ROS MARI ROSENBERG
og LENNART ABERG
kynna bækur frá Finnlandi og Sviþjóð út-
komnar 1978. Kynningin er á vegum bóka-
safns Norræna hússins.
Verið velkomin
NORRÆNA
HÚSIO
Styrktarfélag vangefinna
Aðalfundur
félagsins verður haldinn laugardaginn 17.
mars nk. i Bjarkarási við Stjörnugróf og
hefst hann kl. 14.
Fnimsýnmg á PagBacci
a morgun
A sunnud. kl. 19.15 veröur frum-
sýning á óperunni Paghacci eftir
Leoncavallo i Háskóiablói i
Reykjavik. Þaö er hin nýstofnaöa
tsienska ópera sem gengst fyrir
þessari sýningu og taka um 100
manns þátt I henni. A blaba-
mannafundi á mánudag skýröu
þau Garöar Cortes hljómsveitar-
stjóri, Gunnlaugur Snævarr
framkvæmdastjóri og Ólöf Harö-
ardóttir, sem syngur eitt af aöal-
hlutverkunum, frá sýningunni.
Æfingar á Pagliacci hófust i
haust er leiö en frumsýning hefur
tafist þar til nú vegna þess aö
flytjendur stunda aöra vinnu og
veröa aö æfa i fritima.
Óperan Pagliacci byggir á
sannrisöguogá aö gerastá Italiu
milli 1865 og 1870. Leoncavallo
samdi bæði textann og tónlistina
og er þetta eina óperan sem lifir
eftir hann. HUn segir frá leikhópi
sem er á ferðalagi og eru i honum
Pagliacci, Nedda kona hans,
kry pplingur og Peppe. Þau koma
i þorp nokkurt til aö setja upp
sýningu en þar á Nedda sér elsk-
huga úr sveitinni, og auk þess
grunar Pagliacci krypplinginn
um aö elska hana. 1 miöri leik-
sýningu gerist harmleikurinn.
Hún leysist upp og endar á morði.
Sungiö er á itölsku en til að auö-
velda skilning flytur Pétur Ein-
arsson leikari íslenskan skýring-
artexta á undan sýningu og i
henni miöri.
Helstu hlutverk eru í höndum
Elinar Sigurvinsdóttur og Ólafar
K. Haröardóttur sem syngja hlut-
verk Neddu til skiptis, Magnús
Jónsson syngur (Pagliacci),
Hákon Oddgeirssonsyngur Silvio,
Halldór Vilhelmsson syngur
Tonio og Friöbjörn G. Jónsson
syngur hlutverk Peppe. Stjórn-
andi er Garðar Cortes, leikstjóri
er Þuriöur Pálsdóttir og henni til
aöstoöar Ingibjörg Björnsdóttir
ballettdansari. ótalinn er þá
fjöldi fólks sem hefur lagt hönd á
plóginn og þiggur fæst laun fyrir.
Uppfærsla sem þessi er dýr og
mest fyrir þá sök hve óhentugt
húsnæöi hefur fengist. en sem
kunnugt er veröur sýnt i Háskóla-
biói.Æfingar hafa fariö fram vlös
vegarum bæinns.s.I Söngskólan-
um i Reykjavík, Arbæjarskóla og
æfing hljómsveitar I Fossvogs-
skóla.
Undanfariö hefur veriö æft i
Háskólabiói um helgar og eftir
blósýningar á virkum dögum.
Sviösmynd er eftir Jón Þórisson.
Það er kór Söngskólans sem
syngur með en i honum eru 34
menn og konur. Sinfónluhljóm-
sveit Reykjavikur leikur meö
ásamt allmörgum hljóöfæraleik-
urum úr Sinfóniuhljómsveit Is-
lands. Hijómsveitin veröur á gólf-
inu fyrir framan sviðiö.
Onnur sýning er á þriöjudag kl.
19.15 og gilda aögöngumiöar á
sunnudag aö þeirri sýningu. kl.
19.15
Miðinn kostar 4000 krónur en
miöasala fer fram i Söngskól-
anum aö Hverfisgötu 45 frá 1—5.
Miðapantanir I sima 21942. —GFr
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Lagabreytingar.
önnur mál.
Stjórnin.
leið til orkusparnaðar
Nákvæm hitastilling Nobis ofnanna,
tryggir að jafn hiti fæst í öllum her-
bergjum. Nobs ofnarnir eru sérstaklega
útbúnir fyrir nákvæma hitalækkunarstýr-
ingu (Sonekontrole) sem sparar allt að
15% í rafmagnskostnað og meira á vinnu-
stað.
Nákvæm hitastýring eykur þægindi.
Nobe ofnarnir, norsk gæðavara á hag-
stæðu verði.
Leitið upplýsinga hjá fagmönnum.
Snúið ykkur til rafverktakans á staðnum.
Söluumboð
nboð ffff