Þjóðviljinn - 17.03.1979, Síða 9

Þjóðviljinn - 17.03.1979, Síða 9
Laugardagur 17. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 EINAR OLGEIRSSON: UPPREISN ALÞYÐU. Greinar frá árunum 1924-1939 og um þau ár. MM kiljur. Mál og menning 1978. Það liðu ekki mörg ár frá þvi að merkja má kviknun islenskrar borgarastéttar til stofnunar Islandsbanka, að mestu leyti með erlendu fjármagni. Og það munaði mjóu að þessi erlenda stofnun, sem kennd var við fósturjörðina fengi einkarétt til seðla-og mynt-úgáfu hér á landi. Sá sem kom i veg fyrir það á siðustu stundu var siðasti lands- höfðinginn yfir Islandi. Lands- bankinn hafði áfram réttinn. Stofnun Islandsbanka og starf- semi hans hafði ekki heillavænieg áhrif á þá nýju stétt sem var að myndast og margfaldast hér á landi upp Ur aldamótunum siðustu. Hið forna samfélag var i upplausn, hlutafyrirkomulag, landaurabúskapur og miðalda- tækni stóðst ekki samkeppni við ný rekstrarform, jarðirnar svöruðu ekki lengur rentu og er- lend togskip skófu upp botninn um firði og flóa. Fyrstu tilraun- irnar voru gerðar skömmu siðar til þess að selja erlendum auð- félögum meginhluta vatnsafls landsins. Fjármagn tslands- banka var nýtt til stofnunar verslunarfyrirtækja og siðan til togaraútgeröar. Baráttan fyrir vershinarfrelsi hafði staöiö i' rúma öld þegar hér var komið og enn eimdi eftir af dönsku selstöðuverslununum, sem voru mikill þyrnir I aug- um uppvaxandi fslenskrar verslunarstéttar. NU gafst henni rækifæri til þess að ná yfir- ráðum innflutnings og Utflutn- ingsverslunarinnar og það þóttist hún gera meö fulltingi dansks fjármagns um lslands- banka. Danskir kapitalistar átt- uðu sig mætavel á þeirri stað- reynd, aö það var gróöavæniegra að leggja fé sitt I bankastairfsemi á þessum árum, heldur en I verslun. Með þvi að kaupa hluti i tslandsbanka ávöxtuöu þeir f jár- magn sitt betur en i islensku versluninni og auk þess gat bank- inn ráðið miklu um verslunar- stefnuna með lánveitingum sinum, svo að danskt kapital sló hér tvær flugur i einu höggi. Þeir græddu á lánum tíl „felensku” verslunarinnar og gátu einnig haft talsverðan hag af þviað láta bankann beina viöskiptavinum sinum, islenskum verslunar- mönnum, til viöskipta viö dönsk verslunarfyrirtæki. Það er ekki heldur óliklegt aö samskonar arðsemissjónarmiö danskra kapitalista hafi ráðið varðandi útveginn. Hér við land voru arðmestu fiskimið við Norður-Atlantshaf og á mektar- dögum Napóleons III. geröu Frakkar tilraun til þess að fá hér aðstöðu til fiskverkunar og út- gerðar. Fiskveiðatækni haföi fleygt mjög fram frá þvi um miðja öldina, botnvörpuskipin voru komin til sögunnar og með þeim mátti ávaxta kapi'talið svo um munaði. Með stofnun Islands- banka og lánum til útgerðar var hægt að stjórna útgerðinni og jafriframt veita þeim öflum liö, sem geðfelldust voruhlutabréfa- eigendum og stjórnendum bank- ans. Enda leið ekki á löngu áður en hagsýnir útgerðarmenn, sumir óbundnir af isienskri útgerðar - arfleifð, hófust handa og rökuöu saman ágóða og höföu það af að gera talsveröan hluta islenskrar sjómannastéttar farlama langt fyrir aldur fram þar til vökulögin voru sett, sem þessir snjöllu út- gerðar-kapitalistar töldu að myndi riða útgeröarframtaks- semi þeirra að fullu, sem reyndar ekki varð. Islandsbanki mótaði ekki litið fjármagnsumsvif hér á landi frá stofnun hans og þar til hann fór á hausinn á 3ja áratug þessarar aldar. I skjóli og meö styrk þessa erlenda hlutabréfabanka óx hér upp borgarastétt, sem var mjög svo laus við geöslegri einkenni stéttarinnar i Evrópu á 19. og fram á 20. öld. Sá hluti stéttar- innar hér á landi sem gaf sig að verslun og útgerö i einhverjum Siglaugur Brynleifsson skrifar um bækur mæli mátti kallast menningar- snauðurog tókst aldrei að tileinka sér þá hollustu við þjóð og land sem mannasfðir krefjast. Englendingar segja að það þurfi þrjár kynslóðir til þess að skapa „gentleman”, má vel vera nokkuöhæft I þvi. En þarf þá ekki einnig þr jár kynslóðir til þess aö skapa snjallan „athafnamann” Aldamóta-kapitalistarnir hófust handa með sinum sérstæða verslunarmáta og útgerð, studdir af dönsku kapitali. Þriöja kynslóð stéttarinnar er komin talsvert áleiðis I iðjunni. Henni er nú að takast að selja vatnsréttindi landsins erlendum fjölþjóða- hringum og stefnir ótrauð að þvf lokatakmarki; henni hefur tekist að afreka það aö stela og stinga undan fimmtungi fjármagns þess sem hún notar til þess að kaupa nauðsynjavörur til landsins árlega oghenni er þessa dagana að takast að veita erlendum aðilum nokkurskonar óbeinan einkarétt á útgáfu gjaldmiðils hér á landi með þvi snillibragði að miða allar fjármagnsskuld- bindingar við erlent gengi. Otgerðin gleymist heldur ekki, nú á að veiða þorskinn, svo að litið verðurað hafa af þeirri tegund úr sjó eftir nokkur ár, en það telst nauðsynlegt til þess að auðveld- ara verði að smala landsmönnum i erlend iöjuver framtiðarinnar, þegar enginn afli berst á land lengur. Og svo eru allar þessar aðgerðir rökstuddar á hinni fegurstu seðlabankaislensku. Þegar Einar Olgeirsson hóf stjórnmálaþátttöku sina 1924, stunduðu rúmlega 4/10 hlutar þjóðarinnar landbúnaö, 2/10 fiskveiðar, rúmlega 1/10 iðnað og viðskipti og þjónustu stunduöu um 2/10. Mannfjöldi samtals 98.483. Um helmingur þjóðar- innar bjó þá i strjálbýli. Hagur manna var mjög misjafn, megin- hluti þjóðarinnar bjó viö þröngan kost, þrengri en framleiðslu- getan gaf tálefni til innan þess hagkerfis sem hér rikti, vegna misræmis milli fjármögnunar framleiðslugreina og versl- unar, þar sem verslunin bjó að mun meiri fjármögnun um bankana á kostnað fram- leiöslugreina og félagslegr- ar þjónustu. Hiö forna lokaöa islenska hagkerfi sem staðið haföium aldir ogbyggðist á sjálf- þurftarframleiöslu hafði verið i upplausn einkum eftir aö kapital- iskra áhrifa tók aö gæta og erlent fjármagn kom til i talsverðum mæli. Aukin útgerð og fram- kvæmdir i þéttbýli sem byggðust á útgerðarfjármagni og erlendu fjármagni varð hvati flutninga sveitafólks i þéttbýlið. Verðhrun landbúnaðarvara eftir fyrri styrj- öldina formaði sveitirnar og þá var leitað Urkosta i þéttbýli, þar sem tekur að myndast stétt öreiga, „sem seldu lifandi orku sina á leigu eins og vinnudýr e&a vélar” (Jónas Þorbergsson, Timinn 58. tbl. 12. árg.) Hagur þessa hóps var ömur- legur og öll barátta Einars Olgeirssonar beindist að þvi að auka sjálfsmeðvitund og stéttar- vitund þessa fólks og hvetja þaö til baráttu fyrir mannsæmandi lifi. Það kemur glöggt fram t.d. i ævisögu Tryggva Emilssonar, siðara bindi, Baráttan um brauðið, hversu áhrif Einars voru sterk i þessa veru. Kenningar hans og hvatningar opnuðu félagsbræðrum Tryggva nýjar viddir og vöktu þá til vissu um eigin stéttarlegan styrk til baráttu fyrir fegurra mannlffi. Þaðhöfðu áöur komið fram skel- eggir baráttumenn á þessum vettvangi, en það viröist hafa fyrst og fremst hafa verið hlut- skipti Einars aö vekja þann hug- sjónaeld meöal islenskra öreiga, sem aldrei kulnaði. Kenningar „bolsanna” snertu einnig fleiri en verkalýð þétt- býlisstaðanna. Einstaka bóndi hneigðist að þessum kenningum og i sumum byggðarlögum var til staöar erfð kommúniskrar félagshyggju tengd samvinnu- hugsjóninni frá siðari hluta 19. aldar. Heimildir eru um mjög skemmtilega fundi i stúdentafélaginu á Akyreyri á þessum árum, þegar Einar dvaldi þar og kenndi m.a. við framhaldsdeild Gagnfræða- skólans þar, þar sem heimsmálin voru rædd af miklu fjöri og það var á einum sllkum fundi aö Arni Þorvaldsson, sem var afkom- andi embættismanna og landeig- endaætta á Noröurlandi og Vestur-, kastaði fram þessari visu: 1 kolagróf loganda er Lloyd George að hrapa Lenin og Trotsky forlögin skapa buólungur Grikkja var bitinn af apa bolsarnir vinna.cn kóngarnir tapa. Höfuðandstæðingar Einars voru fyrst f stað þau öfl sam- félagsins sem mestan hag höfðu af þvi að arðræna verkalýöinn og fremstir i þeim flokki voru marg- vlslegustu kaupsýslubraskarar og til stuðnings blaöakostur sá sem þeir höfðu á sinum snærum. Siðar hófst barátta milli Alþýðu- flokks, Framsóknarflokks annars vegar og Kommúnistaflokks hins vegar eftir að sá siðast nefndi var stofnaður. Hagur bænda var mjög misjafn á þessu timabili (1924-39). Margir þeirra bjuggu við svipuð kjör og öreigar bæjanna, en samstaða þeirra hópa náðist ekki, þvi að áður hafði verið stofnaður flokk- ur, sem byggðist á bændafylgi undir forustu Jónasar Jóns- sonar frá Hriflu. Talsverður hluti ritsafns Einars fjallar um viðskipti hans við Jónas og Framsóknarflokkinn. Fyrsta vinstri stjórn á tslandi var stjórn Framsóknarmanna 1927, og jafnframt sú skel- eggasta, enda var Jónas á þeim árum nefndur kommónistinn frá Hriflu.Einar rekurskilmerkilega stjórnmálasögu áranna 1927-39 i greininni: Valdakerfið á lslandi ’27- ’39. Jónas frá Hriflu skapar valdakerfi Framsóknar. Sú rit- gerð verður meðal þeirra heim- ilda sem ekki verður gengið framhjá þegar stjórnmálasaga og saga þessa timabils verður skráð. Einar fjallar um aðferðir Jónasar til þess að tryggja vald Framsóknar og sin á rikiskerfinu og á hvern hátt hann tryggði sér fylgi Alþýðuflokksins með þvi að fara þá leið, aö tryggja ýmsum forystumönnum þess flokks persónulegar kjarabætur og embætti. En þessar aðferðir notuöust ekki nema takmarkaðan tima einkum vegna valdagræðgi höfundar þeirra, og þess að Jónas vildiekki raska eignarhaldi „bur- geisanna” á framleiðslutækjum og utanrikisverslun landsmarma og tilraunir hans til þess að ná tökum á bankakerfinu með rflús- valdinu urðu aðeins tilraunir, enda strönduðu þær á afstöðu er- lendra lánardrottna bankanna og rikisins. Einar snertir einnig sögu S.I.S. og þá umbreytingu sem varð á þeim félagsskap i' valdatið Jónasar og á hvern hátt sam- bandinu var beitt gegn hags- munum verkalýösins. Einar teiur aö með þessari póli- tik hafi „Framsóknarflokkurinn alið auðvaldið á Islandi, og gerði það sterkara og sterkara, smit- aðist meira aö segja af þvi sjálfur...” (Úr: Fyrir 40 árum. Skrifað 1966.) „örlögsima Alþýöuflokksins” grein skrifuð 1934, sem er ekki siður timabær nú en þegar hún var skrifuð. „Óhamingju Alþýðu- flokksins virðist veröa allt að vopni”, og rekur Einar þá sögu skilmerkilega. Nú siðustu miss- erin virðist flokkurinn helst hrjáður af nokkurskonar flflafar- aldri. Argalar áminna ogSkáld á leið til sósialisma eru pófiti'skar bókmenntaritgerðir sem vfkka sjónhring þessa timabils. Erindi bolsjevismans til bænda er skrif- uð 1930, en þá hafði Framsóknar- flokkurinn náð undirtökunum á miklum hluta stéttarinnar, bæði með áróðri og efnahagslegu valdi kapfélaganna. Þessar greinar Einars Olgeirs- sonar eru valdar af honum sjálf- um og Asgeiri Blöndal Magnús- syniog „fer fjarriaö safn þetta sé fullgilt sýnishorn af ritstörfum Einars á viðkomandi timabili”, segir Asgeir i eftirmála. En þótt miklu sé sleppt þá hefúr hér veriö safnað þvi úrvali, sem lýkur upp þessum baráttutimum og innvið- um stjórnmálaátaka á tslandi þessi fimmtán ár. EEEEEEEESE33EEEEEEEEEEEEEEEEEF AÐALFUNDUR Samvinnubanka íslands h.f. Aðalfundur Samvinnubanka íslands h.f. verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal Reykjavik, laugardaginn 24. mars 1979 og hefst kl. 13.30 Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins verða afhentir i aðalbankanum, Bankastræti 7, dagana 21.-23. mars, svo og á fundarstað. 0 Bankaráð Samvinnubanka íslands Uppreisn

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.