Þjóðviljinn - 17.03.1979, Page 17

Þjóðviljinn - 17.03.1979, Page 17
Laugardagur 17. mars 1979 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 17 Ekki \id hæfi barna Laugardagsmynd Sjónvarpsins að þessu sinni er ekki við hæfi barna. Hún heitir Gler- húsið (The Glass House), bandarisk sjón- varpsmynd frá 1972. Myndin er byggö á sögu eftir Truman Capoteog Wyatt Cooper, og segir frá valdabaráttu og spill- ingu meðal fanga i bandarisku fangelsi. Leikstjóri er Tom Gries og aðalhlutverkin eru leikin af Alan Alda, Vic Morrow, Clu Gulager og Dean Jagger. Sá sið- astnefndi er orðinn daglegur gestur á skjánum hjá okkur, þvi að hann lék lika i föstudagsmynd- inni, Feigðarboöanum. Glerhúsið veröur sýnt kl. 22.U0. Þýðandi er óskar Ingimarsson. ih Alan Alda i hlutverki sinu i Glerhúsinu. Guðrún Guðlaugsdöttir ræðir við Arna Björnsson lækni um fegrunaraðgerðir. Hvaö er fegurd? Annað kvöid kl. 20.20 er á dag- skrá sjónvarps þátturinn Spegill, spegill..., sem Guðrún Guðlaugs- dóttir annast. t þættinum verður fjallað um þá áráttu mannfólksins að fegra sig með ýmsu móti. Rætt verður við Arna Björnsson lækni um fegrunaraðgerðir og Þórð Eydal Magnússon um tannréttingar. Einnig verður fariðá hárgreiðslu- og snyrtistofur og rætt við f jölda fólks. Leitast verður við að svara spurningunni: Hvað er fegurð? 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Tónleikar. 7.10 Leikfimi 7.20 Bæn 7.25 Ljósaskipti: Tónlistar- þáttur i umsjá Guömundar Jónssonar pianóleikara. (endurtekinn frá sunnu- dagsmorgni). 8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15 Veðurfr. Forustugr.dagbl. (útdr.) Dagskrá. 8.35 Morgunþulur kynnir ýmis lög að eigin vali. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.20 Leikfimi 9.30 Óskalög sjúklinga: Kristin Sveinbjörnsdóttir' kynnir (10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir). 11.20 Þetta erum við að gera. Valgeröur Jónsdóttir aö- stoðar hóp barna úr Varmárskóla við aö gera dagskrá. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Veöurfregnir. Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.30 l vikulokin Edda Andrésdóttir og Arni John- sen kynna þáttinn. Stjórn- andi: Guðjón Arngrimsson. 15.30 Tónleikar 15.40 islenskt mál: Guðrún Kvaran cand. mag. fiytur þáttinn. 16.00 Fréttir. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Vinsælustu popplögin Vignir Sveinsson kynnir. 17.00 Söngleikir i Lundúnum Arni Blandon kynnir söng- leikinn „Privates on Parade” eftir Peter Nic- hols. 17.45 Söngvar i léttum dúr. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki Til- kynningar. 19.35 „Góði dátinn Svejk" Saga eftir Jaroslav Hasek i þýöingu Karls Isfelds. Gisli Halldórsson leikari les (5). 20.00 HIjómplöturabb Þor- steinn Hannesson kynnir sönglög og söngvara. 20.45 Llfsmynstur Þáttur meö blönduöu efni I umsjá Þór- unnar Gestsdóttur. 21.20 Kvöldljóö Tónlistarþátt- ur i umsjá Helga Pétursson- ar og Asgeirs Tómasson.ar 22.05 Kvöldsagan: „Heimur á viö hálft kálfskinn” eftir Jón IIelgason Sveinn Skorri Höskuldsson prófessor les (5). 22.30 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Lestur PassKisálms (30). 22.50 Danslög (23.50 Fréttir). 01.00 Dagskrárlok 16.30 lþróttir Umsjónarmaður Bjarni Felixson. 18.25 Sumarvinna, Finnsk mynd i þremur þáttum um tólf ára dreng, sem fær sumarvinnu I fyrsta sinn. Fyrsti þáttur. Þýðandi Trausti Júliusson. (Nordvision — Finnska sjónvarpið) 18.55 Enska knattspyrnan Hlé 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá 20.30 Björgvin Halldórsson Asta R. Jóhannesdóttir rif j- ar upp söngferil Björgvins og hann syngur nokkur lög, gömulog ný. Stjórn upptöku Egill Eðvarðsson. 21.15 Allt er fertugum fært Breskur gamanmynda- flokkur. Annar þáttur Þýðandi Ragna Ragnars. 21.40 Skonrok(k) Þorgeir Astvaldsson kynnir ný dægurlög. 22.10 Glerhúsið (The Glass House) Bandarisk sjónvarpskvikmynd frá ár- inu 1972, byggð á sögu eftir Truman Capote og Wyatt Cooper. Leikstjóri Tom Gries. Aðalhlutverk Alan Alda, Vic Morrow, Clu Gulager og Dean Jagger. Myndir lýsir valdabaráttu og spillingu meðal fanga i bandarisku fangelsi. Mynd- in er ekki við hæfi barna. Þýðandi Öskar Ingimars- Eins og menn vita hafa alltaf ver- ið til ákveðnar feguröarimyndir á hverjum tima. En allt er afstætt, einsog Einstein sagði, og ekki vist að okkur þyki það fallegt nú og hér sem á öðrum tima eða á öðr- um stað þótti hámark mannlegr- ar fegurðar. Þátturinn er klukkutima lang- ur. ih útvarp Þeir þegja sem fastast Sunnudaginn 18. mars kl. 19.25 veröur fluttur 6.og siöasti þáttur af framhaldsleikritinu „Svörtum markaði” eftir Gunnar Gunnars- son og Þráin Bertelsson. Nefnist hann „Þeir þegja sem fastast....”. t stærstu hlutverkum eru Erling- ur Gíslason, Sigurður Skúlason og Kristin ólafsdóttir. Leikstjóri er Þráinn Bertelsson. 1 5. þætti gerðist þetta helst: Haraldur Magnússon, bróðir Hákonar þess, er hvarf á striös- árunum, fremur sjálfsmorð að þvi er talið er, en margt er þó grunsamlegt i þvi sambandi. Beinagrind finnst I Þingvallasveit og þaö vitnast, að Eirikur Þórar- insson, einn af aðstandendum Kvöldblaösins, á þar sumar- bústað. Veiðimenn og dýr Mánudaginn 19. mars kl. 17.20 verður fluttur 3. þáttur fram- haldsleikritsins „Með hetjum og forynjum i himinhvolfinu” eftir Maj Samzelius. Þýðinguna gerði Asthildur Egilsson, en leikstjóri er Brynja Benediktsdóttir. 1 stór- um hlutverkum eru auk Bessa Bjarnasonar þau Þórunn Sigurð- ardóttir, Harald G. Haralds og Sigriður Eyþórsdóttir. 1 þessum þætti segir frá veiöi- manninúm Orion, sem er hinn mesti kappi, en harður og tillits- laus. Við kynnumst llka stóru birnunni, Kallisto, sem er ekki öll þar sem hún er séö,og héranum Lepusi, sem er góður vinur henn- ar. PÉTUR OG VÉLMENNIÐ Eftir Kjartan Arnórsson Umsjón: Helgi Olafsson Lone Pine ’79 Eftir u.þ.b. viku hefst i smábænum Lone Pine i Kali- forniu hið árlega opna mót sem ár eftir ár dregur að sér sterkustu skákmenn heims- ins. Ætla má að mótið i ár verði engin undantekning hvað það varöar þvi meðal þeirra sem hafa boðað komu sina er sjálfur Viktor Korts- noj. Einnig hefur heyrst aö heimsmeistarinn Karpov hyggi á þátttöku en það hefur ekki fengist staðfest. Astæð- urnar eru tvennar. Hann tek- ur ekki þátt i mótum sem tefld eru eftir svissneska kerfinu og þátttaka Kortsnoj ætti að vera hin ástæðan. Berit Larsen veröur meö, en eins og kunnugt er þá vann hann mótið i fyrra. Verðlaun eru geysihá. 1. verðlaun 15000 dollarar, en Louis Statham sá er heldur mótið hefur þann skemmtilega sið að hækka verðlaunasumm- una ár hvert. Siðast voru 1. verðlaun 12 þús. dalir. Karl þessi er eins og gefur að skilja moldrikur en hann var svo „heppinn” að finna upp tæknififf nokkurt sem þykir ómissandi i lækningum. Af- raksturinn hefur hann m.a. notað til að f járfesta i' vatns- veitu Los Angeles borgar en I henni er hann stærsti hluta- fjáreigandi. Sá ljóður þykir á ráði karlsins að hann er tek- inn að reskjast nokkuð og hefur um nokkur undanfarin ár verið haldinn illkynjuöum sjúkdómi sem engin bót hef- ur fundistá. Lone Pine er ör- smátt þorp, svona á stærð við Hveragerði og hafa þorpsbúar atvinnu sina af allskyns þjónustustarfsemi. Héðan frá tslandi fara þrir skákmenn, Guðmundur Sig- urjónsson, Margeir Péturs- son og sá er þessar linur skrifar. Skák þáttarins er eðlilega frá siðasta Lone Pine-móti. Þar eigast við tveir góðkunningjar Islend- inga, finninn Heikki Wester- inen og séra Lombardy. Það er klerkurinn sem fer með glæsilegan sigur frá boröi: Hvitt: Lombardy Svart: Westerinen Kóngsindversk-vörn 1. c4-Rf6 2. Rc3-g6 3. e4-d6 4. d4-Bg7 5. Í4-0—0 6. Rf3-c5 7. d5-e6 8. dxe6-Bxe6 9. Bd3-Rc6 10. f 5-Bd7 11. 0-0-Rb4 12. Bbl-Bc6 13. a3-Ra6 14. Bg5-Rc7 15. Dd2-Dd7 16. Bc2-b5 17. Hadl-Rfe8 18. Bh6!-bxc4 19. Bxg7-Kxg; 20. e 5! -d5 21. f6+-Kg8 22. h3-d4 23. Re4-Re6 24. Dh6-Bxe4 25. Bxe4-Hb8 26. Rh4!-d3 27. Rf5!-Kh8 28. Hf4! — Westerinen gafst upp. Hann á engá vörn gegn hótuninni 29. Hh4. Lombardy fékk fegurðarverðlaun um- ferðarinnar fyrir þessa skák. / Auglýsið í Þjóðviljanuin - Sími 81333

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.