Þjóðviljinn - 27.03.1979, Blaðsíða 3
Þriöjudagur 27. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Rætt við
fulltrúa á
formanna-
fundi VSÍ
Herdís Olafsdóttir, formadur kvenna-
deildar Verkalýösfélags Akraness:
Reynt að sníða afþað
versta í frumvarpinu
„Ég tel að Verkamannasam-
bandið hafi viljað teygja sig til
hins ýtrasta til þess að halda
rikistjórninni saman,” sagði
Ilerdis ólafsdóttir formaður
kvennadeildar Verkalýðsfélags
Akraness.
„Það var ekki sagt mikið,
vegna þess að enginn vildi vera
neikvæður i garð rikisstjórnar-
innar, enda þótt maður sé ekki
alltof ánægður með þá launa-
skerðingu, sem frumvarpið ger-
ir ráð fyrir. Mér fannst allir
vera sammála um það, að vilja
halda rikistjórninni saman og
menn vonuðust til þess að hjá
henni kæmi betri tið með blóm i
haga.”
Tillögurnar um breytingar á
verðbótakaflanum eru mikils-
verðar, t.d. að visitalan verði
ekki alltaf sett á 100 viö hverja
launabreytingu og svo að lág-
launafólkið fái launabætur. Með
ályktuninni var verið að reyna
Herdis ólafsdóttir: Menn von-
ast eftir „betri tið með blóm I
haga” hjá rikistjórninni.
að'sniða af það sem mönnum
hefur litist verst á i frumvarp-
inu.”
—eös
Jón Kjartansson, formaður
Verkalýdsfélags Vestmannaeyja:
Vona að þessi sam-
þykkt lœgi öldurnar
„Maður er náttUrlega ekkert
hress yfir þessu,” sagði Jón
Kjartansson formaður Verka-
lýösfélags Vestmannaeyja. ,,Ég
er ekkert hress yfir þvi aö
stjórn, sem segist vera vinveitt
verkaiýðnum, skuli ekki geta
bjargað efnahag þjóðarinnar
öruvfsi en að ganga á gerða
samninga verkalýðshreyfingar-
innar, sem er greinilega veriö
aö gera.
En það er mjög að heyra á
verkafólki hér og alls staðar úti
um land, aö það verði með öll-
um ráðum að reyna aö halda
þessu stjórnarsamstarfi, vegna
ýmissa góðra verka sem fólk
telur að stjórnin eigi óunnin,
Formanna- og sambands-
stjórnarfundur Verkamanna-
sambandsins kemur meö lausn-
ir og þarna er greinilega veriö
aö finna leiöir til aö sætta hin
striöandi öfl innan rikis-
stjórnarinnar. Ég bind vonir viö
að þessi samþykkt okkar muni
verða til þess aö lægja öldurnar
og unnið verði þá að þvi að
samþykkja þetta frumvarp
með þeim breytingum, sem við
höfum gert.
- Ég verö nú að játa það, að
rýmkuð ákvæði um bindiskyldu
i peningamálum bögglast svo-
litið fyrir brjóstinu á mér. Mér
finnst þetta dálítið tortryggi-
legt, vegna þess að þetta getur
þýtt að um samdrátt verði að
ræöa og jafnvel atinnuleysi. En
þó er annaö i þessu frumvarpi,
sem mér list mjög vel á, og það
er kaflinn um verölagsmál. Ég
harma aö það skyldi ekki vera
sett inn i þessa álytkun undir-
strikun á þvi að sá kafli gangi i
gegn, þvi ég tel að ef það á aö
fara aö sleppa úlfunum lausum
á okkur, og á ég þá við kaup-
mannahjörðina svona upp til
hópa, á þessum dýrtiðartimum
þegar verðskyn fólksins er á
núlli, þá verði engar láglauna-
bætur i þvi fólgnar. Ég vil gera
verölagseftirlit að reglu, en
frjálsa álagningu að undan-
tekningu.
Jón Kjartansson: Verðlags-
eftirlit veröi regla, en frjáls á-
lagning undantekning.
Við i verkalýðsforystunni höf-
um verið undir miklum
þrýstingi frá almenningi um að
reyna að hafa áhrif á aö þessi
stjórn haldi áfram. Þessi
samþykkt ber það meö sér, að
fólkerfústtilaðfórna heilmiklu
til þess að stjórnarsamstarfiö
haldi áfram. t þessari samþykkt
gengst Verkamannasambandið
undir þó nokkra kjaraskerð-
ingu. En margir liöir eru lika á-
kaflega óljósir. Við vitum ákaf-
lega litið'hvað t.d. oliukreppan
getur þýtt I prósentum.”
—eös
Jón Helgason, formaður
Einingar á Akureyri
Tímahaupsfólkið
er ekki of haldið
„Það er mln skoöun aö rikis-
stjórnarfiokkarnir eigi aðkoma
sér saman um þetta, fyrst og
fremst með það vegarnesti að
stuðla að þvi að kaupmáttur
lægst launaða fólksins verði
tryggður,” sagði Jón Helgason
formaöur verkalýðsféiagsins
Einingar á Akureyri.
„Ég er hvorki sáttur við
stjórnmálamennina né forystu-
menn okkar I launþega-
hreyfingunni um það, að aldrei
megi taka neitt af þeim sem
betur mega sin. Mér finnst
félagsþroski fólksins kominn á
hættulega braut þegar svo er
komið. Auðvitað er erfitt að fást
við þetta vegna hinna marg-
breytilegu launakjara. Við vit-
um þaö velaðþessuer misskipt,
t.d. eru komin félög innan
Verkamannasambandsins þar
sem búiö er að taka upp á-
kvæðisvinnukerfi. En þaö er
fyrstogfremst timakaupsfólkið
sem þarf aö hugsa um, það er
ekki of haldiö af þessu kaupi
eins og það er 1 dag.
Eg vona bara, aö flokkarnir
Jón Helgason: Ekki sáttur við
það, að aidrei megi taka neitt af
þeim sem betur mega sín.
beri gæfu til þess að koma sér
saman um þá skynsamlegu
lausn, sem við leggjum til i okk-
ar samþykkt.”
—eös
ösj
Frumsýnt á Akureyri i kvöld
Nýtt leikrit
eftir Böðvar
1 kvöld verður frumsýnt á
Akureyri nýtt leikrit eftir Böðvar
Guðmundsson, „Grisir gjalda,
gömul svín valda”, sem hann hef-
ur skrifaö sérstaklega fyrir
menntskælinga nyröra til flutn-
ings á barnaárinu. Leikfélag MA
sýnir, leikstjóri er Kristin A.
ólafsdóttir.
Leiksýningin i kvöld er liöur og
einskonar hápunktur i listaviku
Menntaskólans áAkureyrisem
staðið hefur undanfarna viku, en
þar hefur ma. verið á dagskrá
ljósmyndasýning, kvikmynda-
sýningar, tónleikar og skálda-
kynningar auk þess sem efnt var
til verðlaunasamkeppni um ljóð,
smásögu og tónverk i tengslum
viö vikuna.
Leikarar i „Grisir gjalda” eru
hvorki meira né minna en 25 tals-
ins og bregöa sér I llki 79 persóna
manna og dýra. Verkið segir frá
tveim sýstkinum úr visitölu-
fjölskyldum sem lenda undir
smásjá barnaverndarnefndar
einhverskonar, en hún er reyndar
skipuð sagnapersónunum Mjall-
hviti, Tarsan og Big Foot
indjánahöföingja.
Leikmynd og búningar eru
hannaöir af tveim nemendum,
Þorbergi Hjalta Jónssyni og
Helga Má Halldórssyni og unnir
af 8manna hópi. Hljómsveit nem-
enda leikur I sýningunni undir
stjórn Arnar Magnússonar og
lögin eru eftir einn kennaranna,
Sverri Pál Erlendsson.
Mjaiihvit og Tarsan i „Grisir
gjalda...”
(Ljósm. Norðurland)
Eftir sýningar I Akureyri og
nágrannabyggðir stendur til, að
hópurinn komi suður og sýni I Fé-
lagsheimili Kópavogs.
—vh
r
Alyktun aðalfundar Iöju á Akureyri:
Stj ór narflokkarnir
jafni ágreininginn
Stjórn félagsins var
öll endurkjörin
Aðalfundur Iðju, fél. verk-
smiðjufólks á Akureyri var hald-
inn um helgina. A aðalfundinum
var eftirfarandi ályktun sam-
þykkt:
„Aðalfundur Iðju, félags verk-
smiðjufólks á Akureyri skorar á
stjðrnarflokkana aö jafna ágrein-
ing sinn um frumvarp til laga um
efnahagsaðgeröir, sem nú liggur
fyrir Alþingi. Telur fundurinn að
engum launþega sé greiði gerður
með þvi að rjúfa stjórnarsam-
starfið og velta öllu út i óðaverð-
bólgu.
Að takast á við veröbólguna
með öllum raunhæfum aögerðum
og meö þeim sem stjórn-
arvöld ráða yfir. Þaö er besta
kjarabótin fyrir launþega I land-
inu. Hinsvegar telur fundurinn að
herða beri tökin á hátekjumönn-
um og stóreignamönnum, en hlifa
I sama mæli lægst launuðu stétt-
um þjóðfélagsins viö kjaraskerð-
ingu.
Þegar sú staöreynd blasir við,
að opinber gjöld stórlega hækk^
þjónustugjöld og fleira, sem ekki
kemur fram i vísitöluútreikningi,
gefur það auga leið að þessar
verðhækkanir koma lang-harðast
niður á láglaunafólki. Þetta verö-
ur að stöðva og þess vegna er það
skoðun fundarins aö halda beri
áfram stjórnarsamstarfinu og
vinna heilhugar að þvl að tryggja
fulla atvinnu og skapa bærileg
lifskjör verkafólki, öryrkjum^og
'öldruðum á komandi árum’”.
Jón Ingimarsson, formaour Iðju á
Akureyri
Stjórn Iðju var öll endurkjör-
inn; formaður félagsins er Jón
Ingimarsson.
—S.dór
Leó Gudlaugsson sjötugur í dag
Sjötugur er i dag Leó Guölaugs- Islandi og var um skeið formaður
son húsasmiður. Vighólastig 20, Sósialistafélags Kópavogs, Þjóð-
Kópavogi. Leó hefur komið vel viljinn árnar Leó allra heilla á af-
við sögu sósialiskrar hreyfingar á mælinu.