Þjóðviljinn - 27.03.1979, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 27.03.1979, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 27. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 fiábær byrjun skóp KR-sigur í bíkamum og sem sannir heiðursmenn buðu ÍR-ingamir þeim kampavín og snittur eftir leikinn //Okkur tókst mjög vel að eiga við svæðisvörnina þeirra# einkum vegna þess hve spilið var miklu hrað- ara en áður. Auk þess var vörnin hjá Í.R. ákaflega opin og mínir menn fengu nógan tima til þess að athafna sig. Þetta verður ekki svona auðvelt gegn Val," sagði Gunnar Gunnarsson, þjálfari K.R.,þegar að hans menn voru orðnir bikarmeistarar í körfu- knattleik eftir stórsigur gegn i.R. 87-72. „Við sjáum hvort liðið sigrar eftirfyrstu 5min. leiksins,” sagði Tim Dwyer, þjálfari Vals, fyrir leikinn og það reyndust orð að sönnu. K.R.-ingarnr tóku öll völd i sinar hendur strax i byrjun og hreinlega hökkuðu l.R.-ingana i sig, 10-0, 16-8 og 25-12. A þessum kafla léku vesturbæingarnir mjög hraðan körfubolta og hittnin var eins og hún gerist best hjá islenskum liðum. Þaö var athyglisvert, að K.R. átti u.þ.b. 80% allra frákasta á upphafs- minútunum. Hittnin hjá Í.R. var alveg i lágmarki og þeim tókst ekki aö minnka forskotið að ráði fyrir hálfleik, 32-19, 40-26 og 42-30. I seinni hálfleiknum reyndi Í.R. að beita svæðisvörn, en hún gekk vel hjá Fram um daginn gegn K.R. Þetta herbragð heppnaðist illa i upphafi, 50—36 og 53-38, en gaf góða raun I stutta stund nokkru siðar, 53-46 og 59-52, þegar K.R.-ingarnir hittu mjög illa, einkum Hudson. Næstu mlnútur voru nokkuð spennandi og leikur- inn var I jafnvægi, 67-56. Nú ruddust K.R.-ingarnir framúr með hávaöa og látum, likt og i byrjun, 76-58 og 81-64. Hraöa- upphlaupin voru þeirra sterkasta vopn og við þau réð l.R. ekki. Nú var nánast formsatriöi að ljúka leiknum og öruggur K.R. sigur I höfn 87-72. „Þeir voru einfaldlega betri, jafnari, grimmari og ákveðnari. Þvi fór sem fór. Þetta var fyrsti leikur okkar hér i höllinni I vetur og kann 'það að skýra lélegan leik okkar að nokkru. Menn voru ákveðnir I þvi, að berjast, en orðin urðu ekki að athöfn þegar i leikinn var komiö. Þá var hittnin hjá okkur alveg I lágmarki og engin barátta um fráköstin. Það má koma fram, að dómararnir i þessum leik voru góðir,” sagði Kristínn Jörundsson.fyrirliði l.R. að leik loknum. Við þetta má bæta, að undirrituðum fannst bekkstjórnin hjá l.R. vera slök og oft á tiðum tilviljanakennd. K.R. sýndi alveg nýja hlið á sér i þessum leik með þvi að kaffæra l.R. með hröðum leik. Allir voru sprækir og sýndu eitt spariandlit, sér i lagi hinir svokölluöu minni spámenn, Arni og Þröstur, sem skoraði úr öllum skottilraunum sinum. Jón, Hudson, Einar, Birg- ir og Garöar áttu allir góðan leik. Stigin fyrir t.R. skoruðu: Stewart 28, Jón 16, Kristinn 14, Kolbeinn 12 og Erlendur 4. Fyrir K.R. skoruöu: Hudson 19, Einar 17, Jón 17, Garðar 10, Arni Framhald á blaðsiðu 14. . Þetta er dæmigert atriði úr leik K.R. og t.R. Birgir fær að skjóta úáreittur og Hudson hefur náð að stiga af Stewart. „Þetta var næst ísíðasti stórleikur- rnn ITIlTlfl ^ sagði kempan Einar Bollason, sem hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir þetta keppnistímabil IA sunnudaginn varð Einar Bollason, K.R., bikarmeistari I körfuknattleik I 8. sinn eða I • ÖU skiptin sem K.R. hefur Isigrað í þessari keppni. Einar sem hefur staðið I eldlinunni I mfl. I 18 ár gaf þá yfirlýsingu , eftir úrslitaleikinn að hann Imyndi hætta I boltanum i vor. ' — Jú, þaö er satt aö ég hætti ■ eftir leikinn gegn Val. Þetta er Ibúið að taka svo mikinn tima frá manni að erfitt er að standa i þessu öllu lengur. Ég ■ er búinn að vera I sigurliöi I gegn l.R. i siðasta sinn og á aöeins eftir að vera I sigurliði gegn Val i slðasta sinn þó aö sá róöur verði eflaust öllu erfið- ari. I þessum leik var það fyrst og fremst frábær varnarleikur I byrjun sem skóp sigur okkar, viö tættum þá I okkur. Þá má segja, aö mikill munur sé á þessum liöum hvað varðar grimmd i fráköstum. — Það er alltaf jafn gaman að leika gegn I.R., þeir eru frábærir iþróttamenn og að minu mati er t.R. með prúð- asta liðið I úrvalsdeildinni. IngH HK nældi sér í dýrmæt stig „Þaö var mikið I húfi fyrir okk- ur I þessum leik og við hreinlega urðum að vinna og það tókst. Reyndar var mikið um mistök á báða bóga, en gæfumuninn gerði, að við höfðum betri markvörð. Já, þessi stig koma til með að verða okkur dýrmæt I fallbarátt- unni,” sagði þjálfari H.K., Axel Axelsson, eftir sigur hans manna gegn F.H. á laugardaginn 22-20. FH. skoraði fyrsta mark leiks- ins, en stuttu siðar tóku H.K.- strákarnir öll völd á vellinum, 5-2, 8-5 og 9-7. t hálfleik voru Kópa- vogsbúarnir með 3 mörk I forskot, 11-8. Hafnfirðingarnir reyndu allt hvað þeir gátu til þess aö minnka muninn I seinni hálfleiknum, 12- 10,14-13,17-15 og 20-18, en H.K. gaf sig ekki og þeirra varð sigurinn i leikslok 22-20. Hafnfirðingarnir voru allir slakir i þessum leik, að Geir og Guömundi Arna undanskildum. Geir var tekinn úr umferð mest- allan leikinn, en skoraði samt grimmt. Annars varö varnarleik- urinn FH. að falli, þeir voru nánast „á hælunum” allan leik- inn. Strákarnir i H.K. eru alltaf jafn baráttuglaðir og oft er þessi barátta undirstaða sigra. A laugardaginn var barist og aftur barist ásamt mikilli leikgleði og við þessu átti F.H. ekkert svar. Þrir menn stóðu nokkuð uppúr i þessum leik, þeir Stefán, Hilmar og Einar, markvöröur, sem nú á hvern stórleikinn á fætur öbrum. Mörkin fyrir F.H. skoruðu: Geir 10 (5v), Guðmundur A. 6, Kristján 2 og Guðmundur M. 2. Fyrir H.K. skoruöu: Stefán 9 (3v.), Hilmar 5, Jón 2, Ragnar 2 (lv.) Kristinn 1, Friðjón 1, Gunnar 1 og Karl 1, en hans mark var sérlega mikilvægt þar sem þaö innsiglaði sigurinn, 22. mark- ið. IngH Enska knatt- spyrnan Liverpool að ná yfirburða-; stöðu Evrópumeistarar Liver- pool unnu góðan sigur gegn Ipswich á laugardagtnn og hafa þeir nú 5 stiga forskot á næsta lið. Þannig er „rauði herinn” aö ná vlgstöðu sem ekki verður svo auðveldlega brotin niður. Annars var þaö athyglis- vert hve mörg mörk voru skoruð 11. deildinni á laugar- daginn eða 31 mark I 12 leikjum og aöeins 4 liöum tókst ekki að koma tuðrunni I net andstæöinganna. Þá eru það úrslitin ogstað- an: 1. deild: Ar senal — Man. City 1:1 A-Villa —Tottenham 2:3 Bo lto n — Southam pton 2:0 Chelsea — Wolves 1:2 Liverpool — Ipswich 2:0 Man.Utd. —Leeds 4:1 Middlesb.—Birm.h. 2:1 Norwich— BristolC. 3:0 Nott. Forest — Coventry 3:0 WBA-QPR 2:1 2. deild: Blackburn —Preston 0:1 BristolR. — Oldh. 0:0 Burnley — Ch arlton 2:1 Cambridge — Brighton 0:0 Cardiff—Stoke 1:3 Luton — C. Palace 0:1 Miilwall — NottsC. 0:1 Sheff. Utd. —Leicester fr. Sunderland —Orient 1:0 West Ham — Newcastle 5:0 Wrexham — Fulham 1:1 Að loknum þessum leikj um er staðan 11. nú þannig: og2. deild 1. deiid Liverpool 30 63-11 48 Everton 32 43-27 43 WBA 27 55-26 40 Arsenal 31 48-28 39 Leeds 31 55-39 38 Nott.For. 27 34-18 37 Man.Utd. 29 47-48 33 Coventry 33 41-55 33 Norwich 32 43-43 32 Tottenham 30 34-45 32 A. Villa 28 32-27 31 Ipswich 31 39-38 30 Southampt. 29 34-34 29 Bristol City 33 36-43 29 Man. City 29 41-37 27 Middlesbro 3 1 44-42 27 Derby 31 33-52 25 Bolton 29 36-52 23 Wolves 30 28-52 22 QPR 32 31-51 20 Chelsea 31 31-63 15 Birmingham 30 26-47 1 3 2. deild Brigthon 34 57-30 45 Stoke 32 46-26 43 CPalace 31 39-20 41 Sunderland 32 52-37 40 West Ham 30 60-29 38 Notts. Co. 30 42-45 35 Burnley 30 44-42 33 Fulham 30 38-33 32 Orient 33 43-41 32 Preston 31 44-45 31 Cambridge 32 40-41 31 Charlton 32 52-54 29 BristolRov. 30 40-49 29 Luton 31 48-42 28 Leicester 30 32-34 28 Newcastle 29 22-3 1 27 Wrexham 27 32-26 26 Oldham .30 29-51 2^ Cardiff 29 36-59 24 Sheff. Utd. 30 33-49 22' Millwall 28 26-44 17 Blackburn 29 27-45 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.