Þjóðviljinn - 27.03.1979, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJóÐVILJINN ÞriöÍudagur 27- mars 1979
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma; verkalýös-
hreyfingar og þjóðfrelsis
X tgeíandi: Útgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Kitstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg HarÖardóttir
Rekstrarstjóri: Úlfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar 'SkarphéÖinsson
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón
Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ingólfur Margeirsson, Magnús
H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson. Erlendar fréttir: Halldór GuÖ-
mundsson. tþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaö-
ur: Siguröur G. Tómasson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir SigurÖsson.
Afgreiösla: Guömundur Steinsson, Hermann P. Jónasson, Kristin Pét-
ursdóttir.
Símavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigriöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Útkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6, Reykjavik. simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Enginn hefur efni
á að hafna
áskorun VMSl?
• Kjarninn í ályktun formannafundar Verkamanna-
sambandsins er sá að standi ríkisstjórnin við upphafleg
markmið sín og fyrirheit muni ekki skorta á stuðning
verkafólks. Það væri mjög misráðið ef stjórnar-
flokkarnir teldu sig hafa efni á því að hafna slíkri
stuðningsyfirlýsingu. Tilgangur Verkamannasam-
bandsins með því að hvetja til myndunar núverandi
stjórnar síðastliðið sumar var að fá vinveitt ríkisvald
,,sem hefði félagsleg umbótamál á stefnuskrá sinni,
tryggði fulla atvinnu, verndaði kaupmátt lægstu iauna
og stefndi að auknum kaupmætti verkafólks, jafnframt
því að stöðva þá óðaverðbólgu sem hrjáð hefur alþýðu-
' heimilin í landinu."
• Vandi ríkisstjórnarinnar er að hún tók að sér að vinna
samhliða að öllum þessum verkefnum. Alþýðuflokkur-
inn og Framsóknarflokkurinn hafa talið nauðsynlegt að
skerða kaupið meðan unnið væri að þv? að koma verð-
bólgunni niður og röksemdir þessara flokka eru mjög á-
þekkar þeim sem ríkisstjórn Geirs Hallgrímssonar beitti
í kauplækkunartilraunum sínum. Alþýðubandalagið
hef ur að sínu leyti barist fyrir því að kaupmætti verka-
fólks yrði haldið óbreyttum á sama tima og verðbólgu-
stigið væri lækkað með samræmdum hagstjórnarað-
gerðum. A þessu stigi er ekki Ijóst hvort að tillögur
Verkamannasambandsins megna að leysa þann hnot
sem stjórnin hangir nú í, en víst er að Alþýðubandalagið
mun að sjálfsögðu berjast fyrir að þær nái fram að
ganga.
• Tillögur Verkamannasambandsins um breytingar á
verðbótakafla frumvarps forsætisráðherra um efna-
hagsmál lúta fyrst og fremst að því að þær form-
breytingar sem gerðar verða á vísitölukerf inu leiði ekki
til viðvarandi verðbótaskerðingar og að útreiknings-
grunnurinn verði óbreyttur eins og um hann var samið í
síðustu kjarasamningum. Þá er það meginhugsunin i á-
lyktun VMSI aðsú launalækkun sem af frombreytingun-
um leiddi verði síst látin koma niður á almennum verka-
mannatekjum. Lögð er áhersla á þá hugmynd að greiða
með vísitölubótum samkvæmt fraumvarpinu sérstaka
fasta launauppbót, jafnháa upp að tilteknu launamarki.
• Þessi hugmynd er í fullu samræmi við samstarfs-
samning stjórnarf lokkanna, þar sem rætt er um að við-
halda kaupmætti lægri launa, en í andstöðu við þá pré-
dikun Alþýðuf lokksins að allir verði að fórna i barátt-
unni gegn óðaverðbólgunni. Það reynir því fyrst og
fremst á kratana í sambandi við það hvort tillit verði
tekið til tillagna Verkamannasambandsins. En minna
má á að í forystusveit sambandsins eru áhrifamenn úr
öllum stjórnarf lokkunum, og eins og viðbrögðin við yf ir-
vofandi stjórnarslitum hafa verið sterk um allt land á
síðustu vikum er engum vafa undirorpið að ályktun for-
mannaf undarins túlkar almennan vilja verkafólks en er
engin einkaskoðun formannanna.
• I ályktun formannafundarins er lýst stuðningi við
ýmis atriði í frumvarpi forsætisráðherra og baráttu
stjórnarinnar gegn verðbólgunni. Þá eru rakin nokkur
atriði sem vel haf.i tekist í samstarf i launafólks við ríkis-
stjórnina. Þá lýsti fundurinn þeirri eindregnu ósk sinni
að áfram geti tekist gott samstarf á þessu sviði, en
minnti um leið á að grundvöllur þess samstarfs yrði að
vera, „að áfram verði tryggð full atvinna og stefnt
markvisstað bættum kjörum verkafólks og féiagslegum
umbótum."
• Það er skoðun Þjóðviljans að enginn stjórnarfiokk-
anna hafi efni á því að hunsa áskorun VMSf um að
ganga til samkomulags um efnahagsmálafrumvarpið
þannig að megináhersla verði lögðá að vernda kaupmátt
láglaunafólks. Það hefur komið áþreifanlega í Ijós á
þeim óvissutímum sem ríkt hafa á stjórnarheimilinu síð-
ustu daga, að verkafólk bindur miklar vonir við þetta
stjórnarsamstarf. Á þetta leggur Verkamannasam-
bandið áhreslu um leið og það bendir á að ríkisstjórnin á
mikið verk að vinna, sem rétt er nýhafið.
1
Stöðvið
Alþýðuleikhúsið
Um tíma var dagblaöið Vlsir
aö reyna aö tryggja sér
nokkrar vinsældir meö því aö
brosa óháöu umburðarlyndis-
brosi. Nú hefur hinsvegar
brugöiö svo við, aö meö nýjum
ritstjóra, Herði Einarssyni,
hefúr sá kostur verið valinn aö
heröa mjög á hægriviðhorfum,
og er Visir þar kominn aftur i
leiðari blaösins var helgaður
þvi, aö nú vildu Rússar nota
„kommúnista i borgarstjórn og
rikisstjórn sem fara með viö-
skiptamál, orkumál og sam-
göngumál” til að koma sér upp
oliustöövum fyrir flota sinn.
Þetta upphlaup fékk einstak-
lega hægt andlát daginn eftir,
þegar yfirlýsing kom i blaöinu
frá þeim mönnum sem undan-
farin ár hafa annast oliukaup
frá Sovétrikjunum. Yfirlýsing-
unni lýkur með svofelldum
hætti:
„Aldrei hefur veriö minnst á,
aö Sovétmenn tækju nokkurn
þátt I byggingu oliustööva, en
vitaö er, aö sovésk fyrirtæki
Leikhús sem mill iliður attborgaranna. Og ðan herstöðvaand- ■allaða. Með þessu iningur látinn taka stnaöi herstöðva- — í gegnum einn ðuleikhúsið.
Frétt Visis í Alþýðuleikhús starfsemi sv stöðvaandstæði láta renna til gangseyri að he ur að vekja un< vtmm Utgefartdi: Reykjaprent h/f Framkvaemdastjóri: Davlö Guðmundsson Ritstjórar: ölafur Ragnarsson Hörftur Einarsson
Athugasemd við skrif Morgunblaðsins um bygg- ingar olíustöðva á Islandi
heföbundiö hlutverk sitt ein-
hversstaöar hægra megin við
miöju Sjálfstæöisflokksins.
Hinn nýi ritstjóri sýnist eink-
um og sér i lagi hafa áhuga á
þvi aö taka þátt i aö móta
menningarmálastefnu Sjálf-
stæöismanna. A dögunum geis-
aöi blaöiö mjög út af þeirri
ósvinnu, sem talin var, aö
menningardagar Herstööva-
andstæöinga færu fram á Kjar-
valsstööum. Nú um helgina er
röðin svo komin aö Alþýöuleik-
húsinu, sem einnig kom nokkuö
viö sögu menningardaganna.
Um þaö ágæta leikhús segir
leiöari blaösins á laugardaginn
var:
„Auövitaö hafa þeir, sem meö
fylgjast, gert sér ljóst, aö
Alþýöuleikhúsinu hefur verib
ætlaö aö vera ein af þjónustu-
stofnunum kommúnista. En all-
ur almenningur hefur ugglaust
ekki gertsér grein fyrir þessu.
Nú liggur þetta fyrir.
Af þessu tilefni ber Visir fram
áskoranir á eftirtalda aöila:
A opinbera fjárveitingaraö-
ila: Hættiö fjárframlögum til
Samtaka herstöövaandstæöinga
i gegnum Alþýöuleikhúsiö!
A skólayfirvöld: Hættiö aö
láta nota skólana til aö smala
skólabörnum á leiksýningar hjá
þessu leikhúsi og styrkja þar
meö starfsemi þeirra afla, sem
vilja grafa undan öryggi lands-
ins! ”
Þaö þarf enginn aö efast um
þaöhvar Visir er niöur kominn i
menningarmálum — og þaö er
ekki nema þakkarvert aö menn
skuli ekki reyna aö þykjast vera
neitt annaö en þeir eru.
Olíustöðin
sem
hvarf
Morgunblaðiö rauk upp með
miklum fyrirgangi á föstudag:
myndu hafa áhuga á aö selja
hingað efni i oliustöðvar, eins og
fyrirtæki annarra landa. Þetta
gefur sarnt ekki aö okkar
dómi neitt tilefni til frétta-
flutnings um, að Sovétmenn
vilji byggja ollutanka á íslandi.
Indriöi Pálssoin
Viihjálmur Jónsson
Þdrhallur Asgeirsson
önundur Ásgeirsson”.
Fáfróðir um
hernað
Klaas de Vries heitir hol-
lenskur þingmaöur og áhrifa-
maöur meðal sósialdemókrata i
sinu landi. Hann hefur i nýlegu
viötali við danska blaöið
Information gagnrýnt mjög
harðlega ósjálfstæöi og fáfræði
evrópskra stjórnmálamanna
umvarnarmál og mælt erstak-
lega meö þvi, aö sósialdemó-
kratarreyniaökomasér saman
um endurskoðun á stöðu Evrópu
i þeim efnum. Klaas de Vries
segir meðal annars:
„Evrópa hefur ekki átt sér
neina öryggismálastefnu siöan
siðari heimsstyrjöldinni lauk.
Eina undantekningin er ákvörð-
unin um aö taka þátt i Nato, en
siðan höfum við látiö Banda-
rikjamenn um afganginn. Við
höfum ekki skilgreint með sjáif-
stæðum hætti þær styrjaldar-
hættur sem uppi voru og nauð-
synleg viöbrögð gegn þeim...ég
hefi oft tekið þátt i umræðum
um varnarmál með evrópskum
þingmönnum og þaö er mjög á-
berandi hve fáfróöir þeir flestir
eru auk þess sem þeir fá rangar
upplýsingar.”
Evrópsk
endurskoðun
Klaas de Vries nefnir nokkur
dæmi um það hvernig herfor-
ingjar Nato fóðra stjórnmála-
menn á röngum upplýsingum.
Siðan minnist hann á nauösyn
þess að frumkvæöi um slökun
spennu komi frá Evrópu. I
fyrsta lagi, segir hann „geta
risaveldi ekki stafað saman i
raun og veru, þau geta aðeins
horfet i augu og ekki látið und-
an. 1 öðru lagi geta Bandarikja-
menn ekki hugsaö um Rússa
meö eðlilegum hætti. Þeir eru
gripnir móöursýki hvenær sem
minnst er á sósialista eða
kommúnista... Evrópa er i öll-
um skilningi betur sett. Á
vinstri armi evrópskra stjórn-
mála höfum vib alltaf getað
þjarmað að Rússum meö þvi aö
benda á, aö þeir risi ekki undir
þeim hugsjónum sem vinstri-
sinnar um heim allan játa. 1
ööru lagi er Vestur-Evrópa
heppilegri vettvangur til
tengsla ýmislegra vegna þess
hvernig hún er i sveit sett. Og i
þriðja lagi erum viö vanir aö
eiga viö kommúnista”....
Allavega, segir de Vries,
„veröur Evrópa að læra aö
standa á eigin fótum og gegna
virku og sjálfstæöu hlutverki i
alþjóðamálum”.
áb.
Klaas deVries; stjórnmálamenniirnir hafa misst öll tök á Nató.
R-i
—ekh