Þjóðviljinn - 27.03.1979, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 27. mars 1979
Söluskattur
Hér með úrskurðast lögtak fyrir van-
greiddum söluskatti vegna viðbótarálagn-
ingar 1977 og eldri ára, sem á hefur verið
lagður i Kópavogskaupstað i mars 1979.
Fer lögtakið fram að liðnum 8 dögum frá
birtingu úrskurðar þessa.
Jafnframt úrskurðast stöðvun atvinnu-
rekstrar þeirra söluskattsgreiðenda sem
eigi hafa greitt ofangreindan söluskatt
vegna 1977 og eldri ára. Verður stöðvun
framkvæmd að liðnum 8 dögum frá birt-
ingu úrskurðar þessa.
Bæjarfógetinn i Kópavogi
21. mars 1979.
RÍKISSPÍTALARNIR
Lausar stöður
LANDSPÍ TALINN
Tvær stöður AÐSTOÐARLÆKNA við
Barnaspitala Hringsins eru lausar til um-
sóknar. Stöðurnar veitast i 6 mánuði frá 1.
mai ri.k.
önnur staðan er laus nú þegar.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 23. april.
Upplýsingar veitir yfirlæknir Barnaspit-
alans.
SÉRFRÆÐINGUR i handlækningum ósk-
ast til afleysingastarfa við handlækninga-
deild vegna sumarleyfa og vaktafria til
lengri eða skemmri tima. Fullt starf eða
hlutastarf.
Umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist Skrifstofu rikisspital-
anna fyrir 23. april.
Upplýsingar veita yfirlæknar handlækn-
ingadeildar.
Staða SÉRFRÆÐINGS i geðlækningum
við Geðdeild Landspitalans er laus til um-
sóknar. Umsóknir er greini frá aldri,
menntun og fyrri störfum sendist Skrif-
stofu rikisspitalanna fyrir 23. april. Upp-
lýsingar veitir starfsmannastjóri i sima
29000.
Tvær stöður AÐSTOÐARLÆKNA við
Geðdeild Landspitalans eru lausar til um-
sóknar. Umsóknir er greini frá aldri,.
menntun og fyrri störfum sendist Skrif-
stofu rikisspitalanna fyrir 23. april. Upp-
lýsingar gefur starfsmannastjóri i sima
29000.
HJÉKRUNARDEILDARSTJÓRI óskast
til starfa við Geðdeild Landspitalans.
Einnig óskast GEÐHJÚKRUNARFRÆÐ-
INGAR til starfa við Geðdeild Landspital-
ans. Upplýsingar gefur starfsmannastjóri
i sima 29000.
LÆKNARITARAR óskast til starfa við
Geðdeild Landspitalans. Stúdentspróf eða
hliðstæð menntun áskilin, ásamt góðn
vélritunarkunnáttu. Umsóknir berist til
Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 23. april.
Upplýsingar gefur starfsmannastjóri i
sima 29000.
Reykjavik, 25. mars, 1979.
SKRIFSTOFA
RÍKISSPiTALANNA
EIRÍKSGÖTU 5. SÍMI 29000
Leiðindavertíð
segir Guðmundur
Skúli Bragason
útibússtjóri um
rækjuveiðamar
Þetta hefur veriö leiöindavertlö
frá upphafi til enda. 1 fyrsta lagi
var ekki hægt aö hefja hana fyrr
en eftir áramót vegna mikils
seiöafjölda á rækjumiöum og
eftir aö hún byrjaöi hefur smá
rækja, eins til tveggja ára gömui,
veriö uppistaöan i aflanum, sagöi
Guömundur Skúii Bragason úti-
bússtjóri Hafrannsóknarstofn-
unarinnar I samtali viö Þjóövilj-
ann I gær, en rækjuvertiöinni lauk
á föstudag.
Aöeins voru veidd 1600 tonn á
vertíöinni og þykir þaö litiö miöaö
viö venjulega vertiö. Upphaflega
var ákveöiö aö veiöa mætti 2400
tonn en sú tala var siöan færö
niöur 1 1700 tonn vegna smárækj-
unnar og fyrir helgi var sú á-
kvöröun tekin af sjávarútvegs-
ráöuneytinu aö stööva viö 1600
tonn. Var þaö bæöi vegna smá-
rækjunnar og einnig vegna þess
hve sild var oröin mikil I aflan-
um.
Guðmundur Skúli sagöi aö þessi
friöun núna ætti aö koma rækju-
sjómönnum til góöa á næsta ári
þar sem tveggja ára rækjan
veröur þá oröin mun stærri og
betri. Eitthvaö hefur veriö um 4
ára rækju i aflanum i vetur en 3
ára rækja sést ekki.
Óánægja hefur veriö hjá
sjómönnum i Bolungarvík aö
undanförnu vegna þess að þeir
uröu aö hætta fyrr á veiöum
vegna þess kvótafyrirkomulags
sem veriö hefur i gildi. Sérstakur
kvóti er settur á hvert byggöarlag
og er þá miöaö viö rækjuverk-
smiöjurnar á hverjum staö. Fleiri
bátar lönduöu i rækjuverksmiöj-
una I Bolungarvlk en i aðrar
verksmiöjur og kom þvi minni
afli á hvern bát þar og uröu þeir
þvl aö hætta fyrr. Sjómennirnir
vildu hins vegar fá aö róa jafn-
lengi og aörir sjómenn viö Djúp.
Um borö i rækjubátnum Bryndisi i siöasta mánuöi. Aöeins um 1600 tonn
veiddust á þessari vertiö i tsafjaröardjúpi (Ljósm.: Leifur)
Borgarbókasafn Reykjavikur
Tvær stöður bókasafnsfræðinga og ein
staða skrifstofumanns eru lausar til um-
sóknar. Launakjör fara eftir samningum
við Starfsmannafélag Reykjavikurborg-
ar. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsing-
um um menntun og fyrri störf sendist
borgarbókaverði fyrir 20. april n.k. Nán-
ari upplýsingar gefur undirritaður.
Borgarbókavörður
Hið íslenska kennarafélag
boðar til almenns fundar i Menntaskólan-
um við Hamrahlið þriðjudaginn 27. mars
kl. 20.30
Fundarefni:
Samningsréttarmál i framhaldi af viðræð-
um BHM og rikisvaldsins um niðurfell-
ingu 3% launahækkunar 1. april n.k.
Stjórnin
—GFr
Bruni á Skaga:
íbúðarhús
gjöreyði-
lagðist
Húsiö aö Vesturgötu 21 á Akra-
nesi gjöreyöilagöist ibruna igær-
morgun. Húsiö var álklædd timb-
urbygging og hét áöur Indriöa-
staöir. Einn maöur var i húsinu
og sakaöi hann ekki.
Stefán Bjarnason yfirlögregiu-
þjónn á Skaga tjáöi blaöinu aö
hringt heföi veriö i lögregluna um
7 leytiö, en litiö væri hægt um
máliö aö segja þar eö ekki heföi
reynst unnt aö yfirheyra þann er I
húsinu vistaöist vegna þess hve
ölvaður hann var. Maöurinn var
enn ekki kominn til þeirrar heislu
aö hægt væri aö yfirheyra hann
um þrjúleytið I gær.
Lögreglan á Akranesi hefur
samfellda vakt á Lögreglustöð-
inni milli klukkan 8.30 og 4.30 aö
morgninum en milli klukkan 4.30
og 8.30 gefur slmsvari á stööinni
fólki upp heimasima vakthafandi
lögregluþjóns. Meðal verkefria
lögreglunnar þar í bær er aö kalla
út slökkvilið oger sérstaklega til
þess gert kalltæki á lögreglustöö-
inni. Sagöi Stefán aö umræddan
morgun hafi vakthafandi lög-
regluþjónn átt óvenju skammt aö
faraog þvi hafi veriö brugöiö eins
skjótt viö og mögulegt væri á
þessum tima sólarhrings. Hann
sagöi aö þetta kerfi væri umdeilt,
en lögreglan yröi leyst undan
bruna- og sjúkravakt á næsta
hausti aö eigin ósk og fengnu
samþykki ráöuneytis.
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum.
Smiðum eldhúsinnréttingar: einnig við-
gerðir á eldri innréttingum. Gerum við
leka vegna steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33, simar 41070 og 24613
5 i nf óniuhljómsuE it
Islands
ÓPERUTÓNLEIKAR
1 Háskólabiói n.k. fimmtudag 29.
mars 1979 kl. 20.30.
Verkefni:
Verdi — Aria og dúett úr óp. Grimudansleikurinn
Verdi — Ballettmúsik úr óp. Aida
Verdi — „Celeste Aida” Ur óp. Aida
Verdi — Forl. að óp. I vespri siciliani
Bellini — Forl, aö óp. Norma
Puccini — „Vissi d’arte” úr. óp. Tosca
Puccini — „Turnarlan” úr óp. Tosca
Puccini — Ariur og dúett úr óp. La Boheme
Stjórnandi
Jean-Pierre Jácquillat
Einsöngvarar:
Radmila Bakocevic, sópran.Scala óperan i Milanó)
Piero Visconti, tenór (Scala óperan I Milanó)
Aðgöngumiðar
i bókaverslunum Lárusar Blöndalog
Sigfúsar Eymundssonar
og við innganginn.