Þjóðviljinn - 27.03.1979, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 27.03.1979, Qupperneq 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN ÞriBjudagur 27. mars 1979 Þriðjudagur 27. mars 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 Margrét óskarsdóttir stjórnandi námskeiðsins og Sigurbjörg Magnús dóttir. Dimmt kvöld I febrúar. Aldan hjaiar hljóölega við f jörusteina og skeljar i Hnifsdal við Djúp, en skuggar f jalirisanna skera skyjað ioftið eins og egghvassir hnifar. Hvergi sést maður á ferli. Blaða- maður og ljósmyndari Þjóðvilj- ans ganga inn I ævintýralegt hús sem stendur þar keikt á strönd- inni undir háum bökkum. Það er málað kynjaverum utan og þegar komið er inn er manni svipað innanbrjósts eins og Lisu á leiö til Undralands. Þetta er Selið, eign Litla leikklúbbsins á lsafirði. Inni kveða viö hlátrasköll sem eru i klárri mótsögn við draugalegt og þögult næturhúmið úti fyrir. Þar fer fram námskeið i leikrænni tjáningu og ieikgreiningu undir stjórn hinnar galvösku og si- hressu Möggu óskars. Umræður um Tobacco Road A miðju gólfi I stórum sal situr hópur fólks i hrókasamræðum. Þjóðviljamenn laumast meö veggjum og láta fara sem minnst fyrir sér. Þeir heyra tiðum nefnd orð eins og kúgun, bankavald, vanmáttur og kreppa. Það er verið að ræða leikritið Tobacco Road, sundurgreina það i smæstu smáatriöi og skilja út kjarna þess. Eftir nokkra hrið er gert hlé á, og þá er Þjóðviljamönnum boðið upp á te og kex og þeir fá tækifæri til að ræða svolitið viö þennan friska hóp. Margrét segir að námskeiðið standi i mánuð og komið sé saman fjórum sinnum I viku. Leikgreind eru nokkur leik- rit, kennd leikræn tjáning og undirstöðuatriði i framburöi. Að lokum er kvöldskemmtun. Svona námskeið hafa verið fastur liöur undanfarin ár. Maður lærir að anda með tánum En hvers vegna er fólk sem vinnur hörðum höndum fyrir Látbragðsleikur. Fremst eru Elvar og Aðalsteinn. stelur fæti eftir Dario Fo og það gekk ágætlega. Arshátiö Litla leikklúbbsins er höfuðviöburður á hverju ári. 1 vetur var hún helguð þemanu ASTog voru flestir virkj- aðir til að koma þar fram eða leggja eitthvað af mörkum. „Það var reglulega fjörugt og okkur taldist til að alls 42 menn hefðu komið þar fram og sýnt”, segir Margrét. Nýtt leikhús á ísafirði Við snúum okkur nú að Trausta Hermannssyni en hann er for- maður Litla leikklúbbsins. Við spyrjum hann hvernig félagið hafi komist yfir þetta ágæta æfingahúsnæði i Hnifsdal. Hann segir að þetta hús hafi upphaflega veriö reist sem tré- smiðaverkstæði sem starfrækt var þar i nokkur ár. Svo fór það á hausinn og Litli leikklúbburinn keypti húsið af bankanum og yfir- tók þar með skuldirnar. Nú stend- ur til að koma upp leikrita- og ljóðasafni i húsinu. Trausti segir nú að sé vá fyrir dyrum i leiklistarmálum klúbbs- ins. Það standi fyrir dyrum að breyta Alþýðuleikhúsinu á þann hátt að ekki verði framar hægt aö leika i þvi. Hafi hann þvi auga- stað á að kaupa skemmu Vega- gerðar rikisins við Hjallaveg sem ætlunin hefur veriö að rifa og breyta henni i leikhús og yrði þá Selið að sjálfsögðu selt. Skemma I-) IX, O T3 Ö >> skeiði i MI og hef ekki stoppað siöan en lagast mikið i umgengni engu að siður”. Elvar Einarsson úr Súganda- firði er lika i Ml. Hann segir „Tja” þegar hann er spurður hvers vegna hann taki þátt i nám- skeiöinu (Hann er seintekinn greyið, skýtur einhver velviljaður aö). Hann lék i Rauðhettu eftir Schwarz i fyrra. ,,Eg lék prins en ekki dverg” bætir hann við. Timafrekt að æfa leikrit. Þá er hringnum lokað. A þessu námskeiði eru fjögur leikrit greind. Auk Tobacco Road eru það Kertalog eftir Jökul, Heiðurs- borgarinn eftir Friel og Isjakinn eftir LQtzkardorf. Margrét segir að stundum hafi verið samin leik- rit á þessum námskeiðum. „Við fylgjum þá einhverri linu og fyll- um upp i. Það er mjög skemmti- legt”. I Litla leikklúbbnum eru tið mannaskipti og stjórn hans er i raunog veru það eina sem tengir hópana saman. Þetta er svo tima- frekt að æfa leikrit aö vinnandi fólk gætur ekki tekið þátt i sliku starfi nema af og til. Það getur enginn staðið i svona heilan vetur. Fólk verður að fá hvild á milli. Samt er fámennur kjarni sem oftast er með. 1 fyrra var sýnt leikritið Sá sem Umræður um Tobacco Road. F.v. Margrét, Halla, Guöný M, Laufey, Magnús, Guðný Hansen, Elvar og Fullkomin afslöppun Gunnar. „Fjör og ofsagaman’ á námskeiði hjá Litla leikklúbbnum á ísafirði fyrir vestan til að kynnast fólki og tekur þátt I starfi Litla leik- klúbbsins af áhuga. Hann lék á árshátið Litla leikklúbbsins við 42. mann. Svo upplýsist aö hann er myndlistarmaður. Teiknitækn- ir, bætir einhver við. Guðný Hansen er frá Patró (systirhans Daniels). Hún nemur annars við Menntaskólann. „Hér er fjör og ofsagaman”, segir hún en það hefði verið óþarfi, þvi að svipur hennar segir allt. Sigurbjörg Magnúsdóttir er fiskur frá Sandgerði þ.e.a.s. hún er i fiskamerkinu. Hún er lika I MI og þar er hægt að taka leiklist sem valgrein. Þær Guðný léku i Mjallhvit og dvergarnir sjö og ennfremur i einþáttungi eftir Arrabal sem kennarinn, Bryndis Schram, setti upp, Aðalsteinn Eyþórsson er bóndasonur frá Kaldaðarnesi I Flóa. Hann hefur tekið þátt i tveimur leiksýningum hjá Litla leikklúbbnum og einni hjá Menntaskólanum. „Þetta er æðislega gaman”, segir hann, „maður lærir allt milli himins og jarðar t.d. að anda með tánum”. Gunnar Ragnarsson er nemi i Ml, ættaður úr Mosfellssveitinni. „Ég spila lika á klarinett, en er laglaus og allslaus”, tjáir hann oss. „Tók þátt i leiklistarnám- brauði sinu að leggja þetta á sig? Við göngum á röðina: Halia Sigurðardóttir skrifstofu- maður segist aldrei hafa verið á svona námskeiöi áöui; en taki þátt i þvi af einskærum áhuga á leik- listinni. Guðný Magnúsdóttir segist vera snyrtitæknir i frystihúsi og hlær við. Hún er gamalgróin i leiklistinni á Isafirði. Hefur leikið af og til allt frá þvl að gamla Leikfélag Isafjarðar var við lýði. „Þetta er skemmtilegur og uppbyggilegur félagsskapur”, segir hún. Laufey Waagehefur tekið þátt I fjórum leiksýningum Litla leik- klúbbsins og þykir alltaf jafn gaman. „Þetta er þroskandi og allt það”, segir hún kankvis og þegar hún er spurð segist nún vera heimilistæknir. Magnús Pálsson frá Keflavik segist hafa það starf að vera á kaupi hjá Netagerðinni. Kannske er hann iðnaðarnjósnari. Hann er Myndastyttulcikur I fullum gangi. Til vinstri Gunnar Elvar og Haila. Fjær sést Magnús en til hægri Sigurbjörg, Margrét, Aöalsteinn og Laufey. Trausti Hermannsson formaður Litla leikklúbbsins: Við viljum kaupa skemmu Vegageröarinnar og gera úr henni leikhús. Kandidatar r l rektorskjöri: Fundurum mál- efni Háskólans Ekki beinlínis framboðsfundur segja fundarboðendur Félag háskólakennara heldur fund I Hátfðasal Háskólans kl. 4 e.h. miöövikudaginn 28. mars um málefni Háskólans: „Háskóli islands — hvernig er hann og hvernig ætti hann aö vera?” Stutt framsöguerindi halda prófessorarnir: Guðmundur K. Magnússon um „Sjálfstæöi Háskólans”, Sigmundur Guö- bjarnason um „Rannsóknastarf- semi Háskólans og tengsl hennar við atvinnuvegina”, og Sigurjón Björnsson um „Hlutverk Háskólans i þjóðfélaginu”. Siðan verða frjálsar umræður. Þótt sumir framsögumanna hafi verið bendlaðir við rektors- kjör, ber ekki aö lita á fund þennan sem framboösfund, heldur vettvang fyrir félagsmenn til að viðra skoðanir sínar á mál- efnum Háskólans. Þess er vænst, að félagsmenn sæki fundinn og taki þátt i um- ræðum, jafnvel þótt þeir verði aö gefa fri i timum til þess. Fundurinn er öllum opinn. Stjórnin. Frétt frá Félagi háskólakennara Iðnaðarráðuneytið: HugarQug um orkumál Þetta er ný aöferö til að nálgast málin og af hverju ættu ráðuneyf- in alltaf aö vera slöust en ekki fyrst til að notfæra sér nýjar hug- myndir? — sagði Tryggvi Sigur- bjarnarson, verkfræðingur, en hann var I byrjun þessarar viku fundarstjóri á hugarflugsfundum um breytt viðhorf I orkumálum vegna yfirvofandi veröhækkana á ollu. Ætlunin með slikum fundum er að fá fram sem flestar hugmynd- ir, þvl hlutfall góðra hugmynda eykst eftir þvi sem hugmyndirnar eru fleiri, sagði Tryggvi. Hugmyndirnar sem fram komu skipta hundruðum og héldu hóp- stjórar þeim til haga og flokkuðu þær. Finnbogi Jónsson, starfs- maður iðnaðarráðuneytisins mun taka hugmyndirnar til meðferöar og skrifa greinargerð um fund- ina. Niöurstööur verða slðan nýtt- ar við mótun tillagna um for- gangsverkefni i orkumálum á næstu árum, og sagöi Tryggvi að greinargerð um fundina ætti aö liggja fyrir eftir 2—3 mánuöi. Þaö var iönaðarráðherra, sem boöaði til þessara funda og voru kvaddir til 34 sérfrasðingar á sviði orkumála og gáfu þeir hug- myndafluginu lausan tauminn á tveggja daga fundum. Hópnum var skipt i fernt og tók hver hópur fyrir tvö eftirfarandi verkefna sem fyrir fundinum lá: 1. Nýting jaröhita. 1.1. Endurskoðun hitaveitu- framkvæmda 1.2. Hraðari jarðhitaleit 1.3. Nýting i efnaiðnaði og raforkuvinnsla. 2. Nýting vatnsorku. 2.1. Endurskoöun raforku- framkvæmda 2.2. Rafhitun og fjarvarmaveit- ur 2.3. Rafknúin flutningatæki. 3. Nýjar tegundir eldsneytis og nýjar orkulindir. 3.1. Framleiðsla eldsneytis með hjálp raforku 3.2. Framleiösla eldsneytis meö hjálp jarðvarma (Lifræn ummyndun) 3.3. Tilbúið eldsneyti úr kolum 3.4 Vindorka, bylgjuorka o.s.frv. 4. Ollusparnaöur. 4.1. Húshitun 4.2. Fiskveiðar 4.3. Samgöngur 4.4. Iðnaður. Þjóöviljanum er ekki kunnugt um að þetta nýstárlega funda- form hafi áður verið notað i ráðuneytunum hér á landi en i janúar sl. héldu Rannsóknaráö rikisins og Orkustofnun hugar- flugsfund um islenskan aðnað og orkumál i sambandi við iönaöar- framleiðslu. Þótti sá fundur gefa góðan árangur. -AI Fyrirlestur um lögfræði- aðstoð fyrir almenning 1 dag mun Ebbe Nielsen, skrif- stofustjóri I danska dómsmála- ráðuneytinu, halda fyrirlestur fyrir almenning á vegum laga- . deildar Háskóla Islands. Fjallar hann um efnið: Lögfræðiaöstoð fyrir almenning. Mun hann greina frá framkvæmd slfkrar aðstoðar á undanförnum árum i Danmörku og fleiri löndum. Fyrirlesturinn verður haldinn i stofu 101 i Lögbergi og hefst hann kl. 17.15. Settu upp aug/ýsingaski/ti án leyfis: Sóðaskapur í Nýlega var opnaður nýr veitingastaður I Austurstræti. Sóttu forráðamenn hans um leyfi til borgaryfirvalda að fá aö setja upp skilti úti I miðri götu með nafninu „Inn- stræti”. Borgarráö var samþykkt erindinu, en borgarstjórn ógilti samþykktina og sendi málið til umsagnar Umhverfismálaráös, þar sem þarna er um að ræöa mannvirki á al- mannafæri og hafa veröur fulla gát á þvl göngugötu hvernig og hvort augiýsingaskilti eru sett upp á götum bæjarins. Hvaö sem fólki finnst um þá málkennd sem felst i nafninu „Inn-stræti” verður að ætlast til þess af eigendum staðarins að þeir biði svars borgaryfirvalda viö málaleitan sinni. Þaö hafa þeir ekki gert og nú undanfarið hafa vegfarendur Austurstrætis ekki komist hjá þvi aö reka augun I þetta óhrjálega hrófatild- ur sem skellt hefur verið niður I blómabeð. —sgt „Sparivelta” hjá Sam\innubankanum Ný þjónusta, svokölluð //Sparivelta'V verður tekin upp hjá Samvinnubankan- um og útibúum hans f rá og með mánudeginum nk.. Er um að ræða nýtt jafn- greiðslulánakerf i, sem byggist á kerfisbundnum sparnaði, tengdum marg- víslegum lánamöguleik- um, að því er segir i frétt frá bankanum. Spariveltan er sniðin með þarf- ir sem flestra viðskiptamanna fyrir augum og skiptist I tvennt: Spariveltu-A og Spariveltu-B, sem svo aftur greinast I alls lli sparnaðar- og lántökuleiðir, mis- langar allt frá 3 mánuðum til 5 ára. SPARIVELTA-A býður upp á 25, 50 eða 75 þús. kr. mánaöarleg- an sparnaö i 3-6 mánuði, með jafnháum lánsréttindum og sama endurgreiðslutíma. Ekki þarf að ákveða timalengd sparnaðar um- fram 3 mánuði i upphafi. Þessi flokkur er einkum hentugur þeim, sem þarfnast skammtimaláns vegna ferðalaga, kaupa á innbúi og annarra timabundinna út- gjalda. SPARIVELTA-B býður upp á 15,25 eöa 35 þús. kr. mánaðarleg- an sparnað I 12-36 mánuði en þvi lengur sem sparað er verður hlut- fall láns af sparnaöi svo og endur- greiðslutimabil hagstæöara. Ekki þarf að ákveða timalengd sparn- aðar umfram 12 mánuði við upp- haf viðskipta. Hverjum og einum er heimilt að spara á fleiri en ein- um reikningi i þessum flokki. Framhald af bls. 9 Flugrán ekki rétt aðferð segir Ananda Marga Yoga-sa mtökin Ananda Marga Pracara Sanghar (AMPS) á Isiandi hafa sent frá sér fréttatilkynningu i tilefni af tilraun til flugráns, sem gerð var á dögunum á flugleiðinni Stokkhólmur — Moskva. Segir þar, aö AMPS hafi ekki staðið að baki flugráninu, heidur hafi þar verið um aö ræða sjálfstæðan verknaö þriggja einstaklinga, sem starf- að hafa innan hreyfingarinnar. Meðlimir innan AMPS á tslandi telja verknað þennan I andstöðu við siöferöisreglur raunsanns Yoga, sem samtökin byggja á. Flugrán er ekki rétta aðferðin til að vekja samúð fólks með samtökunum, og telja samtökin að hér hafi veriö um mistök þessara þriggja félaga að ræöa. Þeir hafi ekki ætlað að ganga I lið meö hryöjuverkamönnum, heldur hafi þeir ætlað að vekja athygli á málstað AMPS. Aðlokum segir að grunnur og grundvallartema AMPS felist i sanskritarsetningunni BABA NAM KEVALAM, sem þýðir: Kærleikurinn er allt sem er. ih

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.