Þjóðviljinn - 07.04.1979, Page 14
14 StÐA — ÞJOÐVILJINN Laugardagur 7. aprll 1979.
íþróttir um
helgina
BOLTAIÞRÓTTIR
Heldur rólegt er i bolta-
Iþróttunum um þessa helgi.
Úrslit eru fengin i öllum deild-
um handboltans nema aö eftir
er að leika um fallsæti og leik-
dagar ekki enn ákveðnir. t
körfuknattleiknum er allt
komið á hreint, en þó á eftir að
klára mót yngri flokkanna
eins og i handboltanum.
Bikarkeppni blakmanna er
enn ólokiö og I dag keppa kl.
16.30 i Hagaskólanum 1S og
Völsungur til úrslita i bikar-
keppni kvenna. Strax á eftir
þessum leik leika UMFL og IS
i undanúrslitum bikarkeppni
karia (kl. 18.00). Hinn undan-
úrslitaleikurinn verður i dag á
Akureyri kl. 14.00 og eigast
þar við UMSE og Vfkingur.
Fótboitinn rúliar um heigina
af fullum krafti. tBK og tA
leika i meistarakeppninni I
Keflavik i dag kl. 13.30. A
Reykjavikurmótinu verður
einn leikur i dag og eigast þar
við Þróttur -og KR og hefst
leikurinn kl. 14.00. A mánu-
daginn leika sföan Valur og
Armann kl. 20.00.
BADMINTON
Um þessa helgi er hápunkt-
ur vertiðar badmintonmanna.
tslandsmótið veröur háö I
Laugardalshöliinni og verða
keppendur frá 9 félögum, KR,
Val, TBR, BH, Vlkingi,
Gerplu, tA og TBS. Allir bestu
badmintopleikarar iandsins
verða með og er reiknað með
óvenju .spennandi keppni að I
þessu sinni.
Úrslitaleikirnir hefjast kl.
14.00 á morgun.
LYFTINGAR
Meistaramót KRI iyftingum
fer fram i dag i Jakabóli i
Laugardainum.'■•
ÍÞRÓTTIR I SJÓN-
VARPI
I þættinum i dag verða
myndir frá Holmenkollen
mótinu i skiðastökki, en hér
var um að ræða 100 ára af-
mælismót. Þá veröa myndir
frá sundmeistaramóti tslands,
sem ekki vannst timi til að
sýna i siðasta þætti. Einnig
verður rallakstur. Eitthvað
fleira veröur tint til, en i gær
gat Bjarni ekki fullyrt hvað
það yrði.
t ensku knattspyrnunni
verður leikur Birmjngham og
Leeds.
A mánudaginn verða mynd-
ir frá Evrópumótunum i
knattspyrnu, frá tslandsmót-
inu I badminton og svipmyndir
af Finlux rallinu, sem fram
fer um helgina. Loks verður
klykkt út með einni skautapiu,
eins og umsjónarmaðurinn
oröaði það.
Steinageröi
5 selt á 32
milljónir
21 tilboð barst i húseignina
Steinagerði 5 sem borgar-
sjóður auglýsti til söiu fyrir
skemmstu. Hæsta Ulboöið
var frá Viggó Sigurðssyni,
Kriuhóium 4, og hijóðaði það
úpp á 32 miljdnir króna. Hef-
ur fjármáladeild borgarinn-
ar verið faliö að ganga frá
samningum um kaupin við
Viggó, en útborgunartilboð
hans var 24 miljónir króna
eða meira en áætlað var aö
húsið myndi seljast*.
Væg hægrisveifla í
Finnlandi
Dagur
Þorleifsson
skrifar
Þinghöllin I Helsinki
I finnsku þingkosningun-
um nýverið átti sér stað
sveifla til hægri/ þó ekki
stórkostleg. Sameiningar-
flokkurinn, helsti íhalds-
flokkur Finna, vann að
vísu verulegan kosninga-
sigur, hækkaði í fylgi um
rúm 3% atkvæða og hefur
nú tæplega 22% heildar-
fylgisins. En enginn hinna
stóru flokkanna þriggja,
sem báru uppi fráfarandi
rikisstjórn, tapaði miklu.
Þeireru sósíaldemókratar,
sem fengu 24%, fólkdemó-
kratar (kommúnistar)
með 18% og Miðf lokkurinn
með rúm 17%.
Þingsætatilfærslur urðu öllu
meiri en sem nemur fylgistil-
færslunni. Þannig töpuðu fólk-
demókratar 5 þingsætum af 40,
sem þeir höfðu fyrir kosningar,
enda þótt þeir lækkuðu i fylgi að-
eins um eitt prósent, og Mið-
flokkurinn tapaði þremur
þingsætum, þótt fylgistap hans
væri ekki teljandi. Lands-
byggðarflokkurinn, dæmigeröur
hægrisinnaður óánægjuflokkur
með glistrupeinkennum, sópaði
til sin sex þingsætum til viðbótar
þeim tveimur, sem hann hafði áð-
ur, en hækkaði þó ekki i fylgi
nema um eitt prósent.
Mótmælaatkvæði
Finnar skiptast þannig i stjórn-
málaflokka að ekki er um það aö
ræða að neinn fái hreinan meiri-
hluta eða neitt nálægt þvi. Sósial-
demókratar, sem nú eru stærstir,
hafa þannig aðeins 52 þingmenn
af 200 alls i þinginu. Finnland er
þvi land samsteypustjórna, sem
sterkt forsetavald vakir yfir. Auk
stóru flokkanna fjögurra eiga
aðrir flokkar fjórir nú menn á
þingi. Tveir flokkar, annar til
hægri og hinn i miðju, þurrkuöust
út af þingi i kosningunum nú og er
þar að finna eina skýringuna á
ávinningi Sameiningarflokksins
og Landsbyggðarflokksins.
Fréttaskýrer.dur um finnsk
stjórnmál eiu yfirleitt þeirrar
skoðunar, aö sigur Sameiningar-
flokksins byggist fyrst og fremst
á því, að hann hefur verið utan-
stjórnar langa hrið. Þeir sem
voru óánægöir með gerðir
stjórnarinnar hafi þvi mótmælt
með þvi að kasta atkvæðum sin-
um á hann. Finnar hafa átt I
verulegum efnahagslegum
örðugleikum undanfarið og at-
vinnuleysi er mikið, um 8%.
Stjórnarflokkarnir benda að visu
á að þeim hafi tekist að stöðva
Uhro Kekkonen : Finnland er
land samsteypustjórna sem
sterkt forsetavald rikir yfir.
aukningu atvinnuleysisins, en á
hinn bóginn hefur þeim ekki enn
tekist að draga úr þvi svo heitið
geti. Og i lifskjörum er Finnland
alllangt fyrir neðan að minnsta
kosti Sviþjóð, sem Finnar bera
sig gjarnan saman við og þekkja
vel til, þar eð hundruð þúsundir
Finna eru þar i atvinnu eða at-
vinnuleit.
Sameiningarflokkurinn nýtur
þess nú að hafa yfirleitt verið i
stjórnarandstöðu eftir siðari
heimsstyrjöld. Þessi útskúfun
flokksins stafar af þvi að sovéskir
valdhafar hafa á honum illan bif-
ur og fyrsta og æðsta boðorðið i
utanrikispólitik Finna er að halda
sambúðinni við grannann risa-
vaxna I austri snurðulausri. Að
vissu marki er þessi aðstaða
Finna lík aðstöðu Islendinga
gagnvart öðru risaveldi, Banda-
rikjunum, enda benda Finnar
stundum á þetta og segjast skilja
einstaklega vel hvernig ts-
lendingum liði. Og þótt Sam-
einingarflokkurinn i Finnlandi og
Alþýðubandalagiö á tslandi séu
trúlega ólikir flokkar um flest,
eiga þeir þaö sameignlegt að vera
i ónáð hjá stórveldunum, sem
gina yfir löndum þeirra. Ekki
þarf að efa aö Bandarikjamenn
beiti persónulegum sambönd-
um og þrýstingi ýmisskonar til
þess að halda Alþýöubandalaginu
utanstjórnar, enda hafa stjórnar-
setur þess verið heldur skamm-
vinnar til þessa.
Borgaraleg
stjóm ólíkleg
Bent er á það aö nú hafi
borgaraflokkarnir sterkan meiri-
hluta i finnska þinginu, 113 þing-
sæti á mót 87 þingsætum sósial-
demókrata og fólkdemókrata.
En slik skipting er meiningarlitil i
Finnlandi, þar sem þessir tveir
vinstri flokkar ásamt með Mið-
flokknum (miðjuflokki uppruna-
lega byggðum á bændafylgi, hlið-
stæðum Miðflokkunum i Sviþjóð
og Noregi og Framsóknarflokkn-
um á tslandi) eru hinir klassisku
stjórnarflokkar. Auk þessara
þriggja flokka var i fráfarandi
rikisstjórn einn smáflokkanna,
Frjálslyndi alþýðuflokkurinn,
sem mun vera „liberal” flokkur
hliðstæður Alþýðuflokknum
(Folkpartiet) i Sviþjóð og Frjáls-
lynda flokknum i Bretlandi. Þótt
þessir flokkar töpuðu allmörgum
þingsætum, hafa þeir enn örugg-
an þingmeirihluta, svo að i sjálfu
sér er ekki mikið jpvi til fyrirstöðu
að fráfarandi stjórn (undir for-
ustu sósialdemókratans Kalevi
Sorsa) sitji áfram.
Engu að siður virðast flestir
finnskir stjórnmálamenn sam-
mála um, að reyna verði myndun
nýrrar stjórnar með tilliti til
kosningaúrslitanna. Aarne
Saarinen, leiðtogi fólkdemókrata,
sagði þannig aö Sameiningar-
flokkurinn yrði að fá aö spreyta
sig á stjórnarmyndun. En hvorki
Saarinen eða aörir munu telja
miklar likur á borgaralegri
stjórn sist undir forustu Sam
einingarflokksins. Og jafnvel
þótt ógeö Rússa á þeim flokki
kæmi ekki til, gengi það ekki and-
skotalaust aö koma saman
borgaralegri meirihlutastjórn.
Þvi að til aö fá meirihluta yrði að
fá annaðhvort Landsbyggðar-
flokkinn eða annan smáflokk,
Kristilega sambandið, til stuön-
ings viö stjórnina. En á Lands-
byggðarflokkinn er almennt litið
sem flokk óábyrgra vandræða-
manna, og báöir eru þessir
flokkar þar að auki mjög upp á
kant við Kekkonen forseta, hinn
sterka mann finnskra stjórnmála
bæði formlega og i raun.
Innanflokksdeílur
fólkdemókrata
Ýmsir eru þeirrar skoðunar að
miðjuflokkarnir eigi að vera rikj-
andi i næstu stjórn, þannig að hún
fengi á sig borgaralegri svip en
sú fráfarandi, og yrði meö þvi
tekið hæfilegt tillit til hægri-
sveiflunnar i kosningunum. En
miðjuflokkarnir þrir, Miðflokkur-
inn, Sænski alþýðuflokkurinn og
Frjálslyndi alþýðuflokkurinn,
hafa samanlagt aðeins 51 þing-
sæti, enda er reiknað með að
vinstriflokkarnir yrðu með I slikri
stjórn, sem þar með hefði örugg-
an þingmeirihluta á bakvið sig.
En nú er ekki alveg öruggt að
fólkdemökratar fáist með I næstu
stjórn. Þar I liði eigast viö tvær
fylkingar, annarsvegar haröllnu-
menn (af fréttaskýrendum stund-
um titlaðir stalinistar) og hins-
vegar frjálslyndari flokksarmur,
sem er i meirihluta. Meirihluta-
menn hafa fengið þvi ráðið að
flokkurinn væri I stjórn, en þvi er
minnihlutinn ákaflega andsnúinn
og telur að stjórnaraðild leiði
óhjákvæmilega til þess að
flokkurinn lendi I andstöðu við
verkalýðsstéttina. Þar eð
flokkurinn tapaði heldur nú, er
liklegt að minnihlutinn fái aukið
fylgi við þessi viðhorf sin innan
flokksins. Sósialdemókrötum er
það sérstakt kappsmál að fólk-
demókratar, keppinautar þeirra
um verkamannfylgið, lendi ekki
utan stjórnar, þvi að þá væri við-
búið að fólkdemókratar drægju til
sin margt atkvæða út af óánægju
með stjórnarráðstafanir.
Út frá svipuðum sjónarhól gæti
jafnvel svo fariö að skynsamleg-
ast þætti aö taka Sameiningar-
flokkinn inn I stjórn, svo að hann
glataöi þeirri upplögðu aðstöðu
sem hann hefur nú til að draga að
sér fylgi út á óvinsældir rikis-
stjórna. Gæti meira að segja svo
farið að Sovétmenn kæmust að
þeirri niðurstöðu að flokkur þessi
yrði öllu minni háskagripur i
stjórn en utan. Einnig heyrist að
hugsanlegt sé að Sameiningar-
flokkurinn fái óbeina stjórnar-
aðild, þannig að utanþingsmenn,
honum hlynntir, atvinnurekend-
ur, bankamenn, teknókratar,
verði teknir i stjórnina. Til þess
úrræðis hefur áður verið gripið i
Finnland.
dþ.