Þjóðviljinn - 07.04.1979, Side 20

Þjóðviljinn - 07.04.1979, Side 20
Um hálfellefuleytiö stormuðu vigreifir krakkar ár Laugalækj- arskóla niður að Fræösluskrif- stofunni i Tjarnargötu. Þau báru mótmælaborða gegn fyrirhuguð- um nauðungarflutningi úr Lauga- lækjaskóla yfir i Armúlaskólann og sögðu að kennararnir styddu þau. ,,Við viljum ekki láta ein- hverja skrifstofuhesta reikna okkur fram og til baka án þess að spyrja okkur”, sögðu krakkarnir, „við erum fólk”. — (Mynd eik) Blálanga er eftirsótt af hópi manna f Þýskalandi Reynt aö kveikja í Hagkaup Um klukkan 14.40 i gær var til- kynnt að eldur væri laus i versl- unarhúsi Hagkaups i Skeifunni. Kveikt hafði verið í húsinu á fjór- um stöðum og auk þess á einum stað I Húsgagnaverslun Guð- mundar, sem þarna er einnig. Þóttþetta gerðistum hábjartan dag ogþarna væri fjöldi fólks tók enginn eftir sökudólgnum eða -dólgunum, hafi þarna verið fleiri en einn aö verki, sem trúlegt má telja, og leika þeir enn lausum hala. Eldinn tókst að kæfa áður en hann olli teljandi skemmdum. -mhg Tveir togarar hafa und- anfariö selt afla sinn í Þýskalandi og fengið gott verð fyrir aflann. Það vek- ur athygli að stór hluti af afla þessara togara var blálanga, fiskur sem ekki hefur verið mikið talað um í sambandi við fiskveiðar á islandi. Þannig seldi togarinn Ogri rúm 300 tonn i Bremerhaven i fyrra- dag og var meðalverð fyrir kg. um 305 krónur islenskar. Er það metsala. Uppistaðan I aflanum var karfi, 170 tonn, og blálanga, 120 tonn. Þá seldi togarinn Vest- mannaey fyrir skömmu og voru i afla hans um 80 tonn af blálöngu. Þjóðviljinn hafði samband við Gisla Hermannsson forstjóra ögurvikur, sem gerir út ögra, og sagði ■■ ’■ hann aö hægt væri að fá mjög gott verð fyrir blálöngu i Þýskalandi ef komið væri með svona 10-20 tonn i einu. Þá gæti verðið farið upp i 2.50 mörk fyrir kilóið eða um 430 krónur. Fyrir þessi 120 tonn sem ögri seldi hefði hins vegar fengist 1.50-1.60 mörk fyrir kilóið eða 260-280 krónur að meöaltali sem er heldur lægra verð en fyrir karfann. Gisli sagði að blálangan væri djúpsjávarfiskur og hefði þessi afli fengist suður af Reykjanesi þar sem blálangan væri nú i hrygningarástandi. Taldi hann nánast tilviljun að svo mikið skyldi fást af henni núna en hún hefur aldrei veriö afgerandi i afla islenskra skipa og taldi GIsli ósennilegt aö hún færi að teljast i flokki meiri háttar nytjafiska eftir öll þessi ár. Gisli sagði að blálanga væri á boöstólum i fiskbúöum i Þýska- landi og svo virtist sem einhver ákveöinn hópur heföi dálæti á henni sem lostæti. Sjálfur sagöist hann hafa smakkaö hana og fund- ist hún mjög góö. Blálangan gengur einnig undir nöfnunum mjólariga og mjóni hér á landi. 1 Fiskunum eftir Bjarna Sæmundsson segir aö blálanga sé reglulegur djúpsjávarfiskur og sennilega um leiö botnfiskur. Hún er stirtlulengri en venjuleg langa og ekki eins stór. Hún er hlý- sjávarfiskur og hrygnir suöur af landinu. -GFr 10 dögum kauphækkun á mánuði og tekið undir með bændahöföingjanum I Borgarfirði sem sagði eitt sinn ,,hvað munar oss bændur um fimmtfu fjár”. — S.dór Græða 226 Siguröur Helgason, forstjóri Flugleiða h.f. segir i blaðaviðtali i gær, að Flugleiðir h.f. myndu tapa 226 miljónum króna á 10 daga verkfalli flugmanna yfir páskana. Þetta þýðir auðvitað að miljónir á Flugleiðir h.f. græða 226 miljónir kr. á þessum 10 dögum nú eftir að verkfallinu hefur verið afstýrt. Kannski skýrir þetta nokkuð hvers vegna Flugleiöir h.f. geta boðið flugmanni 270 þúsund kr. Bankamenn mótmœla efnahagsfrumvarpinu Þing StB haldiö 5. april 1979 mótmælir harðlega þess háttar ihlutun Alþingis i frjálsan og lögvarinn samningsrétt, sem fram kemur I frumvarpi til laga um stjórn efnahagsmála o.fl. Fyrirhuguö eignaupptaka og kjaraskerðing á sér enga hlið- stæöu og byggist ekki á rök- stuöningi þeim sem fram kemur i frumvarpinu, þar sem grunn- kaupshækkun til bankamanna mun ekki hækka þjónustukostn- aö viöskiptavina bankanna. Þingiö lftur svo á, að lögfest- ing skeröingar á grunnlaunum einnar fámennrar stéttar laun- þega eins og bankamanna sé brot á ákvæöum stjórnarskrár- innar um vernd eignarréttarins. Bankastarfsmenn áskilja sér rétt til aö leita úrskuröar dóm- stóla og jafnframt aö beita mætti samtakanna gegn slikum ólögum! Ovenjumikid af blá- löngu í afla togaranna Gott verð í Þýskalandi Þingi bankamannalauk á Hótel Loftleiðum I gær og in þá (Ljóm.: Leifur) var myndin i ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ I ■ tek- | ■ ..J Launadeila fjöl- brautakennara: , Aðgerðum frestað framyfir páska Launadeila fjölbrautar- kennara við rflússjóð er nú i biðstöðu eftir að slitnaði uppúr samningatilraunum. Ægir Sigurðsson á Suður- nesjum tjáði blaðinu að kennarar þar og á Akranesi myndu láta frekari aðgerðir bíða framyfir páska. Þeir teldu hins vegar alfarið að túlkun rikisins á kjarasamn- ingum væriröng, og fengist ekki leiðrétting myndu harðari aðgerðir sigla i kjöl- fariðaf hálfu kennara. Hann sagði að þar yröi ekki endi- lega um vinnustöðvun að ræða, heldur ihuguðu kennarar nú að neita að taka að sér ýmsa aukavinnu i vor- prófunum, þannig að ekki yrði unnt að útskrifa nem- endur frá skólanum. 1 Fjölbrautarskólanum i Breiöholti var okkur sagt, að kennarar þar væru enn i yfirvinnubanni, sem hamlaði nokkuð kennslu i hjúkrunar- og verknámsdeildum. Menn væru hinsvegar vongóðir um viðunandi lausn, þar sem Ragnar Arnalds ráöherra væri allur af vilja gerður til að sætta málin. Sættir steyttu hins vegar á f jarveru fjármálaráöherra sem er er- lendis. ös ísinn á undan- haldi Af hafisnum voru þau tið- indi helst I gær, að þvi er Guðmundur Hafsteinsson, veðurfræðingur sagði okkur, að sigling var þá greið norður með Vestfjörðum en nokkrar israstir viö Straum- nes. Agæt siglingaleið var 3 sjómilur út af Straumnesi, 6 milur út af Kögri og 2 út af Horni. Segja má aö islaust hafi verið á óðinsboðasvæð- inu og Strandagrynni. Sigling var greiðfær frá Óöinsboöa að Siglunesi. Þéttari is, 7/10, var svo 20 míiur norðvestur af Kögri og 26 mflur norður af Horni. A Grlmseyjarsundi og að Langanesivar is aðþéttleika 5/10 en jafndreifðurum allan sjó og sigling þvi seinfarin. Ófært var inn til Raufar- hafnar og Þórshafnar. Axar- fjörður er að mestu islaus af) Rauðanúp og sæmilega fær til Húsavikur. Þistilfjörður er hinsvegar fuiluraf^is. Sunnan Langaness er nokkurt ishrafl suður á móts við Bjarnarey, en sunnar er naumast um teljandi is að ræöa. 1 heild má segja að feinn hafi stór minnkaö nú siðustu daga og er áberandi mikil bráðnun úti fyrir Noröur- landi aö Sléttu. Þar er hún minni en eykst svo sunnan við Langanes, enda er isinn þar orðinn „mjög ræfils- legur”,segja þeim hjá Land- helgisgæslunni. —mhg DIOÐVIUINN Laugardagur 7. april 1979. Aðalsimi Þjóðviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til föstudaga, kl. 9—12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum. Utan þess tima er hægt að ná I blaðamenn og aðra starfs- menn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81527, 81257 og 81285, afgreiösla 81482 og Blaðaprent 81348. 81333 Einnig skal bent á heima- sima starfsmanna undir nafni Þjóðviljans i sima- skrá.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.