Þjóðviljinn - 25.04.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 25.04.1979, Blaðsíða 1
pjoðviiiinn Miðvikudagur 25. april 1979 —92. tbl. —44. árg. Valery Ponamerev tekur sóló á trompetinn, Art gamli lygnir aftur augunum meðan kjuöarnir þeytast um trommurnar. 2. síða Þórhallur Halldórsson formaður Starfsmannafélags Reykja víkurborgar Hagkvæm skiptí Þýðingarmikið að fá samningsrétt um gildistima samninga „Þaöhefur ekki veriö gerö nein ályktun um þetta af hálfu stjórnar Starfsmanna- félags Reykjavikurborgar, en éghef ekki fariö dult meö þaö innan félagsins, aö ég tel þaösvo þýöingarmikiö aö fá samningsrétt um lengd kjarasamningatim abilsins, aö hagkvæmt veröi þvi aö samþykkja samkomulag BSRB og fjármáiaráö- herra,” sagöi Þórhallur Halldórsson formaöur Starfsmannaf élags Reykja- vikurborgar I samtali viö Þjóöviljann. Hann sagöi aö bráölega yröi haldinn almennur fund- ur i félaginu, þar sem þetta mál yröi rætt. „Þaö er frum- skilyröi aö félagsmenn sjálf- ir geti látiö skoöanir sinar á þessu máli i ljós og haft um þetta siöasta oröiö,” sagöi hann. —eös Farmannaverkfallið: Mörg skip stöövast ^ J skiniim SfS stnftvnsí næstu daga Víða skortur á áburði og fóðurbœti Farmannaverkfallið skall á i nótt. Um kl. 22 i gærkvöld lögðu vinnu- veitendur fram uppkast að heildarsamningi án þess þó að tilgreina nokkrar tölur. í þvi voru veigamiklar breytingar sem farmenn gátu ekki sætt sig við. Ljóst er að ef verkfall farmanna stendur marga daga mun fjöldi skipa stöðvast i höfnum. Að sögn Axels Gísíason- ar framkvæmdastjóra skipadeildar SIS stöðv- ast tvö skip frá þeim strax i dag, Disarfell og Mælifell, og á morgun stöðvast Helgafell yngra og Litlafell og um helg- ina Jölufell og Hvassa- fell, þannig að 6 af 9 skipum SÍS stöðvast fyrstu dögunum. Axel sagöi aö mörg kaupfélög á N-Austurlandi, þar sem hafis hefði undanfariö hamlaö sigling- um væru illa stödd hvaö varöar fóðurbæti og áburö til bænda. Þetta er þeim mun bagalegra, þar sem frost er nú að fara úr vegum, og aurbleyta mikil, þann- ig aö útilokaö er aö flytja þunga- vöru landleiöina. Sagöi Axel aö skipadeild SIS hefði beöiö um undanþágu til aö koma þessum vörum á hafnir, en um miöjan clag f gær haföi svar ekki borist. Líjöst er aö nokkrir dagar munu liða þar til skip Eimskipafélags- ins stöövast, þar sem unniö hefur veriö náttfari og dagfari undan- farna sólarhringa viö aö losa þau i höfnum. __S.dór Skipaverkstöðin í Kleppsvíkinni Gífurlegt verkefni Rætt við opinbera aðila og hagsmuna- aðila i skipaiðnaði Eins og skýrt var frá I Þjóö- viljanum I gær hefur hafnarstjórn ákveöiö aö ætla framtiöaraöstööu fyrir skipaiönaö pláss I Klepps- vlkinni og er þar meö horfiö frá fyrriáformum um stórfelida upp- byggingu I Vesturhöfninni, þar sem landrýni er mjög takmarkaö. Af samþykkt hafnarstjórnar má ráða að ekki veröi staöiö aö slikri uppbyggingu af myndar- skap nema opinberir aöilar teng- ist henni með einhverjum hætti og þvi hefur 5 manna undirnefnd hafnarstjórnar óskað eftir viö- ræðum við stjórnvöld og hags- munaaðila I skipaiðnaöi um þessi mál, en hér er um gifurlega kostnaðarsamt fyrirtæki aö fæöa. í nefnd hafnarstjórnar sitja Björgvin Guðmundsson, for- maöur hafnarstjórnar, Guöjón Jónsson formaður Málm- og skipasmiöasambands íslands, Jónas Guömundsson, blaöamaö- ur, Birgir Isl. Gunnarsson, borgarfulltrúi og Jónas Eliasson, verkfræðingur. AI Vekalýðsmálaráð Sjálfstæðisflokksins Hvetur til andófs innan BSRB Verkalýösmálaráö Sjálfstæöis- flokksins hefur nú gengiö til liös viö Andóf ’79 innan BSRB og skoraö einróma á BSRB-félaga aö fella samkomulag stjórnar BSRB viö rlkisstjórnina. A aðalfundi verkalýösmálaráös . Sjálfstæöisflokksins sem haldinn var um helgina var gerö sam- þykkt þar sem óeðlilegt er taliö aö falla frá umsömdum kjarabótum i skiptum fyrir loforö- um nánast óskilgreindar breytingar á samningsrétti. Reynsla opin- berra starfsmanna sé ,slík af vinstristjórnum í réttindamálum, aö ekki sé hægt að mæla meö lslikum tilraunum. Verkalýðsmálaráö Sjálfstæöis- flokksins skoröai á allt launafólk innan BSRB aö fella þá sanyiinga er gerðir voru milli stjórnar BSRB og rikisstjórnarinnar um niðurfellingu 3% áfangahækkun- ar. Ennfremur mótmælti aöal- fundur ráösins gerræöislögum forsætisráöherra um efnahags- mál þar sem grunnkaupshækkan- ir væru i fyrsta skipti afnumdar/ án bóta. —eös. ATHYGLISVERT FRAMTAK A AKRANESI: | Togaramir hirða lifrina m * t t Mörgum hefur þótt blóöugt aö allri lifur úr afla togaranna er hent. Menn hafa bent á hversu glfurleg verömæti þarna fara i súginn. Þvi er þaö framtak HB & Co á Akranesi aö fá Akranes- togarana 3, Harald Böövarsson AK, Krossvlk AK og Óskar Magnússon AK til aö hiröa lifr- ina, sem siöan er soöin niöur I niöursuöuverksmiöju HB & Co og seld viöa um heim. fulltrúi hjá HB & Co sagöi aö 2 ár væru slöan byrjaö var aö reyna þetta á Akranesi. Lifrin er sett i plastpoka og siöan isuö I kassa um borö i togurunum. Hún má ekki vera eldri en 5 daga gömul, þannig aö ekki er hægt aö hiröa alla lifur og veröur þvi aö henda þeirri lifur sem kemur fyrstu 2 dagana. Sagöi Magnús aö sjómönnum þætti þetta borga sig og væri lifrarhluturinn jafn til allra sem er soðin niður og seld víða um heim Fyrir nokkrum árum var erfitt aö selja niöursoöna lifur, en þetta hefur breyst til batnaö- ar, aö sögn Magnúsar. Aöal markaöurinn hefur veriö i Tékkóslóvakiu, en nú er hægt aö selja niöursoðna lifur til margra landa og nefndi hann sem dæmi aö nú væri veriö aö pakka niöur lifur, sem ætti aö fara til Formósu. Þá væri ágætur markaöur I Kanada og vlöar. Magnús benti á að fyrir nokkr- um árum heföi veriö soöiö niöur mikiö magn af lifur úr fiski I Eystrasalti. En þar sem lifrin er þaö liffæri fisksins, sem vinn- ur eiturefni úr likamanum, er hún afar viökvæmt hráefni og eftir aö mengun jókst I Eystra- salti, má segja aö útilokað sé lengur aö notast viö lifur úr fiski þaöan. Þetta gefur okkur auknar vonir um stærri markaö og hærra verö fyrir niöursoöna lifur. Aö lokum sagöi Magnús aö þarna væri á feröinni mál, sem svo sannarlega væri gefandi gaumur fyrir okkur Islendinga —S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.