Þjóðviljinn - 25.04.1979, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 25.04.1979, Blaðsíða 11
Mi&vikudagur 25. aprfl 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11 Hin nýja Njarðvlkurkirkja er um margt óllk hefðbundnu svipmóti kirkna. A sumardaginn fyrsta vfgði biskup nýja kirkju i Ytri-Njarð- vik viö hátiðlcga athöfn. Vfgslu- vottar voru þau séra Björn Jónsson prestur á Akranesi, fyrrum i Keflavik og Njarðvik. Séra Bragi Friðriksson prófastur I Kjalarnessprófasts- dæmi, Friörik Valdemarsson sem verið hefur framkvæmda- stjóri kirkjubyggingarinnar frá árinu 1977 ogóuðrún Gisladóttir ekkja séra Páls Þóröarsonar sem var prestur Njarðvikinga frá 1976 og þar til hann féll frá á siðastliðnu hausti. Athöfnin hófstkl. 11 um morg- uninn með þvl að lagður var blómsveigur á leiöi séra Páls og á leiði Þórlaugar Magnúsdóttur frá Höskuldarkoti sem áriö 1948 stofnaði kirkjubyggingarsjóö Ytri-Njarðvikur. Kl. 2 hófst svo hátiöamessa i kirkjunni þar sem biskup flutti vigsluræðu en sóknarprestur- inn séra Ólafur Oddur Jónsson þjónaði fyrir altari. Hljóöfæra- leikarar voru úr Symfóniu- hljómsveit Islands og einsöngv- arar með kór Ytri-Njarðvikur- kirkju voru þau Elisabet Er- lingsdóttir, Guðmundur Sig- urðsson og Halldór Vilhelms- son. Eftir vigsluna var kirkjugest- unum boðið til kaffidrykkju i Stapa. Þar rakti formaöur sóknarnefndar, Oddbergur Ei- riksson, byggingarsögu kirkjunnar og lýsti bygging- unni. Framkvæmdir hófust 1969. , Arkitektar voruþeir Ormar Þór ■ Guðmundsson og Ornólfur Hall en byggingarmeistarar Hjalti | Guðmundsson í Keflavik og , Grétar Haraldsson i Njarðvik I auk fyrirtækisins Hús og inn- réttingar i' Sandgeröi. í kirkjunni er ætlað rúm fyrir , 230 sæti og 100 sæti i safnaöar- I sal. Gólfflötur er 400 fm á jarö- hæö og 108 fm I kjallara. Turn- | hæð kirkjunnar er 23 m með ■ þrem klukkum i turni. Er kirkj- T an sem stendur milli Bakkastigs og Reykjanesbrautar sérkenni- | leg og mjög falleg bygging. ■ Mikiö fjölmenni var viö at- I höfnina og bárust kirkjunni gjafir bæði I gripum og fjár- I Tímarit Máls og menningar: Úttekt á leikritagerð og Dymbilviku Fyrsta hefti Timarits Máls og Menningar er komið út og hefst á minningargrein um Halldór Stefánsson rithöfund eftir Jakob Benediktsson. Tvær langar greinar eru I heft- inu um nýrri islenskar bók- menntir. Jón Viðar Jónsson spyr aö þvi hve raunveruleg sú gróska er sem menn telja sig finna i islenskri leikirtagerð samtimans, og Peter Carleton, öðru nafni Kári Maröarson, gerir úttekt á Dymbilviku Hannesar Sigfús- sonar. Tvær deilugreinar eru I ritinu. Séra Gunnar Benediktsson skrif- ar grein sem hann nefnir „Buldi við brestur” og er tilefniö biskupabréfiö gegn bókinni Félagi Jesú. Magnús Kjartansson skrifar um Vietnam og Kampút- siu og viðbrögð við tiöindum þaðan hér heima — einnig er grein um þau mál eftir Peter Weiss. Hermann Pálsson skrifar um Islendingasögur ogHugsvinnsmál Þá er i heftinu siðari hluti greinar Sigurðar A. Magnússonar um bandariska skáldsagnagerð eftir seinna strið. Saga er eftir Þráin Bertelsson og ljóð eftir Hannes Pétursson, Gunnar Guðmundsson og Halldór Helgason. Bóka- umsagnir eru eftir Silju Aöal- steinsdóttur og Þórarin Eldjárn, ádrepur eftir Þorleif Hauksson og Runólf Björnsson. MINNING Krístíán Guðmundsson Fœddur 2.12. 1911 — dáinn 16.4. 1979 Hann Kristján er búinn að kveðja okkur, horfinn sjónum okkar hinsta sinni, með sina ljúf- mannlegu glaðværð og prúð- mennsku. Horfinn inn I móöuna miklu til þeirra ástvina sinna, sem á undan eru farnir héðan af okkar jarðriki. Hann andaðist annan páskadag 16. þ.m. i Borgarspitalanum hér i Reykja- vik, eftir um 3ja mánaöa legu þar. Hann varfæddur i Reykjavik 2. desember árið 1911. Sonur Guömundar Kristjánssonar frá Krummshólum I Borgarhreppi og konu hans Guðrúnar Jónsdóttur Bjarnasonar fyrrum bónda i Hraunholtum I Hnappadal. Kona Kristjáns var Fjóla Gi'sladóttir ættuð úr Húnavatnssýslu og eiga þau sex börn, sem sitja nú hnfpin og hljóð meö móður sinni ásamt systkinum hans og öðrum vinum, sem syrgja góöan dreng, eiginmann og föður. Þau Kristján og Fjóla voru ekki rik af ver- aldarauöi en heimili þeirra var auöugt af hlýju h jartans, guðstrú og kærleika og góðviid til allra, sem þau höfðu kynni af. Kristján og Fjóla hófu sinn búskap i Vestmannaeyjum, en fluttust siöan til Skagastrandar, heimili þeirra var byggt á bjargi trúar, kærleika og fórnarlund, á heimili þeirra hjóna voru allir velkomnir. Ég vil með þessum fátæklegu kveðjuórðum þakka fyrir þær gleðistundir, sem ég naut á heimili þeirra hjóna aö FeHsbraut 9 á Skagaströnd, fyrir þá miklu gestrisni og alúö, er ég varð aönjótandi. Fjólu og börnum hennar og systkinum hans votta ég mina dýpstu samúð og óska þeim bless- unar Guðs. Kristján frændi minn og vinur hvil þú i ró i náðarfaðmi herra þins, blessuö sé minning þin. Jón Bjarnason Sinfóniuhljómsueit íslands tónleikar * í Háskólabiói n.k. fimmtudag kl. 20.30 VERKEFNI: Hándel — Concerto Grosso op. 6 nr. 1 Mozart — Exultate Jubilate Mahler — Sinfónia nr. 4 STJÓRNANDI: Hubert Soudant EINSÖNGVARI: Sieglinde Kahmann Aðgöngumiðar i bókaverslunum Lárusar Blöndal og Sigfúsar Eymundssonar og við innganginn. Orðsending frá verkakvennaféla ginu Framsókn Tekið verður á móti umsóknum um dvöl i orlofshúsum félagsins i sumar i skrifstofu félagsins Hverfisgötu 8 — 10 frá og með miðvikudeginum 25. april. 3 hús i ölfus- borgum, 1 hús i Vatnsfirði Barðastrandar- sýslu. Vikudvöl kr. 15.000 — greiðist við pöntun. Pöntunum ekki veitt móttaka i sima. Þeir sem ekki hafa dvalið i húsunum áður hafa forgang vikuna 25. april til 2. mai. Stjórnin 1 x 2 — 1 x 2 34. leikvika — leikir 21. april 1979 Vinningsröð :221 — 1 1 1 — 1 12 — XXX 1. vinningur: 11 réttir —kr. 141.000,- 8227 31438 40074(4/10) 41379(4/10) 4229(2/11,6/10) 2.vinningur: lOréttir — kr. 5.500,- 827+ 6075 30495 32973 34597-*- 35105+ 42228 1238 6113 30538 33195+ 34599+ 35522 42231 1302 6557 30961(2/10) 34632+ 36540+ 42233(2/10) 4296 6596 31793+ 33665 34651+ 41358(2/10) 42234 4577 7263 32128 34109 35052+ 41443+ 42851 4863 7753 32242+ 34218 35059+ 41884 42852 5409 30003 32857 34260+ 35081 41916 57550 Kærufrestur er til 14. mai kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar. Kærueyðublöö fást hjá umboösmönnum og aöalskrifstofunni. Vinningsupphæöir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina. Handhafar natnlausra seöla (+) verða að framvlsa stofni eða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir greiðsiudag vinninga. GETRAUNIR — Iþróttamiðstöðinni — REYKJAVIK Tökum að okkur viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smiðum eldhúsinnréttingar: einnig við- gerðir á eldri innréttingum. Gerum við leka vegna steypugalla. Verslið við ábyrga aðila TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ Bergstaðastræti 33,simar 41070 og 24613

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.