Þjóðviljinn - 11.05.1979, Side 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. maí 1979
UOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
t'tgefandi: Utgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Hitstjórar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir
l msjónarmaöur Sunnudagsblafts: 1 ngólfur Margeirsson.
Rekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
Afgreiöslustjóri: Filip W. Franksson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón
Friöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gíslason, Sigurdór
Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Halldór Guömundsson. tþróttafréttamaöur:
Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson.
CJtlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, EHas Mar.
Safnvöröur: EJyjoifur Arnason
Auglýsingar: Sigríöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Ólafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir, Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla: Guömundur Steinsson. Hermann P. Jónasson. Kristín Pét-
ursdóttir.
Sfmavarsla: Ólöf Halldórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna SigurÖardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir. Karen Jónsdóttir.
Utkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn GuÖmundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6. Reykjavik, sfmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Tillögur
Alþýðubandalagsins
i kjaramálunum
• Ráðherrar Alþýðubandalagsins lögðu í gær fram í
ríkisstjórninni tillögur um tafarlausar aðgerðir í kjara-
málum. Þar er lagt til að stjórnin grípi nú þegar í taum-
ana og verji þá launastefnu sem hún boðaði f upphafi
ferils síns. Þessi stefna sem mótaðist mjög af kröfum
Alþýðubandalagsins var í því fólgin að vernda kaupmátt
almennra vinnulauna, tryggja aukið launajafnrétti og
berjast gegn verðbólgunni, sem leikur harðast almennt
verkafólk og stofnar atvinnuöryggi í hættu.
• Tillögur Alþýðubandalagsins, sem samþykktar hafa
verið af þingflokki og stjórn verkalýðsmálaráðs, eru
einkum þessar:
1. Sett verði lög um 3% grunnkaupshækkun til allra
launamanna upp að 370 þúsund króna mánaðartekjum
fyrir fulla dagvinnu. Þetta er sanngirnismál eftir að
félagar BSRB fá nú 3% grunnkaupshækkun í samræmi
við samkomulagið við ríkisstjórnina. En það er líka
nauðsynjamálaðsettiverði sérstök lög um þessa almennu
grunnkaupshækkun. Ávísun frá forsætisráðherra á vel-
vilja atvinnurekenda hrekkur skammt, enda má öllum
vera Ijóst að þeir eru ekki til viðtals um grunnkaups-
hækkun til verkafólks. Láglaunasamtökin í landinu
myndu heldur ekki leggja upp í samninga nú með 3%-
kröfu, heldur miklu hærri kröfur, m.a. í Ijósi hálauna-
skriðsins sem verið hef ur og ýmissa annarra staðreynda
í launamálum.
• 2. Sett verði með lögum nýtt þak á verðbótagreiðslur
á laun. Þannig verði fullar verðlagsbætur greiddar á
mánaðarlaun upp að 370 þúsund krónum, en á laun þar
fyrir ofan komi jöfn krónutala. Þetta þýðir að
kauphækkun flugmanna er tekin aftur, og það sama
gildir um aðra hátekjuhópa, sem brotist hafa undan
þakinu. Þetta er krafa um launajöfnun sem Alþýðu-
bandalagið hefur barist fyrir. Þetta er krafa sem ASf
setti fram í samningunum 1977, en var hafnað af at-
vinnurekendum. Og þetta er í samræmi við tilboð Verka-
mannasambands Islands til ríkisstjórnar Geirs
Hallgrímssonar í fyrravor. Lögbinding vísitöluþaks við
núverandi aðstæður er pólitísk nauðsyn og réttlætismál.
• 3. Þriðja meginatriðið í þeim lögum sem Alþýðu-
bandalagið leggur til að sett verði til þess að verja
upphaflega launastefnu ríkisstjórnarinnar er að sett
verði grimm stöðvun á verðhækkanir fram að ára-
mótum, þannig að eingöngu verði leyfðar hækkanir sem
stafa af erlendum hækkunum, eða ef hrein rekstar-
stöðvun og atvinnuleysi blasi við hjá fyrirtækjum fáist
ekki verðbreyting. Gert er ráð fyrir að sett verði sérstök
yfirnefnd í verðlagsmálum á gildistíma laganna sem fái
fullt vald til endanlegra verðákvarðana.
• Ráðherrar Alþýðubandalagsins lögðu einnig áherslu
á það í samræmi við fyrri yfirlýsingar flokksins, að
nauðsynlegt væri að setja í lög nýtt skattþrep til þess að
tryggt væri að þeir, sem alhæstu laun bera úr býtum,
greiði sanngjarnan hluta þeirra til samfélagsins.
í þeim ráðstöfunum, sem Alþýðubandalagið vill að
gripið verði til nú þegar, er tekin upp viðmiðun sem
hlýtur að teljast sanngjörn og raunsæ. Hún á rætur sínar
að rekja til tillögu Stefáns Jónssonar og fleiri þing-
manna að sett verði lög um hámarkslaun þannig að ekki
sé heimilt að greiða hærri laun en sem nemur tvöföldum
mánaðarlaunum verkamanns fyrir dagvinnu. Grunn-
kaupshækkunin og vísitöluþakið sem Alþýðubandalagið
leggur til að verði lögfest nú þegar, miðast við u.þ.b. tvö-
föld mánaðarlaun verkamanns.
• Þessi viðmiðun er skynsamleg vegna þess að í henni
felst sú áminning til þeirra sem meira fá fyrir dagvinnu
en tvöföld mánaðarlaun verkamanns, að láglaunafólk
unir því ekki að sitja eftir á botninum þegar hálauna-
menn brjóta launajöfnunarstefnu á bak aftur. Um leið
er það raunsæ viðmiðun, vegna þess að fyrra þak var of
lágt til þess að fólk með meðallaun vildi við það una.
Samstarfsflokkar Alþýðubandalagsins hafa tekið
sér frest til þess að svara stefnukröfum þess í kjara-
málunum. Eftir þeim svörum er ekki nægt að bíða
marga daga. Launafólk í landinu krefst skýrra svara
f rá ríkisstjórninni um hvort hún ætlar að viðhalda launa-
jöfnunarstefnu eða láta hana molna endanlega niður.
—ekh
r
Kosningaslagur
í Heimdalli
A sunnudaginn kemur ganga
ungir ihaldsmenn aö kjör-
borBinu i Valhöll. Heim-
dellingar ætla að velja sér nýjan
formann I stað Kjartans
Gunnarssonar bókaútgefanda
sem gegnt hefur þessu
ábyrgöarstarfi siðastliöin tvö ár
við misgóöan orðstir ýmissa
framámanna i Heimdalli.
Tveir valinkunnir piltar
berjast nú um formannssætið,
þeir Hreinn Loftsson laganemi
og hægri hönd Kjartans I Vöku-
pólitikinni, og hins vegar Pétur
Rafnsson iðnrekandi, dyggur
stuöningsmaður Albert
Guðmundssonar.
Kosningabaráttan er nú að
hefjast fyrir alvöru, og hafa
bæði Morgunblaðið og Visir
kynt undir bálið með mis-
greinargóðri kynningu á fram-
bjóðendum, enda bæði blöðin
hans Geirs, og þvi skal berjast
fyrir hagsmunum Geirs á öllum
vigstöðvum, lika i Heimdalli,
þar sem stud jur. Hreinn Lofts-
soná aðhaldaáloftiverðleikum
foringjans.
Stjórn Heim-
dallar ályktar
Á miðvikudaginn birtir Visir
frétt eftir stud. jur. Sigurð
Sigurösson, þekktan Vökustaur
og blaöamann hjá Heim-
dellingum. Sigurður, sem er
mikill Geirsmaður, beitir þar
skrifum sinum auövitað i þágu
Hreins og gerir Pétur iðnrek-
anda að forstjóra og harðlinu -
Albertsmanni, sem hann auö-
vitað er. Þetta likaði stjórn
Heimdallar að sjálfsögðu ekki,
enda óheppilegt að kosning-
arnar þar séu látnar bera ein-
hvern keim af væringum Lands-
fundarins I siðustu viku, eöa
eins og segir orörétt i samþykkt
Heimdallar sem Þjóöviljanum
var send i gær:
„Stjórn Heimdallar SUS
Reykjavik mótmælir harölega
að reynt sé að gera formanns-
kosningar til Heimdallar að úlf-
úðarefni milli þeirra einstak-
linga sem kosið var milli á nýaf-
stöðnum landsfundi eins og gert
var á baksiðu VIsis miðvikudag-
inn 9. mai s.l.
Að landsfundi loknum munum
vér eins og aðrir Sjálfstæöis-
menn fylkja okkur fram til
" sókna sjálfstæöisstefnunnar
undir forystu foringja okkar
^ Geirs Hallgrimssonar. Deilur
B um menn eru aö baki.
Sameinaðir sigrum vér.”
Hannes Hólm-
: steinn kemur
: til sögunnar
! Jú, einhuga voru menn á
| fundinum, en áfram heldur
■ baráttan fyrir það, enda er nóg
I af mönnum sem hafa hagsmuna
" að gæta i flokknum eins og
■ féiagi Hannes Hólmsteinn.
Siðustu mánuði hefur Hannes
Jl setiðviðskriftir likt og Ari fróði
I forðum daga, nema hvað
■ Hannes stundar sinar skriftir i
| Valhöll við Bolholt.
■ Hans verkefni er að skrá sögu
■ Sjálfstæöisflokksins, og stundar
; hann skriftirnar af kappi, að
L..............
Ekki hefur Kjartan Gunnarsson
bókaútgefandi með meiru þótt
óumdeilanlegur forystumaður I
starflsinu sem formaður Heim-
dallar undanfarin ár.
Hannes er nú farinn aö tala jafn
mikiö oghann skrifar, en hvort
allt það málæði dugi honum til
aö koma sér betur fyrir I innstu
röö flokkseigendaklikunnar,
skal ósagt látið.
sögn fróöra manna. En Hannes
kann lika aönotast við tunguna,
meö misgóðum árangri þó, eins
ogokkur vinstrisinnum öllum er
vel kunnugt.
Sagan segir aö Hannes ætli
sér nú að ná auknum áhrifum
innan Heimdallar, og styður
hann þvl framboö Hreins fúll-
trúa Geirsarmsins með ráðum
og dáð, enda segja kunnugir að
Hannesi muni reynast auövelt
að koma sinum málum á fram-
færi innan Heimdallar, nái
Hreinn aö sigra.
Hannes sem hefur nú nýlega
stofnað ásamt vini sinum og
fóstbróður Skapta Harðarsyni
„Félag Fr jálshyggjumanna”.
Mun það eiga góð ítai á þremur
stöðum, en hann heldur sinum
samböndum I Kópavoginum
ennþá.
Það virðist þvi vel ljóst hvert
Hannes stefnir, nái hans mark-
mið fram að ganga. Næsta
skrefið hlýtur að vera stjórn
S.U.S. þar sem Jón Magnússon
ræður nú rikjum, en eins og
flestum er kunnugt rikir ekki
sem best vinátta milli Jóns og
Hannesar.
Lokaslagurinn
eftir
Þrátt fyrir það aö Geirsmenn
hafa farið meðsigurinn á lands-
fundi, viröist Pétur Rafnsson
eiga nokkuö viötækan stuöning
meðal ungra Heimdellinga,
enda gera þeir sér flestir grein
Jón Magnússon hefur ekkert
veriö allt of hrifinn af bram-
boltinu i Hannesi. Nú er þaö
spurningin hvort Hannesi takist
aö velta Joni úr sessi sem for-
manni S.U.S.
fyrir hvaða leik Hannes Hólm-
steinn er að leika.
Gaman verður að fylgjast
með framhaldinu i þessu máli
og þá kannski einna helst
skrifum Morgunblaösins og
Vísis næstu daga.
En eitt er vist, að þótt þeir
eldri hafi settlað málin um sinn
með úrslitunum ásiöasta lands-
fúndi, þá á Aibert viðtækari
stuöning meöal yngri liðs-
manna, og þar verö*
ur baráttan ekki siður en I
kringum landsfundinn.
-ig
Pétur Rafnsson iönrekandi Hreinn Loftssoner mikUI Geirs-
viröist hafa nokkuö sterka maöur, og I gegnum hann ætlar •
stööu, þó svo flokkseigendafé- Hannes sér stóra hluti.
lagiö berjist hart gegn honum.