Þjóðviljinn - 11.05.1979, Page 7

Þjóðviljinn - 11.05.1979, Page 7
Föstudagur 11. maí 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Þaö má reikna það út ad þaö sé ekki hagkvæmt að láta Austfirðinga hafa rafmagn, það er heldur ekki hagkvæmt að láta þá hafa lækna, skóla, sima, póst og þar fram eftir götum. Hrafn Baldursson Rjóöri Stöðvarfirði w Enn um orkumál Austfirðinga Opið bréf til Emils Bóas- sonar. Og þú lika er stundum sagt og vitnaö til Sesars, það ætti vissu- lega vel við um þig vegna skrifa þinna á páskum 1979, ef þú hefö- ir ekki eftir að vera búinn að læða kuta þinum i bak okkar sem ekki erum enn farin að austan, beiðist þess að við sliðr- um sverð okkar og klykkt svo út með þvi að sýna okkur að þú sért farinn frá Eskifirði. Onnur bön þin er sú að við ekki notum stór órð i garð félaga þinna sem I krafti embættis sins og mennt- unar hafa sett fram ýmsar vafasamar kenningar i þeim til- gangi að hindra að fjármagni veröi veitt I virkjun i þessum landshluta. Það skal nú samt til dundurs haft að svara grein þinni og byrjað fram frá að svo miklu leyti sem hægt er að taka þetta 1 röð. Hundamáliö var á sinum tima afgreitt i héraði, með þvi að til stæði að afgréiða um hund þenn an rafmagnsleysi frá Laxá, en af þvi hefðum viö gnægð fyrir, auk þess eru og verða fjallalinur sem þessi Austurlina veikir hlekkir og endast marg sinnis skemur en virkjanir, þurfa meira og dýrara við- hald og er þar m.a. fenginn póstur sem rennir stoðum undir kröfur Austfirðinga um virkjun i fjóröungnum. Þaö er nú full langt gengið i stórum orðum, þegar þú segir, látið undan Austfiröingum, einkum vegna þess að önnur sagnfræði segir aö þessar virkj- anir, Grimsá og Lagarfoss, voru virkjaöar of seint og orku- spárúefnd þeirra tima sá vart fram fyrir nefið á sér i orku- þarfarmálum, og er kannski vart láandi, en etv. hafa þeir lika verið að hugsa um þjóðar- hag og þess vegna farið I það minnsta sem þeir gátu hugsaö sér að komast af með. Um vatnsleysiö i þessum virkjunum er það að segja að hvorug og ég undirstrika þaö, hvorug þeirra hefur verið klár- uö svo sem I upphafi var áætlaö og kynnt, þó af misjöfnum ástæðum sé. Nú kann vel að vera að eins horfi með Bessý, en hvaö hafa þá þessir ágætu menn verið að hanna og mæla og rannsaka fyrir hundruð mil- jóna, getur þú kannski svarað þvi? Svona vegna þess að þú átt innan gengt hjá sérfræðingum. Þá er komið að þessu með að búa öfugumegin viö linubilun, þú segir að það sé ekki gott, i kaflanum um linukerfiö en siöar i greininni tekur þú upp hráa klausu félaga þinna um að lina tryggi öryggi fjórðungsins eins og virkjun, hvernig ætlar þú að samræma þetta? „Ýmsir eru þeirrar skoðunar að rétt hefði verið að virkja i hverjum firði”. Segir þú i grein þinni og þetta er vissulega rétt en framhaldið er rétt að draga mjög i efa. Þú ættir að biðja fé- laga þina þarna syðra aö sýna þér, þó ekki væri nema rekstr- arreikninga einnar vatnsafls- stöövar sem stutt gæti fullyrð- inguna um óhagkvæmni slikra virkjana. Nei, það er auðséð að það skilur þig meira frá Reyðarfirði en Hólmahálsinn. Þá er það ástandiö um þessar mundir og álit orkuspárnefnd- ar. Þetta eru nijög afstæöir hlutir og þaö er rétt að benda á eitt dæmi I þessu sambandi sem sýnir aö stórir þættir geta, og ættu, aö raska þessari spá. A svæöinu frá Vopnafirði til Hafn- ar eru 10 fiskimjölsverksmiðjur og ef ætti að selja þeim raforku til allrar sinnar vinnslu, þyrftu þær aldrei undir 60mW i afli, þrátt fyrir orkusparnaðarráð- stafanir samkv. nýbirtri skýrslu. Þá er þaö fjarvarma- veitutaliö. Ef við byrjum á ört hækandi oliuveröi og i fram- haldi gerum okkur grein fyrir þvi að orkutopparnir eru það breiðir, ef svo mætti segja, og nota á oliuna á þeim þá veröur þetta að stórum hluta oliuhitun. Það sakar etv. ekki að geta hér þriggja heimspólitiskra mála sem snerta oliu og sina hve tæpt er teflt i þeim efnum: Það eru byltingin i' Iran, slysiö I Harris- burg og erfiðleikar Bandarikj- anna að fá oliu handa Israelum. „Litill vafi leikur á” segir þú, „að fjarvarmaveitur eru betri kostur en bein rafhitun”. Og, rökin sem þú færir fyrir gæöum hitunar þessarar eru þau að rekstraröryggiö sé mikið, þessi rök minna óneitanlega á klausu I grein Steingrims Hermanns- sonar rafmagnsverkfræðings i Timanum 8. febrúar 1975, hún er svona: „Hver vill treysta á raf- orku til upphitunar sins húsnæð- is, t.d. á Austfjöröum eins og ástandiö er núna? Hver vill treysta á einfalda linu sem liggúr langar leiöir um erfiöa vegu?” Þegar Steingrimur skrifaði þetta voru flest hús á Austurlandi hituð með ollu, mikiö rétt, en við flest kyndi- tækin voru brennarar og dælur sem þurfa raforku til aö húsin hitni, svo yröi og um fjarvarma- veiturnar. Svo vikið sé aftur að oliunotk- un veitna þessara þá ætti það aö vera ljóst að toppar þeirra fara saman við toppa rafveitnanna, þannig að einnig það virðist ekki sérlega spennandi, og eitt enn, þær nýta raforicuna mun verr en bein hitun, þannig að þegar olian verður ekki lengur notuð þykir sjálfsagt hagkvæm- ara að hita hvert hús beint, og kostnað viö þessi fjarvarma- veituævintýri hefur þú trúlega ekki heyrt nefndan, ekki það að ástæða sé til að taka kostnaöar- tölur i þessu sambandi eða þessar mannvirkjagerðir allar, alvarlega, það væri rétt að fá aö sjá þær sundurliðaðar fyrst. Til dæmis ef linur eru orönar svona ódýrar sem tölur félaga þinná segja, hvers vegna i ósköpunum eru þá ekki drifnar upp linur til Hafnar og Vopnafjarðar? Oliu- sparnaðurinn mundi borga þær á stuttum tima. Það mætti lika spyrja þess sama um spennu- fallslausnirnar ódýru sem þú talar um, hvers vegna eru þær ekki i notkun? Hvað er til ráða? Það er til ein mjög þjóðhags- lega hagkvæm lausn á þessu máli, hún er að loka álverinu og nota raforkuna m.a. til að vinna fiskimjöl og þurrka fisk og fá vetni úr afganginum og þá gæti veriö komin forsenda fyrir suð- austurlinulögn, en að sjálfsögðu eru hagkvæmustu leiðirnar aldrei valdar. Austfirðingar völdu heldur ekki Bessý um- fram einhverja aðra virkjun, heldur ekki Laggann, þeim var bara boðið upp á þetta á sinum tima og ekkert annaö, nema þá kannski hunda. Astæðan fyrir lögn linunnar frá Kröflu og austur var heldur ekki sú að leysa ætti orkuþörf Austfjarða, heldur að til stóð að Krafla framleiddi orku sem þurfti að selja. Orkumál fjórð- ungsins hafa eins og öll eöa nær öll hans mál ráðist annarsstað- ar, svo hið algera skipulagsleysi sem rikt hefur I raforkumálum er engan vegin sök okkar, nema ef við yrðum sökuð um linku og afskiptaleysi, það er trúlega réttmætt. Það er lika alveg ljóst að 64 mw virkjun verður of litil þegar hún kemst I gagniö svo það er þess vegna óhætt að leggja til okkar linu og virkja stærra þó aldrei nema við nýtt- um rafmagn til fiskimjöls- vinnslu. Undir þessari fyrirsögn, hvaö er til ráða, skrifar þú. „Ekki væri ónýtt að fá slfkan pening til að styrkja linukerfið innan fjórðungsins.” Þú ættir nú bara að kynna þér hvernig að þessum málum hefur verið staöiö á um- liðnum árum og þá sæir þú að þessi eina setning dygði til að draga greinina alla i.efa. Nú, skipulag Rarik er annað mál, en þú kemur að þessu með að SA- lina tryggi öryggi til jafns viö Bessý en ert þó sjálfur búinn áð- ur að draga réttilega i efa ör- yggi lina, enda skemmst frá þvi aö segja að það má þykja gott ef tekst aö totta 15 mW út úr lin- unni að norðan þegar mest þarf á þvi aö halda, enda mun þetta helsta ástæðan fyrirþvi að enn er veriö að bjástra við svart- oliukyndistöðvarnar. Þannig að þú sérð að SA-lIna yröi að hafa sama öryggi og Bessý. Ætli öllu megi nú ekki heita svarað i grein þinni. Hvers vegna er þetta þá svona? Riddarar hégómleikans hafa alltaf veriö á reið fram og aftur um söguna og eru það enn, ein- kenni þeirra eru m.a. þau að þeir eru nýjungagjarnir og elska aö berast mikið á, slá um sig o.s.frv. Þessi manngerð ber fyrst og fremst ábyrgð á þvi öngþveiti sem rikir i þjóðfélaginu en svo viö aðeins tökum orkumálin þá má rekjá slóö þeirra i gegnum þau I stuttu máli. Fyrst ber náttúrlega að telja Einar Ben. sem seldi vatnsréttindi, það var á þeim árum sem virkjanir voru nýung, jafnvel smáar. Framan af öldinni voru virkjaðar ýmsar virkjanir en næsta alvarlega skref riddaranna er þegar BMW. i Danmörku hafa smlöað disilvél og hún þykir fin. Þá hafa bændur á íslandi, i nokkur ár, hamast viö að virkja upp á eigin spýtur og i eigin persónu gjarnan, enda hætt að vera fint. Já þá skjóta upp kollinum ridd- arar sem segja að það sé hag- kvæmara að nota svona disil- vélar og nota bara helvitis læk- ina fyrir kælingu. Þessi var ástæðan fyrir þvi að svona vélar voru settar niður i svo til hvert þorp. Og enn er það svo, að þaö er ekkert fint aö hanna eða setja upp litlar virkjanir, það getur svo til hver sem hefur vatn og peninga, þess vegna er það sagt óhagkvæmt, einhvern veginn þótti samt hagkvæmt aö virkja fyrir Reykjavik, kannski vegna þess að þær virkjanir voru dá- litiö stórar og þær voru reistar nærri virki riddaranna. Næst má sjá jóreyk frá flokk þessum, þegar riðiö er til ál- samninganna en þeir eru eitt heljarins hégómabragð, i þeim skýrast linur þeirrar myndar sem við ættum að bera i hug okkar, til að glöggva okkur á þegar við heyrum hófadyn. Þessir drættir sýna okkur að það er umfang framkvæmd- anna sem skiptir máli en ekki arðsemi þeirra, notagildi eða nokkur skynsamleg ástæða yfir- leitt. Tengslin við útlenda aðila vega að sjálfsögðu þyngra en afkoma landsmanna og rökin sem dregin eru til vitnis um nauösyn framkvæmdanna, eru vegna þess hve léttvæg þau reynast, sett I sem þyngstar umbúðir, til þess að við nytsam- ir sakleysingjarnir látum blekkjast. Nú hefur það gerst að við er- um farin aö greiða herkostnað- inn fyrir þessa riddara, ljósar en áður, og þá ættu augu okkar að opnast fyrir ýmsu I málflutn- ingi riddaraliðsins. Skilur þú t.d. hvernig það geta verið rök fyrir orkusölu til ál- vers aö kjarnorka sé aö verða ódýr, en það getur ekki verið rök fyrir virkjun að olia sé að verða dýr? Nú er riddaraliðiö búið að grafa holu i Arnarhólinn, setja upp Grundartangaverksmiðju og langt komið að byggja sér- staka brú fyrir hana og nú vilja þeir biða með virkjun á Suður- landi þar til þeir geta haft hana umfangsmikla og mikið um hana og þú kallar til okkar af múrum virkis þeirra beiöni um að sliðra sverðin. Vonandi verð- ur það ekki gert o g ve 1 m á v arpa að virki þessu dúndrum nokkr- um þó svo þeim fy lgi ei annaö en fnykur dálitill. Það er ekki þjóðhagslega hag- kvæmt að virkja á Austurlandi, þ.e.a.s. fyrir Austfirðinga, það er vissulega rétt, það er heldur ekki hagkvæmt aö láta þá hafa linu, það er i raun alls ekki hag- kvæmt að láta þá hafa rafmagn, það er heldur ekki hagkvæmt að lata þá hafa lækna, skóla, sima, póst o.s.frv. ekkert af þessu hef- ur verið hagkvæmt að láta ný- lendum i té. Lestu nýlendusögu. En, það er hægt að snúa þessari hagfræði viö. I Reykjavik eru lögð á 11% útsvör og endar ná ekki saman þó þeir þessu til viðbótar leggi á hæstu fast- eignaskatta á landinu og séu I gjöldum sinum raunar aö inn- heimta af öllu landinu, en i Geit- hellnahreppi hafa þeir lagt á 7% útsvör og kvarta ekki neitt, af þessi ætti að sjást að rétt væri að flytja Reykjavikurbúa i Geit- hellnahrepp af þjóöhagkvæmn- isástæðum. Ég ætla svo að enda með að biöja þig Emil minn aö gerast liöhlaupi og láta þeim einum eftir hnútukast i okkur Austfirð- inga, i þessu máli sem hafa hag af þvi að hafa okkur sem orku- blankasta, annað hvort vegna þess að þeir fá að gera allskyns rannsóknir i þvi sambandi, fyrir mikla peninga, eöa i annaö staö fá kannski peningana I leir- hversframleiðslu á eldfjalla svæöum, helst meðan gýs, þvi það er finast. Nú og svo ættir þú heldur ekki að taka upp plásss i dýrmætum dagblöðum ef ein- hverjir þeirra sem biða vilja með virkjun hér eftir Reyðarál- inu gætu látið sér detta I hug aö stinga niður penna. 1 annarri viku sumars 1979 Hrafn Baldursson Rjóöri Stöðvarfiröi. Athugasemd um dilkakjötssölu erlendis I Þjóöviljanum 19. apríl birtist //athugasemd frá Búvörudeild SIS", án undirritunar einstaklings fyrir hönd deildarinnar, um grein mína í Þjv. „Islenskt dilkakjöt á er- lendum mörkuðum", 11. apríl. Búvörudeild SIS gerir efnislega aðeins eina leiðréttingu við grein mina, en hún er sú aö fyrirtækiö K.C. Knudsen hafi hætt að hafa einkaumboö i Danmörku á sölu islenska dilkakjötsins fyrir 2-3 ár- um. (Ég nenni ekki að karpa um þjónustu þessa danska fyrirtækis. Búvörudeildin hefur þegar fengiö upplýsingar um reynslu mina og fleiri af viðskiptum við það og læt ég það duga). Raunar má skipta athugasemd Búvörudeildarinnar i tvennt. Annars vegar eru margar góðar og mikilvægar upplýsingar sem staöfesta aðalniöurstöðuna I grein minni frá 11. april: aö vandamálið við framleiöslu og sölu diikakjöts eru fyrst og fremst skipulagserfiöleikar viö dreifingu á vörunni. Búvörudeildin kemur með mörg dæmi um slika skipu- lagserfiöleika. 1 annan stað teiur Búvörudeiid sig vera að svara grein minni. 1 henni benti ég m.a. á þá þver- stæðu aö eftirspurnin á islenska dilkakjötinu væri i Danmörku og Sviþjóð meiri en framboðið sam- timis þvi sem verð dilkakjötsins væri óeölilega lágt miöaö viö ann- að kjöt. Þvi til skýringar kom ég með dæmi um furöulegan dreif- ingarmáta á islenska dilkakjöt- inu. I „svari” sinu gerir Búvöru- deildin enga tilraun til aö hrekja þessi efnisatriði. Ég læt mér þvi I léttu rúmi liggja nokkur sam- hengislaus stóryrði deildarinnar I garð minn. Þessar eru helstu niöurstöðurn- ar úr grein minni og úr athuga- semd Búvörudeildarinnar við greinina: 1. Erlend stjórnvöld leggja miklar hömlur á innflutning is- lensks dilkakjöts. Astæðan er augljós en hún er vilji til að vernda kjötframleiðslu viðkom- andi lands fyrir samkeppni. 2. Viöa er dreifing dilkakjötsins i höndum slátursamtaka bænda i innflutningslöndunum sem aug- sýnilega hafa svipuð verndar- sjónarmiö og stjórnarvöld þar (þótt Búvörudeild telji aö svo sé ekki!). 3. Dreifing dilkakjötsins til neytenda erlendis er viða mjög ábótavant eins og búast má við af atriöum 1 og 2. Lundur2. mai 1979. Gisli Gunnarsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.