Þjóðviljinn - 11.05.1979, Qupperneq 8
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 11. mal 1979
Frændrækni og pólitlsk holíusta hefur ráöið úthlutunum IReykjavlk, sagöi Sigurjón Pétursson.
Flokkspólitískt mat
Sigurjón rifjaði upp lóöaúthlut-
un frá árinu 1972 þegar úthlutað
var ákaflega vinsælum Ibúðar-
húsalóðum við Stóragerði. Lóð-
irnar voru 40 en umsækjendur um
300. Sigurjón sagöist á þeim tima
hafa gert sérstaka könnun á þvi
hvaða reglur raunverulega giltu i
úthlutuninni og tekiö tiundu
hverja lóðaumsókn og borið sam-
an viö umsóknir þeirra 40 aöila
sem úthlutun fengu. „Ekki eitt
einasta atriði, sem yfirlýst var i
borgarráði, að skyldi gilda varð-
andi mat á umsækjendum, stóðst
þetta próf” sagði Sigurjón, „held-
ur var þessu úthlutun byggð á
flokkspólitisku mati. Svo átti að
heita að tekið væri tillit til óska
borgarfulltrúa og embættis-
manna,” sagði hann ennfremur,
„en lóðanefnd borgarinnar, sem
skipuð er embættismönnum hefur
hð sjálfsögðu borið merki yi'ir-
boðaranna.”
Þá minnti Sigurjón á að margar
tillögur hafa komið fram i borg-
arstjórn um breytingar á lóðaut-
hlutunum en þær hafa allar verið
felldar. Það væri þvi ekkert und-
arlegt að eitt af tiltölulega fáum
atriðum I samstarfssamningi
meirihlutaflokkanna skyldi ein-
mitt vera að settar skyldu sér-
stakar lóðaúthlutunarreglur.
Almenn skilyrði og stiga-
gjöf
Siðan vék Sigurjón að reglun-
um, sem skipta má I tvennt. 1
fyrri hlutanum eru almenn skil-
yrði eins og áöur giltu varðandi
rikisborgararétt, skuldleysi við
Gjaldheimtuna, fjárræði og
fjárhagslega getu til að standa
undir byggingaframkvæmd-
unum.
Siðari hlutinn er punktakerfi
sem miðar að þvi að flo kka menn
eftir fyrirfram ákveðnum skil-
yrðum ogfá menn stig fyrir bú-
setu, I Reykjavik, núverandi
húsnæðiskost o.fl. Búsetustigin
vega þyngst, en þau reiknast frá
20ára aldri. Búseta utan Reykja-
vikur vegna náms dregst ekki frá
stigagjöf. Ef margir eru jafnir að
stigum er ákvæði um að hlutkesti
skuli ráða úthlutun. I reglunum er
ákvæði um að vikja megi frá
þeim, ef borgarráð er samdóma i
áliti sinu þar um, og ennfremur
að nöfn úthlutunarhafa skuli birt
og sú lágmarksstigatala sem út-
hlutunin miðast við.
Sigurjón þakkaöi Jóni G.
Kristjánssyni, skrifstofustjóra
borgarverkfræðings, Hjörleifi
Kvaran, fulltrúa hans og Bjarna
Reynarssyni, landfræðingi á Þró-
unarstofnun góðar ábendingar,
sem hann sagði að sniðið hefðu
ýmsa annmarka af upphaflegum
tillögum.
Að lokum sagði Sigurjón að það
væri ósennilegt að tekist hefði i
r
Reglur um lóða-
úthlutanir
í Reykjavík
Pólitísk hrossakaup úr sögunni
Eins og skýrt hef ur verið f rá í þjóðvil janum hafa verið
samþykktar reglur um lóðaúthlutanir í Reykjavík, en
framkvæmd þeirra mála hefur verið mjög umdeild ár-
um saman.
Á borgarstjórnarf undi í síðustu viku urðu miklar um-
ræður um reglurnar og nauðsyn þess að setja þær og hóf
Sigurjón Pétursson umræðuna. Hann minnti á í upphafi
að lóðaúthlutanir hafa ávallt verið umdeildar, enda yf ir-
leitt fáar lóðir til ráðstöf unar í hvert sinn og margir um
hituna. Þá sagði hann að þó sett hefðu verið ákveðin skil-
yrði fyrir úthlutun, hefðu þau verið þess eðlis að flest-
allir umsækjendur hefðu uppfyllt þau. Þá hefði orðið að
leggja mat á umsóknirnar, en það mat hefði fyrst og
fremst byggst upp á frændrækni og pólitískri hollustu.
_ Kristján
Albert
Sjöfn
fyrstu lotu að tryggja hið full-
komna réttlæti i þessum efnum,
en eitt væri vist að þessar reglur
tryggðu verulega meira réttlæti
en þaö sem áður hefðu gilt varð-
andi lóðaúthlutanir. „Reyslan
verður að leið i ljós ef ein-
hverjir gallar eru á reglunum,”
sagði hann „og verða þær end-
urskoðaðar að ári0 Markmiðið
með þeim er aö raða umsækj-
endum i réttléta röð sem ræður
sðan úthlutuninni. Það er
einnig markmið þeirra að enginn
þurfi að gjalda pólitiskra skoðana
sinna eöa njóta frændsemi og
pólitiskrar hollustu varðandi
lóðaúthlutanir framar. ”
Góö samviska
Birgir tsl. Gunnarsson tók
næstur til máls og sagði þaö vera
eitt af vandasamari verkum
borgarráðs að úthluta lóðun en sú
mynd sem Sigurjón Pétursson
heföi dregið upp af lóöaúthlutun-
um i Reykjavik væri hins vegar
ýkt og röng. Borgarráö hefði
alltaf gaumgæft úthlutanir mjög
vel og lóðanefnd kannað ástæður
umsækjenda. „Borgarráösmenn
hafa með góðri samvisku getaö
staðið upp frá þvi verki I hvert
sinn,” sagði Birgir „og ég mót-
mæli þvi að kunningsskapur,
frændsemi og pólitisk hollusta
hafi ráðið lóðaúthlutunum i
Reykjavik.”
Aðeins fyrir þá riku
Birgir sagöi að fyrri hluti lóðar-
reglnanna væri ekki svo frá-
brugöinn þeim sem áður heföu
gilt, en þó væri eitt atriði mjög
greinilega frábrugöiö. Það væri
ákvæðið um að menrt yrðu að
sýna fram á fjárhagslega getu
sina til að standa undir býgging-
unni.
Sagöi Birgir að samkvæmt
þessum reglum kæmu engir til
mats nema þeir geti sýnt fram á
að þeir hafi nóga peninga handa á
milli. Meginatriðið I reglunum og
það sem væri mesta breytingin
frá þvi sem áður var, væri að
mönnum væri skipt upp i rika og
fátæka, verðuga og óverðuga.
„Það er athyglisvert að meiri-
hluti vinstrimanna I Reykjavik
undir forystu Alþýðubandalags-
F asteignaskráningin
endurskipulögð
Ákveðið hefur veriö að gera út-
tektá stöðu fasteignaskráningar i
borgarkerfinu og vinna aö endur-
skipulagningu hennar á þann hátt
aðá einum stað fara fram söfnun
og skráning upplýsinga sem
varöa allar fasteignir og eigend-
ur þeirra.
Þetta var samþykkt á borgar-
stjórnarfúndi s.l. fimmtudag með
15 samhljóða atkvæöum, en það
voru borgarfulltrúar meirihluta-
flokkanna sem lögðu tillöguna
fram. í henni segir ennfremur, að .
henni skuli lokið innan 6 mánaða
ogskuli varpa ljósi á eftirfarandi
atriöi: m.a.: 1. Hvaða aðilar skrá
upplýsingar um fasteignirog Ibúa
þeirra I Rejícjavik?. 2. Hvaða
upplýsingum er safnað og hvern-
ig eru þær skráðar? 3. Hversu
margir starfsmenn vinna þessi
verk? 4. Hvaða aðilar nota upp-
lýsingar um fasteignir án þess að
skrá þær?
Ennfremur skal kannaö hvaða
vinnuaðferðir og skipulag myndi
henta best fyrir Reykjavfikur-
borg.
— AI
ins skuli koma fram með slika
reglu,” sagði Birgir.
Hann benti á að fjölmargir ein-
staklingar vita ekki sjálfir hvern-
ig þeir hafa farið að þvi aö fjár-
magna húsbyggingu sina, hvað
þá að þeir geti sýnt fram á það
með tölum. Að sýna fram á slikt
fyrirfram væri gjörsamlega úti-
lokaö.
Slðan gerði Birgir grein fyrir
athugasemdum sinum við regl-
urnar og vitnaði I Jón G.
Kristjánsson skrifstofustjóra
borgarverkfræðings, sem komist
hefði að þeirri niðurstöðu að fjár-
hagsákvæði reglnanna útilokaði
t.d. menn frá þvi að fá úthlutað
einbýlishúsalóð nema þeir ættu
Ibúð fyrir. Ennfremur tók hann
dæmi af tveimur 21 árs gömlum
mönnum sem sækja um lóð skv.
þessum nýju reglum. Annar haföi
flutt tvitugur til Reykjavikur og
samkvæmt reglunum hefur hann
þvi nákvæmlega sama rétt og
hinn sem búið hefur hér allan
timann. Birgir átaldi einnig að
reglurnar tækju ekki til fjöl-
skyldustærðar umsækjenda og
það sem verra væri að reglurnar
útilokuðu aö hægt væri að draga
fólk úr nágrannasveitarfélögun-
um til Reykjavikur, — en til þess
hefðu endurúthlutanir borgarráðs
t.d. veriö notaðar. Varðandi
punktakerfið sagðist Birgir hafa
almenna ótrú á slikum flokkunar-
kerfum. Lifið væri flóknara en
svo að punktakerfi gæti flokkaö
alla hluti réttlátlega, enda væri
þetta kerfi miðað viö að flokka
hina efnameiri.
Kristján Benediktsson Itrekaði
aö reynslan hlyti að skera úr um
ágæti reglnanna og að þær yrðu
endurskoöaðar að ári. Hann mót-
mælti fullyröingum Birgis um að
reglurnar útilokuðu alla nema
efnamenn frá lóöum og sagöi að i
þeim efnum heföi engin breyting
orðiö á með tilkomu reglnanna.
Hann benti Birgi á að meöan hann
réö sjálfur þessum málum var
fyrsti liður I lóðaumsóknum ein-
mitt að gerö skyldi grein fyrir
fjárhagsástæðum og hvernig um-
sækjandi hygðist fjármagna
bygginguna. Það ákvæði hefði
m.a. veriö notað til að útiloka
menn frá lóðum. ,,Að sjálfsögðu
er það innlegg ef viðkomandi á
von á stuöningi frá vinum og
vandamönnum, hvort heldur er i
vinnu- eða peningaframlögum”,
sagði Kristján.
Síðbúnar ábendingar
Sigurjón Pétursson tók aftur til
máls og sagðist harma að þeir
annmarkar sem Birgir Isleifur nú
benti á i reglunum hefðu ekki
komið fram fyrr, hvorki frá em-
bættismönnum borgarinnar (sem
Birgir vitnaði i) né frá fulltrúum
Sjálfstæðisflokksins. Hann tók
undir með Kristjáni að menn
hefðu verið útilokaðir frá lóðum
vegna þess að þeir gátu ekki sýnt
fram á fjárhagslegt bolmagn til
aö standa undir byggingarkostn-
aðinum, en sagðist jafnframt
heita á Reykvikinga að þegar
þetta atriði kæmi fyrir borgarráð
skyldi enginn verða útilokaður
vegna þess ákvæðis eins.
Páll Glslason sagði að langur
undirbúningstlmi hefði hamlað
lóðaúthlutunum I borginni. Ekki
vildi hann meina að þær breyttu
miklu frá þvi sem áður var þar
sem enn kæmu ýmis atriði til
álita og mats eftir sem áður. Það
færi hins vegar allt eftir þvi
hverjir legðu mat á hlutina þegar
þar að kæmi. Páll sagðist eiga
erfitt með að kyngja einu atriði I
reglunum, en þaö er ákvæöið um
að búsetustig reiknist frá 20 ára
aldri. Sagðist hann óttast að
ákvæðið útilokaði ungt fólk frá
lóðaúthlutunum og lagði til að
þessu yrði breytt i 16 ár.
Höfum ekki unnið til þess-
ara orða
Albert Guðmundsson harmaði
að Sigurjón Pétursson skyldi ekki
geta lagt úthlutunarreglurnar
fram án þess að kasta fram póli-
tískum hnútum um leiö, —
„hreint eins og hér hafi eitthvað
óheiðarlegt farið fram I lóðaút-
hlutunarmálum” sagði Albert.
Hann sagði að borgarráðsménn
hefðu ekki unnið til þeirra orða
sem forseti borgarstjórnar hefði
látið falla. Hins vegar taldi hann
eðlilegt að nýr meirihluti kæmi
fram með eitthvað nýtt til að
flagga með.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir sagði
eölilegt að reyna lóðaúthlutunar-
regiurnar og’ reyndust einhverjir
vankantar á þeim yröu þær
endurskoðaðar að ári.
Kristján Benediktsson sagði að
I tillögu Páls um breytt aldurs-
mörk fælist atriöi sem höfundar
reglnanna hefðu velt lengi fyrir
sér. Hins veggr teldi hann eðlilegt
að láta reynsluna skera úr um
ágæti þess ákvæðis, enda væri
meginþorri byggjenda i Reykja-
vlk á aldrinum 30-50 ára, en
meginþunginn 30-40 ára. „Sam-
kvæmt þessum reglum ná menn
hámarksstigafjölda vegna búsetu
30 ára gamlir,” sagði Kristján,
■ verði markið lækkaö,verður það
nokkru fyrr.» Hann sagði að
álbending Birgis Isleifs um litínn
mismun á aðstöðu innfæddra
Reykvikinga og þeirra sem flytja
til borgarinnar tvitugir hefði mátt
koma fram fyrr.
Sigurjón Pétursson sagði að 16
ára markið hefði verið I upphaf-
legum tillögum en slðan heföi það
breyst m.a. til samræmis við þá
staðreynd að flestir húsbyggjend-
ur eru á aldrinum 30-40 ára.
—AI