Þjóðviljinn - 17.05.1979, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. mai 1979.
Minningabrot
Rögnvaldur Bergmann Ásmundsson
Fœddur 3. sept. 1906 Dáinn 15. apríl 1979
Þeim fækkar nú óðum sem slitu
barnsskónum nærri siðustu alda-
mótum og þegar góðvinur kveður
er sem endurminningarnar
skýrist.
Siöast liðinn páskadag barst
mér fregnin um að Rögnvaldur
Bergmann Amundason væri lát-
inn. Fjarri fór þvi að það kæmi
mér á óvart þvi að ég vissi að
hann hafði legiö hér á sjúkrahúsi
siöustu vikurnar, oft sárþjáður,
en fregnin kallaði samt hug minn
til baka að æskudögum okkar i
Hliöardal.
Rögnvaldur var fæddur aö
Uppsölum i Miðfirði 3. september
1906, sonur hjónanna Astu
Margrétar Sigfúsdóttur
Bergmann og Ámunda Jónssonar
Marz Jósefssonar frá Dalkoti á
Vatnsnesi. Stuttu siöar fluttu
hjónin i Hliðardal og settu bú sitt
saman að Dalkoti og þar bjuggu
þau siðan lengst af. Mikils þurfti
við, fjölskyldan var stór þvi börn-
in urðu alls þrettán. Húsakostur
var litill og ófullkominn og
hjálpartæki við búskapinn litt
þekkt á þeim árum. Það mdtti
segja að það eina sem alltaf var
fyrir hendi og fullnægði þörfum
heimilisins væri vatnið i Dalkots-
ánni en það tók i handleggi hús-
móðurinnar aö bera það upp
brekkuna i bæinn sinn.
Hliðardalurinn var sérstakur
reitur innan sveitarinnar.
Kyrrlátur, friðsæll og sumar-
fagur, en hann átti þó sinar and-
stæður. Hörkubyljir vetrarins
voru oft skjótir að skella þar á
þekju. Vinna og varúð varð að
vera i öndvegi. Lifsbaráttan var
hörð og þá byrði varð hver og einn
aðaxla eftirgetu, bæði þeir yngri
Eins og fram hefur komið i
fréttum hefur fyrrverandi for-
stjóri Bæjarútgerðar Hafnar-
fjarðar, Guðmundur R. Yngva-
son, orðið uppvis að fjármálalegu
misferli i störfum sinum hjá fyr-
irtækinu meðan hann var þar
stjórnandi. Her er um aö ræða
fjárdrátt frá fyrirtækinu með
þeim hætti að hann greiddi sjálf-
um sér peninga sem fyrirfram-
greidd laun sem hann hafði ekki
unnið fyrir og átti að sjálfsögðu
ekkert í. Ætti Guðmundur þvi að
bera ábyrgð á gerðum slnum
fyrir dómstólum eins og aðrir
sem uppvisir verta aö broti á
landslögum.
Þessi fregn um misferli for-
stjóra B.H. vekur hjá mér marg-
ar spurningar varöandi störf hans
hjá B.H. og þvi sendi ég þetta
opna bréf til útgerðarráðs B.H. er
nú situr. Utgerðarráð er kosið af
Hafnfirðingum til að bera ábyrgð
á stjórn þeirra eigin fyrirtækis
og ber þvi skylda til að svara
opinberlega eftirfarandi s.purn-
ingum er ég ber hér fram, og
áreiðanlegt er að fleiri Hafn-
firðingar en ég vilja fá við þeim
skýr svör og eiga til þess fyllstu
kröfu.
I. Salan á stóra Mai og kaupin á
þeim nýja.
1. Hvert var hiö rétta söluverö á
gamla Mai til Noregs? Nefnd hef-
ur verið talan 122 milj. kr. Ef satt
og eldri. Þarna var skammt á
milli bæja þar sem ungur gróöur
var i uppvexti. Þaö mátti lita á
dalbúana sem eina samstæða
fjölskyldu, hvort heldur sem
mætt var til hjálpar á erfiðleika-
stundum eða til gleðimóta.
Við Rögnvaldur, Valdi eins og
hann var oft kallaður i okkar hóp,
vorum á svipum aldri og sam-
eiginlegt hjá okkur var að vera
elstir af okkur systkinum. Það
var eðlilegt að við yrðum sam-
rýmdir enda varð það svo öll þau
ár sem við vorum saman þarna i
dalnum man ég ekki til að vinátta
okkar biði neina hnekki. Ég varð
heldur aldrei var við falskan tón
frá brjósti þessa leikbróður mins.
Ungir vorum við er farið var að
vinna saman i leik og starfi. Við
vorum litlir karlar þegar við
fundum út að hjálpast að við að
stilla reiðskjóta okkar við bak-
þúfuna. og á stjörnubjörtum
siðkvöldum hlupum við tiðum á
milli bæja og þá datt okkur i hug
að draga til stafs og teikna rósir á
frosthrimuð svellin með smala-
prikum okkar. Um hátiðir voru
jafnan gestaboð á milli bæjanna.
Fólkið hraðaði sér við kvöldverk-
in og svo var haldið af stað
þangað sem unað var við fjörugar
samræður, leiki og söng lengi
nætur og þessar samkomur fund-
ust okkur sem sólargeislar i
fábreyttu lifi.
Kornungur fór Rögnvaldur að
fást við fjárgæslu á heimili
foreldra sinna og til aö byrja með
var það forustuærin sem fór fyrir
fjárhópnum sem átti að segja til
um veðrabrigði og ráða hvenær
haldið var af haganum heim til
húsa, en við þessi störf öðlaðist
er, þá er þetta gjöf en ekki sala.
2. Hvert var kaupverð á litla
Mai og hver fékk umboðslaun
vegna kaupanna? Fóru þau til
forstjórans eða fóru þau til B.H.
eða einhvers annars aðila?
3. Hverjir voru tilkvaddir til að
taka á móti litla Mai þegar hann
var afhentur B.H. i Noregi á sin-
um tima?
4. Hverjar eru forsendur þess
að kaupin á litla Mai eru nú i
rannsókn hjá Seðlabanka ts-
lands? Var ekki farið að lögum i
sambandi við skipaskiptin hvaö
viökemur uppgefnu söluverði á
stóra Mai og söluverði á litla Mai
uppgefnu til banka og annarra
lánastofnana hérlendis.
II. Frystihúsið og bilastyrkur.
1. Hvaö kostuðu breytingar á
frystihúsi B.H. á sl. hausti og
hvers vegna stuðla þær ekki
nema að litlu leyti að nútima-
rekstri frystihúsa? Urðu hér ein-
hver mistök varðandi þessar
breytingar?
2. Hvað varð af pökkunar- og
snyrtiborðum i húsinu sem voru,
samtals 17 samstæður: Hafa þau
skilað sér aftur i húsið?
3. Hver voru mánaðarlaun
þeirra Guðna og Leifs verkstjóra
er komu til starfa hjá B.H. eftir
að sóma- og drengskaparmannin-
um Pétri Kristbergssyni var að ó-
sekju vikið frá störfum eftir ára-
tuga þjónustu hjá B.H.?
4. Höfðu þeir einhver hlunnindi
svo sem yfirborganir og bila-
styrki og þá hve mikið i krónu-
tölu?
5. Hver voru laun Borgþórs
Péturssonar árið 1978? Var hann
yfirborgaður og/eða á bilastyrk
og þá hve mikið i krónutölu?
III. Fyrirgreiðsla til forstjór-
ans.
1. Er það rétt að forstjórinn
Guðmundur R. Yngvason hafi
fengið bilastyrk á árinu 1978 kr.
41.700 á mánuði?
2. Fékk forstjórinn fjárhagsað-
stoð frá B.H. i formi bilastyrks
árið 1977 þegar bill hans var i
Rögnvaldur næman skilning á
eðli og þörfum búsmalans. Hann
var athugull og nærfærinn við
fénað sinn og smalamaður þótti
hann bestur þar um slóðir.
Arið 1934 markaði timamót i lifi
Rögnvaldar þvi það ár kynntist
hann eftirlifandi konu sinni
Sigrúnu Jónsdóttur, ættaðri úr
Skagafirði, og ári siðar settu þau
bú sitt saman að Þóreyjarnúpi i
Kirkjuhvammshreppi. A
Þóreyjarnúpi voru þau næstu
þrjú árin en fluttu þá til
Hvammstanga og bjuggu þar
iengst af á smábýlinu Snælandi i
úthverfi þorpsins.
A Hvammsganga stundaði
Rögnvaldur almenna verka-
mannavinnu en gerði jafntframt
út fiskibát til sjóróðra i félagi
við Ólaf bróður sinn og siðar
annan bát i félagi við menn þar
á staðnum. Var hann for-
maður á þeim bát og fórst það
vel úr hendi sem önnur störf.
Þó mun þrá hans til sveitar-
innar jafnan hafa vakað undir
en jarönæði lá ekki á lausu
á þeim árum þar um slóðir. Svo
var það árið 1951 að hjónin tóku
sig upp og fluttu norður i Engi-
hliðarhrepp i Vatnahverfi, býli
skammt frá Blönduósi, og með
þvi lauk fastri búsetu þeirra i
Vestur-Húnavatnssýslu. Man ég
vel heimsókn mina þangað til
þeirra hjóna. Móttökurnar voru
sem vænta mátti. Hjá þeim
skorti aldrei kost eða húsrými er
gest bar að garði. Það var
ánægjulegt að renna huganum
yfir spunninn æviþráð og rifja eitt
og annað upp frá fyrri tið, og
umbæturþar á húsakosti ogrækt-
un vitnuðu best um samstöðu
viðgerð á verkstæði svo mán-
uðum skipti á sama tima?
Greiddi B.H. þá bilaleigubil þann
sem forstjórinn hafi i notkun á
meðan hans einkabill var á verk-
stæði? Fékk hann hvort tveggja
greitt bilastyrk og bilaleigubil
meðan bill hans var til viðgerðar?
3. Fékk G.uömundur forstjóri
B.H. fyrirgreiðslu og hjálp frá
B.H. vegna viðgerðarkostnaöar á
einkabil hans og ef svo hefur ver-
ið hve há var sú fjárupphæö?
4. Tók B.H. einhvern þátt i við-
gerðarkostnaði vegna breytinga
sem fram fóru á einkahúsi Guð-
mundar árið 1977 og ef svo hefur
verið þá hve mikið i krónutölu?
5. Hve mikil voru heildarlaun
Guðmundar R. Yngvasonar for-
stjóra B.H. frá 15. september 1975
og þar til hann hætti störfum hjá
B.H. og hvaða frfðinda naut hann
hjá B.H. á þessu tímabili? Sund-
urliðun óskast fyrir hvert ár, nán-
ar tiltekið fastakaup á mánuði,
bilastyrkur á mánuði og önnur
friðindi og greiðslur.
Aö lokum almenn spurning.
Hvaða aðilar voru það sem fengu
fullnaöaruppgjör hjá B.H. við sið-
ustu áramót og sérstaklega sið-
ustu mánuði ársins 1978?
Þegar ég varpa fram þessum
spurningum minum til útgerðar-
ráðs B.H., er nú situr, er það
vegna þess hve margt er hulið al-
menningi sem gerst hefur hjá
B.H. og er að gerast eins og til
dæmis það sem nú er að koma i
dagsljósið um starfsháttu fyrr-
verandi forstjóra. Þetta er ljót
saga og vekur hjá manni ýmsan
grun um að ekki sé allt eins og
það á að vera.
Það á enga stoð i lögum að út-
gerðarráð B.H. geti lagt blessun
sina yfir þá starfsháttu forstjór-
ans sem komið hafa fram að fara
meö fé B.H., þ.e. fé almennings,
eins og um hans eigið fé sé að
hjónanna. En það sem mér
verður einna minnisstæðast af
samtali okkar i það sinn er hvað
Rögnvaldi lágu þá hlý orð á
tungu til nágranna sinna og ann-
arra sveitunga norður þar.
Þau Sigrún og Rögnvaldur
eignuðust tvö börn, Ámunda sem
fæddur var 1935, en nú látinn, og
Sigurbjörgu fædda 1940. Þá
fóstruðu þau tvö börn frá fyrra
hjónabandi Sigrúnar, Armann
fæddan 1927 og Astu fædda 1929.
Einnig ólst upp hjá þeim
dóttursonur þeirra Rögnvaldur
Ömar Gunnarsson.
Vera hjónanna i Vatnahverfi
varð alls 19 ár eða til ársins 1970,
en þá var heilsa þeirra tekin að
bila svo þau brugðu þar búi og
seldu jörðina en fluttu suður I
nágrenni barna sinna og annarra
ættmenna. En alltaf var hugurinn
sá sami, bundinn jörð, gróðri og
lífi, það er að segja lesningu á bók
náttúrunnar. Þau tryggðu sér þvi
samastað á smábýli hér, Katrin-
arkoti I Garðabæ, þar sem þau
höfðu nokkurn búskap,þar dvöldu
þau siðan. Starfsdagurinn var
orðinn langur og vel hafði unnið
verið, enda þrekið með eindæm-
um.
Jarðarför Rögnvaldar fór fram
að viðstöddu fjölmenni frá Foss-
vogskirkju 24. april siðast liðinn.
Það var bjartur, heiðskír, ylrikur
vordagur og þegar ég lit til baka
að þeirri stund finnst mér dagur-
inn minna á hugarþel drengsins
sem við þá vorum að kveðja.
Vertu sæll Valdi minn.
Kær kveðja frá mér til Sigrún-
ar, barnanna og annarra ætt-
menna og vina Rögnvaldar Berg-
manns Amundasonar.
ræða. Ef þetta er látið viðgangast
hjá stofnunum Hafnarfjarðar-
bæjar, er hér sú hætta á ferð, að
starfsmenn i trúnaðarstöðum hjá
bænum geti dregið sér fé stofnun-
arinnan til eigin ráðstöfunar að
vild hverju sinni og komið svo til
kjörinnar stjórnar, útgeröarráðs i
þessu tilviki, og sagt: ,,Ég bókaði
yfirdrátt á kaupi sem ég tók mér,
ég ætla að borga það til baka, ég
er hættur störfum, takk fyrir. Ég
treysti ykkur til að láta þetta ekki
fara fyrir dómstóla, svo vel sem
þið hafiö reynst mér i samstarfi.”
Ef núverandi útgerðarráð verð-
ur látið komast upp með slikt for-
dæmi, hvar endar þá slikt? Jú,
þetta verður fyrst venja, siðan
hefð og að lokum lög. Slikt má
aldrei veröa hjá Hafnarfjarðar-
bæ. Eitt fordæmi er fyrir, annað
má ekki verða.
Okkur Hafnfirðinga fer að
vanta ungan og efnilegan lögfræð-
ing til starfa i þágu bæjarfélags-
ins, lögfræðing sem fylgir réttlæt-
inu eftir og nær þvi i höfn eins og
gerðist hér á árunum þegar hér
var hinn efnilegi lögfræöingur
sem gat sér landsfrægðar i svo-
nefndu Lýsi og Mjöl máli en það
mál fór fyrir hæstarétt á sinum
tima. Mig minnir aö hinn ungi
maður sem þá vann i þágu hags-
muna Hafnarfjarðarbæjar hafi |
heitið Arni Gunnlaugsson. Skyldi i
hann vera fluttur úr bænum eða I
af landi brott? Það heyrist ekki |
hljóð frá honum nú þegar brotið I
er gegn hagsmunum Hafnfirð: J
inga. Gæti veriö aö hann væri i |
vestrænu menningarfangelsi á '
vegum kollega sins i fasteigna- |
braskinu i Hafnarfirði, Arna I
Grétars Finnssonar? Þar ræður !
gullkálfurinn rikjum og gerir ■
menn staurblinda fyrir öllu i
mannleguréttlæti.en iþeim anda ;
lýk ég þessu bréfi til útgerðarráös j
Bæjarútgerðar Hafnarfjaröar j
með kveðju til Hafnfirðinga og '
landsmanna annarra sem þaö j
kynnu að lesa.
Markús B. Þorgeirsson. 1
Ný vasa-
söngbók,
„Tökum
lagið”
Bókaútgáfan IÐUNN hefur sent
frá sér þriðju útgáfu vasasöng-
bókarinnar TöKUM LAGIÐ.
Þessi útgáfa er aukin og endur-
skoöuð, og annaðist Ási i Bæ
hana.
Fyrsta útgáfa vasasöngbókar-
innar kom út 1960 og var strax
mjög vel tekið. Bókin seldist upp
á skömmum tima, og var gefin út
fimm árum siðar i nýrri gerð. Sú
útgáfa er einnig fyrir nokkru
uppseld.
1 nýju útgáfunni er að finna,
auk alkunnra söngtexta frá fyrri
tið, úrval texta sem til hafa orðið
á seinni árum og náð vinsældum.
Safnið er einkar fjölbreytt og
rnunu allir geta fundið þar
eitthvað sem hentar þegar fólk
vill lyfta undir stemmninguna
með söng á vinamótum, feröalög-
um og hvar sem rnenn skemmta
sér saman.
Tökum lagiðgeymir hátt á ann-
að hundrað söngtexta. Bókin er
186 bls. i handhægu vasabroti.
Prenttækni hf. prentaði.
BARNŒ) ÞITT
Bók fyrir
foreldra
Bókaútgáfan IÐUNN hefur sent
frá sér bók sem nefnist Barnið
þitt. Hún er ætluð foreldrum sem
vilja halda til haga ýmsum
fróöleik um þroskaferil barna
sinna fyrstu árin. Er til þess ætl-
ast að uppiýsingar um ýmislegt
sem slikt varöar séu færðar inn i
bókina: Fæðingin (þyngd og
lengd barns við fæðingu o.s.frv.),
skirnin, fjölskylda barnsins,
vöxtur þess, þroski, heilsufar,
samskipti við umhverfið, leikir og
fyrstu spor á skólagöngu. — Bók-
in er prýdd teikningum eftir
Jacqui Ward. Margrét Jónsdóttir
þýddi texta bókarinnar sem
prentuð er i Bretlandi.
Agúst frá Svalbaröi
Opið bréf til stjórnar
Bæjarútgerðar Hafnaríjarðar