Þjóðviljinn - 22.05.1979, Side 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN . Þriöjudagur 22. mal 1979.
íþróttir í/m iþróttir [/) íþróttír
/ J U amBÍón: INGftLFUR HANNESSONt * ° J ■
Knattspymulandsleikir við Svisslendinga og Vestur-Þjóðverja
Missa íslenskir sjónvarps-
áhorfendur af leikjunum?
„Það er öruggt að við
getum ekki sýnt leikinn
við Vestur-Þjóðverja og
miklar líkur á að svo
verði einnig með leikinn
gegn Svisslendingum í
Bern. Þessu er mest að
kenna stlfni og óbilgirni
þeirra hjá KSI/" sagði
Bjarni Felixson/ íþrótta-
fréttamaður Sjónvarps-
ins/ þegar Þjv. leitaði eft-
ir þvi/ hvort leikurinn
gegn Sviss yrði sýndur á
næstunni.
Bjarni rakti siðan gang samn-
ingaviöræöna Sjónvarpsins og
KSÍ og sagöi m.a.: ’
— Um miöjan mars buöu
Svissiendingarnir okkur leikinn
Holland-Argentina og viö send-
um þeim telex og sögöumst
aðallega hafa áhuga á hinum
leiknum, þ.e. tsland-Sviss. Þeir
vildu selja okkur þann leik á
góöum kjörum ef viö sæjum
þeim fyrir 15 mln. bát af leik
sömu þjóöa, sem fram fer á
Laugardalsvelli 9. júnf. Þá
leituöum viö eftir þvi hjá KSÍ aö
fá aö taka upp þessar 15 mfn, en
þeir voru ekki til viöræöu um
annað en aö allur leikurinn
fylgdi meö, og á lægri tölu en 2
milj. hlustuöu þeir ekki. Vitan-
lega er þaö af og frá aö Sjón-
varpiö hafi bolmagn til þess aö
greiða svo mikiö. Þannig hefö-
um viö þurft aö borga KSt rúm-
ar 2 milj. fyrir þessar 15 mfn og
siöan Svisslendingunum 300
þús.
— Svisslendingarnir hafa
veriö ákaflega skilningsgóðir á
okkar vandamál og nú hafa þeir
boöist til þess aö senda okkur
leikinn fyrir um 600 þús. og aö
viö gerum þeim ákveöinn greiöa
i staöinn, sem erfitt veröur aö
gera vegna þess hve fyrirvar-
inn er stuttur. Þó vona ég I
Iengstu lög aö þetta smelli sam-
an hjá okkur og Sjónvarpiö geti
sýnt þennan mikla leik á næst-
unni.
— Einsog ég sagöi áöan, þá
veröur leikurinn viö Þjóöverj-
ana örugglega ekki sýndur, þvi
enn hafa ekki tekist samningar
miili KSl og Sjónvarpsins. Þaö
ber svo mikið á milli aö óliklegt
er aö landsleikir sumarsins
veröi á skjánum i sumar.
— Aö lokum langar mig til aö
upplýsa þaö, aö Sjónvarpiö
borgaði um 200 þús. kr. fyrir úr-
siitaleikinn I ensku bikarkeppn-
inni milli Arsenal og Manchest-
er United.
Eins og af framansögðu sést
viröist þrákelkni þeirra Knatt-
spyrnusambandsmanna vera
nær óskiljanleg. KSI hugsar
greinilega um ekkert annaö en
aö hafa sem mest útúr þessum
samningum viö Sjónvarpið og
er ekkert tillit tekiö til þess fólks
sem af ýmsum orsökum getur
ekki séö landsleikina.
Þá er furðulegt aö ekki skulu
fást leyfi til aö taka upp 15 mfn.
bút, sem Sjónvarpsmenn voru
jafnvel búnir aö lofa aö yröi ekki
sýndur hér heima, ef þaö mætti
veröa til þess aö liðka samn-
ingagerðina.
HérþarfKStaö gera hreint
fyrir sfnum dyrum.
IngH
Steve Coppell átti mjög góðan leik gegn irum, skoraöi annaö markiö og
lagöi hitt upp.
Toshack sá um
mörk Walesbúa
Hinn kunni leikmaður og fram-
kvæmdastjóri Swansea, John
Toshack, var heldur betur f stuöi
þegar hann lék landsleik meö
Wales gegn Skotum á laugardag-
inn. Gamli maöurinn var óstööv-
andi og skoraði öll mörk Wales f
leiknum, sem endaði 3-0. Þá
sigruöu Englendingar Noröur-ira
2-0.
Sigur Walesbúa var ákaflega
sætur, þvi fyrir tveimur árum
sigruöu Skotarnir Wales 1-0, og
þau úrslit þýddu aö Wales komst
ekki I úrslit heimsmeistara-
keppninnar. í framlinu Wales
léku þeir leikmenn sem séö hafa
um aö skora mörkin fyrir Sean-
sea i vetur, Toshack, Alan Curtis
(nú Leeds) og Robbie James.
Þessa kappa réö skoska vörnin
ekki viö, og Toshack skoraöi
mörksta á 30., 38. og 81. min., öll
eftir aö hafa haft betur i návlgj-
um gegn Paul Hegarty, miövörö
Skotanna.
Skotarnir áttu sist minna I
þessum leik þó aö þeir hafi ekki
getaö skoraö mörk. Munurinn á
liöunum lá aöallega I þvf aö Tos-
hack lék meö Wales.
1 Belfast áttust viö heimamenn
og Englendingar, og þar geröu
þeir ensku út um leikinn á 7 min,
kafla I fyrri hálfleiknum. Dave
Watson skoraöi á 9. min. eftir
fyrirgjöf frá Steve Coppell, og á
16. min. skoraöi Coppell sjálfur
eftir aö hann og Terry McDer-
mott höfðu tætt vörn tranna sund-
ur.
Eftir leikinn var stjóri enskra,
Ron Greenwood, hinn ánægöasti
og sagöi aö sinir menn heföu
minnst átt aö skora 5 mörk i fyrri
hálfleiknum. Greenwood hefur
reyndar mikla ástæöu til aö kæt-
ast, þvi England hefur aöeins tap-
aö einu sinni I siöustu 14 lands-
leikjum.
—IngH
Blikarnir komnir á skrið
Sigruðu ísfirðinga örugglega 3:0
Breiöabliksmenn réttu nokkuö
úr kútnum á sunnudaginn, en
fyrsti leikur þeirra I 2. deildinni
varö mörgum mikil vonbrigöi.
Þeir sóttu látlaust állan leikinn -
gegn tsfiröingum, og uppskeran
varö þrjú mörk, 3 — 0, sigur sem i
rauninni heföi getaö oröiö mun
stærri.
A 25. min einlék Vignir
Baldursson upp allan völlin og gaf
fyrir markiö. Eftir nokkurtþóf
tókst Siguröi Grétarssyni aö
skora, 1 — 0. Blikarnir bættu ööru
marki viö á lokamlnútu fyrri
hálfleiksins, en rétt áöur en
knötturinn fór I markiö, flautaöi
Róbert Jónsson dómari til leik-
hlés.
í seinni hálfleiknum bættu
blikarnir tveimur mörkum viö.
Fyrst Þór Hreiöarsson eftir fyrir-
gjöf frá Hákoni og slöan Sigurjón
Rannversson.
Liö Isfirðinga er hvorki fugl né
fiskur, enda ekki aö undra þar
sem 6 — 7 bestu leikmennirnir frá
þvi I fyrra hafa yfirgefiö þaö. Þó
er nokkuö mikil barátta I liöinu,
og vera kann aö þeir hali inn
nokkur stig á mölinni I sumar.
Breiöabliksliöiö leikur sóknina
mjög vitlaust taktiskt séö. Miö-
herjinn þeirra, Siguröur Grétars-
son, spilar allt of aftarlega og I
rauninni ætti hann aö leika á
vinstri kantinum. Þetta veldur
þvl aö allan brodd vantar I
sóknarleikinn þar sem aftasti
leikmaöur andstæöinganna getur
vaklaö upp samherja I vörninni
leikiö sem „sweeper”. Þetta
skeöi einmitt gegn Selfossi um
daginn. Þá má nefna þaö, aö vörn
Blikanna er oft á tiöum allt of flöt
og þvi gengur illa aö verjast
stunguboltum. Verði þessi tvö at-
riöi löguö, er óhætt aö spá Breiöa-
blik öruggri setu I 1. deild aö ári.
1 leiknum gegn Isfiröingum var
Vignir Baldursson langbestur og
hefur sennilega aldrei leikiö bet-
ur.
Ingh
m ■■■■■■■ mi ■ ■■■■■■ ■■ ■■■■■■ ■■iimi m
: Landsleikurinn 1 Sviss í kvöld:
'1
Mikill hugur i
strákunum
„Hér eru allir við
hestaheilsu og ekki
spillir veðrið, 20 gráðu
hiti og logn,” sagði
Helgi Danielsson,
form. landsliðsnefndar
þegar Þjf. hafði sam-
band við hann i gær.
Allir landsliðsmennirn-
ir voru þá komnir til
Bern, að Jóhannesi Eð-
valdssyni undanskild-
um, en hann er væntan-
legur um hádegisbilið i
dag.
— 1 gær vorum viö I mikilli
veislu, sem Argentlnumennirnir
héldu I Iþróttahúsi hér I borg-
inni, og var þar mikiö um dýrö-
ir. Argentínsku leikmennirnir
voru umkringdir allan tlmann
af æstum eiginhandaáritunar-
söfnurum og fengu ekki friö allt
kvöldiö. Ollu minna var látiö
meö okkar stráka.
— I dag er ætlunin aö æfa á
vellinum, sem leikiö veröur á,
en hann heitir Wankdorf Stadion
og er mjög glæsilegur I alla
staöi. A þessum velli var úr-
slitaleikurinn I heimsmeistara-
keppninni 1954 leikinn, en þá
sigruöu Þjóöverjar hiö fræga liö
Ungverja 3-2. Annars er leik-
vangurinn heimavöllur svissn-
eska liösins Young Boys. Hann
er ákaflega 'haröur og kemur
það strákunum okkar ekki svo
illa þar sem þeir eru vanir möl-
inni heima.
— Nei, blessaöur vertu, ég hef
ekki oröið var viö aö „njósnar-
ar” væru á vappi i kring um
okkur. Hins vegar þykir mér
ekki óllklegt aö einhverjir birt-
ist eftir leikinn og I rauninni ó-
trúlegt annað en einhver hreyf-
ing veröi á þessum málum eftir
leikinn viö Þjóðverjana heima á
laugardaginn.
— I kvöld veröum viö meö
blaöamannafund og veröur is-
lenska liöiö þá tilkynnt og e.t.v.
hvernig liðið veröur sem leikur
á laugardaginn gegn Vestur-
Þjóöverjunum. —IngH
Hafþór með þrennu
þegar Þór sigraði Austra 5:2
Fyrsti leikur ÞórsI2. deildinni i
ár var háöur á Sanavellinum á
laugardaginn, og voru mótherj-
arnir Austri frá Eskifiröi. Eftir
nokkurn barning tókst Þórsurun-
um aö knýja fram sigur, 5-2.
Þór byrjaði aö skora, og var
þar Björn Arnason aö verki, en
Austramenn jöfnuöu fyrir leikhlé
og skoraði þjálfarinn Sigurbjörn
Marinósson.
1 upphafi seinni hálfleiksins
kom Bjarni Kristjánsson Aust-
firöingunum yfir, 2-1, og virtust
þeir llklegir til aö halda þessu for-
skoti. Hafþór Helgason (áöur
Völsungi) skoraöi þá tvö mörk
meö stuttu millibili og þar meö
voru Þórsararnir komnir meö
unninn leik. Hafþór bætti slðan
slnu þriöja marki viö, og einnig
skoraöiGuömundur Skarphéöins-
son, 5-2.