Þjóðviljinn - 09.06.1979, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 09.06.1979, Qupperneq 3
Laugardagur 9. Júnl, 1979 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3 Troöfullt var á „ Jakobínu vöku” Það eru fleiri en hún Guðrún Á. sem draga til sín áheyrendur á fögrum kvöldum. Norræna húsið troðf ylltist og meira en það þegar dagskrá úr verkum Jakobinu Sigurðardóttur var flutt á fimmtudags- kvöldið var. Fólk á öllum aldri kom til að hlýða á lestur, leik og söng úr skáldsögumog Ijóðabókum Jakobínu. Dagskráin hófst á stuttu erindi Helgu Sigurjónsdóttur um skáldkonuna og verk hennar, en siöan fluttu leikararnir Arnar Jónsson, Guðrún Þ. Stephensen, Gerður Guðmundsdóttur og Björn Karlsson ásamt þeim Silju Aðalsteinsdóttur, Kristinu Jónsdóttur, og Sigrúnu Hjartar- dóttur, sem allar eru félagar i Rauðsokkahreyfingunni, lesinn og leikinn texta. Tónlistin var i höndum þeirra Fjólu ólafsdóttur, Olgu Guðrúnar Arnadóttur, Gunnar Rafns Guðmundssonar og Hrannar flautuleikara, dóttur Fjólu. 1 vali textans var lögð áhersla a að helstu einkenni Jakobinu kæmu fram, annars vegar barátta hennar gegn hervaldi og auðvaldi i liki verndaranna á Miðnesheiði og hins vegar konurnar i verkum hennar sem eru svo mannlegar og lifandi, þó að þær beri vitni kúgun og fordómum samfélagsins. Flutningurinn var sérlega liflegur og skemmtilegur en einkum var lestur Arnar Jóns- sonar á kaflanum úr „Snörunni” og smásagan Lifsháski” i flutningi Guðrúnar Þ. Stephensen áhrifarikt. Mikil stemmning var rikjandi og undir lokin var skáldkonan kölluð fram. Hún ávarpaði flytjendur og gesti og sagði að hún hefði nú aldrei skrifað fyrir listafólk sérstaklega, heldur fyrir Jakobina Sigurðarddttir venjulegt alþýðufólk og ef sér tækist að ná til þess þá væri tilganginum náð. Hins vegar væri gaman að heyra sinn eiginn texta fluttan af listafólki og hún þakkaði flytjendum fyrir, svo og Rauðsokkahreyfingunni sem stóð að dagskránni og bauð Jakobinu suður. — ká Þessir fræknu ffrar drepa humar á miðunum útaf Eldey. Þeim verður vafalaust sungið lof og pris á morgun, sjómannadaginn, og Kristján Ragnarsson og fleiri fuiimektugir hjá Lttl munu kalla þá hetjur hafsins og fleira f þeim dúr. A mánudaginn verður þó áreiðanlega komið annað hljóð i strokk Kristjáns og félaga. Þá ætla þeir nefnilega að láta flotann sigla i höfn og svipta þannig sjómenn atvinnunni. — Mynd-eik. Landsleik ekki siónyarpaö Hafnað var með nafna- kalli af meirihluta útvarpsráðs í gær að ganga að þeim skilyrðum sem KSI setti fyrir sjónvarps- upptöku og útsendingu af landsleiknum í knatt- spyrnu milli islands og Sviss sem háður verður á Laugardalsvelli í dag. Samkomulag hafði orðið um þóknunina til KSt, 1,4 milj. króna, en þá setti KSt það skil- yrði, að ekki mætti senda út leik- inn samdægurs. Aður hafði verið ætlunin að hann yrði sendur i iþróttaþættinum kl. 5 sd. i dag, en til að koma til móts við KSt yrði ekki skýrt frá þvi i dagskránni fyrirfram. A útvarpsráðsfundinum kom fram, að allir fulltrúarnir töldu leikinn gott sjónvarpsefni og útsendingu hans sjálfsagða þjón- ustu við landsmenn, einkum þá sem búa utan stór-Reykjavikur- svæðisins. Þeir sem ekki vildu ganga að skilyrðum KSt töldu hinsvegar óeðlilegt, að sambandið réði útsendingartima og einnig, að leikurinn hefði minna gildi sem sjónvarpsefni þvi lengra sem liði milli hans og sýningartima. Fram kom á fund- inum, að næsti mögulegi útsendingartimi yrði i iþrótta- þætti á mánudagskvöld, en þá ekki hægt að sýna leikinn allan vegna lengdar þáttarins. Hins- vegar hefði verið hægt að sýna hann allan á laugardag i næstu viku. Þeir sem höfnuðu skilyrðum KSI voru Ólafur R. Einarsson, Eiður Guðnason og Vilborg Harðardóttir. Arni Gunnarsson og Þórarinn Þórarinsson vildu ganga aðþeim,enErnaRagnars- dóttir sat hjá við atkvæða- greiðsluna. EllertB. Schram sat ekki fundinn þarsem hann taldi sig ekki geta verið bæði málsvari KSÍ og útvarpsráðs i málinu. t athugasemd sem KSt óskaði eftir að lesin yrði i fréttum hljóðvarps og sjónvarps i gærkvöld, kemur fram, að sambandið taldi boðna greiðslu fyrir rétt til sýningar á lands- leiknum við V-Þjóðverja um dag- inn of lága, væri leikurinn sýndur samdægurs, miðað við þá áhættu að standa fyrir leiknum og þau áhrif sem það kynni að hafa á aðsókn. Sama gildir um leikinn við Sviss i dag. —vh Kröfur Andófs 979 til BSRB Blaðinu hefur borist afrit af bréfi sem Andóf '79 hefur sent til forystu Bandalags starfsmanna rikis og bæja. Bréfið er undirritað af Pétri Péturssyni þul, Helgu Jóhannesdóttur félagsráð- gjafa og Alberti Einarssyni kennara. Þau krefjast þess af forystu BSRB að hún: a) geri réttindakröfu félags- manna BSRB um fullan og óskoraðan samnings- og verkfallsrétt að baráttumáli BSRB nú þegar. b) geri félagsleg og hags- munaleg réttindi félags- manna ekki að verslunar- vöru, en það þýðir að kröfur og ákvæði um réttindi verði ekki tengd launaliðum samninga á nokkurn hátt. c) setji fram skýra afstöðu sina i þessu máli nú þegar, a.m.k. fyrir 19.6.1979.” Þá segir i bréfinu: „Formannaráðstefna og samninganefnd BSRB hefur áður (sept. og okt. 1978) fjallað um kröfuna um óskoraðan samningsrétt fyr- ir BSRB og lagt hana til grundvallar réttindabaráttu félaga BSRB. A þeim grund- velli og á grundvelli ómót- mæltra yfirlýsinga forystu- manna BSRB um að fullur samningís- og verkfallsréttur sé sjálfsögð mannréttindi, er forystu BSRB fátt að van- búnaði að setja framan- greinda kröfu um óskoraðan samningsrétt fram nú þegar sem kröfu BSRB. Nýafstaðin allsherjarat- kvæðagreiðsla innan BSRB sýndi ljóslega að kjaramála- stefnu forystu BSRB var hafnað i veigamiklum atrið- um. Þvi hefur lika verið hafnað af félögum BSRB að ákvæðium réttindi séutengd launaliðum samninganna. Framangreindar kröfur eru rökréttar sem framhald á baráttu BSRB fyrir bættari samningsaðstöðu.” r Utihátíd á Kjarvalsstöðum Útihátíð verður að Kjarvalsstöðum nú um helgina í tengslum við ráðstefnuna sem þar er haldin á vegum Lifs og landS/ en hún nefnist ,/Maður og borg". (Jtidagskráin byrjar kl. 13.15 báða dagana. Hún hefst með ávarpi Elinar Pálmadóttur borgarfltr. i dag, en siðan verður einsöngur, popptónlist, þjóðlaga- söngur, harmonikkumúsík, jass og brúðuleikur. A morgun ávarpar Guðrún Helgadóttir borgarfltr. samkonuna og þá verður einnig flutt blönduð dagskrá þar sem ma. koma fram Alþýðuleikhúsið, sænskur barnakór, töframaður og margir fleiri. Margir þekktir listamenn koma fram báða dagana og dagskráin er jafnt við hæfi barna og fullorðinna. Mjólkur- samningar samþykktir Bæði Vinnumálasamband Sam vinnufélaganna og framkvæmdastjórn Vinnu- veitendasambands tslands samþykktuá fundum sinum i gærmorgun samningana við mjólkurfræðinga sem undir- ritaðir voru aðfaranótt fimmtudagsins. Mjólkur- fræðingar samþykktu þá fyrir sitt leyti á fundi i fyrra- dag einsog sagt var frá i Þjóðviljanum. —vh Ungur piltur játar íkveikju Ungur piltur hefur játað að vera valdur að brunanum i frystihúsinu á Stokkseyri. Rannsóknarlögregla rikis- ins aðstoðaði lögregluna á Selfossi við rannsókn máls- ins og eftir að þeir komu i spilið komst skriður á málið. Pilturinn kom fyrir dóm á Selfossi i gær og var þar dæmdur í gæsluvarðhald til 4. júli meðan rannsókn máls- ins verður fram haldið. —ká 4 sóttu um prófessors- embœtti í félagsfræði Umsóknarfresti um prófessorsembætti i félags- fræði i Félagsvisindadeild Háskóla Islands lauk 1. júni s.l. Umsækjendur eru: Björn Stefánsson, lic. agric., Dóra 5. Bjarnason, M.A., Þorbjörn Broddason, lektor, dr. Þórólfur Þórlindsson, lektor. Innbrot i ÁTVR á Isafirði Innbrot var framið i Afengisverslunina á tsafirði i fyrrinótt. Að sögn lögreglunnar á tsafirði brutust þjófarnir inn um aðaldyr verslunarinnar og höfðu á brott meö sér tvo kassa af áfengi. Innbrots- þjófarnir náðust hins vegar fljótlega og er þvi afbrotið upplýst. Helgar- vinnubann í frystihúsum Frá og með 9. júni gengur i gildi helgarvinnubann i frystihúsum á félagssvæði verkakvennafélagsins Framsóknar og verka- mannaféiagsins Dagsbrún- ar. Banniö stendur til 1. sept- ember og er ætlaö að tryggja að ekki verði unnið á laugar- dögum og sunnudögum. — ká Enginn skortur á tóbaki og áfengi Litill sem enginn vöru- skortur er farinn að gera vart við sig hjá Afengis og tókbaksverslun rfkisins, þótt ein og ein tegund sé uppurin af áfengi, vegna farmanna- verkfallsins. AB sögn Ragnars Jónsson- ar hjá ATVR hefur veriö pantað tóbak með flugi þar sem á hefur vantað. __________ — Þig

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.