Þjóðviljinn - 09.06.1979, Síða 6

Þjóðviljinn - 09.06.1979, Síða 6
6 StÐA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 9. Júni, 1979 um helgina Kynning á kvennalist: Myndlistarkonur í Ásmundarsal 1 kvöld kl. 8.00 opna mynd- listarkonur sýningu i Ásmundar- sal við Freyjugötu. Þær sem sýna eru flestarnýbúnar að ljúka námi og hafa ekki látið mikið á sérbera i myndlistarlif inu hingað til. Það er Rauðsokkahreyfingin og Suðurgötu 7 samtökin sem að sýningunni standa og er hún liður i kynningu á kvennalist sem staðið hefur að undanförnu. Aðstandendur ákváðu að láta hvern lið fyrir sig tala sinu máli i stað þess að auglýsa allt með pomp og prakt og gauragangi. Sýningar þeirra Mary Beth Edelson og Eddu Jónsdóttur voru i tenglsum við þessa kynningu og hið sama er að segja um dagskrá úr verkum Jakobinu Sigurðar- dóttur sem flutt var sl. fimmtu- dagskvöld við frábærar undir- tektir. A sýningunni i Ásmundarsal kennir ýmissa grasa. Þar eru málverk, svartlistarmyndir, silkiþrykk, performance. vefnaður, 1 jósmyndaverk og fleira. Það er sérkennilegt við þessa sýningu að hver og ein velur sin verk sjálf, en venjulega er einhver dómnefnd sem dæmir hvað er sýningarvert. Verkin eiga að dæma sig sjálf. Sýningin stendur til 19. júni og er opin virka daga kl. 5-10 og um helgar frá 2-10. —ká s Konur hafa sótt æ meir f sig veðrið i myndlistinni. Þessi mynd var tekin við undirbúning afmælissýning ar MHÍ i mai sl. Göngudagur Feröafélagsins A sunnudaginn kemur, 10. júni, verður göngudagur Ferðafélags Islands 1979. Gangan hefst við Kolviðarhól og verður gengið umhverfis Skarðsmýrarfjall, vestur Innstadal um Sleggju- beinsskarð og að Kolviðarhóli. Alls er þetta um 12—13 km vegalengd, og ætti ekki að taka meira en 5 klst. með góðum hvildum að ganga þessa leið. Með þessum göngudegi er ætlun F.l. að fá sem flesta til að iðka gönguferðir, sem er að flestra dómi bæði andleg og likamleg heilsubót. Framkvæmd dagskrárinnar verður þannig, að þrjár ferðir, verða farnar i hópferðabil frá Umferðarmiðstöðinni i Reykjavik, kl. 10.00, kl. 11.30 og kl. 13.00, að Kolviðarhóli og verða leiðsögumenn með hverjum hópi. Einnig geta einstaklingar og hópar komið á eigin bilum að Kolviðarhóli og gengið þaðan umrædda leið, hvort sem þeir vilja einir eða siegist i för með þeim, sem koma á vegum félagsins. Félagið mun hafa bækistöð á Kolviðarhóli meðan gangan stendur yfir, og er þar hægt að fá nánari upplýsingar og fá merki dagsins sem kostar 500 kr. fyrir fullorðna, en fritt fyrir börn. Umrædd gönguleið verður merkt, svo að engin hætta verður á, að fólk fari rangar leiðir. Hér gefur að lfta einn af „eilífðar- stúdentum” bragða á viðeigandi meðlæti jassins. Djass í Stúdenta- kjallaranum Guðmundur Ingólfsson djass- isti verður á ferð með sitt frækna trió i Stúdentákjallaranum á sunnudagskvöldið næsta. Þar hefur verið stunduð umfangsmik il menningarstarfsemi að undan- förnu og mun ekki linna á næst- unni. Aðgangur er ókeypis og hljóm- leikurinn hefst uppúr hálfniu og stendur frameftir. Þess skal getið að ýmsar ljúfar veigar er hægt að kaupa við litlu gjaldi i Stúdenta- kjallaranum. Fyrir fólk sem þyrstir i góðan djass og viðeig- andi meðlæti verður þvi kjallar- inn sannkölluð vin i eyðimörkinni annað kvöld. ÖS Jóhann G Sídasta helgin Jóhann G. Jóhansson opnaði málverkasýningu að Hamragörðum við Hofsvallagötu um siðustu helgi og stendur hún fram á sunnudag. Þar er opið frá 3- 10 „Líf og land” Um helgina verður útihátið og ráðstefna samtakanna „Lif og iand” að Kjarvalsstöðum og þar i kring. Ráðstefnan fjallar um það hvernig hægt er að gera Reykjavik að liflegri og skemmtilegri borg og úti á túninu verða ýmis skemmti- atriði, útimarkaður og fleira ætlað bæði börnum og fullorðnum. Barnagæsla verður skipulögð og i hliðarsal K jarvalsstaða verða kvikmyndasýningar. Skipulag og jafnrétti Jafnréttisráð efnir til um- ræðufundar á mánudags- kvöldið i Norræna húsinu um bkipulag og jafnrétti. Um- ræðurnar standa i sambandi við sýningu sem nú er i' and- dyri hússins og sýna hug- myndir arkitekta I Sviþjóð um þróun og skipulag borga sem stuðla mega að jafn- rétti. Gestur ólafsson arkitekt reifar málið á fundinum sem hefst kl. 8.30. Elvar Þórðarson með eitt af verkum sinum við höfnina á Stokkseyri. Sýningu aö ljúka Nú um helgina lýkur sýningu Elvars Þórðarsonar sem staðið hefur yfir i Gimli á Stokkseyri frá þvi á laugardag fyrir Hvitasunnu. Elvar er Stokkseyringur og sjálfmenntaður listmálari og er Elvars þetta fjórða einkasýning hans. Alls eru á sýningunni 45 vatns- litamyndir og eru þær til sölu. Að sögn Elvars hefur verið góð aðsókn að sýningunni en eins og áður sagði lýkur henni nú um helgina og þvi fara að vera sið- ustu forvöð fyrir listunnendur að skreppa á málverkasýninguna i Gimli á Stokkseyri. Galleri Suðurgata 7: Dick Higgens sýnir grafikseríu Sunnudaginn 10. júm verður sýning Dick Higgens opnuð i Gallerii Suðurgötu 7. Dick Higgens er væntanlegur til landsins og mun lesa upp úr verkum sinum við opnunina. Higgens er fæddur i Englandi 1938, en hefur búið lengi I Bandarikjunum. Hann hefur lagt stund á margar listgreinar m.a. tónlist, ritlist, kvikmyndun og myndlist. Hann var einn af stofnendum Happenings 1958 og siðar Fluxus 1964 en báðar þessar hreyfingar hafa haft mikil áhrif á myndlist samtimans. Þá stofnaði hann bókaútgáfuna „Something else Press” (Eitthvað annað útgáfan) 1964, en I bókum forlagsins var töluvert gert af þvi að upplýsa fólk um möguleika bókarinnar til mynlistariðkunar. Higgens hefur lagt fleira fyrir sig. Alls hafa komið út um 30 bækur eftir hann og hann hefur siarfað með mörgum heimsþekktum listamönnum. Hann hefur haldið sýningar viöa um heim, en i Suðurgötu 7 sýnir hann grafik-seriu sem heitir & l?.V> 7,7.73. Þessi seria var nýlega á sýningu I New York. 1 Suður- götunni eropið virkadaga kl. 4-10 en 2-10 um helgar til 24. júni. — ká FÍM salurinn: í svart-hvítu Hörður Agústsson og Sigrún Guðjónsdóttir vinna að uppsetningu mynda i FÍM salnum. 1 dag kl. 4 verður opnuð sýning á verkum 14 listamanna i FÍM salnum við Laugarnesveg 112. Þetta er alþjóðleg sýning sem farið hefur um Norðurlönd að undanförnu. Hópur listamanna sem stunda svokallaða „konstruktiva” list. tók sig saman og stofnuðu vinnu- hóp i Antwerpen 1972. A stefnu- skrá þeirra er m.a. aö koma á fót samsýningum, gefa út upplýs- ingarit og láta prenta grafik- möppur. Frumkvæðið að þessari sýn- ingu sem nú er að hefjast höfðu finnskir félagar i hópnum. Einn íslendingur er meðal þeirra sem sýna, Hörður Agústs- son myndlistarmaður. Hann gekk með blaðamanni um salinn og sagði frá verkunum, en sýning- .unni var gefið ákveðið tema sem myndirnar sýna: maximum- minimum, þ.e. hámark-lágmark. Listamennirnir leika sér með form og liti, sýna hámarks og lág- marks stærð forma og flata. Sýn- ingin átti aö vera öll i svart-hvitu, en aðeins bregður út af þvi. Hörður sagði, að sumum fynd- ist þessi sýning kannski tima- skekkja, en I ljós hefði komið að þessi listastefna flata og formtil- rauna hefði lifað af þróun siðustu áratuga og þessi sýning ber þess vott að hún lifir enn góðu lifi. — ká

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.