Þjóðviljinn - 09.06.1979, Page 16
MOÐVIUINN
Laugardagur 9. Júni, 1979
Aöalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9 — 20 mánudaga til
föstudaga, kl. 9—12 f.h. og 17 — 19 e.h. á laugardögum.
Utan þess tima er hægt aö ná I blaöamenn og aöra starfs-
menn blaösins i þessum slmum: Ritstjórn 81382, 81527,
81257 og 81285, afgreiösia 81482 og Blaöaprent 81348.
^ 81333
Einnig skal bent á heima-
sima starfsmanna undir
nafni Þjóöviljans I sima-
skrá.
út
..Alltaf skal alit iiöast gegn
lltiimagnanum. Þannig hefur
þetta verið um aldaraðir hér á
landi. Lægst launaöa stéttin
skal ávallt gefa sitt meðan aörir
safna forða á hennar kostnað”
sagði Jón Guðlaugsson
starfsmaður Eimskips við
Revkjavikurhöfn I samtali við
Þjóðviljann i gær.
Tilefniö var að Eimskipa-
félagiö borgaöi ekki út þá
kauphækkun i gær sem
starfsmenn fy rirtækisins áttu
inni fyrir föstudaginn i siðustu
viku þann 1. júni.
„Þeir segja á skrifstofunni að
það sé ekki enn búið að reikna
þetta út þrátt fyrir allan tækja-
og tölvubúnaðinn. Þó upphæðih
sé ekki mikil fyrir þennan eina
dag þá sýnir þetta bara þann
hug sem borinn er til þeirra
lægst launuðu. Þeir geta beöið
meö að fá sitt kaup rétt
útborgaö, á meðan aðrir eru aö
þenja sig i gerviverkföllum eins
og er hér á höfninni. Auðvitaö er
þaö ihaldiö sem stendur á bak
við þetta verkfall farmanna I
samráði við Vinnuveitendasam-
bandið til að bola rikisstjórninni
frá, það vitum við öll” sagði
Jón.
„Verkalýðshreyfingin er allt-
of lin og rikisstjórnin á að vera
búin að setja lög á þessa
vitleysu fyrirlöngusiðan” sagði
Jónaðlokumog samahljóðvar
að heyra i öðrum hafnarstarfs-
mönnum.
-l.g.
Eimskip borgar ekki
kauphækkunina
Alþýduflokkurínn þáöi
hermangsfé af
Keflavíkurvelli
Bjarni P. Magnússon viðurkenndi
að Alþýðuflokkurinn hefði þegið
fé frá Keflavlkurverktökum.
Leikarar falla
frá leikrita-
banninu
Samkomulag varð I gær i
deilu leikara viöRikisútvarp-
ið og hafa leikarar nú fallið
frá boðuðum aðgerðum.
Einsog sagt var frá i Þjóð-
viljanum höfðu þeir hótað að
stöðva allan leikritaflutning i
hljóðvarpi og sjónvarpi frá
og með 10. júni.
Formaöur útvarpsráðs og
útvarpsstjóri héldu i gær-
morgun fund með formanni
Félags islenskra leikara,
Gisla Alfreðssyni, og var þar
samþykkt að koma á fót
starfshópi meö fulltrúum frá
útvarpinu og leikurum til að
gera úttekt á leikritaflutn-
ingi i rikisútvarpinu og ræða
æskilega þróun leiklistar i
hljóðvarpi og sjónvarpi.
Starfshópurinn á ekki að
fjalla um launaliöi eða
breytingar á gildandi samn-
ingum FÍL og útvarpsins.
Fundur trúnaðarmanna-
ráðs leikara staðfesti sam-
komulagið siðdegis i gær.
— vh
Arangurslaus
sem kemur þó ekki fram í hinum
opnu flokksreikningum” hans
99
Framkvæmdastjóri Alþýðu-
flokksins staðfesti i viðtali við
llel garpóst inn i gær, að
flokkurinn hafi þegið greiðslur
frá undirverktaka eins lielsta
islenska hermangsfyrirtækisins,
tslenskra Aðalverktaka á Kefla-
vikurflugvelli. jafnframt greindi
hann frá þvi, að ýmis fyrirtæki
hafi á siðasta ári styrkt flokkinn
með þvi að hafa á launaskrá
starfsmenn sem störfuðu þó
einvöröungu fyrir flokkinn. A það
má minna, að framkvæmdastjór-
,inn, Bjarni P. Magnússon, var
sjálfur launaður af erlendu fé á
siðasta ári, eins og uppvist varð
m.a. fyrir tilstuðlan Þjóöviljans.
1 viðtalinu greindi Bjarni frá
þvi, aö Alþýðuflokknum hafi
borist f járstuðningur frá
Keflavikurverktökum, en það
fyrirtæki sinnir ýmsum
verkefnum á Keflavikurflugvelli
fyfir bandariska herinn ásamt
íslenskum Aðalverktökum.
Þessar upplýsingar eru þvi furðu-
legri sé haft i huga, að bæði nýju
mennirnir I flokknum ásamt
„gamla grunninum” sem saman-
stendur af Benedikt Gröndal og
hans kynslóö, hafa ævinlega
viljað greina f lokk sinn frá hinum
hermangsflokkunum tveimur,
sem samkvæmt upplýsingum
Bjarna hafa þá að meðtöldum
Alþýöuf lokknum verið þrir.
Bjarni segir að búið sé að taka
fyrir þessar greiðslur og lætur
jafnframt þá skoðun i ljósi, að
æösta stjórn flokksins hafi að,
öllum liltindum ekki vitað af
þessu!! Ekki tókst að hafa uppá
Guðrúnu Helgu Jónsdóttur né
Eysteini Sigurðssyni sem hafa
farið með fjármál flokksins og
tilheyra þvi væntanlega „æðstu
stjórninni”.
Ekki náðist i Bjarna i gær og
þvi fékkst ekki uppgefið hvaða
fyrirtæki það voru, sem styrktu
Alþýðuflokkinn með þvi að hafa
starfsmenn hans á launaskrá.
Ekki er upplýst á hvern hátt
peningunum af Keflavikur-
flugvelli varkomið inn i flokkinn.
Tæpast hafa þeir runnið um
kosningasjóði hans, þar sem þeir
eru fjármagnaðir með beinum
framlögum skráðum á nafn
einstaklinga, sem mega ekki
nema meiri en 50 þúsund hvert.
Væru þessar fjárveislur þvi til i
raunveruleikanum hlytu ■ þær að
hafa komið fram I hinum „opnu
reikningum” flokksins sem
kratar hafa gumaö svo af. Einn af
f jármá last jórum Alþýðu-
flokksins, Jóhann Guðmundsson,
kvaðst þó ekki vita til þess aö þar
væri gerð grein fvrir neinu þvi
sem mætti kalla hermangsfé, og
taldi iviðcali við Þjv. að hér væri
um misskilning Bjarna P. Magn-
ússonar að ræða. Reynist upplýs-
ingar hans samt sem áður réttar,
þá hljóta að vakna efasemdir um
ágæti þeirra flokksreikninga sem
Benedikt Gröndal og aðrir krata-
foringjar hafa ævinlega klifað á
sem dæmi um hreinlyndi „nýja
flokksins á gamla grunninum”.
Þá hlýtur að vera leyfilegt að
kalla Alþýðuflokkinn með tungu-
taki vilmundanna gamlan rotinn
flokk á gömlum grunni.
Þaö er best að maður sýni fólki þaö svart á hvltu hverjar tekjurnar eru
hérna við höfnina, og ekki bætir úr þegar menn eru sviknir um útborg-
un á launahækkun sagði Jón Guðlaugsson starfsmaöur Eimskips þegar
hann sýndi Þjóðviljamönnum launaseðilinn sinn I gær.
Stórdregur úr not-
kun ávanalyfja hér
á landi
A siðustu þremur árum
hefur stórdregið úr notkun
ávanalyf ja her á landi eða
allt að 20%.
Ein helsta orsökin fyrir þessari
þróun er talin vera sú að siðan að
komið var á fót tölvuútskrift fyrir
eftirritunar lyfjaávisanir sem
læknar gefa út, sem siðan hefur
verið fullkomnuö á siðari árum,
er: nú hægt að fylgjast
mánaðarlega með ávisun. ávana-
lyfja og sjá hvort sjúklingar
flakki á milli lækna til að fá slikar
ávisanir.
Þessar útskriftir eru siðan
sendar læknum, sem geta þá
fylgst náið með ávisunum til
sinna sjúklinga og athugað hvort
þeir fái ávisað á sterk lyf hjá
öðrum læknum.
Er talið að þetta tölvukerfi hafi
stórlega dregið úr þvi að
sjúklingar flakki milli lækna og
þá að sama skapi dregið úr
ávisun á ávanalyf.
Þessar upplýsingar komu fram
á fundi sem landlæknir hélt i gær,
en nánar verður sagt frá honum
eltir helgina.
- lg
Alþýðubandalagið
í Reykjavík:
Frestun á
aðalfundl
Af óviöráðanlegum ástæð-
um verður að fresta boðuð-
um aðalfundium örfáa daga.
Nýr fundartimi og staður
verður auglýstur i blaðinu á
þriðjudag.
Stjórnin
TÓLUR UM ATVINNULEYSI
Skólafólk vantar vinnu
sáttafundur
Sáttafundur stóö lengi dags I
gær i deilu undirmanna á farskip-
unum en varð árangurslaus.
Einnig var haldinn fundur meö
matsveinum I gær og varð sá
fundur einnig árangurslaus og
hefur ekkert miöaö i samkomu-
lagsátt.
Verkföllin undanfariö
hafa haft nokkur áhrif á
atvinnuástand víöa um
iand. Atvinnurekendur
halda aö sér höndum og
skólafólk sem vantar sum-
arvinnu fær litla úrlausn
sinna mála.
Um siðustu mánaöamót var
tala atvinnulausra á öllu landinu
864 og hafði aukist um 342. Tölu-
verð aukning varð I Reykjavik 544
(246 I lok april), Hafnarfirði 26
(10), Akureyri 45 (29) og á
Patreksfirði 26 (0).
Þjóðviljinn hafði samband viö
þessa staöi og spurðist fyrir um
ástæður atvinnuleysisins.
1 Reykjavik, Hafnarfirði og Ak-
ureyri munar langmest um skól-
afólk sem ekki hefur fengið neina
vinnu,en frá þvi að þessar tölur
voru teknar saman hefur ýmis-
legt gerst. Sjöfn á Akureyri sagði
upp 23 starfsmönnum og fregnir
hafa borist af uppsögnum I
Reykjavik.
A Patreksfiröi stöðvaðist
frystihúsið alveg I hálfan mánuö
vegna þess að allar geymslur
hraðfrystihúsanna voru troðfull-
ar. Nú hefur hins vegar ræst úr og
allar konurnar (!) 26 sem misstu
vinnu eru byrjaðar aftur og at-
vinnuleysið þvi úr sögunni I bili.
Þá ber að nefna að bruninn á
Stokkseyri veldur tilfinnanlegu
atvinnuleysi. Þar voru 36 skráðir
atvinnulausir um sl. mánaðamót
þar af 30 konur!
— ká