Þjóðviljinn - 23.06.1979, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 23. júní 1979
UOWIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfreisis
rtgefandi: i'tgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: PZióur Bergmann
Kitstjorar: Arni Bergmann. Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg HaróardOttir
l msjónarmaóur Sunnudagsblaós: Ingólfur Margeirsson
Kekstrarstjóri: Olfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
AfgreiÖslustjóri: Filip W. Franksson
Klaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir. Einar Orn Stefánsson. Guöjón
F'riöriksson, Ingibjörg Haraldsdóttir. Magnús H. Gislason. Sigurdór
Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Halldór GuÖmundsson. tþróttafréttamaöur:
Ingólfur Hannesson. Þingfréttamaöur: Siguröur G. Tómasson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson. Leifur Rögnvaldsson.
Otlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson. Sævar Guöbjörnsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir. Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: SigriÖur Hanna Sigurbjörnsdóttir. Þorgeir Ölafsson
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir. Jón Asgeir Sigurösson.
Afgreiösla: Guömundur Steinsson. Hermann P Jónasson. Kristin Pét-
ursdóttir.
Símavarsla: Ólöf- Halldórsdóttir, SigriÖur Kristjánsdóttir
Bílstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna SigurÖardóttir
Pökkun: Anney B Sveinsdóttir. Halla Pálsdóttir. Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla: Sölvi Magnússon. Rafn Guömundsson.
Kitstjórn. afgreiösla og auglýsingar: Slöumúla 6. Revkjavlk. slmi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Orkusparnaöur
Sú olíukreppa sem til okkar hef ur borist utan úr hinni
stóru veröld hefur þegar valdið okkur verulegum bú-
sifjum og mun gera í náinni framtíð.
En jafnframt hefur hún ýtt undir þá tilhneigingu að
við nýtum innlenda orkugjafa betur.
Undir forystu iðnaðarráðherra Hjörleifs Guttorms-
sonar hafa farið fram athuganir á leiðum til þess að
svara erlendum olíuhækkunum með mjög aukinni
notkun innlendra orkugjafa.
Hjörleifur hafði þannig forystu um að kannað yrði
hvortekki væri hagkvæmtað hef ja framleiðslu á metan-
óli hér innanlands, en orkugjafi sá getur að verulegu
leyti komið í stað olíuorkugjafa. Þegar iðnaðarráðherra
setti þessar hugmyndir sínar fyrst fram héldu margir
að þar væri eingöngu um fræðilega framtíðarsálma að
ræða. Reynslan hef ur nú þegar sýnt að svo var alls ekki,
heldur voru hugmyndir hans fyllilega raunsæjar.
Þannig er nú ekki talið ómögulegt að um miðjan næsta
áratug hef jist framleiðsla á innlendu eldsneyti til notk-
unar á bifreiðar.
Þá hefur iðnaðarráherra í athugun aukna nýtingu
hitaorku og raforku til húsahitunar og til notkunar i iðn-
aði með það fyrir augum að útrýma olíu því sem næst
alveg á þessum sviðum.
Þarna er um skynsamleg viðbrögð við olíuvandanum
að ræða, framtíðarlausnir sem gætu orðið til þess að
islendingar Ijúki þessari öld sem útf lytjendur orkugjafa
istað þessaðflytja þá inn í miklu magni.
Þeir þoröu
ekki
Sú herferð sem Morgunblaðið hefur haldið uppi gegn
olíuviðskiptum við Sovétríkin hefur ekki farið fram hjá
neinum og þá ekki heldur tilraunir þeirra til að gera við-
skiptaráðherra að sérlegum erindreka Rússa í augum
almennings.
Lítið hefur farið fyrir rökum í blaðinu til stuðnings
þeirri hugmynd að viðskipti okkar við Sovétríkin séu
með verri kjörum en annarsstaðar er hægt að fá, heldur
er glamrað með að allsstaðarmegi fá olíu á góðu verði.
Þessu leyfir blaðið sér að halda fram þótt allar ná-
grannaþjóðir okkar séu nú farnar að skammta bensín og
olíu, og það í verulegum mæli.
Morgunblaðið hef ur skákað í því skjólinu að það hef ur
yfirburða áróðursaðstöðu sökum útbreiðslu sinnar, og
aðstaða viðskiptaráðherra til að hrekja fullyrðingar
blaðsíns því erfið.
Umræða þessi hefur þó vakið athygli almennings og
því vildi Sjónvarpið gefa viðskiptaráðherra og rit-
stjórum Morgunblaðsins tækifæri til að ræða þessi mál í
ásýnd þjóðarinnar. Viðskiptaráðherra svaraðí tilmælum
sjónvarpsins tafarlaust játandi, en Morgunblaðsrit-
stjórarnir treystu sér ekki til að standa við f ullyrðingar
sínar á vettvangi þar sem hægt væri að mótmæla þeim.
Þeir neituðu því þátttöku í þættinum.
Með því sýndu þeir alþjóð hve mikið er hæft í gaspri
þeirra um olíuviðskiptin og meðferð Svavars Gestssonar
á þeim málum.
— eng
Flugleiöir
reka
Undarlegur gerist hann oft
kapitalismus hér uppi á íslandi.
A undanfömum mánuöum hafa
launamál flugmanna veriö
mjög í brennidepli, og menn
minnast þess að Flugleiðir
brutu isinn i kjaradeilu þeirra
og færðu þeim mörg hundruö
þúsund króna kjarabætur á silf-
urfati.
Nú hafa nýverið komið til-
kynningar um að enn skuli bæt-
ast visitölukrónur ofan á laun
þeirra. Munu flugmenn þá fá
milli 200og300þúsund krónur til
viðbótar i' laun og þeir hæstu
fara að nálgast 2 miljónir króna
i mánaðarlaun.
Ef mið er tekið af þessum
rausnarskap Flugleiða skyldi
maður ætla að fyrirtækiö það
væri ekki i fjárkröggum. Auk
þess búið að auka verulega
flutningatekjur sinar vegna far-
mannaverkfallsins.
En því er ekki að heilsa. Fé-
lagiö hyggst um næstu mánað-
amót segja upp verulegum
fjölda af starfsfólki sinu. Þessar
uppsagnir bætast við verulegar
uppsagnir sem þegar hafa átt
sér stað.
Til stendur að segja 20%
skrifstofufólks upp störfum og
þegar það hefur verið gert er
búið aö reka um þriðjung skrif-
stotúfólks i þjónustu Flugleiða
úr vinnu. Alls er hér um meira
en 200 manns að ræða.
Heföi það verið með öllu
óhugsandi að hækka kaupið svo-
lltið minna við flugmennina og
dra ga úr uppsögnum fólks þar á
móti?
Vondir
frœndur
Nú þvælast frændskaparmál
okkar viö Norðmenn dálitiö fyr-
ir Ihaldspressunni okkar. A for-
siöu Morgunblaösins f gær er
viðtal við oliumálaráðherra
Noregs og er þaö allt ákaflega
vinsamlegt. Fyrirsögnin meö
viðtalinu vekur þó mun bjartari
vonir en viðtalið sjálft gefur til-
efni til. I fyrsta lagi er hann að
tala um hvert verðiö á norskri
oliu væri I dag ef Islendingar
hefðu gert samning við Norð-
menn fyrir þremur árum, þegar
það var til umræðu. En rikis-
stjórn Geirs Hallgrimssonar sá
ekki ástæðu til þess að kaupa
norska oliu á þeim tima.
Ekkert vilja Norðmenn segja
um verö á oliu sem viö gætum
fengiö keyptahjá þeim eftir ein
tvö ár, en Morgunblaðið gefur i
skyn aö það muni verða OPEC
verð.
Eftir þe'im fregnum sem viö
höfum þá munu Norömenn ekki
alvegvera áþvi að fara aö selja
sinaolluá svoláguverði, ogvist
er aö nágrannar þeirra Svfar
hafa átt harla erfitt með aö
krýja út úr þeim oliu.
En þann sama dag og Morg-
unblaöiö lofar elskusemi Norð-
manna birtist leiðari i systur-
blaöinu Visi undir heitinu
„Frændur eru frændum verst-
ir”. Ogþar fá Norðmenn heldur
betur gúmorinn.
Þar er fjallað um loönuveiðar
þeirra við Jan Mayen og við-
ræöur milli islenskra og norskra
embættismanna um verndun
loðnustofnsins og stjórn veiða úr
honum. Vfsir segir m.a.:
1
Fáum við ódýra olíu en enga loðnu?
„An efa vakir það fyrir Norð-
mönnum að reyna aö fá íslend-
inga til að viöurkenna rétt
þeirra til að veiða ákveðið hlut-
fall af þeim kvóta sem úthlutað
verður hverju sinni.
Við megum ekki láta undan
þeim þrýstingi. Við megum ekki
undir neinum kringumstæðum
viðurkenna rétt þeirra til þess-
ara veiða meðan við sjálfir get-
um veitt allt þaö sem stofiiinn
þolir.
Tilburðir Norömanna eru
ógnun við efnahagslega afkomu
Islendinga og stofiia atvinnuör-
yggi hundruða manna I hættu.
Hér eru milljaröatugir i húfi
fyrir þjóðarbúiö.
Við höfum þvi allan siðferði-
legan rétt i þessu máli og getum
stutt málstaö okkar með fullum
rökum. Viö verðum að leggja
rika áherslu á, aö meðan loðnu-
veiöarnar eru svo miklum tak-
mörkunum háðar, eigum við
einir rétt til að siunda þær innan
landhelgi, sem utan.
Óbilgirni Norðmanna I þessu
máli hlýtur að vekja undrun og
gremju ekki sist, þar sem við
höfum heimilað þeim að veiða
ákveöið magn af bolfiski á ári i
landhelgi okkar. En frændur eru
frændum verstir.”
Þaö viröist ekki vænlegt að
eiga við Norðmenn ef marka má
skrif Visis. Þaö mætti halda að
þeir ætluöu að seija okkur ódýra
oliu á loðnuskipin til að bæta
þeim upp að þau hafi enga loðnu
aö veiða. En svo ljótan þanka-
ganghafa sjálfsagt engir. Nema
þá helst Rússar?
Þjóönýting
En svo viö vikjum aftur að
oliunni, þá gæta hægri blöðin
þess vandlega að sneiöa hjá
allri umræðu um stöðu oliufé-
laganna sjálfra hérlendis, en
höggva þeim mun haröar að
Rússum. En þegar olian er orð-
in jafn dýr og raun ber vitni
verður það að sjálfsögöu helm-
ingi mikilvægara en nokkru
sinni fyrr að skynsamlega
ástandi veröi komið á varöandi
dreifingu oliunnar.
Olhifélögin i almenningseigu
Þess vegna hlýtur hiö gamla
og góða baráttumál sósialista
að oliufélögunum verði komiö I
eigu almennings aö fá byr undir
báða vængi um leiö og þeirr’i,
gjörningarhriö lýkur sem nú
stendur yfir.
— eng