Þjóðviljinn - 23.06.1979, Qupperneq 15
Laugardagur 23. júnl 1979 ÞJÓÐVILJINN — SiÐA 15
íþróttir í/m iþróttir [7>| íþróttir [A
Hugleiðing um íslenska knattspyrnulandsliðið, þjálfarann o.fl.
Verður íslenskur
þ jálfari ráðlnn næst?
Allsnarpar umræður hafa verið á meðal knatt-
spyrnuunnenda að undanförnu um árangur eða
árangursleysi landsliðsins siðastliðin tvö ár.
Menn eru þó sammála um að aldrei fyrr höfum
við átt eins marga góða einstaklinga, en það virð-
ist ekki vera nóg þegar á hólminn er komið. Hvað
veldur, er ekki gott að segja, en hér á eftir mun
málið verða reifað að nokkru.
Teitur Þóröarson og Arnór Guftjohnsen I baráttu við varnarmenn
Sviss i slöasta landsleik tslands, en þar töpuöum viö enn einu sinni.
Ekki rétt að
skella skuld-
inni eingöngu á
landsliðs-
þjálfarann
Arin 1978 og 1979 höfum viö
leikið 8 landsleiki, engan unnið,
gert 2 jafntefli og tapað 6.
Markatalan er okkur i óhag
3:15. Reyndar eru 3 leikir I
haust, en hætt er við að ofan-
taldar tölur verði okkur enn
óhagstæðari eftir þá, þar sem
leikið er gegn þremur ákaflega
sterkum knattspyrnuþjóðum,
Hollandi, Póllandi og Austur-
Þýskalandi. Til samanburðar
má geta þess að tvö árin þar á
undan, 1976 og 1977, lékum við 12
landsleiki, unnum 5, gerðum
ekkert jafntefli og töpuðum 7
sinnum. Markatalan þar er okk-
ur einnig óhagstæð, en munur-
inn snöggtum minni eða 14:17.
Þess ber þó að geta að ’76 og ’77
lékum við gegn Færeyjum og
lagaðist markatalan mikið við
þaö. Tony Knapp þjálfaði liðið á
fyrra timabilinu og Youri Ilich-
ev á þvi seinna.
Knapp og Youri
hafa nýst illa til
kennslustarfa
Eins og landsliðsmálunum
hefur verið háttað nú siöustu ár-
in er undirbúningurinn af ákaf-
lega skornum skammti og þjálf-
aranum skorinn þröngur stakk-
ur. Hans starf hefur nánast ein-
göngu verið faliö í þvi, að ná upp
réttum baráttuanda og
stemmningu.t þvl fagi var Tony
Knapp góður, á þvf er enginn
vafi. Hann er aö visu skapmað-
ur mikill, en tók ýmsar áhættur
og stóð og féll með þeim. Hans
stærsti galli sem þjálfara á veg-
um KSt var að hann var og lik-
lega er óhæfur til kennslustarfa.
Knapp nýttist KSl ekki aö öðru
leyti en þvi að undirbúa lands-
liðið i 3-4 daga fyrir leik.
Þegar Youri Ilichev var ráð-
inn i fyrravetur var það hald
margra aö hér væri kominn
maður, sem gæti sameinað
þessa báða þætti meö góðum
árangri, einkum vegna þáttar
hans i uppbyggingu hins frá-
bæra Valsliðs. Sé þetta mál
skoðað i rólegheitum kemur i
ljós, að Youri hefur á hvorugu
sviðinu náð viðhlitandi árangri.
Hann er ekki góöur skipuleggj-
andi, nema þá e.t.v. til langs
tima. Hann nær ekki að skapa
rétta stemmningu á 3-4 dögum
fyrir landsleiki og hann nýtist
ekki sem kennari eða leiðbein-
andi á vegum KSt. Hvaö stend-
ur þá eftir? Undirritaöur veit
þó, aö Youri er einn mesti
„teoritiker”, sem fæst við þjálf-
un hér á landi, en kunnátta hans
nýtist honum ekki I núverandi
starfi sem landsliðsþjálfari.
Margar raddir hafa verið á
lofti um að vlsa bæri Youri úr
starfi, en ég tel að hann eigi að
fá öll sin tækifæri, þvi enn eru
eftir 3 landsleikir. KSl hefur
gertsamning við hann út keppn-
istimabilið og sá samningur á
aö standa. Annað væri mann-
dómsleysi.
Sökin ekki eingöngu
þjálfarans
Þaö er ákaflega vinsælt fyrir-
bæri að kenna þjálfara um allt
sem miður fer og skella allri
skuld á hann. Youri hefur verið
gagnrýndur fyrir vitlausar leik-
aðferðir, hræðslu viö að taka
áhættu, vitlausar innáskipting-
ar, og vissulega á flest af þessu
rétt á sér. En öngvum hefur
dottiö I hug að skammast yfir
strákunum sem leika, ööruvisi,
ensegja: Hann var frekar slak-
ur i dag, hann var óvenju daufur
eða hann reyndi ýmislegt, en
mistókst flest. Staðreyndin er
sú, að ekki hefur tekist að skapa
viðunandi liðsheild hjá landslið-
inu. Hver er orsökin? Jú, þjálf-
arinn og að leikmenn koma úr
sitt hverri áttinni. Vissulega eru
þetta góðar og gildar skýringar,
en orsakirnar hljóta að vera
fleiri, og skal hér bent á eina
veigamikla. Landsleikir eru I
flestum tilfellum eina leiðin fyr-
ir okkar áhugamenn að komast i
atvinnumennsku þvi á leikjun-
um eru alltaf einhverjir svokall-
aðir „njósnarar” frá erlendu fé-
lögunum. Getur skýringin legið
I þvi að einhverjir hugsi innst
inni nokkuð stift um þetta
atriði? Spyr sá sem ekki veit.
Hvaö þá um þá sem þegar eru
orðnir atvinnumenn? Þeir eru
að sjálfsögðu komnir á jötuna,
en þar meö er ekki sagt aö betri
jötur finnist ekki, og eru
landsleikir ekki kjörið tækifæri
til þess aö undirbúa jarðveginn?
Að lita sér nær
1 öllum umræðunum um þessi
landsliðsmál hefur nokkuö borið
á þvi að menn vildu fá Tony
Knapp til baka og er það vafalit-
ið vegna góðs árangurs hans i
Það væri stórt skref afturábak
að ráöa Tony Knapp sem lands-
iiðsþjálfara á nýjan leik.
Noregi meö Vikingana þar-
lendu. En myndi einhver minn-
ast á slikt, ef Knapp heföi aðeins
náð miðlungsárangri þar? Eins
og að framan sagði var þaö höf-
uðgalli hans hve illa hann nýtt-
ist KSI til kennslu, og að fara að
bera viurnar I hann á nýjan leik
væri að stiga skref afturábak.
Miklu fremur væri að lita sér
nær, ef að erlendur þjálfari er I
sigtinu, þvi aö uppá Akranesi er
starfandi þjálfari sem að mati
undirritaðs gæti sameinað hina
tvo þætti, þjálfunina og kennsl-
una, með góðum árangri. Hann
heitir Klaus Hilpert.
Liklegast væri ráö fyrir KSI á
komandi vetri að lita sér enn
nær og spyrja sem svo: Er ekki
kominn timi til þess aö islenskur
þjálfari fái aö spreyta sig meö
landsliðið?
IngH
STALDR-
AÐ VIÐ
íþróttir um helgina
UBK nældi í tvö stig
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
ÍBV - Haukar, l.d., Eyjum kl.
16.00
Fylkir - Magni, 2. d., Laugardal
kl. 16.00
Þróttur - ÍBt, 2. d„ Neskaupstað
kl. 16.00
FH - Austri, 2. d„ Kaplakrika kl.
14.00
'Sunnudagur:
IBK-KA, 1. d„ Keflavik kl. 16.0i
Mánudagur:
Vlkingur - Valur, 1. d„ Laugardal
kl. 20.00
FRJALSAR IÞRÓTTIR
A dagskrá frjálsiþróttamanna
eru engin stórmót, en hins vegar
veröa nokkur héraðs- og ung -
lingamót i gangi. HSÞ og ÖÍÁ
keppa á Laugum, vorleikar
UMSB eru I Borgarnesi fyrir 14
ára og yngri og HSK og HSH
gangast fyrir unglingakeppnum.
IÞRÓTTIR I SJÓNVARPI
Meginefni þáttarins i dag verö-
ur leikur Vals og IA, sem háður
var á fimmtudaginn og veröur ef-
laust þeim sem þá sáu lengi i
minni. Um annaö efni var ekki
vitað i gær.
A mánudaginn verða myndir
frá siglingamóti i Fossvoginum
og af rally-cross keppni á Kjalar-
nesi. Þá verða svipmyndir af
iþróttaviðburðum helgarinnar
innlendum og hinar sivinsælu er-
lendu svipmyndir.
Breiðabliksstrákarnir gerðu
góða ferð til Sandgerðis I
gærkvöldi og sigruðu heimamenn
i skemmtilegum og vel leiknum
leik. 2-0. Þessi sigur Blikanna
tryggir vel stöðu þeirra á toppi 2.
deildar og hafa þeir sett stefnuna
ótrauðir beint á 1. deildina.
Breiöablik lék undan golunni i
fyrri hálfleiknum og sótti mun
meira, en Reynismenn vörðust af
kappi. Þeir gátu þó ekki komið i
veg fyrir að Sigurður Grétarsson
skoraði þegar skammt var til
hálfleiks, 1-0.
I seinni hálfleiknum fóru
heimamenn að koma meir inn I
myndina og varð leikurinn hinn
liflegasti á köflum. Reyni gekk
illa aö finna leiðina i markið, en
Breiðabliksmönnum tókst að
Öruggur
Þórssigur
Þórsarar fengu Selfyssinga I
heimsókn ’norður á Akureyri I
gærkvöldi og sendi þá til baka
meö tap á bakinu, en Þór sigraöi
1-0.
skora úr þvögu þegar stutt var til
leiksloka, 2-0. Sanngjarn sigur, en
ekki fjarri lagi aö Reynir hefði átt
skilið að skora.
Hjá Reyni voru Júllus og
Hjörtur bestir og einnig sýndi Jón
örvar góð tilþrif i markinu.
GÓ/IngH
Kvennaliðið í
fijálsum valið
Þann 1. júli n.k. fer fram I
Wales keppni I einum riðli
Evrópubikarkeppni kvenna I
frjálsum Iþróttum og eru ts-
lendingar meðal þátttakenda.
Eftirtalið liö hefur verið valið
til þess aö keppa fyrir tslands
hönd:
Lára Sveinsdóttir Á 100 m, 100
m grind og boðhl.
Sigurborg Guömundsd. A
200m og boðhlaupi
Sigriöur Kjartansd. KÁ 400 m
og boðhlaupi
Rut ólafsdóttir FH 800 m og
boðhlaupi
Lilja Guðmundsdóttir 1R 1500
m hlaupi
Thelma Björnsdóttir UBK
3000 m hlaupi
Sigrún Sveinsdóttir Á 400 m
grind og boðhl.
Þórdls Gisladóttir 1R hástökk
Helga Halldórsdóttir KR
Langstökk og boðhlaup
Guðrún Ingólfsdóttir A kúlu-
varp og kringlukast
María Guðnadóttir KA spjót-
kast
Þjálfari ér Stefán Jóhannsson
og fararstjóri Hreinn Erlendss.