Þjóðviljinn - 30.06.1979, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 30.06.1979, Qupperneq 7
Laugardagur 30. júní 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Umsjón: Guðrún Ögmundsdóttir Hildur Jónsdóttir Hjördís Hjartardóttir / Kristín Astgeirsdóttir Sólrún Gísladóttir Aö þessu sinni tekur Jafnréttissíðan upp þráð sem slitnaði fyrir nokkrum vikum — kynningu á bókum. Stöðugt streyma nýjarbækurá markaðinn. I dag segjum við frá skáldsögu sem út kom i Bandaríkjunum í fyrra og tveimur norskum viðtalsbókum við konur og karla sem vakið hafa mikla athygli. Ameríski draumurinn Bandarisk skáklsagnagerö hefur látiö mikiö aö sér kveöa 'allt frá striöslokum. Margir frá- bærir höfundar hafa tætt i sundur bandariskt þjóöfélag og lýst öllum þess skámaskotum, en fáar konur hafa veriö i þeim hópi. A allra siöustu árum hefur oröiö breyting þar á, og er skemmst aö minnast bóka Ericu Jong sem vöktu mikla athygli. Siöan hefur mikiö vatn runniö til sjávar og m argar kon- ur tekiö sér penna i hönd. Sá bók sem vakti hvaö mesta athygli á siöasta ári var skáldsaga Marilyn French, The Women’s Hoom (Kvennaklósettiö) sem er stór og mikil saga eins og titt er um bandariskar skáldsögur. Bókin hefur selst I geysistóru upplagi og hefur þegar veriö gefin át bæöi i Danmörku og Sviþjóö. Marilyn French er kennari viö háskóla i USA og er þetta fyrsta bók hennar. Sagan segir frá Miru sem 38 ára gömul sest á skólabekk áriö 1968. Staöurinn er Harvard-háskólinn þar sem mikil þjóðfélagsumræöa fór fram þessi umbyltingarár sem sagan segir frá. Miru finnst hán ekki passa inn i umhverfiö og felur sig löngum á klósettinu milli tima til aö foröast sam- skipti viö stúdentana sem flestir eru miklu yngri en hán. Smám saman breytist viöhorf hennar, hún kynnist góöu fólki og verður þátttakandi i stúdentauppreisn- inni og kvennabaráttunni. Að ná sér i mann Stór hluti sögunnar f jallar um uppeldi Miru og skólaár. Hún kemur úr millistéttarumhverfi sem einkenndist áf fátækt, einhæfni og föstum venjum. Móöir hennar er óhamingjusöm og eina hugsjónin sem hún innrætir dóttur sinni er að komast úr þessu umhverfi og eignast góðan (rikan) mann. Miru er ekki ætlað annaö hlut- Vikur nú sögunni til Norcgs. Þar i landi komu út bækurnar Kjerlighetens lykke og ulykke áriö 1977 (Ást i hamingju og óhamingju) og Menn og elskere áriö 1978 (Karlmenn og elsk- hugar). Höfundarnir eru Wenche Margarethe Myhre og Ashild Ulstrup en ekki kunnum viö nein frekari deili á þeim. t fyrri bókinni éru viötöi og frá- sagnir 22 kvenna, en i þeirri siö- ari segja 25 karlmenn frá. Hvað vitum við hvert um annað? Eins og nöfn bókanna gefa til kynna fjalla þær um ástina, einkalifið og kynlifiö, þessi við- kvæmu svið sem hingaö til hafa talist til bannsvæða. Enda fór svo að bækurnar vöktu mikla athygli, ekki vegna þess að fólk hneykslaðist, heldur vegna þess að I þessum bókum var mönn- um opnuð sýn inn i llf annarra, og eins og oft vill verða kemur i ljós að vandamál sem einn bælir innra með sér og telur vera sitt sérmál, sinn stóra galla, reynist vera sameiginlegt vandamál fjölda manna. Að vera kona í Bandaríkjunum skipti en að giftast (eins og eðli- legt þótti á þessum árum), enda verður sú raunin. Sagan rekur á skemmtilegan hátt hvernig hjónabandamarkaðurinn geng- ur fyrir sig meðal þessa fólks, stefnumótin, útibióin, og setur á veitingahúsum. Stelpa má aldrei vera ein á ferð, hún verður aö hafa einhvern ákveðinn til að bjóöa sér út, ellegar verður hún að sitja heima. Og Mira nær sér I mann,meira að segja nokkuð efnilegan þvi hann er i læknisfræði, þau eiga að visu fátt sameiginlegt, hann les öll kvöld og hún þjónar hon- um, elur honum börn og vinnur fyrir heimilinu á meðan hún getur. Lif i úthverfi Þróun hjönabandsins er rak- in, barneignirnar.flutningar I ný hverfi eftir þvi sem efiiahagur- inn batnar, þar til komiö er út i úthverfi i smáborg. Þar lifa húsmæðurnar einangraðar, þær gera ekki annað en að sinna matseld, þvottum og uppeldi, auk þess að keyra kallinn og krakkana út um allar trissur. Eina ánægjan er stundirnar sem þær eiga saman við aö spjaila ogdrekka kaffi, en þrátt fyrir náinn samgang tala þær aldrei um sin vandamál (friðhelgi einkalifsins). Sumar eru ófullnægðar og óhamingju- samar, ein er kaþólsk og hrúgar niður börnum gegn vilja sinum (allt fyrir páfann). Mennirnir vinnamikiö, eru þreyttir þegar heimerkomiðogþráþaðeitt að planta sér framan við kassann og dotta og fá frið fyrir látunum I krökkunum. Þar kemur að maður Miru „yngirupp hjá sér”, þau skilja og nú þarf hún aö fara aö vinna fyrir sér á nýjan leik. Sektarkenndin heltekur hana, henni finnst hún hafa brugðist I þeim hlutverkum sem henni var ætlað að leika I sjónarspilinu mikla, sem eiginkona, móðir og húsmóðir. 1 fyrstu verður drykkjuskapur hennar úrræði, en siðan reynir hún að skapa sér nýjan grundvöll með þvi að hefja nám. Smám saman tekst henni að skapa sér sjálfstæða tilveru, hún veröur þátttakandi i þjóðlif- inu eftir aö hafa veriö kúgaöur þjónn, einskis metin og ekki neitt. Ameríski draumurinn Með sögu Miru er Marilyn French að sýna lif bandariskra kvenna úr millistétt sem vita ekkert um þaö sem gerist i kringum þær. Ofsóknir McCarthy-timans koma þeim ekki við. Vletnamstriðið snertir þær ekki.þarnaer sábandariski almenningur sem kaus Johnson og lét sér fátt um finnast þótt verið væri að murka liliö úr bændaþjóð I Asiu. Þvi er ákaf- lega vel lýst hvernig þetta fólk reynir að lifa samkvæmt ameriskadraumnum um auöog hamingju, allt er slétt og fellt á yfirborðinu, en undir kraumar óhamingja og tilgangsleysi, öll vandamál eru bæld niöur. Þegar karlarnir þola ekki meira, stinga þeir af og konurn- ar sitja uppi með krakkana og vandamálin. Hvemig látum við fara með okkur Sagan byggir að miklu leyti á reynslu höfundarins. Hennar eigiö lif artaði sig likt og lif Miru. Marilyn French byrjaöi á þessari sögu 1972 og var þá nokkuö bjartsýn á að konur væru að breyta bandarisku samfélagi. En þá gerðust at- burðir sem höfðu mikil áhrif á lif hennar og skoðanir. Dóttur hennar var nauögað og við yfir- heyrslurnar og réttarhöldin komst Marilyn French að þvi hve kvennafyrirlitning og kvennakúgun á sér djúpar ræt- ur. Sagan tók nýja stefnu, ásökunartónn gegn samfélaginu náði yfirhendinni. Hún hrópar tilokkar: Konur, hvernig látum við fara með okkur!? Fyriroidiur hér viö nyrsta haf er bókin ákaflega fróöleg lesn- ing, bæði sem úttekt á banda- risku samfélagi og sem lýsing á mótun kvenna og hlutverkum. Þvi miður er ég hrædd um að allt of margt sem þar er tekið fyrir eigi við i okkar samfélagi, smáborgaralegir lifnaðarhætt- ir, lifsgæöakapphlaupiö og hlut- verkaskipti kynjanna er sama markinu brennt þar sem hér, en hversu lengi þurfum viö að blða eftir slikri úttekt á islensku samfélagi? Um einkalíf Karlmenn i Noregi ræddu mikið um, að i bókinni um kon- urnar hefðu komiö fram atriði sem þeir hefðu ekki haft hug- mynd um, og sömu sögu hafa konurnar að segja. Það er nú svo, að þrátt fyrir kannanir og sáifræðirannsóknir þá vitum við svo ósköp litið hvert um annað, hvað aðrir hugsa og hvernig þeim liður. Þess vegna veröur það sláandi þegar fólk segir op- inskátt frá hjónabandi sinu, fyrstu reynslu af kynlifi, ófull- nægju, sambandsleysi milli kynjanna og fleiru sem varðar mannleg samskipti. Reynsla kvenna Höfundarnir hafa gert sér far um að velja fólkið þannig að það sé á öllum aldri og af öllum stéttum. Konurnar eru á aldrin- um 19-76 ára, ýmist giftar eða ógiftar, fráskildar eða ekkjur og ein býr með annarri konu. Þaö sem greinarhöfundi kom mest á óvart voru frásagnir af bernsku kvennanna. Þar kemur I ljós aö flestar eiga einhverjar minn- ingar um dularfulla atburði, fullorðnir karlmenn voru að sýna sig og káfa á þeim, ein varð til dæmis að þola það að pabbi hennar lét bliðlega að henni á kvöldin, en hún svaf i rúmi foreldra sinna. Fæstar geröu sér ljóst hvað þarna var á ferðinni, en sið- ar meir veröa minningar sem þessar ógnvekjandi. Þá er að nefna hversu margar eru ófullnægöar, þær geta ekki talaö við manninn sinn eða kærasta um kynlifið, þora ekki að krefj- ast réttar sins, en lifa áfram i ófullnægjunni og leika i rúminu. Þá eru nokkuð merkar frásagn- ir sem stillt er upp hvorri gegn annarri, þar sem kona sem heldur við giftan mann segir frá og hins vegar eiginkona sem veit að maðurinn hennar heldur framhjá henni. Reynsla karla 1 bókinni um karlmennina 25 er ekki siður margt fróölegt, en það sem vakti athygli mina er það hversu margir kvarta und- an skorti á bliðu frá konum, mæöur þeirra visa þeim frá sér, þegar þeir verða 8-10 ára þá eiga þeir aö vera stórir strákar og ekki aö sýna neinar tilfinn- ingar. Þá kvarta þeir mikið undan þvi að konur sýni ekki frumkvæði i samskiptum kynj- anna og alltaf sé ætlast til þess að þeir séu hinir sterkari. Það kemur sem sagt i ljós að margir eru hreint ekkert hrifnir af þvi hlutverki sem karlmanninum er ætlað i fjölskyldunni og kynlif- inu. Þá kemur fram að flestir þeirra hafa átt litið saman að sælda við föður sinn og sakna þess mjög á fullorðinsárum. Umrœðu er þörf Þannig mætti lengi halda áfram, viðhorfin eru mismun- andi og sögurnar margar, en þegar upp er staðið þá veröur lesandinn enn sannfæröari en áður um það að mannleg sam- skipti eru á villigötum. Hvað sem menn segja um „kynlifsvandamál” og „einka- lifsumræðu” I niðrandi merk- ingu, verður ekki fram hjá þvi gengiö aö þaö hlutverka- munstur sem mótast hefur á umliðnum öldum i samskiptum kynjanna þarf breytingar við, það skiptir okkur öll máli og umræða um kynlif, einkalif og fjölskyldu er nauðsynleg ef við ætlum einhvern tima að breyta einhverju.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.