Þjóðviljinn - 30.06.1979, Side 8

Þjóðviljinn - 30.06.1979, Side 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 30. júnt 1979 Ólafur Halldórsson: Jón Helgason áttræður Allir tslendingar sem eru komnir til vits og ára hafa heyrt getiö um safn Árna Magnússonar i Kaupmannahöfn; flestir hafa hugmynd um hvaö þar er geymt og hver var húsbóndi þar fram undirsiöasta áratuginn. Mörgum er miöur kunnugt um þau verk sem eru unnin i Árnasafni eöa hafa veriö unnin þar, og er þaö aö vonum. Þaö er þó sannast aö segja aö Arnasafn var um tvö hundruö ára skeiö eitt höfuðvigi islenskrar menningar,* þar hefur ekki einungis veriö athvarf margra ágætra manna sem vildu stunda islensk fræöi, heldur hafa þeir einnig haft framfæri af vinnu sinni viö safniö. Þegar Arni Magnússon lést átti hann stærsta og merkilegasta safn islenskra handrita sem nokkru sinni haföi komiö i einn staö. Meö þessu safni var fenginn grundvöllur fyrir margvislegar rannsóknir á Islenskri tungu og þróun hennar, svo og islenskum bókmenntum og sögu. bess er enn að geta, að Arni Magnússon lét eftir sig töluverðan auö. Eins og kunnugt er gaf hann Hafnarhá- skóla bækur sinar og handrit, en af eignum sinum stofnaði hann sjóð, og skyldi vöxtunum variö til aö styrkja einn eöa tvo islenska |Stúdenta til starfa viö handrita- safnið. Þessi sjóöur var svo rif- legur, aö allt fram á daga Sig- uröar Nordals gátu þeir sem fengu styrkinn lifaö þokkalegu lifi af honum einum, en nú er hann að heita má oröinn aö engu, eins og aörir gamlir sjóöir á Noröurlönd- um. Viö finnum stundum til þess meö nokkrum söknuöi aö sumir af bestu mönnum þjóöarinnar hafa alið aldur sinn aö miklu leyti i Kaupmannahöfn, og getur jafnvel komiö fyrir aö Arna gamla Magnússyni hafi veriö sendar miöur hlýjar hugsanir fyrir aö kjótla handritunum úr landi og freista þannig islenskra manna til aö verja ævi sinni á turni. Þaö getur veriö skemmtilegur leikur að imynda sér hvernig hlutirnir væru ef ýmislegt heföi verið ööruvisi en þaö var: Hvaö heföi oröiö um handritin ef Árni Magnússon heföi aldrei flutt þau úr landi? Viö getum lika spurt: Hvaö heföi oröiö um Jón Sigurös- son og hvernig heföi honum vegnaö i baráttunni ef hann heföi ekki átt athvarf I Arnasafni i Höfn og sótt þangað þekkingu sina? Aö hvaöa gagni heföu þeir menn oröiö islensku þjóöinni og þó sér i lagi fslenskum fræöum, sem hafa gert garðinn frægan I Árnasafni, ef þeir heföu oröiö embættismenn hér heima? Nýtir menn eru alls staðar til gagns, en allt um þaö efast ég um að þeir Islendingar sem hafa unn- ið I Arnasafni heföu unnið þjóö sinni meira gagn annars staöar en þar. Arni Magnússon var meö af- brigðum glöggskyggn visinda- maður og athugull. I rannsóknar- aöferöum var hann langt á undan sinum tima, og ennþá er fræði- mönnum hollara aö athuga hvað hann hefur haft til málanna aö leggja. Hann lifði ekki svo lengi aö hann gæti mótað fræðastörf I safni sinu neitt að ráöi, en samt sem áöur er eins og andi hans og viðhorf til fræðanna hafi lifað allt. fram á þennan dag I safni^hans, að visu misjafnlega góöu lifi. I Arnasafni hafa starfað menn eins og Eggert Ólafsson, Grimur Thorkelin, Konráö Gislason, Guö- brandur Vigfússon, Jón forseti Sigurösson, Finnur Jónsson próf- essor, auk margra annarra sem hafa veriö þar um nokkurra ára skeiö, en annars unnið aöalstörf sins annars staöar. Allir þessir menn, ásamt ýmsum fræöi- mönnum frá Noröurlöndum, hafa gert Arnasafn að mikilsmetinni stofnun meö þann oröstir, aö ekki var heiglum hent aö setjast þar i húsbóndasæti og ávaxta arfinn. Það mátti þvi teljast til tiöinda, aö áriö 1927 var þar geröur aö forstööumanni tuttugu og átta ára gamall Islendingur, Jón Helgason, en reynsla rúmra fimm áratuga hefur sýnt, aö sú embættisveiting var ekki van- hugsuð. Jón Helgason er áttræöur i dag. Hann er fæddur 30. júni 1899 á Rauðsgili i Hálsasveit, sonur Helga Sigurðssonar bónda þar og Valgerður Jónsdóttur. Helgi faöir Jóns var frá Háafelli i Hvitársiöu, sonur Siguröar Guömundssonar, Hjálmssonar, en frá Guðmundi Hjálmssyni er rakin svonefnd Háafellsætt, og voru þeir ætt- menn meöal annars þekktir fyrir sitt stóra nef, sem mér er sagt aö hafi verið kallaö Háafellsnefiö. Siöari kona Siguröar á Háafelli og amma Jóns Helgasonar var Þuriöur Jónsdóttir, Jónssonar bónda i Deildartungu, Þorvalds- sonar, sem Deildartunguætt er rakin frá. Valgerður móöir Jóns Helgasonar var dóttir Jóns Guömundssonar sem bjó á Hlfð- arenda I ölfusi og Ingibjargar Loftsdóttur konu hans, Jón á Hliðarenda var sonur Guömund- ar Brynjólfssonar á Keldum á Rangárvöllum, en frá honum er komin Keldnaætt. Jón Helgason missti fööur sinn niu ára gamall og fluttist skömmu siöar meö móöur sinni til Hafnarfjarðar. Þaö mun snemma hafa komiö i ljós aö af honum væri meiri afreka aö vænta i bóklegum fræöum en lik- amlegri vinnu, en nánustu ætt- ingjar hans höfðu ekki úr miklum auöæfum aö spila og munu ekki hafa getaö kostaö hann til náms. Mér er sagt að þá hafi góöir menn stuölað aö þvi aö hann kæmist I skóla, og var Jón fyrst I Flens- borgarskóla I Hafnarfirði, en siöan I Menntaskólanum i Reykjavik. Hann sat þó flestum skemur i þessum skóla og lauk stúdentsprófi 1916. Hann stundaöi siöan nám i norrænum fræöum viö Háskólann í Kaupmannahöfn og^ iauk meistaraprófi 1923, tiuttugu i og fjögurra ára, og doktorsprófi við Háskóla Islands 1926, en var slöan kennari viö Háskólann i Osló 1926-27. Ariö 1927 tók hann viö embætti for- stöðumanns Arnasafns i Höfn og 1929 viö embætti Finns Jónssonar og varö prófessor i islenskri tungu og bókmenntum viö Hafnarháskóla, þessum em- bættum gegndi hann óslitiö fram til 1969. Jón Helgason lauk námi óvenju ungur; starfsævi hans er þvi oröin lengri en flestra jafnaldra hans háskólagenginna, eöa rúmlega hálfur sjötti áratugur. Þegar hugað er aö verkum hans kemur þó I ljós aö þessi langa starfsævi hans er ekki ein nægileg skýring á þvi hve miklu hann hefur komiö i verk; þar hefur margt hjálpast aö. Hann hefur æfinlega verið þaulsætinn viö vinnuna, en auk þess afkastamaöur meö ólik- indum og þoliö ótrúlegt. Hér kemur þaö einnig til aö hann er með afbrigðum glögg- skyggn og fljótur að átta sig á vandanum, hvort hægt sé aö ráöa fram úr honum og á hvern hátt. Hann er meö öörum oröum hin mesta hamhleypa viö vinnu, jafn- vel svo aö okkur miölungsmönn- unum getur fundist þaö ómennskt, og veröur þó aldrei annars vart en aö hann vinni verk sin með fullkominni ró. Jón Helgason hafði ungur aö árum aflaö sér mikillar þekkingar i islenskum fræöum bæöi um islenska tungu og þróun hennar og um islenskar bók- menntir, en ekki hvað sist um Islensk handrit. Einnig varö hann snemma mjög vel aö sér I málum og málsögu Noröurlanda, og norðurlandamálin talar hann öll og ritar, jafnt færeysku sem ný- norsku, en eftir þvi sem ég best veit hefur hann litiö lagt sig eftir finnsku og grænlensku, enda er þar komiö inn i aöra veröld. Viö sem höfum verið aö bera okkur aö læra eitthvaö, könnumst flest viö að sá sjóöur vitneskju og fróö- leiks sem viö höfum verið aö safna i hefur veriö gjarn á aö Einar Laxness: TengUiður fortíðar og nútíðar Ég vona, aö engum sé gert rangt til, þegar Jón Helgason er kallaður siöasti Hafnar-lslend- ingurinn, þ.e. I þeim skilningi, aö hann er slðasti tengiliöur við þá gömlu fræðaþuli, sem lengi geröu garöinn frægan á Hafnarslóð, iök- uðu hin fornu norrænu fræöi, þar sem Islenzk menningararfleifð var sá kjarni, sem byggt var á. Þennan þráð má rekja til 17. ald- ar, þegar i'slenzk handrit voru farin aö hafa aödráttarafl fyrir alla' þá höfunda, sem vildu kryfja til mergjar fornfræöi Noröur- landa og stóöu á grundvelli Arn- grims læröa, en hann hafði opnað ókunnan heim fyrir norraenum fornfræöingum. Af þeim islenzku lærdóms- mönnum, sem sátu viö rannsókn- ir I Kaupmannahöfn, koma i hugann menn eins og Þormóöur Torfason, Arni Magnússon, „studiosus antiquitatum” Jón Ólafsson frá Grunnavik, — ogef leiöin er stytt og horfiö til 19. aldar manna: Konráö Gislason, Jón Sigurðsson og Finnur Jóns- son, en sá siöast nefndi var kenn- ari Jóns Helgasonar f Hafnarhá- skóla; siöan veröur Jón Helgason sá maöur, er tekur beinlinis við arfinum og hefur ávaxtaö hann, svo að þar veröur ekki betur um vélt. Þaö hefur hann gert með þvi að afkasta óvenjulegu dagsverki viö útgáfu óteljandi handrita, sem krafizt hefur sérstakrar fræðilegrar hæini viö handrita- lestur, glöggskyggni og ekki sízt natni ogþolinmæöi. Aukþesshef- ur hann samið fjölda greina, fyr- irlestra, ritgeröa og bóka, sem mega teljast viö leikmanns hæfi; má þar nefna hiö ágæta rit hans „Handritaspjall” (1958), en þar leiðir hann lesendur inn I þann Is- lenzka fræöaheim, sem Jón hefur alið aldur sinn i frá sinum ungu dögum snemma á þessari öld. „Þaö féll i hlut minn að hyggja um sinn aö handaverkunum þinum, mér fannst sem ættir þú arfinn þinn undir trúnaöi minum” segir Jón Helgason i kvæöi sfnu „Til höfundar Hungurvöku”. 1 trúnaöi sinum hefúr hann reynzt heill og sannur. Flestir Islendingar, sem komn- ir eru til vits og ára, þekkja Jón Helgason sem eitt fremsta is- lenzktskáld 20. aldar. Sá dómur á viö hvort sem um er að ræöa frumsamin ljóö eöa þýöingar er- lendra kvæöa. Skáldæö hans er ósvikin og tungutak hans ramm- islenzkt, enda ber hann meira og betra skynbragö á orðaforða og lögmál islenzkrar tungu en nokk- ur annar núlifandi maöur. Aö lesa ljóö hans er hugönæmur, lær- dómsrikur skóli hverjum manni og hollt veganesti ungum löndum hans, sem komizt hafa í kynni við þau á menntabraut sinni. Við lestur þeirra skynja menn, ekki siöur en viö aö fletta handritum fornum, „uppsprettulindir og niö- andi vötn minnar tungu”, eins og hann kveður i ljóöperlu sinni „1 Arnasafni”. Eöa hvílfkt samspil skáldskapar, máls, stils, þjóö- fræöi, sögu og landafræöi, fært i búning hins agaða forms meö „stuölanna þriskiptu grein”, sem birtist I ljóði Jóns „Aföng- um”; þar finnst mér einlægt koma fram hin fullkomnu tök, sem skáldið hefur á efnivið sin- um; og þegar hlýtt er á kynngi- magnaðan lestur höfundar sjálfs á þessu kvæöi er sem listaverkiö hefjist I æðra veldi. „Liðiö er hátt á aðra öld; enn mun þó reimt á Kili, þar sem I snjónum bræöra beiö beisklegur aldurtili; skuggar lyftast og liða um hjarn likt eins og mynd á þili; hleypur svo einn með hærusekk, hverfur i dimmu gili.” Svo kveður Jón Helgason x upp- hafserindi „Áfanga”; og áfram rekur skáldið sig i hverju erind- inu á fætur öðru eftir fjölmörgum kennileitum landsinsogsögunnar^ með því aö bregöa upp heiilandi og áhrifarikum myndum. Þetta" ljóö ber þvi einstakt vitni, hversu Hafnar-lslendingurinn Jón Helgason hefur geymt fslenzks þjóöararfs; hann er þjóölegastur allra, þótt átt hafi heimili sitt á erlendri grund i meira en sextiu ár. I skjóli af „aldintré með þunga og frjóa grein” skilja menn kannski betur en ella gildi þessa arfs fyrir litla þjóö á veraldar- hjara ogjafnframt allan heiminn. Um langan aldur lá heimili Jóns og Þórunnar um þjóðbraut þvera, efsvo má segja, þvi að þar var jafnan opið hús fyrir íslend- inga i' Kaupmannahöfn; gesta- gangur var mikill, og Islenzkir stúdentar og ferðalangar áttu i þvi húsi eftirminnilegar ánægju- stundir. Þegar mig hefur boriö þar að garöi allt frá unga aldri, íiafa húsráöendur tekið manni opnum örmum, svo aö þaö hefur veriö einna likast þvi' að koma tii sins heima. Margra fróölegra og skemmtilegra stunda hefur maður þvi notiö á heimilinu á Kjærstrupvej 33 og kynnzt þar annarri hliö á Jóni Helgasyni en þeirri, sem snýr út á viö, — manninum á bak viö fornfræðin og skáldskapinn, — og þeim kynnum vildi ég ekki hafa misst af. Mér eru I minni mörg siö- kvöld, er ég hef dvalizt á heimili Jóns, þar sem viö spjölluöum um heima og geima, en þó framar öðru forn tiðindi af Hafnarslóö og þá litrlku persónuleika, sem þar hafa aliö manninn i timans rás;

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.