Þjóðviljinn - 04.07.1979, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 04.07.1979, Qupperneq 9
Miðvikudagur 4. júli 1979 ÞJÓÐVILJJNN — StÐA 9 9 9 Ossur Skarphéöins- son ritar fréttaskýringu Það hefur verið ærið forvitni- legt aö fylgjast með skrifum Morgunblaðsins um oliumálin siöustu vikur. A sama tima og oliuvandinn er að kollsigla helstu atvinnuvegi landsins þá er Morgunblaöið ekki ábyrgara i máli sinu en svo, að það lætur liggja að þvi að lausn fáist með þvi einu að Svavar Gestsson fljúgi austur á bakka Volgufljóts og rabbi þar við ráðamenn sovéska. Svavar baö um viðrœður Sannleikurinn er auðvitað sá, aö málið er miklu flóknara og erfiðara viðfangs en svo, aö per- sónuleg skirskotun Svavars Gestssonar höggvi á rætur þess vanda, sem heil þjóð á við að glima. A hinn bóginn skulu menn hafa i huga, að það er nokkur timi liðinn síöan viðskiptaráðherra fór fyrir hönd rikisstjórnarinnar þess á leit við sovéska ráðamenn, að fyrirhuguðum viðræðum um við- skipti landanna, yrði flýtt einsog kostur væri. t þeim viðræðum hugðist Svavar leggja alla áherslu á breytta verðviðmiöun i oliukaup- um okkar frá gerskum. Eftir skrif fjölmiðla ætti öllum að vera ljósar lyktir málsins. Sovétmenn neituðu viöræðum. Þeir hafa einfaldlega ekki áhuga á þvi að ræða viö Svavar Gestsson né aðra meðlimi islensku rikis- stjórnarinnar um breytt oliukaup að sinni. Þrátt fyrir að viðskiptaráð- herra hafi farið fram á viö- ræöurnar viö Sovétmenn og þeir neitað, skrifar Morgunblaöið I si- fellu, að Svavar Gestsson þori ekki að styggja Rússa og sæmir hann einkunnum á borð við „trúnaðarmaður Sovétrikjanna á tslandi”. Rutl á Morgunblaðinu Eftir að rikisstjórnin fór þá lýö- ræðislegu leið að hafa stjórnar- andstööuna með i ráðum við lausn oliuvandans skrifar Morgunblaðið ekki öðruvisi en þannig að allt frumkvæði að þeim bjargráöum, sem rikisstjórnin hefur gripið til, sé undan Sjálf- stæðisrifjum runnið. Norsku ráöherrarnir Knut Frydenlund og Eyvind Bolle áttu ásamt fleiri Norðmönnum viðræður við íslendinga um sföustu heigi. tJtúr þvi kom meðal annars norskt tilboð um oliusölu á mun hærra veröi en Kotterdamprisar Sovétmanna. Hvaða nafngiftir ætii Morgunblaðið velji Norö- mönnum af þvi tilefni? (Ljósm. G.E.) Morgunblaðið og olíumálin Engin málefnaleg umrœöa — rógur um einstaka ráðherra Það er hið eina sem blaðið hef- ur til málanna að leggja I verstu orkukreppu sem tslendingar hafa hratað i. Þannig segir blaðið I leiðara á sunnudag, að „bersýni- legt var, að rikisstjórnin gat ekki áttað sig á, hvaða tökum hún ætti að taka þetta vandamál. Formað- ur Sjálfstæðisflokksins kom henni til aðstoðar...” „Geir má halda það sem hann vill”. Ólafur hló... Þegar Þjóðviljinn bar þetta undir Ólaf Jóhaðnesson i fyrra- dag, hló hann einungis góðlátlega og sagði: „Geir má sosem halda það ef hann vill”. Jafnframt lét Ólafur þess getið, aö rikisstjórnin hefði lagt drög að lausn vandans mörgum vikum áður en Geir Hallgrimssyni datt það ráð i hug að skrifa henni bréf... Eigi að siður ber maðurinn með alvarlegu augun þau ósannindi á borö fyrir lesendur Morgunblaðs- ins á sunnudaginn var, aö hvorki Svavar Gestsson né rikisstjórnin hafi hreyft breyttri verðviömiðun i oliukaupum frá Rússum og klykkir út með þvi að kalla þetta „alveg ótrúlegt aðgerðarleysi” af hálfu viðskiptaráðherra. Ótrúlegt aðgerðarleysi?! Hiö ótrúlega aðgerðarleysi felst sennilega i þvi að — Svavar Gestsson hefur átt fjölmarga fundi með sovéska sendiherranum og verslunarfull- trúa hans um oliumálin. — að á þessum fundum hefur Svavar þráfalt Itrekað óskir rikisstjórnarinnar um viðskipta- einungis viðræður með megináherslu á oliumálunum. — að hann beitti sér fyrir skip- an sérstakrar nefndar um oliu- málin, sem átti að kanna til hlitar öll oliuviöskipti Islands, nefndar sem hefur unnið ótrúlega mikið starf á ótrúlega skömmum tima. En kannski felst hið ótrúlega aögerðarleysi helst i þvi, að Svavar Gestsson hefur ekki bol- magn til að knýja rússneska björninn til eins eöa neins, fremur en aörir. Geir Hallgrimsson er drjúgur yfir sjálfum sér I viðtali við Morgun- blaðið sl. sunnudag og segist þar vera „ánægður með viðbrögð rikisstjórnarinnar við bréfi minu”. Norska olían Ein af áviröingum rikisstjórn- arinnar er að dómi Morgunblaðs- ins sú staöreynd, að hún hefur ekki keypt oliu frá Norðmönnum. Af þvi tilefni hefur blaðið slegið upp stórum tölum, sem sýna sparnaðinn, sem Islendingar hefðu unnið við að kaupa oliur frá Noregi. Þetta gerir blaðið blygðunar- laust þrátt fyrir — að Bjartmar Gjerde orku- málaráðherra Noregs hafi upp- lýst, mas. i viðtali við Mbl., aö tslendingar hefðu ekki getað keypt oliu frá Norðmönnum fyrr en 1980-1981. — að oliukaup þaðan eru háð þvi, að oliuvinnsla á risaborpall- inum Statfjord beri góöan árang- ur. Hann er hins vegar ekki að fullu kominn i gang, eins og Mbl. hefur sjálft greint frá. — að oliusala frá Noregi sé aö mestu leyti I höndum alþjóölegra oliufélaga. En þau hin sömu oliu- félög hafa ekki getað útvegað okkur oliubirgðir á Rotterdam- prisum, hvað þá á lægra verði eins og forstjórar allra oliufélag- anna á tslandi hafa staðfest. Hvað kallar Mbl. Norðmenn? t viðræöunum við Norömenn um siðustu helgi, þar sem þeir vildu ekki viðurkenna rétt okkar til auðlinda á Jan Mayen-hryggn- um, var borin fram ósk um kaup á 40 þús. tonnum af svartoliu frá Noregi. 1 gær varð ljóst, að svar hafði borist i formi tilboðs til Oliuversl- unar tslands. Tonnið af oliu i sambærilegum gæöaflokki við sovésku oliuna átti að kosta okkur 200 dollara. Sama olia kostaði okkur i vik- unni 142 dollara frá Sovétrlkjun- um. Fyrir það kallaði Morgun- blaöið sovétmenn arðræningja, okurkarla, braskara og hörmang- ara. Hvaða nafngift ætlar nú Morgunblaðið að velja frændum okkar Norðmönnum? ÖS Aðalfundur Þörungavinnslunnar Hagur vænkast Þann 30. júni 1979 var aðal- fundur Þörungavinnslunnar h.f. haldinn i Félagsheimili Reyk- hólahrepps að Reykhólum. Fund- inn sátu um 70 manns, hluthafar, starfslið fyrirtækisins og gestir. Hlutafé fyrirtækisins er nú 120 millj. kr„ en hluthafar eru 170. Rikissjóður er eigandi aö 75% hlutafjár, en sveitarfélög, fyrir- tæki og einstaklingar eiga 25% hlutafjár. Sýnt er nú að full tök hafa náðst á öflun hráefnisins og aö þau tæki, sem upphaflega voru keypt til þess verks, geta skilað þvi magni af hráefni, sem verksmiðjan get- ur unniö úr. Nú streyma að með- altali 35-36 1/sek. af 112-114 gráö- ur C heitu vatni og er þar nægur varmi til að gefa þau þurrkaf- köst, sem réiknað hafði verið með. Arið 1978 var aflað nærri 12 þús. tonna af blautu þangi og afurðirnar urðu 3000 tonn af þangmjöli, sem að mestu var selt samkvæmt samningi til Alginate Industries Ltd. i Skotlandi. Staðið undir vöxtum Samkvæmt reikningum fyrir- tækisins urðu rekstrartekjur á siðastliðnu ári 292 millj. kr„ en þar af voru tekjur af útflutningi 280 millj. kr. Restrargjöld voru 239 millj. kr„ og framlegð til vaxta og afskrifta þannig 53 millj. kr„ en áriö 1977 varö beint rekstr- artap 48 millj. kr. Vextir og verð- bótahækkanir af lánum nema 95 millj. kr. og afskriftir eru reikn- aðar 90 millj. kr„ þannig að reikningslegur halli er 134 millj. kr. Þess má geta að inni I rekstr- argjöldum felast verulegar end- urbætur á framleiðslutækjum. Með þessu hefur rekstrarstöðu fyrirtækisins veriö snúið við, svo að fyrirsjáanlega verður hægt aö hefja endurgreiðslu lána og vaxta af þeim. Stefnt er að þvi að á yfir- standandi ári skili reksturinn framlegð sem nægir fyrir vaxta- greiðslum og 1981 verði unnt að greiða vexti og afborganir meö •fullum þunga. A fundinum kom fram að um þessar mundir eru nokkrir erfið- leikar á mörkuðum fyrir þör- ungaafurðir, m.a. vegna tilkomu nýrra framleiðenda á þörungum sem hráefni til alginatvinnslu. Meðal annars hafa Norömenn orðiö að draga úr framleiöslu sinni á þangmjöli á þessu ári. Hag Framhald á blaösiðu 14. Þörungavinnsian að Reykhólum er komin á traustan grundvöll.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.