Þjóðviljinn - 16.09.1979, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 16.09.1979, Blaðsíða 3
Sunnudagur 16. september 1979 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 C Þótt Venus sé sú reiki- stjarna/ sem næst er jörð- inni/ hefur þekking manna á henni til skamms tíma verið mjög af skornum skammti og miklu minni en þekking manna á Mars t.d. sem er miklu f jarlæg- ari reikistjarna. Ástæðan er sú að Venus er að stað- aldri þakin þykkum/ hvít- um skýjahjúp, sem byrgir mönnum alla sýn að yfir- borði hennar/ svo að eng- um beinum rannsóknum frá jörðinni verður við komið. Menn reyndu lengi aö bæta sér þetta þekkingarleysi upp með snjöllum tilgátum, en það var þó ekki fyrr en Bandarikjamenn og Sovétmenn fóru að gera tilraunir til að láta geimflaugar fara i gegnum skýjaþykknið og lenda á yfirborði reikistjörnunnar að ein- hver raunhæf vissa fékkst um á- standið þar, og kom þá i ljós eins og eðlilegt var að að sumar tilgát- urnar höfðu við rök að styðjast en aðrar og enn fleiri voru alrangar. Þróun þessara rannsókna hefur verið svo ör að sérhver geim- flaug, sem komist hefur i návigi viö reikistjörnuna, hefur nánast þvi valdiö byltingu i hugmyndum manna um hana. Siðast rannsök- uðu bæði bandariskar og sovésk- ar geimflaugar Venus i desember 1978, og kom þá f jöldamargt nýtt i ljós. Menn eru nú smám saman að átta sig á þvi hvað Venus er gjörólik jöröinni og reyndar öllu þvi sem þeir þekkja. Venus er mjög svipuð jörðinni hvað stærð og þyngd snertir og mætti þvi búast viö þvi að ástand- ið á þessum tveimur reikistjörn- um væri svipað. En Venus er hins vegar miklu nær sólinni og hún snýst mjög hægt um sjálfa sig. Fjarlægð hennar frá miðju sól- kerfisins er 108 miljónir km, eða 72% af fjarlægðinni frá sólinni til jarðarinnar, og er „Venusarárið” þvi aðeins 224 jarðneskir dagar. Venus snýst svo einu sinni um sjálfa sig á 243 jaröneskum dög- um en öfugan hring, þannig aö einn „Venusdagur” jafngildir 117 dögum á jöröinni. Möndull Ven- usar er lóðréttur miðað við brautina umhverfis sólina, þann- ig að engar árstiðir eru á reiki- stjörnunni. Vegna nálægðar sólarinnar fær Venus helmingi meiri orku þaðan en jörðin, en skýjaþykknið endurvarpar um 70% af henni, þannig að sú orka sem endanlega berst til plánet- unnar er álika mikil og sú sem jörðin fær. En afleiðingin er hins vegar allt önnur og stafar það einmitt af skýjaþykkninu. Gegnum skýjahjúpinn Aður en farið var aö senda geimflaugar til Venusar var þessi skýjahjúpur helsta ráðgáta henn- ar og fer því fjarri að hún sé leyst aö fullu, þótt menn viti nú margt um eöli þessara skýja. Ef menn i- mynda sér að geimfari sé að nálgast Venus i 100 km hæð, sér hann fyrst fyrir neðan sig gulleitt skýjaþykkni, sem endurvarpar sólarljósinu mjög sterklega. 1 80- 70 km hæð fer hann i gegnum mjög þunn og næstum þvi gagnsæ skýjalög, sem eru ef til vill gerð úr kolsýru, sem þarna hefur þést. Hið eiginlega skýjabelti hefst i 70 km hæö og er um 20 til 25 km á þykkt. 1 rauninni er fremur um aö ræða þétta og jafna móöu en skýjabólstra og hafa menn greint þarna fimm lög. Efsta lagiö, sem er i 75-70 km hæð,er þunn slæða úr örsmáum ögnum. 1 70-60 km hæö er þéttari móða, sem mynduö er af örsmáum dropum brenni- steinssýru, og er það þetta lag sem sýnilegt er frá jöröu. Geim- farinn sem i gegnum þaö fer sér sólina hverfa þegar hann er 62 km fyrir ofan yfirborð reikistjörn- unnar, og eftir það er ljósiö alveg jafnt. Lárétt skyggni er þar aö- eins um 6 km. 1 60-53 km hæð eru skýin enn mynduð úr dropum af brennisteinssýru, en auk þess upp i 400 stig. t 7 km hæð færi geimfarinn að geta greint nokkur kennileiti á yfirboröi plánetunn- ar. Af þeim 29% af sólarorkunni, sem skýin endurvarpa ekki, gleypa skýin siðan 60% og neðri lög gufuhvolfsins 15%, en 10% ná sjálfu yfirborðinu. Það eru aðeins 2% af þeirri orku sem Venus fær frá sólinni. Yfirborðið sjálft er baðað i rauöu ljósi, en birtan er litil, minni en I lágskýjuöu veöri á jörðinni, og skyggni aðeins um einn km. Gifurlegir stormar eru i skýjalögunum, en þeir minnka þegar neðar dregur, og hverfa i 10 km hæö. Við yfirborðið er senni- lega mjög litil hreyfing á loftinu, vegna þess glfurlega þrýstings sem þar er, en sennilega er þar mikið um tibrá og hillingar. Þunnt ryklag liggur á grjóthnull- ungunum, sem eru á viö og dreif um yfirborðiö, en eftir myndum að dæma sjást litil merki um veðrun. Astæðan fyrir hinum gifurlega hita á yfirboröi plánetunnar er ekki nákvæmlega þekkt, en sennilega er hér um að ræða sama lögmál og i gróðurhúsum: skýjaþykkniö hleypir ljósi og hita i gegnum sig eins og gler en hleypir þvi ekki út aftur. Hitinn safnast þvi fyrir i neðri loftlögun- um. Landslag Af þvi er virðist er yfirborðið þakið litlum grjóthnullungum, og hefur komið i ljós að þeir eru geröir úr blágrýti og granit og e.t.v. fleiri bergtegundum, svo aö sú jarðsöguiega þróun sem þarna hefur oröið er að einhverju leyti svipuð þvi sem gerst hefur á jörð- inni. Landslag á Venus hefur ekki verið rannsakað nema á örlitlum svæöum: hafa þar fundist fjöl- margir gigar eins og á tunglinu og e.t.v. risastórt eldfjall, sem gæti verið eins og eldfjöll á Mars (mörg hundruð km i umraál), og einnig hafa menn getað kortlagt hluta af gífurlega stóru gili, sem minnir einnig á „Valles Marineris” á Mars, en það er 4000 km langt, 200 km breitt og 8 km djúpt. Gufuhvolf Venusar er aö mestu úr kolsýru, en sáralitið er þar af súrefni og vatnsefni. Menn hneigjast nú að þeirri skoðun að ástandið á reikistjörnunum Ven- usi, jörðinni og Mars hafi verið svipað i upphafi, og er það þá al- ger ráðgáta hvað oröið hafi af súrefni og vatnsefni Venusar. En til þess að geta byrjaö á einhverj- um bollaleggingum um jarðsögu Venusar er nauðsynlegt að safna fleiri upplýsingum, og biða geim- rannsóknarmenn nú i ofvæni eftir næstu rannsóknum þar, en þær eiga aö fara fram 1983. Ætla Sovétmenn og Frakkar þá i sam- einingu að láta loftbelg sigla um gufuhvolf plánetunnar. (Eftir ,,Le Monde” Fyrstu rannsóknir benda til þess að landslagá Venus muni vera likt þvl landslagi sem er á Mars og nú hafa náöst mjög góðar myndir af. Þessi mynd sýnir gilið mikla á Mars „Valles Marineris”, eru þar einnig til staðar stærri agnir, sem lítið er vitaö um en gætu verið örsmáir brennisteins- kristallar. Fjórða beltið er I 52-49 km hæð og virðist þaö vera blanda úr brennisteinssýru og öörum vökva, sem er e.t.v. að einhverju leyti vatn. Þetta er eina beltið sem llkist aö einhverju leyti skýjum eins og þau eru á jörðinni. Neðst i þvi kemst hitinn upp i 100 stig og þar breytast allir vatns- droparnir i lofttegundir. Loks fer geimfarinn i gegnum mörg ör- þunn skýjalög, sem eru aðeins nokkrir tugir eða hundruð metra á þykkt en mjög þétt, og eru þau sennilega gerö úr brennisteins- sýru sem er að breytast i loftteg- und. Yfirborðið Loks þegar geimfarinn kemst i 48 km hæð fer hann endanlega níöur úr skýjabeltinu. Þar er loft- iö tært og lárétt skyggni um 80 km en birtan ekki meiri en i skýjuðu veöri á jöröinni. Þegar kemur niður fyrir 20 km hæð kemst hitinn upp i 300 stig og þar verður birtan rauðleit. Ljósið dofnar og lárétt skyggni er aöeins um 20 km. 110 km hæö er himinn- inn orðinn rauður og skyggnið aö- eins 12 km , en hitinn er kominn Þéttur skýjahjúpur hylur Venus að staðaldri svo að ekki er hægt að greina nein kennileiti á yfirborði reikistjömunnar 6000 m I 3000 m - 642 km

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.