Þjóðviljinn - 16.09.1979, Page 11

Þjóðviljinn - 16.09.1979, Page 11
Sunnudagur 16. september 1979 ÞJÖÐVILJINN — StDA 11 Olafur Jónsson gagnrýnandi tekinn tali — I lok bókarinnar um Gunnar og Kjartan losar sögu- hetjan sig við óléttan kvenmann og stimar burt meö Esjunni meö einhverri ungri kvensu. I Eftir- þönkum Jóhönnu drepur kær- astinn sig með hennar hjálp, og öðlast þarmeð frelsi. Vinkona hennar verður hins vegar frjáls með þvi að sofa hjá stjúpa sin- um. Stalín er ekki hér endar með einum allsherjarósigri. Blóðskömm, dauði — þetta er beint upp úr rómantiskri kokka- bók. Hulda flýr austur á Seyðis- fjörð og gefur skit i föður sinn og fjölskyldu. Hún ætlar að iðka kynferðislif og góma þannig svokallað kvenfrelsi, sem reyndar er i hennar falli ekki nema kynfærasvall. Þetta má vist kalla karlapungasjónar- mið. íhald! -0- Ólafur bregður sér fram I eld- hús og kemur með rjúkandi kaffikönnu i hendinni. Hann bætir i bollana á meðan hann brynir kutann i huganum fyrir næstu slægingu. — Bók Olafs Hauks Vatn á myllu kölska er kritisk sam- tiðarlýsing þar sem orsaka hins illa er að leita hjá spilltum ein- staklingum. Þetta er sama rök- semdarfærsla og i Atómstöðinni — sem er langáhrifamesta islenska skáldsagan eftir strið. Ég sé ekki betur en bók Ólafs gefi sig út fyrir að vera lykil- róman. Verkið verður að þjófa- lyklarómani, sem stefnir sög- unni beinlinis i hættu. Þjóð- félagið er að dómi ólafs Hauks skapað af spilltu og lifsþæginda- sjúku yfirstéttarpakki. Sagan gefur hvergi visbendingu til þess að þessir einstaklingar séu mótaðir af félagslegri þróun eða sögulegum ástæðum, heldur er orsakanna að leita i sálfræðileg- um rótum. Þvi miður er þjóðfélagsþróunin miklu flókn- ari en sem svo. Raunsæisaðferðir sem þessir höfundar iðka eru mótaðar á öldinni sem leiö. Bak við unga „róttæka” penna i dag situr i- haldssöm prjónakerling, og rausar gegnum þá. -0 — tslenskt samtiðarleikhús er næst á dagskrá. Ólafur horfir sakleysislega á mig og segir: — Hið sama er upp á ten- ingnum i leikhúsinu. Glöggt dæmi um þetta er nýjasta verk Guðmundar Steinssonar, Stundarfriður . Yfirborðið er nýstáriegt og leikritið viil deila á úrkynjaða lifshætti. Til hlið- sjónar er brugðið upp lýsingu á foreldrum húsbóndans, sem eru ofan úr sveit. Mórölsk forsenda verksins er að fólk, þ.e.a.s. viö sem horfum á leikinn, höfum flosnað upp frá einhverjum upp- runalegum lifsháttum. Guömundur hefur sjálfur sagt i blaöaviötali að matarborðið sé aðaltákn leiksins, þar safnist fjölskyldan ekki lengur saman til sameiginlegs málsverðar. Þarna er verið að lýsa eftir úr- eltum fjölskyldu- og þarmeð þjóðfélagsháttum, húsmóður- inni sem breiðir á borð, hefð- bundinni kynjaskiptingu, lausn- ir fundnar I lifsgildum fyrri tið- ar. Ef þetta er ekki ihaldssemi, þá veit ég ekki hvað er ihalds- semi, ha? Hann kveikir i nýrri sigarettu. — Nú, við getum tekiö leik- ritahöfund sem Ólaf Hauk. Blómarósir, sem reyndar er ekkert annað en sentimentalt melódrama, fjallar um spilltan borgara sem kúgar alþýðukon- ur. Ólafur gefur sér forsendur borgaralegs þjóðfélags 19. ald- ar og hringlar digurri lykla- kippu af skoðunum framan i leikhúsgesti. Og mönnum likar vel að láta einfalda veru- leikann fyrir sér. Það er sömu sögu að segja með afþreyingar- bækur, þar er veruleikinn mál- aður i svörtum og hvitum myndum. En málið er, að þeir höfundar sem lita þannig á hlut- verk sitt eru á rangri braut. Hlutverk raunsærra bókmennta er ekki að einfalda, heldur upp- lýsa. Þær eiga að greina frá staðreyndum en ekki endilega gefa tæmandi eða endanlegar skýringar á þeim. Ólafur þagnar augnablik. Svo: — Eini íslenski höfundurinn sem komist hefur til manns i nú- timaleikhúsi er Jökull Jakobs- son. Hann þróaðist burt frá hefðbundnu raunsæi. Þessir yngri menn eru skemmra komnir. Ég er einna forvitnast- ur um Kjartan Ragnarsson. Kannski af þvi hann er innan- húsmaöur. Sjáðu til, hefðbundn- um aðferðum bókmenntanna fylgja hefðbundnar skoðanir eins og vofur. En okkar ungu höfundar virðast furöulega ó- næmir á þetta. Olafur hefur ekki alveg sagt skilið við ungu höfundana. Hann blæs frá sér reyknum upp á við og botnar: — Vinstri hugmyndir eru mjög I tisku núna. Það er eftir- tektarvert að enginn þessara ungu höfunda gengur I berhögg við hugmyndir unga fólksins svokallaða sem á að lesa þá. Bara þetta sýnir hvað þeir eru frábrugðnir gömlu raunsæishöf- undunum. Það er ekkert uppi- stand i kringum þá. Þeir gang- ast fegins hugar undir rikjandi hugmyndatisku i þeirra eigin þjóðfélagshóp. Það er enginn Þorgils gjallandi i þeirra hópi. — O — — Þvi hefur verið haldið fram að bókmenntafræðingar séu ó- hæfir til að fjalla um leiklist, þar eð þeir hafa ekki þekkingu á leikhúsinu sem slíku? — Þetta er frasi, sem leikarar hafa einhvers staðar lært. 011 okkar leikhússtarfsemi er háð bókmenntum. Og þetta á engu siður við leikarana. Evrópsk leikhús eru yfirleitt mjög bók- menntalegar stofnanir. Og reyndar lætur islenskum leikur- um best að leika raunsæ leikrit, sem svo eru nefnd, og þá er verið að tala um bókmenntalegt raunsæi. Þeir eru handa- og fótalausir ef þeir hafa ekki texta. Glöggt dæmi um það er Flugleikur, sem sýndur var á Alþjóðlegu vörusýningunni i Laugardal. Þar bauð sýningin upp á impróviseringu. En þegar áhorfendurbyrjuðu að taka þátt i leiknum urðu leikararnir orð- vana og righéldu sig við fyrir- fram skrifaðan texta. Leikarar eru mállausir ef þeir hafa ekki rithöfund á bak við sig. Ólafur Jónsson hefur skrifað I blöð i rúm 20 ár, en aðeins ein bók eftir hann hefur verið gefin út, viðtalsbók við Brynjólf Jó- hannesson leikara. Næstu vikur verður hins vegar nýrri bók eftir hann hleypt af stokkunum og ber hún nafniö „Lika lif”. — Já, segir Ólafur og ber granna fingurna, sem halda á nær útbrenndri sigarettunni, að vörum sér. — Þetta er safn greina um samtimabókmenntir, sem skrif- aðar eru á árunum 1963 — 79. Það eru margir blaðamenn sem fá I maga af þvi aö sjá skrif sin r júka út i veður og vind og finnst kannski viðfangsefnin meir en einnar messu virði. Bókin er fyrir mig tilraun til að prófa þetta, sjá hvað af þessum bók- um og minum eigin bókalestri hefur staöist timans tönn. Þessaða blessuðu lifsreynslu. — Og hvað er svo góður gagn- rýnandi? — Hann þarf að vera vel læs og hafa gaman af aö lesa. Og skrifa. Fjölbreytt verkefna- skrá hjá Iðnó í vetur Atriði úr sýningunni „Er þetta ekki mitt lif?” sem Leikfélag Reykja- víkur frumsýndi i vor og tekur upp að nýju I haust. Lilja Guðrún Þor- valdsdót'ír, rljalti Kögnvaldsson og Margrét Helga Jóhannsdóttir i h'utverkum sinum. Leikfélag Reykjavíkur hefur sent frá sér verkefnaskrá Iðnó veturinn 1979 - 1980. Þetta er 83. leikár félagsins og efnisskráin fjölbreytt. Sýningin Erþetta ekki mitt lif? eftir Brian Clark verður tekin upp að nýju, en leikurinn var frum- sýndur s.l. vor og gekk fyrir fullu húsi til leikársloka. Leikstjóri er Maria Kristjánsdóttir, en leik- mynd geröi Jón Þórisson. Æfingar standa nú yfir á leik- ritinu Kvartett eftir Pam Gems. Þetta er nýtt enskt leikrit um ungar konur á timamótum. Þýð- andi er Silja Aðalsteinsdóttir og leikstjóri Guðrún Asmundsdóttir. Leikmynd er eftir Guðrúnu Svövu Svavarsdóttur. Frumsýning verður 23. september. Þá verður frumsýnt nýtt is- lenskt leikrit Ofvitinn eftir sam- nefndri sögu Þórbergs Þórðar- sonar i leikgerð Kjartans Ragnarssonar. Leikmyndin er eftir Steinþór Sigurðsson og frumsýningin 20. október. Eitt af öndvegisverkum sovéskra leikbókmennta, Kirsu- berjagarðurinn eftir Anton Tsje- kov verður frumsýnt um áramót. Það er Eyvindur Erlendsson sem hefur þýtt verkið úr frummálinu og er jafnframt leikstjóri. Stein- þór Sigurðsson gerði leikmynd. Nýtt leikrit eftir Véstein Lúð- viksson verður frumsýnt i mars- byrjun. Ber þaðnafnið Hemmi og fjaliar að sögn leikhússins um ýmsan vanda samtimans og for- tiðar I alvöru og gamni. Leikstjóri verður Maria Kristjánsdóttir. Blessað kerfið nefnist leikrit eftir Valentin Kataiev og Marc Gilbert Sauvajon, sem sýnt verö- ur I lok leikarsins. Þetta er rúss- neskur-franskur skopleikur og hefur leikhússtjóri LR. Vigdis Finnbogadóttir jþýtt verkið. VTKÖENDANUM! Helgarblað Vísis er rúsínan okkar enda hefur það þegar skapað sér sérstöðu á blaðamarkaðnum. Það kemur út sérhvern laugardag, smekklegt og efnismikið, fullt af frísklegum greinum og viðtölum til lestrar yfir helgina. Áskrift að Vísi tryggir þér eintak stundvíslega sérhvern virkan dag og svo rúsínuna í vikuendanum: Helqarblaðið. Sendu seðilinn til Vísis Síðumúla 8 eða hringdu í síma 86611 og við sjáum um framhaldið. .oghelgin erkomin! ...ji________

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.