Þjóðviljinn - 25.09.1979, Blaðsíða 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 25. september 1979
Þórður Ingvi
Guðmuncfsson
skrifar
frá Kanada:
Um miðjan september hélt nýja
Ihaldsstjórnin I Kanada upp á 100
daga afmæli sitt. Að dómi stjórn-
málaskýrenda, sem hafa fylgst
með þessum fyrstu 3 mánuðum
stjórnarinnar var raunverulega
ekki hægt að halda upp á nein stór-
afrek eða framkvæmdir. Sumarið
hefur einkennst af sviknum kosn-
ingaioforðum og forystu embættis-
manna á sviði ákvöröunartöku.
Minnihlutastjórn Joe Clarks for-
sætisráöherra og formanns Ihalds-
flokksins, komst til valda eftir
þingkosningar I Kanada i lok maí
s.l. Kosningarnar unnust fyrst og
fremst vegna þriggja málefna, sem
Joe Clark lofaöi að hrinda i fram-
kvæmd strax að loknum sigri.
Stærst þessara mála og mikilvæg-
ast fyrir kjósendur var loforðiö um
aö heimila að vextir af fasteignum
yröu frádráttarbærir til skatts. Á
þessu stigi málsins er ekki hægt að
segja fullum fetum, að loforð þetta
hafi verið svikiö, en ákvörðunar-
töku i málinu hefur verið frestaö
fram yfir áramót, þannig að I
upphafi næsta árs, þegar skatt-
greiðendur fara að fylla út skatta-
skýrsluna sina, hafa þeir ekki
heimild til aö telja vaxtagreiðsl-
urnar fram, sem frádráttarlið.
Astæðan fyrir frestun á ákvörö-
unartöku var só að þegar efna-
hagssérfræöingar Ihaldsstjórn-
arinnar fóru að reikna Ut hvað
tekjutap rlkissjóðs yrði mikið,
reyndust tölurnar svo hrikalega
háar (3-5 miljarðar dollara) aö
stjórninni hreinlega féllust hendur
við að hrinda kosningaloforöinu i
framkvæmd þegar i stað.
Baráttan um Petro Can
Eins og á Islandi hafa ihalds-
menn I Kanada áhyggjur af
bákninu. Petro Can hiö rikisrekna
íhaldsstjórnin
svíkur öll sín
kosningaloforð
oliufyrirtæki hefur verið þeim mik-
ill þyrnir I augum, allar götur siðan
fyrirtækið var sett á fót að kröfu
krata árið 1975. Eitt af mikilvægari
kosningaloforðum Clarks forsætis-
ráðherra, var að selja Petro
Can einkaaðilum ef fhaldsfiokk-
urinn kæmist tii valda. Strax eftir
kosningasigurinnlýsti Clark þvi svo
yfir að fyrirtækiö yröi selt þegar I
stað. Þegar leið á sumarið fóru aö
heyrast aðrar yfirlýsingar frá
Ihaldsráðherranum, þar á meöal
lýsti orkumálaráðherrann Ray
Hnatyshyn þvi yfir I ágilst að fyrir-
tækið yrði alls ekki selt eftir allt.
Orkukreppan sem skall yfir
auðvaldsheiminn nU I vor og sumar
kom litið viö kaunin á Kanada-
mönnum. Sem dæmi má taka að á
meðan bensinverö hækkaði um nær
30% I Bandarikjunum stóð það I
stað I Kanada. Skýringin var sU að
Kanadamenn eru sjálfum sér nógir
um olluframleiðslu, aö mestu ieyti
og eru þar af leiðandi ekki háöir
verðsveiflunum.
Þó svo að amerisku ollurisarnir
hafi hreiðraö um sig I Kanada, sem
annars staöar, þá er ollufram-
leiðslu og olludreifingu miðstýrt I
gegnum Petro Can. Ihaldsmenn
viöurkenna nU að ef Petro Can
hefði ekki veriö til heföi orku-
kreppan skollið yfir Kanada af
sáma afli og yfir aðrar þjóðir. Þess
vegna eru nU komnar nokkrar vöfl-
ur á stjórnarforystuna um aö selja
fyrirtækið. Þetta hefur valdið deil-
um I flokknum þar sem þrýstingur-
inn á stjórnina að selja það er mjög
mikill. Af þessum sökum hefur ver-
ið sett á fót sérstök nefnd sem
kanna á alla valkostina i sambandi
við Petro Can. Helstu valkostirnir
eru: 1) Óbreytt ástand, 2) Fyrir-
tækið veröi alfariö selt, 3) Nokkrar
deildir þess veröi seldar einkaaöil-
um, 4) Breyting á fyrirtækinu I al-
menningshlutafélag, með meiri-
hlutaeign rikisins. Tveir slöustu
valkostirnir munu koma helst til
greina.
Siöustu fréttir herma að krat-
arnir (Nýi lýðræðisflokkurinn)hafi
byrjað vlötæka baráttu til aö
vernda Petro Can. Einnig munu
Joe Clark forsætisráðherra
Kanada.
Frjálslyndir smlast hatramlega
gegn hvers konar breytingum á
stöðu fyrirtækisins.
Eina deilumál flokkanna i utan-
rikismálum fyrir þessar kosningar
var hvort Kanda ætti að flytja
sendiráö sitt I Israel frá Tel Aviv til
Jerusalem. Ihaldsflokkurinn geröi
mál þetta að kosningamálefni þar
sem Clark studdi flutning sendi-
ráðsins. Frjálslyndir og Kratar
voru báðir á móti. Talið er aö
Ihaldsflokkurinn hafi unnið
Gyðingaatkvæðin ÍKanadaá þessu
máli. Einmitt þetta mál var fyrsta
málið sem nýja rlkisstjórnin sveik
eftir valdatökuna. Flora Mac-Don-
ald utanrlkisráðherra lýsti því
hreinlega yfir að málið yrði saltað,
liklega um eilifð, þar sem sendi-
herrar arabarikja I Ottawa höföu
mótmælt fyrirhugaöri ákvörðun
nýju rikisstjórnarinnar. Þaö sem
liklega hefur drepið þetta mál
endanlega núna er að á ráðstefnu
óháðra rikja I Havana á Kúbu I
byrjun september var samþykkt
tillaga frá Pakistan um að kaupa
ekki kanadlskar vörur, ef ákveðið
verður að flytja sendiráðið.
Svikin kosningaloforð og ör
sinnaskipti nýju stjórnarinnar eru
að verða henni töluvert vandamál
og hefur þegar minnkaö vinsældir
hennar samkvæmt skoðanakönn-
unum. Annaö meginvandamál
rlkisstjórnarinnar hingað til er em-
bættiskerfið.
Höfum ágæta stefnu.
Það þarf enga stjórnmála-
fræðinga til að segja fólki það hvers
konar embættismannakerfi hefur
þróast eftir 15 ára samfellda stjórn
sama flokks, I þessu tilfelli Frjáls-
lynda flokksins. Þegar Ihalds-
flokkurinn undirbjó kosninga-
baráttuna s.l. vetur voru gerðar
áætlanir um að hreinsa duglega til I
embættiskerfinu ef flokkurinn
kæmist til valda. Skipt yrði um 2000
æðstu embættismennina til aö auð-
velda lhaldsflokknum að stjórna.
Eftir 100 daga stjórn hefur enginn
embættismaður verið rekinn, ef
andan ep skilið persónulegt starfslið
forsætisráðherrans, sem er svipað
og persónulegt starfslið forseta
Bandarikjanna i Hvita húsinu.
Vandi fhaldsstjórnarinnar hefur
þvi verið sá að embættismanna-
kerfið er nýju stjórninni hreinlega
fjandsamlegt. Sem dæmi má taka
að stuttu eftir valdatökuna kallaði
einn nýju ráðherranna helstu em-
bættismennina i ráðuneyti sinu á
sinn fund og lagði fyrir þá stefnu
thaldsflokksins I málaflokkum,
sem vöröuðu þetta ráðuneyti. Em-
bættismennirnir lofuöu að lesa
plaggið og koma síðan aftur til
fundar meö ráðherranum að
nokkrum dögum liðnum. Er fundur
haföi veriö settur að nýju spuröi
ráöherrann hvernig embættis-
mönnunum litist á nýju stefnuna.
Sá sem fyrir svörum var sagöi:
Framhald á 14. siðu
Sveppir og vatnalíf
Aðstandendur bókanna: taliö frá vinstri, Bragi Guöjónsson, Rikisútgáfu
námsbóka, ólafur Björn Guömundsson, Garöyrkjufélaginu og höfundur
inn Helgi Hallgrimsson. — Ljósm. eik.
Helgi Hallgrímsson, for-
stöðumaður Náttúrugripa-
safnsins á Akureyri, hefur
ný fyrir skömmu látið frá
sér fara tvær nýjar bækur
um náttúru islands.
Bækurnar voru kynntar á blaöa-
mannafundi nú I vikunni og þar
kom m.a. fram að þær eru að veru-
legu leyti byggöar á eigin rann-
sóknum og fjalla um efni sem áður
hafa verið gerð litil sem engin skil
hérlendis. Auk þess aö vera hand-
hæg uppflettirit fyrir almenning
hfenta þær vel til kennslu nemenda
á framhaldsskólastigi, s.s. I
menntaskólum, búnaöarskólum og
I háskóla. útgefendur eru rlkisút-
gáfa námsbóka sem gefur út „V'er-
öldin I vatninu'bg Garðyrkjufélag
íslands sem gefur út „Sveppakver-
iö”.
Veröldin í vatninu
Þegar skólarannsóknadeild
Menntamálaráðuneytisins hóf
endurskipulagningu á námsefni I
liffræöigreinum um 1970 fór aö
bera á skorti á handhægum leið-
beiningum fyrir kennara sem vildu
reyna nýjar aðferðir viö kennslu.
Veröldin I vatninu er hugsuö sem
byrjun á ritröð um íslensk vist-
kerfi. Bókin er að verulegu leyti
sprottin upp út námskeiöum sem
haldin hafa verið fyrir náttúru-
fræðikennara á grunnskólastiginu.
Efnið er að stærstum hluta byggt á
rannsóknum Helga á vatnalifi Mý-
vatns og Laxár og vistkerfi vatna
norðanlands. Einnig er stuðst við
aörar heimildir. Bókin er hugsuö
sem hjálpartæki kennara og einnig
sem ýtarrit fyrir nemendur m.a. til
aö auðvelda þeim sjálfstæð vinnu-
brögö. Talið er að bókin geti komið
að verulegu haldi við llffræði-
kennslu við háskólann og einnig
ætti hún aö henta vel sportveiði-
mönnum til aukins skilnings á vist-
kerfi vatna og áa.
1 bókinni er fjöldi mynda, bæði
ljósmyndir sem Helgi hefur sjálfur
tekiö og svo mjög góðar teiknaðar
skýringarmyndir frá Kosmos Ver-
lag I Stuttgart en þær teikningar
gáfu teiknarar Kosmos I bókina.
Sveppakveriö
Þetta er ein af þeim fáu bókum
sem Garðyrkjufélagiö hefur gefið
út. Efnið er m.a. unnið upp úr
greinum Helga I Garðyrkjuritinu
og aðlangmestu leyti byggt á rann-
sóknum hans á Islensku sveppa-
flórunni enda lítið veriö skrifaö áö-
ur um íslenska sveppi. Bókin er
fyrst og fremst ætluð sem upplýs-
ingarit fyrir alþýðu enda áhugi á
Islensku sveppunum farið vaxandi
siðari ár og óhægt hefur veriö um
vik að fá greinargóðar upplýsingar
um þetta efni. Sveppakverið er eins
og Veröldin I vatninu talin muni
henta vel til náttúrufræðikennslu á
framhaldsskóla- og háskólastigi.
Auk skýringarteikninga eru i bók-
inni fjöldi ljósmynda af Islenskum
sveppum.
Þriðjudagur 25. september 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
„Þessir mjöltankar, sem
við höfum sett hér upp í
örfirisey, og allur sá bún-
aður sem þeim fylgír varð-
andi lestun og losun mjöls-
ins, er eitt það fullkomn-
asta sem fyrirfinnst i þess-
um efnum í dag," sagði
Jónas Jónsson fram-
kvæmdastjóri Síldar- og
fiskimjölsverksmiðjunnar
h/f en verksmiðjan er með
bræðslur á Kletti og eins
úti i örfirisey þar sem út-
skipun mjöls fer fram.
Jónas gekk með blaðamönnum
Þjóöviljans um athafnarsvæðið
við mjöltankana fyrir stuttu og
skýröi út hvernig staðið er að
lestun þeirra og losun.
Tankarnir eru I dag sex talsins
og rúmar hver þeirra um 200 tonn
af mjöli. Smiði þeirra var lokið
fyrir hálfu ööru ári slðan, og sagöi
Jónas að þeir hefðu reynst mjög
vel þennan tlma, fyrir utan þann
glfurlega sparnað sem hlytist af
notkun þeirra.
Nú væri hætt að sekkja mjöliö,
nema þá kaupendur óskuöu sér-
staklega eftir þvi sekkjúðu.
011 mjölframleiðslan er flutt á
vörubilum frá Kletti og mjölinu
siöan sturtað I þró I mjöl-
geymsluhúsinu I örfirisey. Þaðan
fer mjöliö slðan á skúffufæri-
böndum upp I tankana til
geymslu. Þegar mjölið kemur
fullbúið úr verksmiðjunni er þaö
um 60 gráða heitt, en slðan er það
kælt niður I 40 gráður áöur en það
er flutt til geymslu I tönkunum.
Til að kæla mjölið enn meira eftir
að þaö er komið I tankana er þvl
blandað saman en tæknibúnaður
tankkerfisins býður upp á alla
hugsanlega möguleika við blönd-
un á mjöli milli tanka.
Hægt er siöan að fýlgjast meö
hitastigi mjölsins I stjórnar-
stöðvarherbergi.
Tankarnir duga fyrir
vikuframleiöslu
Eins og áður sagði taka tank-
arnir um 1200 tonn af mjöli
samanlagt, en Jónas sagði, að
yfirleitt væri ekki haft meira en
1000 tonn I þeim I einu.
Geymslurými tankanna jafn-
gilti þvi um vikuframleiðslu ef
báðar verksmiðjurnar væru á
fullum afköstum allan sólar-
hringinn.
Eins er hægt að sekkja mjöl úr
tönkunum og koma þvi fyrir I
skemmu, þannig að ekki ætti að
koma að sök þótt tankarnir önn-
uðu ekki framleiðslunni.
Hins vegar hefur verksmiöjan
lóö undir 4-6 tanka til viðbótar en
ekkert hefur ennþá verið ákveðiö
meö frekari framkvæmdir.
Tankarnir, sem eru um 20 m
háir og 6 metra breiðir, eru smlö-
aðir að mestu hér heima eftir
norskri fyrirmynd.
Uppúr botninum, sem er ekki
soðinn fastur við tankinn, heldur
festur meö fjaðrandi gúmmlfest-
ingum, liggur keila upp I tankinn
til að auðvelda tæmingu þeirra.
Blanda ekki auka-
efnum i mjölið ennþá
Viö geymslu fiskimjölsins
þránar fitan og rennur saman og
bindur þá éggjahvltuefnum.
Nýtistþá fitan dýrunum verr sem
orkugjafi. Til að draga úr þessum
breytingum á fitunni og til aö
koma I veg fyrir hitamyndun,
sem getur verið þeim samfara,
er blandað I mjöliö sérstökum
efnum, sem nefnast antioxidant-
ar.Eftir þvi sem mjöliö er feitara
og joötala fitunnar er hærri er að
öðru jöfnu meiri þörf á að blanda
„antioxydant” I mjöliö. Joðtala
lýsis úr vetrarloðnu er yfirleitt
lág eða 100-110 en I lýsinu úr
sumarloðnunni getur hún farið
yfir 130.
Sumir mjölkaupendur vilja nú
orðið slður og jafnvel ekki mjöl
nema það sé bætt „antioxydant”.
Við spuröum Jónas I framhaldi
af þessu hvort Síldar- og fiski-
mjölsverksmiðjan væri byrjuö að
Mjöltankakerfið er m jög fullkomiö I alla staöi og hér sýnir Jónas blaöa-
manni Þjóöviijans hvernig búnaöurinn virkar þegar losaö er úr tönk-
unum. — Mynd Leifur.
Jónas Jónsson framkvæmdastjóri Sildar- og fiskimjölsverksmiöjunnar
h/f: „Hér þarf aö koma tii allsherjarendurbygging hjá fiskimjölsverk-
smiöjunum... ekki neinar skúrabyggingar, heidur endurbyggja upp
alla vinnsluna frá grunni.” — Mynd Leifur.
Nýju mjöltankarnir standa fyrir framan örfiriseyjarverksmiöjuna alveg viö bryggjuna. AIIs eru sex
tankar þegar risnir og sjást þrír þeirra á myndinni en hinir þrir standa fyrir innan þá sem sjást.
MJÖLTANKAR
stórar upphœðir
spara
blanda „antioxydöntum” I slna
mjölvöru.
Jónas sagði svo ekki vera, en
aftur á móti væru þeir búnir að
koma sér upp aöstöðu I sambandi
viö tankakerfið til að geta
blandað „antioxydöntum” eða
öörum efnum saman við mjöliö ef
kaupendur æsktu þess.
Þeirra kaupendur væru aðal-
lega I Bretlandi, Belgiu, Þýska-
landi, Finnlandi og Póllandi.
Verksmiðjan semdi sjálf um sölu
á sinni framleiðslu og væri búið
að ná samningum um þó nokkurt
magn af mjöli sem verið væri að
vinna nú.
Mjöliö er flutt beint úr tönkun-
um út á bryggjuna fyrir framan
tankana og þaðan um borö I mjöl-
skip.
Búnaöurinn nær að flytja um 40
tonn af mjöli á klst. A bryggjunni
er einnig búnaður fyrir loönu-
löndun og er loönan þá flutt
beinustu leið úr skipunum og upp
I verksmiöjuþrærnar.
Mikil óvissa um
loðnuveiðarnar
Þaö sem af er þessu hausti hef-
ur verksmiðjan á Kletti einungis
verið I rekstri, en verksmiöjan I
Örfirisey hefur ekki enn tekið til
starfa eftir siðustu loönuvertlð.
Jónas sagði að þaö væri mjög
óhagkvæmt að sama fyrirtækið
ræki tvær verksmiðjur á sitt
hvorum staðnum I borginni og
ekki stærri og afkastameiri en
þær eru. Það sem af væri sumar-
vertlð hefði alls ekki tekið þvl að
setja örfiriseyjarverksmiðjuna I
gang. Það væri ekki einu sinni
vitað ennþá hvort hún yfir höfuö
færi I gang á þessum vetri. Verk-
smiöjan á Kletti annaði alveg ein
bræðslu á slógi og beinagörðum
frá frystihúsunum hér I Reykja-
vlk, og sú loöna, sem veiðst heföi
hingað til á sumarvertiðinni, væri
það léleg að ekki heföi borgað sig
að taka I allar þrær. Þróarrýmið
hjá hvorri verksmiöju fyrir sig er
um 6000 tonn.
Jónas sagöi, aö hráefnisnýting-
in hjá verksmiðjunum væri nokk-
uö góð, þó væri þörf á aö koma
upp lokuðum þróm, þvl að hrá-
efnið vildi alltaf rýrna eitthvað I
rigningum og frostum á veturna.
Verksmiðjurnar framleiöa
þrjár tegundir fiskimjöls. þ.e.a.s.
loðnumjöl, karfamjöl og þorska-
mjöl. Eggjahvltuinnihald karfa-
mjöls er um 60%, þorskamjöls
um 63-65% og loðnumjöls 68-70%.
Til aö ná sem réttustum hlut-
föllum gagnvart sölu er nú mögu-
leiki að blanda mjöltegundunum
saman þar til réttu eggjahvitu-
magni mjölsins er náð, eins og
óskað hefur veriö eftir af
kaupendum.
Þarf að endurbyggja
fiskimjölsvinnsluna
frá grunni
Að lokum spuröum viö Jónas,
hvar Islendingar stæðu tæknilega
séð gagnvart öðrum nágranna-
löndum okkar á sviöi fiskimjöls-
vinnslu.
„Þaö er ekkert launungarmál”,
sagði Jónas, ”aö viö stöndum
nokkuð langt á eftir, t.d. Norð-
mönnum og Dönum I þessari
framleiðslu hvaö áhrærir
vinnslutækni. Hér þarf að koma
til allsherjarendurnýjun. Ég á þá
alls ekki við það, sem allt of oft
hefur viljað brenna viö I þessum
málum, að veriö er aö byggja
nýja skúra utan I þá gömlu frá
slldarárunum. Þaö er röng
stefna. Hér þarf aö byrja alveg
frá grunni og byggja upp nýjar og
tæknilega fullkomnar verksmiöj-
ur. Þá þarf einnig aö taka upp
gufuþurrkun mjöls. Annars kem-
ur þarna einnig inn I dæmið
spurningin um hráefnisöflunina.
Nú er hún m jög óviss, og það eyk-
ur stórlega á vanda verksmiðj-
anna. Hérna I Orfirisey hefur
verksmiðjan verið I gangi allt frá
þremur dögum á ári og mest I
tæpa tvo mánuði.
Loðnustofninn fer slminnkandi
og loðnan er einnig oröin mun
smærri en hér áður fyrr. Við
veröum að vara okkur á öllu þvl
sem heitir rányrkja, ef við viljum
að ekki fari fyrir loönustofninum
eins og raunin varð á meö sildina
forðum daga.
Annars held ég, að þótt fjár-
magn fengist til að koma upp
sllkri verksmiðju, sem full þörf er
á I dag, þá mundi hún ekki standa
undir rekstrarkostnaöi. Þar kem-
ur til eins og ég sagði áðan
óvissan með hráefnisöflunina og
eins lágt markaösverð á fiski-
mjöli.
Þaö skýtur því nokkuö skökku
við hversu miklu fé hefur verið
varið til endurnýjunar á loðnu-
skipastól landsins, meðan vinnsl-
an sjálf hefur algjörlega setið á
hakanum. Fólk hlýtur að sjá að
þetta gengur ekki.
Aðalatriðið hlýtur að vera að
nýtingin og vinnslan sé sem best
ekki sist þegar afl'amagniS er
fariö að dragast eins mikið sam-
an og nú er.sagöi Jónas að lokum.
-ig