Þjóðviljinn - 13.10.1979, Síða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. október 1979
AF BARNAGÆLUM
Því hefur stundum verið haldið fram og
með nokkrum rökum, að fslendingar séu karl-
réttindasvín, barnahatarar og á móti trjám.
Til að vega upp á móti þessum ófögnuði,
hafa þrjú ár verið helguð því sem sagt er að
þjóðin hati mest (ár konunnar, ár barnsins og
ár trésins). Þá er það útbreidd skoðun að kyn-
þáttafordómar séu hér meiri en annarsstaðar.
Nú vaknar sú spurning hvað það sé sem
orsakar þetta rótgróna hatur íslendinga á
konum, börnum, trjám og blámönnum og hef-
ur því stundum verið fleygt, með nokkrum
rökum, að orsakanna sé að leita í þeim
fróðleik sem börn eru mötuð á,því sem næst
með móðurmjólkinni, sem sagt í barnabókun-
um.
f síðasta hefti Máls og menningar er þetta
efni tekið fyrir í lærðri grein tveggja kvenna,
sem hafa gert sér það ómak að rannsaka 175
barnabækur og skilgreina það hvernig obbinn
af barnabókmenntum þjónar þeim tilgangi
öðrum fremur að forheimska barnið, níða
niður skóinn af konunni, einkum vinnukon-
unni, niðurlægja þeldökka, en upphef ja karl-
peninginn.
Dæmin sem tekin eru úr texta sumrabarna-
bókanna eru vægast sagt hrollvekjandi. Til
dæmis getur að líta þessa ógnvekjandi nafn-
gift í Sandhóla-Pétri (Pétri Most) á bls. 37,
orðrétt: „sá negraþrjótur" (tilv. lýkur). Síðan
segir réttilega í greininni að hér sé augljóslega
,,... alið á kynþáttafordómum...." og síðan
lagttil að bókin verði bönnuð á framangreind-
um forsendum.
Þá er konan, einkum vinnukonan, átakan-
lega niðurlægð í ritverkinu „Nancý og dular-
f ulla ferðakistan", en þar seair orðrétt á blað-
síðu32: „... Effíe, mjög fúsen fremur heimsk
stúlka, sem hjálpaði til við hreingerningar...".
Hér er augljóslega verið að smána vinnu-
konustéttina á svívirðilegasta hátt.
Þá segir í þessari f róðlegu tímaritsgrein að í
barnabókum séu algengar setningar sem séu
öðru f remur til þess fallnar að skapa fordóma
— eins og setningin: „... ekki geðjast mér að
svipnum...". Sú spurning hlýtur að vakna
hvert svo mergjuð setning sé líkleg til að leiða
huga barnsins. (sbr. Hallg. langbrók —
Njála).
Tímaritsgrein Máls og menningar um þýdd-
ar barnabækur er sannarlega orð í tíma töl-
uð. Þó hefði undirritaður óskað þess að úrtak
höfunda hefði verið meira að vöxtum.
Hvað er það til dæmis annað en litarháttar-
hroki að setja saman bækur eins og Grámann í
Garðshorni og Mjallhvít? Hvers vegna gat
Mjallhvít ekki alveg eins heitið Kolsvört og
Grámann Blámann?
Minna má á hvernig staða konunnar er
skilgreind í ritverkinu Mjallhvít og dvergarn
ir sjö: „...þá sögðu dvergarnir: „Viltu
verða bústýra hjá okkur, sjóða matinn, búa
um rúm, þvo þvottinn, sauma og prjóna, halda
öllu hreinu og í röð og reglu? Ef þú vilt þetta
máttu vera hjá okkur og þig skal ekki skorta
neitt."
Af hverju varekki veiðimaðurinn góði kona,
en stjúpa Mjallhvítar karlmaður? Er hér ef til
vill verið að læða þeirri hugmynd inn hjá sak-
lausum börnum að karlar séu góðir en konur
vondar?
Þó að tímaritsgreinin sé um margt frábær
er hún ekki gallalaus með öllu. Hvergi er til
dæmis gerð tilraun til að rétta hlut trésins í
barnabókmenntum og verður því vonandi
kippt í lag í því hefti Máls og menningar sem
kemur út á næsta ári (ári trésins). Mikill hluti
barnabóka hefur nefnilega inni að halda efni,
sem er til þess fallið að gera tréð tortryggi-
legt. Til dæmis í Rauðhettu segir móðirin við
dóttur sína: „Rauðhetta. Þú mátt ekki fara
útaf götunni útí skóginn, það getur verið
hættulegt." I Hans og Grétu er skógurinn
gerður uggvænlegur, sömuleiðis í Mjallhvit.
Erkifjendur trjáa, skógarhöggsmennirnir,
eru að öðru jöf nu góðir menn og síðan reynt að
niðurlægja trén með háðsglósum á borð við
þessa „...Ég má til með að bregða mér aðeins
f rá. Mér nægir að fara þarna á bak við tréð..."
Hér er augljóslega verið að niðurlægja tréð í
augum barna. Það er m.ö.o. hægt að athafna
sig utaní tré en ekki mann, jaf nvel ekki negra.
Yngsta kynslóðin á sem sagt að trúa því að
tréð sé manninum óæðra.
Flest það sem hér hefur verið um barna-
bækur sagt er af neikvæðum toga spunnið.
Vart verður svo skilið við þetta ef ni að ekki sé
lítillega minnstá barnabók, sem teljast verður
jákvæð, samboðin yngstu lesendunum, og
varpar hugljúfum Ijóma á dægurmál
þeldökkra:
„Negrastrákar fóru á rall og þá voru þeir tíu
einn drakk f lösku af ólyf jan og svo voru eftir níu.
Níu litlir negrastrákar fóru svo að hátta
einn þeirra svaf yf ir sig og þá voru eftir átta.
Átta litlir negrastrákar vöknuðu klukkan tvö
einn þeirra dó af geispum og þá voru eftir sjö.
Sjö litlir negrastrákar sátu og átu kex
einn þeirra át yf ir sig og svo voru eftir sex.
Sex litlir negrastrákar sungu dimmalimm
einn þeirra sprakk á limminu og þá voru eftir f imm.
Fimm litlir negrastrákar héldu að þeir væru stórir
einn þeirra fékk á 'ann og þá voru eftir f jórir.
Fjórir litlir negrastrákar fóru að elta kýr
en ein þeirra stangaði einn þeirra og þá voru eftir þrlr.
Þrír litlir negrastrákar þorðu nú ekki meir
einn þeirra sprakk af hræðslu og þá voru eftir tveir.
Tveir litlir negrastrákar þögðu nú eins og steinn
svo varð annar vitlaus og þá var ef tir einn.
Einn litill negrastrákur sá hvar gekk ein dama
hann gaf sig á tal við hana og bað hennar með það sama.
Negrastelpan sagði já og svo f óru þau á bió
en ekki leið á löngu áður en þeir urðu aftur tió.
Eða eins og lan Smith segir í vísunni góðu:
Eitt er víst Ogþað er það
í þeldökkum nú hlakkar
því maður kemur manns í stað
þó margir drepist krakkar.
Flosi
Glæsilegt upphaf á kosningabaráttu Alþýöubandalagsins í Reykjavik
Til baráttu gegn óþjóðlegu íhaldi
Til baráttu fyrir
hagsmunum
launamanna
og islensku
þjóðfrelsi
Alþýðubandalagið i Reykjavik
hélt mjög fjölmennan félagsfund
á Hótel Esju I fyrrakvöld. Fullt
var út úr dyrum og komust ekki
allir fundarmenn I sæti. Mikil
stemmning var á fundinum sem
markaði upphaf kosningabaráttu
Alþýðubandalagsins f Reykjavlk.
A fúndinum var samþykkt að
efna til fulltrúaráösfundar I
Reykjavik innan viku til þess að
ganga frá kosningu kjörnefndar
oghuga að prófkjöri eins og mælt
er fyrir I lögum félagsins.
A fundinum var eindregiö hvatt
til þess, að kosningavinna hæfist
nú þegar, og Lúðvik Jósepsson
formaöur Alþýðubandalagsins,
sem flutti ræöu á fundinum
upplýsti, að öllum kjördæmisráö-
um á landinu hefði þegar verið
faliö aö hefja kosningastarf og
ganga frá framboðum, þvf aö
engan tfma mætti missa. Svavar
Gestsson, 2. þingmaður Reykvik-
inga, flutti einnig ræðu á fundin-
um. Umræður urðu nokkrar að
loknum framsögum og tóku til
máls Adda Bára Sigfúsdóttir,
Haraldur Jóhannsson, Guðmund-
ur Magnússon, formaður félags-
ins, Einar Karl Haraldsson,
Siguröur Magnússon, Skjöldur
Eiriksson og ólafur Ragnar
Grimsson, alþingismaður.
Fundarstjóri var Sigurjón
Pétursson, forseti borgarstjórn-
ar.
A félagsfundinum i fyrrakvöld
var samþykkt samhljóöa eftir-
farandi ályktun , sem borin var
upp af Svavari Gestssyni, Svövu
Jakobsdóttur, Ölafi Ragnari
Grimssyni, Guömundi Magnús-
syni, Kristjáni Valdimarssyni og
Sigurjóni Péturssyni.
/
Abyrgðarleysi
Alþýðuflokksins
FéTagsfundur Alþýðubanda-
iagsins i Reykjavfk haldinn aö
Hótel Esju fimmtudaginn 11.
október 1979, fordæmir harölega
þaö ábyrgðarleysi, sem birtist I
framkomu Alþýðuflokksins nú, er
hann sprengir rikisstjórnina og
leiðir ihaldiö til valda. Augljóst
virðist, aö Sjálfstæðisflokkurinn
eigi allskostar viö Alþýöuflokk-
inn, þannig að ihaldið hafi þegar,
þrátt fyrir ósigur sinn I kosning-
unum I fyrrasumar, lykilaðstööu i
islenskum stjórnmálum aöeins
einu og hálfu ári eftir kosningar.
Eftir kosningasigur Alþýöu-
bandlagsmanna og Alþýöuflokks-
ins á siöasta ári voru miklar vonir
bundnar viö, að unnt ætti aö vera
aö skapa viötæka pólitiska sam-
stöðu um félagslegar endurbætur.
Fram kom verulegur áhugi
verkalýðshreyfingarinnar á
myndun þessarar rikisstjórnar og
meðstuðningi hennar og skilningi
hóf rikisstjórnin störf sin og
fyrsta hálfa starfsár hennar ein-
kenndist af samstarfi við verka-
lýöshreyfinguna. Er leið á starfs-
timabil rikistjórnarinnar,
sóttu ikauphækkunaröflin i
Framsóknar- og Alþýðuflokknum
i sig veöriö meö dyggum stuön-
ingi Vinnuveitendasambands
Islands. Alþýöubandalagiö barö-
ist gegn kaupránsöflunum og
flokkurinn var staöráöinn I aö
freista þess, aö halda stjórninni
saman til varnar I stéttaátökun-
um.Haföi Alþýöubandalagiö lagt
fram innan rikisstjórnarinnar ósk
um endurskoöun málefnasamn-
ings hennar. Viö svo búiö ákvaö
Alþýöuflokkurinn aö hiaupa frá
samstarfinu og til liðs viö Ihaldiö.
Mun nú stjórnarmyndun þessara
flokka alveg á næsta leyti.
Gagnsleysi
milliflokka
Alþýöubandalagiö i Reykjavik
gagnrýnir harölega þessa fram-
komu Alþýöuflokksins. 1 þeim
kosningum, sem nú fara I hönd,
mun Alþýöuflokkurinn dæmdur
af verkum sinum. Alþýðubanda-
lagiö mun heyja kosninga-
baráttuna á þeim málefnalegum
grundvelli, sem flokkurinn hefur
mótaö á undanförnum árum.
Alþýöubandalagiö i Reykjavik
mun fylkja vinstri mönnum og
verkalýösinnum til baráttu gegn
hægriöflunum. Ljóst er, aö átök
kosningabaráttunnar veröa á
milli Alþýöubandalagsins og
verkalýöshreyfingarinar annars
Framhald á 17. slöu