Þjóðviljinn - 13.10.1979, Side 4
4 S1ÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. október 1979
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
CJtgefandi: Útgáfufélag ÞjóÖviljans
Framkvcmdastjóri: Eiöur Bergmann
Riutjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
FrétUatjóri: Vilborg Haróardóttir
Umsjónarmaóur Sunnudagablaóa: Ingólfur Margeirsson.
Kekstrarstjóri: Ulfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéóinsson
Afgreióslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón FriÖriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Glslason, Sigurdór Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Jón Asgeir SigurÖsson
tþróttafréttamaóur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón ólafsson
Utlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson
Handiita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir Olafsson.
Skrifstofa: Guörún Guövaröardóttir.
Afgreiösla: Einar Guöjónsson, Guömundur Steinsson, Kristín Péturs-
dóttir.
Slmavarsla: Ólöf Haildórsdóttir, Sigrlöur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Utkeyrsia: Sölvi Magnússon, Rafn GuÖmundsson.
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúla 6, Reykjavfk.simi 8 13 33.
Prentun: Blaöaprent hf.
Slagurinn um kaupiö
Fyrir 17 mánuðum féll íhaldið í Reykjavík og nýr
meirihluti myndaðist í fjölmörgum bæjar- og sveitar-
stjórnum í landinu. Fyrir 16 mánuðum féll kaupráns-
stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks og fyrir
13 mánuðum var mynduð stjórn sem hugðist gera tilraun
til þess að stjórna landinu í samráði og samstarfi við
verkalýðshreyfinguna. Undanfari þessara tíðinda, sem
sviptu Sjálfstæðisflokkinn tveggja áratuga forystuhlut-
verki í íslenskum stjórnmálum, var barátta samtaka
launafólks gegn kaupráni ríkisstjórnar Geirs Hallgríms-
sonar.
En úrslitin í alþingiskosningunum voru samt sem
áður dulin hægri sveifla eins og bent var á strax í upp-
hafi. Framsóknarflokkurinn var að skríða út úr kaup-
ránsstjórn og ný forystusveit að taka við stjórn hans
undir merkjum einkaf ramtaksins. Þeir f jölmörgu sem
glöptusttil þessaðkjósa Alþýðuf lokkinn í mótmælaskyni
við kaupránið studdu í raun til dáða þingsveit sem var í
engum tengslum við verkalýðshreyfinguna í landinu.
Það var því fyrst og fremst hræðslan við að skilja
Alþýðubandaiagið eftir í stjórnarandstöðu sem knúði
Framsóknarf lokkinn og Alþýðuf lokkinn til stjórnarsam-
starfsins undir merkjum og að kröf u verkalýðshreyf ing-
arinnar.
• Frá upphaf i var samt Ijóst að forystusveitir Alþýðu-
flokks og Framsóknarflokks voru nákvæmlega sama
sinnis og Sjálfstæðisflokkurinn og Vinnuveitendasam-
band (slands. Lausn þeirra allra á verðbólguvandanum
var og er almenn lækkun á kaupg jaldi í landinu. Ekki að-
eins lækkun hærri launa heldur einnig lægri launa af
þeirri einföldu ástæðu að láglaunafólk í landinu er svo
margt að hið lága kaup þess vegur þungt í heildarlauna-
greiðslum. Farmsóknarf lokkurinn og Alþýðuf lokkurinn
færðu sig snemma upp á skaftið í stjórnarsamvinnunni
og höfnuðu hálaunaþaki en lögðu æ þyngri áherslu á að
taka kaupgjaldsvísitöluna úr sambandi og þrýsta niður
almennu kaupgjaldi í landinu.
• Alþýðuf lokkurinn byrjaði strax í stjórnarmyndunar-
viðræðunum á því að kref jast þess að áhrif gengisfell-
ingar, um 7% í framfærsluvísitölu, yrðu ekki bætt í
kaupi. A öðrum ríkisstjórnarfundi setti Alþýðuf lokkur-
inn fram kröfu um að kaupgjaldsvísitalan yrði tekin úr
sambandi 1. desember síðastliðinn. Tillaga
Alþýðuf lokksins var þegar til kastanna kom að af 14.1%
verðbótum 1. desember skydlu 8% vera óbætt í kaupi.
Síðan kom hið fræga efnahagsmálafrumvarp kratanna
sem þýddi a.m.k. 17% kauplækkun á einu ári. Sú kaup-
lækkunarkrafa gekk nær óbreytt aftur í efnahagsmála-
frumvarpi Ölafs Jóhannessonar í febrúar og niðurstað-
an í ölafslögum varð frádráttur frá verðbótahækkun
launa vegna versnandi viðskiptakjara og annar frá-
dráttur til þess að vísitalan mældi minni verðbætur (bú-
vörufrádráttur, áfengi og tóbak og olíustyrkur).
Gegn sameinuðum kröfum Framsóknarflokks,
*«lþýðuflokks, Sjálfstæðisflokks og atvinnurekenda um
almenna kauplækkun hefur Alþýðubandalagið staðið
eitt. Það hefur neitað að fallast á þann hörmungardóm
sem þessir f lokkar hafa kveðið upp yf ir atvinnurekstrin-
um landinu, það er að hann geti ekki staðið undir um-
sömdu kaupgjaldi, sem þó er til muna lægra en í ná-
grannalöndum okkar. Það hefur alfarið hafnað þeirri
skoðun að kaupið og verðbætur vegna undangenginna
verðhækkana séu orsök verðbólgunnar.
• Alþýðubandalagið hefur ekki megnað að standa
gegn kaupmáttarskerðingu þeirri sem nú er að koma
fram. Vegna mikíls þrýstings féllst flokkurinn á kaup-
skerðingarákvæði ölafslaga til þess að halda ríkisstjórn-
inni saman. Það hefur meðal annars í för með sér þá
óhæfu að láglaunafólk fær minni verðbætur á laun sín
fyrsta desember en þeir sem betur eru staddir. Svo fast
sóttu Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur kaup-
lækkunarkröfur sínar að Alþýðubandalagið gat aðeins
frestað því I 6 mánuði að láglaunafólkið í landinu fengi
þetta hnefahögg í andlitið.
Alþýðubandalagið lagði til hliðar mörg sinna stærstu
baráttumála til þess að freista þess að fylgja við sam-
starfi Alþýðufiokksmanna og Alþýðubandalagsmanna í
verkalýðshreyfingunni fram á vettvangi Alþingis og
knýja fram stjórn sem starfaði með hagsmuni
launafólks fyrir augum. Sú tilraun er nú á enda og allt
launafólk verður að átta sig á því að undirrót átakanna
innan stjórnar hefur verið slagurinn um kaupiö.
-ekh
Við reyndum —
en það gekk ekki
‘■"Ida ifram sinni hcfðbundo,.
varð ofan á
9».
•'iAð- nicniiu^hóífíi Flnnur Torfi
Babb kom 1 báttnn hjá Ihaldl og krötum: i
Feimnír við að'/
tzr IT^inhPra trúlofunina
Skilvísir kratar
| Þingmenn Alþýöuflokksins
J eru farnir aö ráöa sér f siödegis-
■ blööin til aö reyna aö útskýra
I frumhlaup sin og breiöa yfir þaö
“ ráöleysi sem viö blasir eftir aö
| þeir hlaupa á brott meö ráö-
■ herra sina nauöuga og viljuga.
I Eiöur Guönason og Finnur Torfi
a Stefánsson taka oröiö I gær.
■ Þeir bera sig mannalega, en þaö
■ er stutt f harmagrát og trega
■Z undir niöri. Þaö er kannski ekki
I nema von. Þeir vita sem er aö
■ reyndar veröur stutt stund, aö
I þeir sem og allmargir aörir,
■ hafi ástæöu til aö bæta
'| „alþingismaöur” viö heiti sitt.
J Sic transit...
Þvi kratarnir sitja blýfastir i
I þeirri klemmu sem Haraldur
■ Blöndal lýsti á fundi i
| Stúdentafélagi Reykjavíkur i
■ fyrrakvöld. Hann sagöi:
| „Astæöan fyrir því aö viö
■ sjálfstæöismenn viljum þingrof
■ og kosningar er sú, aö viö ætl-
■ umst til þess aö Alþýöuflokkur-
| inn skili okkur þeim þingmönn-
■ um sem hann fékk aö láni
■ siöast. Og þaö má segja Alþýöu-
J flokknum til hróss aö hann er
I viljugur til þess aö skila þeim,”
Hitt er svo annaö mál, hvort
5 þaö er siösamlegt af Haraldi
| Blöndal aö hræra f sárum
■ Alþýöuflokksins meö þessum
1 hætti og eftir þeirra greiöasemi
2 alla.
! Jólasveinastjórn
Þaö veröur annars gaman aö
■ fýlgjast með þeirri jólasveina-
| stjórn sem Alþýöuflokkurinn
H veröur neyddur til aö mynda til
■ aö fylgja eftir sinu læmingja-
J hlaupi út í pólitfskt sjálfsmorö.
I Skemmtilegast er auövitaö aö
1 hugsa sér Vilmund Gylfason I
■ embætti dómsmálaráöherra i
| valdalausri málamyndastjórn.
■ Þaö væri mjög hæfilegur
■ hápunktur í þeim pólitiska
2 ærslaleik sem hann hefur leikiö
■ af miklum dugnaöi og viö vax-
■ andi kátfnu áhorfenda. Ekki
í verður sá ráöherraferill skraut-
| minni ef hann fengi landbún-
■ aöarráöuneytiö f meögjöf frá
I Steingrfmi.
i Uppákomur
■ Annar er svo mikiö af uppá-
| komum f pólitískum heimi
■ þessa dagana, aö enginn hefur
viö aö reikna út líkur og mögu-
leika. Setjum svo, aö Alþýöu-
flokkur og Sjálfstæöisflokkur
þurfi á kasta á milli sín
stjórnarboltanum i nokkra
daga. Bætum þvi viö, aö
Kristján Eldjárn komist ekki
hjá þvi aö fara i næstu viku i
opinbera heimsókn til Belgíu.
Þá gæti komiö til kasta hand-
hafa forsetavalds. Og hverjir
eru þaö? Þaö eru Ólafur
Jóhannesson forsætisráöherra,
sem kratar reyndu aö snúa á en
tókst ekki, forseti Sameinaös
þings, en þegar þetta er skrifaö
hefur ekki veriö kosinn i þaö
embætti maöur sem kæmi i staö
Gils Guömundssonar. Og svo
forseti Hæstaréttar, Armann
Snævarr, sá sem Vilmundur vill
kalla „möppudýr” hvenær sem
nafn hans er nefnt.
Nei, þaö værisynd aö segja aö
pólitikin væri leiöinleg.
Boðað bann á
hœgri og vinstri
Aftur á móti er fariö aö sýna
mönnum á hverju þeir eiga von
ef Sjálfstæðisflokkurinn kemst
til valda. Enn á ný hefst i Visi
ámátlegur söngur um kennslu-
bækur i skólum, sem séu vondar
og vinstri villu hlaönar. Þaö er
mjög llklegt aö slfkum ritum
veröi kippt út úr skólum innan
tiöar, likt og gerst hefur i mörg-
um bandarfskum skólum aö
undanförnu allt f nafni lýöræöis
og kristins siögæðis, enginn efar
þaö.
Hannes Gissurarson hefur
forystu i þessum málum eins og
fyrr, skrifar á vixl i Morgun-
blaöiö og Visi og fær gott veöur.
Merkileg var ritsmiö hans í VIsi
i fyrradag; þar talaði hann um
aö sjónvarpsmaöur heföi
brugöist trausti meö þvf aö tala
um hægri flokka og vinstri
flokka, einnig verkalýösflokka
og aöra flokka. Helst var á
( Hannesi aö skilja aö þaö ætti aö
reka drjólann ögmund Jónas-
son ef hann geröi sig sekan um
slika ósvinnu oftar. Þetta væri
óvisindalegt tal og úrelt og hug-
takafölsun vinstriættuð.
Málhreinsun um
allan heim
Samkvæmt kenningu Hannes-
ar er mikil þörf á svipaöri
hreinsun um heim allan, jafnvel
— og ekki sist — hjá háborgara-
legum bandariskum vikuritum.
Þar tala menn óspart um
„evrópska vinstriflokka ”,
„sveiflu til hægri”, „verka-
mannaflokka” og fleira og láta
eins og visindaleg hugtök
Hannesar Gissurarsonar séu
ekki til. Viö leggjum til aö
Samband ungra Sjalfstæöis-
manna gangist fyrir alþjóölegri
ráöstefnu um máliö, þar sem
tungumálin veröi dauöhreinsuö
af róttæklingavillum og hin
Islensku visindi Hannesar út
breidd. Samkvæmt þeim og svo
ekkert fari milli mála veröa
borgaralegir flokkar þá kallaöir
Frelsisflokkar en afgangurinn
Gúlag-stefnuflokkar. _ ^b.
V etrarstarf Sóknar hafið
Vetrarstarf Starfs-
mannafélagsins Sóknar er
nú hafið. Liður í undirbún-
ingi þess var m.a. að gerð-
ar voru ýmsar breytingar
og endurbætur á félags-
heimili Sóknar að Freyju-
götu 27, Reykjavík. Það
hefur verið málað, Ijós
hafa verið lagfærð og auk-
in og loks er búið að kaupa
hljóðfæri í félagsheimilið.
Akveöiö hefur veriö aö hafa
„Opiö hús” tvisvar i mánuöi i
vetur, fyrsta og þriöja fimmtu-
dag hvers mánaöar. I fyrra var
opiö hús einu sinni i mánuöi, en
ástæöa þótti til aö auka þessa
starfsemi. Ætlunin er aö i opnu
husi skiptist starfsfólk vinnustaöa
innan Sóknarsvæöisins á aö segja
fréttir af sfnum vinnustaö í stuttu
máli. Skýrt verði frá þvi sem
efst er á baugi hjá félaginu og
siöan stytti fólk sér stundir meö
söng, spjalli og sameiginlegri
Opið hás tvisvar
í mánuði —
Félögum annarra
verka/ýðsfélaga
boðið — Val
greinanámskeið
kaffidrykkju. — Þá hefur einnig
komiö til tals aö bjóöa hópum úr
öörum verkalýösfélögum aö
koma i þessi opnu hús i annaö
hvert sinn, svo lengi sem húsrúm
leyfir.
Ástæöan fyrir þessu fyrirkomu-
lagi er, aö fram hefur komiö hjá
fjölmörgum félögum áhugi á aö
blanda saman léttu efni og al-
varlegri málefnum á samkomum
félagsmanna. Þetta skipulag
opins húss er tilraun i þá átt, en
árangurinn er vitanlega undir
félagsmönnum kominn.
Næsta opna hús veröur 18.
október nk. Hefur veriö leitaö til
starfsfólks Landakotsspitala um
efni þaö kvöld auk þess sem ætl-
unin er aö bjóöa hafnarverka-
mönnum aö koma og heimsækja
Sóknarfólk og njóta kvöldsins
með þvi. ^
Seint i þessum mánuöi hefst
valgreinanámskeiö fyrir Sóknar-
fólk, í samvinnu Sóknar og Náms-
flokka Reykjavlkur. Mikil aösókn
er nú þegar aö þessu námskeiöi
og væntir félagiö framhalds á
sllku námskeiöahaldi eftir ára-
mót> Er almenn ánægja innan
félagsins meö samskiptin viö
Námsflokka Reykjavlkur. — Sllk
valgreinanámskeiö eru einnig
þegar hafin I Hafnarfiröi, á veg-
um Verkakvennafélagsins
Framtlöarinnar, fyrir þá félags-
menn sem vinna eftir Sóknar-
taxta, en samvinna milli, Sóknar
og Framtföarinnar hefur ávallt
verið meö miklum ágætum.