Þjóðviljinn - 13.10.1979, Qupperneq 7
Laugardagur 13. október 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Alfheiður Steinþórsdóttir, sálfræftingur, Gunnar Eydal, formaður Barnaverndarráðs, og Guðfinna Ey-
dal, sálfræðingur, á fundi með blaðamönnum.
Ljósm. — Jón.
Að liðsinna foreldrum
Sláturtíðin:
MeðalfaUþungi
alltað 2,7 kg.
minni en sl. ár
Mestur munur
á Kópaskeri,
minnstur á
það er í sláturhúsinu á Kópaskeri.
A Svalbarösströnd er munurinn
2,4 kg , hjá Kaupfélagi Þingey-
inga á Húsavik er hann rétt um
2,0 kg og einnig á Hólmavik.
Minnstur er munurinn hjá Slátur-
félagi Suðurlands á Selfossi eða
0,45 kg.
Nú I vikunni var blaðamönnum
kynnt nýjung I starfsemi Barna-
verndarráös, Foreldraráðgjöfin,
sem tekur til starfa n.k. mánudag
i Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu,
annarri hæð. Gunnar Eydal, for-
maður ráðsins og sálfræðingarnir
Alfheiöur Steinþórsdóttir og Guö-
finna Eydal skýrðu blaöa-
mönnum frá tQgangi og tilhögun
þessarar nýju starfsemi.
— Hugmyndin er ekki ný, —
sagði Gunnar, — og
foreldraráögjöf af þessu tagi
hefur lengi tiðkast á hinum
Norðurlöndunum og víðar.
Barnaverdarráð er i sjálfu sér
ekkert eðlilegri vettvangur fyrir
þessa starfsemi en t.d.
sveitarfélögin og ýmsir aðrir að-
ilar, en það varð Ur að við
hrintum þessu i framkvæmd og
nú stendur til að gera tilraun með
þetta i' sex mánuði til aö byrja
með. A sama tima ætti að vera
hægt að fullkanna þörfina, en viö
höfum enga ástæðu til að ætla að
hún sé minni hér en annars-
staðar, þar sem slfk þjónusta er
fyrir hendi og þykir sjálfsögð.
Gunnar sagði einnig, að
foreldraráðgjöf rúmaðist vel inn-
an verksviös Barnaverndarráðs,
enda væri ákvæði i lögum um
ráðið þar sem segði aö þvi væri
heimilt að efna til námskeiða og
veita fræðslu. Engin sérstök
fjárveiting hefur verið til
þessarar starfsemi, og fer hún þvi
fram á kostnað rekstrarfjár
Barnaverndarráðs til að byrja
með.
Almenn ráðgjöf
Þær Alfheiður og Guöfinna
munu annast foreldraráðgjöfina,
sem verður með þeim hætti að
fólk getur hringt i sima 11795
hvenær sem er á skrifstoflitima
og pantað viðtöl, en þau verða
veitt á mánudagskvöldum kl.
20-22 og miðvikudögum kl. 10-18.
Þar sem starfsemi Barnavernd-
arráðs er miöur viö allt landið, en
ekki höfuöborgarsvæðið eitt, get-
ur fólk hringt utan af landi og
feneið ráðgjöf gegnum sima.
— Þaö er rétt að það komi
skýrtfram, — sagði Alfheiður, —
að hér er um almenna ráðgjöf að
Foreldraráðgjöfin
tekur til starfa
á mánudaginn
ræða. Við munum ekki fást viö
meiriháttar vandamál og ekki
veita langvarandi meðferð, né
taka aö okkur mál sem heyra
undir aðrar stofnarnir. Við
munum ekki heldur fara inn á
hefðbundið starfssvið
Barnaverndarráðs.
Þaö sem um er að ræða er, að
til okkar getur fólk leitað með
minniháttar vandamál, sem
alltaf koma upp öðru hverju i
samskiptum foreldra og barna.
Stundum er lika um að ræða
samskipti barna innbyrðis, eða
sambýúsvandamál foreldra. Við
viljum sem minnst tala um
vandamáLÍ rauninni er oftast um
að ræða árekstra sem geta orðið I
öllum fjölskyldum og flestir
kannast við.
Guöfinna sagði, að mjög oft
yröu þessir árekstrar i sambandi
við valdbeitingu, sem væri
áberandi i þjóðfélaginu, bæöi inná
heimilunum og i skólum og öðrum
stofnunum. Þetta kæmi ekki sist
fram i samskiptum foreldra við
unglinga, sem væru byrjaöir aö
gera uppreisn gegn valdbeiting-
unni, og þá vissu foreldranir oft
ekki til hvaöa ráða þeir gætu
gripið. — Okkar hlutverk er að
hjálpa fólki aö leita nýrraleiða, —
sagði hún.
Þagnarheiti
Sálfræöingar fjölskylduráð-
gjafarinnar eru bundnir þagnar-
heiti, þannig aö fólk getur veriö
öruggt um að þaö sem rætt er um i
viðtölunum verður algjört trún-
aðarmál, og fer ekki lengra. Séu
vandamalin þess eðlis, að sál-
fræðingarnir telja þörf á að leita
til annarra stofnana munu þær
segja fólki það, en ekki hafa neitt
frumkvæði að sliku. Frumkvæðið
verðuraðkoma frá fólkinu sjálfu.
Þetta töldu þær Guðfinna og Alf-
heiður mjög mikilvægt atriði,
ekki sist vegna þess að margt fólk
Verndun átivistarsvœða:
Undirskriftasöfn-
un er að hefjast
— Viö undirrituö mótmælum
öllum áformum um skeröingu á
útivistarsvæðum og fráteknum
opnum svæðum I Laugardal á
milli Gnoöarvogs og Miklubraut-
ar — segir I plaggi frá hópi á-
hugafólks, sem er að hefja undir-
skriftarsöfnun til aö mótmæla á-
formum um aö áðurnefnd svæöi
verði tekin undir ibúðabyggð.
í plagginu segir ennfremur:
Teljum við mikla skammsýni að
ganga á þessi svæöi, sem tekin
hafa verið frá til sameiginlegra
nota fyrir borgarbúa, margvls-
legrar útivistar eða Iþróttaiðk-
ana, nú og I framtiðinni, en
óséðar á þessari stundu allar
slikar þarfir komandi kynslóöa.
Teljum við nóg svigrúm fyrir
byggingarlóðir þótt ekki sé
gengið á dýrmæt útivistarsvæði i
nánd við fjölmenn hverfi.
Reykjavlk hefur það fram yfir
margar aðrar borgir, að hér er
olnbogarými og vitt til veggja.
Lýsum viö megnri óánægju ef
farga á þessum hlunnindum, sem
Islendingar meta mikils, fyrir
stundarhagsmuni.”
Þeir sem áhuga hafa á að veita
þessu máli liö geta hringt í slma
27570 eða gengið við á Laugavegi
71, þriöju hæð, kl. 4-10 virka daga
og 2-5 um helgar. Einnig má
hringja I Herdisi Tryggvadgttur
(38019) eða Arna Berg Eiriksson
(32847). _ih
væri hrætt við að leita til
stofnana, og óttaðist þá helst að
börnin fengju á sig einhverskonar
stimpil.
— Við afgreiðum engin mál, —
sagði Alfheiður, — og veitum
engar umsagnir, heldur aðeins
ráðgjöf til foreldra. Það er einnig
hugsanlegt að unglingar leiti til
okkar, og þeim veröur alls ekki
visað frá. Við gerum þaö heldur
ekki að skilyrði að foreldrar komi
báðir, jafnvel þótt þeir annist
báðir uppeldi barnanna.
Alfheiöur sagðist hafa oröið vör
viö að foreldrum þættu þeir oft
vera mjög einir með vandamál
sin og aö þeir hefðu engan tií að
tala við. Foreldrar væru yfirleitt
ásakaðir ef eitthvað færi úr-
skeiöis I uppeldinu, en alltof litiö
væri um að þeir fengju aöstoð.
Þaö væri oftast litið á uppeldis-
mál sem einkamál foreldra. —
Allir lenda einhverntima i erfið-
leikum ,með börnin sfn, — sagði
hún, — og það er eðlilegt að til sé
svona leið til að hjálpa þeim.
— ih
Selfossi
Þaö er nú nokkuö ljóst oröiö aö
meöalfallþungi dilka muni veröa
0,5-3,0 kg lægri I haust en I fyrra.
Þaö þýðir 2.448 kr. tekjutap hjá
bændum miöaö við verölags-
grundvallarverð nú I haust.
Samkvæmt könnun, sem Upp-
lýsingaþjónusta landbúnaöarins
gerði hjá sláturleyfishöfum vlðs-
vegar um landiö 10. okt.,virðist
meðalfallþungi dilka yfir landiö
vera 1,4 kg minni en I fyrra.
Mestur er munurinn á Noröur- og
Norö-austurlandi, en þar munar
allt aö 2,7 kg á fallþunganum, en
Ekki er með vissu vitað enn hve
mörgum dilkum verður slátrað i
haust en reiknaö er með um 8%
aukningu, sem gerir rúmlega 1
milj. dilka.
Ef þessi áætlun stenst og
meöalfallþungi verður 1,4 kg
minni en I fyrra þá verður dilka-
kjötiö um 300 tonnum minna en þá
en 1377 tonnum minna ef meöal
fallþunginn hefði verið sá sami.
Ef gengiö er út frá verðlags-
grundvallarverði nú i haust þá fá
bændur um 2.448 milj. kr. minna
fyrir innlagt dilkakjöt og gærur
vegna þessa minnkandi fall-
þunga. — mhg
Húsnæði óskast
3-4 herb. ibúð a.m.k. óskast strax til leigu.
Fyrirframgreiðsla. Upplýsingar utan
venjulegs vinnutima i sima 12993.
Skyndiferð
til tríands
DUBUN - BELFÁST 25.-29. okt.
118.000 kr.
' (fimmtudagur til mánudagskvölds).
I
Listviðburðir
A þessum tima verða ýmsir merkir
iistviðburðir í Dublin: óperuhátið,
þjóðlagahátið, myndlistarsýningar og
fjölbreytt leikhúslíf.
Dagsferð til Belfast
Þjóðviljinn skipuleggur dagsferð til
Belfast sérstaklega fyrir farþega
sina. Fararstjóri í þeirri ferð verður
Bergsteinn Jónsson.
Irsku krárnar
og hin margrómaði bjór heimamanna
á hverju götuhorni.
Iimifalið í verði:
Flug, hótel m/morgunverði og islensk
fararstjórn, sem m.a. skipuleggur
skoðunarferðir um borgina og visar
tónlistarunnendum á frábær írsk þjóð-
lagakvöid.
Vegna mikillar eftirspurnar er mönn-
um bent á að bóka sig í ferðina sem
fyrst í síma blaðsins 81333