Þjóðviljinn - 13.10.1979, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. október 1979
alþýöubandalagiö
AÐALFUNDUR Alþýðubandalags Selfoss og
nágrennis verður haldinn sunnudaginn 28. okt. kl.
14.00 að Kirkjuvegi 7 á Selfossi.
Dagskrá.
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Lagabreytingar.
4. önnur mál.
Alþýðubandalag Miðneshrepps (Sandgerði)
Aðalfundur félagsins veröur haldinn mánudaginn 15. okt. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. önnur mál.
Stjörnin.
Alþýðubandalagið i Þorlákshöfn og nágrenni.
AÐALFUNDUR Alþýðubandalagsins I Þorlákshöfn og nágrenniveröur
haldinn i félagsheimiiinu i Þorlákshöfn sunnudaginn 14. okt. kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Baldur öskarsson mætir á fundinn og ræöir stjórnmálaviðhorfið.
Stjórnin.
Alþýðubandalagið i uppsveitum Arnessýsiu
AÐALFUNDUR Alþýðubandalagsins f uppsveitum Árnessýslu verður
fimmtudaginn 18. okt. i Árnesi og hefstkl. 21.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa i kjördæmisráð og á flokksráðsfund.
3. Garðar Sigurðsson og Baldur óskarsson ræöa stjórnmálaviöhorfið.
Stjórnin.
Tilkynnið aðsetursskipti
Þeir félagar I Alþýðubandalagsfélagi Reykjavlkur sem flutt hafa á slð-
ustu mánuðum og ekki hafa tilkynnt skrifstofu félagsins aðsetursskipti
eru beðnir um að gera það svo fljótt sem auðiö er.
Greiðið félagsgjöldin
Þeir félagar sem ekki hafa greitt gjaldfallið ársgjald til Alþýöubanda-
lagsfélags Reykja vikur eru hvattir til að greiða þaö sem fyrst.
Hægt er að greiöa féiagsgjaldið á félagsfundi á Hótel Esju n.k.
fimmtudagskvöld.
Alþýðubandalag Rangárþings
ADALFUNDURAlþýðubandalags Rangárþings veröur haldinn sunnu-
daginn 14. okt. kl. 14.00 á Kaldbak Rangárvöllum.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Afstaða til stjórnarsamvinnu og stefnu Alþýðubandalagsins.
3. Almenn aðalfundarstörf.
4. önnur mál. — Stjórnin.
Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Kópavogi
verður haldinn dagana 26. og 27. október nk. I Þing-
hól.
Venjuleg aðalfundarstörf. — A fundinum veröa
kosnir fulltrúar I kjördæmisráð og flokksráð. —
Fundurinn hefst föstudaginn 26. okt. kl. 20.30 meö
ávarpi formanns félagsins, Ingimars Jónssonar en
Gils Guðmundsson alþingismaður mun einnig
ávarpa fundinn.
Dagskrá verður auglýst nánar siöar. — Stjórn ABK
Alþýðubandalagið i Keflavik
ADALFUNDUR Alþýöubandalagsins I Keflavík verður haldinn þriðju-
daginn 16. okt. kl. 20.30 I Tjarnarlundi.
Dagskrá:
1. Inntaka nýrra félaga.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Kosning fulltrúa á flokksráðsfund.
4. Kosning fulltrúa i kjördæmisráö.
5. Umræður um stöðuna i stjórnmálunum.
6. önnur mál.
Gils Guðmundsson og Geir Gunnarsson mæta á fundinn.
Félagar, mætið vel og stundvislega. Stjórnin.
Ungt Alþýðubandalagsfólk
Landsþing ÆnAb 1979 20. og 21. október
Landsþing Æskulýðsnefndar Alþýöubandalagsins veröur haldið að
Freyjugötu 27 Reykjavlk (húsn. Starfsmannafélagsins Sóknar) helgina
20. - 21. október n.k.
Dagskrá þingsins og önnur þingskjöl hafa veriö póstsend til félags-
manna I Alþýðubandalaginu undir 35 ára aldri.
Félagar eru beönir aö skrá sig sem fyrst til bátttöku á þinginu á skrif-
stofu ÆnAb, simi 17500. Málefni landsþingsins verða nánar auglýstí
Þjóðviljanum á næstu dögum. — Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins.
Alþýðubandalagið Akranesi
Mjög áriðandi félagsfundur
veröur haldinn I Rein mánudagskvöldið 15. okt. kl. 20.30.
Kosning fulltrúa á kjördæmisráöstefnu.
Stjórnmálaviðhorfin rædd.
M Húsnæði óskast
Einhleyp kona óskar eftir 2ja herb. ibúð til
leigu strax. Gerið svo vel að hringja I sima
16310.
16 MÁL KOMIN
FRAM Á ÞINGI
16 mál voru lögð fram I samein-
uðu þingi á fimmtudag þar á
meðal 4 stjórnarfrumvörp til
staðfestingar á bráöabirgöa -
lögum, en þau falla úr gildi ef
þing verður rofiö áður en þau
hijóta staðfestingu.
Þá voru lögö fram 2 stjórnar-
frumvörp, — um aöbiínaö, holl-
ustuhætti og öryggi á vinnustöð-
um og — um breytingar á al-
mennum hegningar lög um .
Ennfremur 3 þingmannafrum-
vorp, 4 þingsályktunartillögur,
fjárlagafrumvarp Tómasar
þingsjá
Arnasonar, skýrsla utanrikisráð-
herra um flugstöðvarbygginguna
á Keflavikurflugvelli og skýrsla
forsætisráðherra um þjóðhags-
áætlun.
Svava Jakobsdóttir flytur
frumvarp um breytingar á al-
mannatryggingalögunum, þannig
að ellilifeyrisþegar og öryrkjar
greiði aöeins fjórðung af lyfja-
gjaldi en fái 3/4 endurgreiddan
hjá viðkomandi sjúkrasamlagi.
Finnur Torfi Stefánsson flytur
frumvarp um að samgönguráð-
herra geri flugmálaáætlun til
fjögur'ra ára I samráði við flug-
ráð.
Jóhanna Sigurðardóttir flytur
frumvarp til laga um breytingu á
lögum húsnæðismálastofnunar
þannig að greiðslubyrði elli- og
Framhald á!7. siðu.
Iðnaðarstefna
Tillaga að þingsályktun
Iðnaðarráðherra hefur lagt
fram að nýju tðlögu til þingsá-
lyktunar um iönaðarstefnu, sem
hefur þau markmið að örva fram-
leiðni i islenskum iðnaði, stuðla
að hagkvæmrif járfestingu, fjölga
störfum I iðnaði og tryggja fulla
atvinnu. Að leggja áherslu á efl-
ingu iönaöar á þeim sviðum þar
sem innlendir samkeppnisyfir-
burðir geta nýst til arðbærrar
framleiðslu á vörum og þjónustu,
— að bæta starfsskilyrði og auka
áhrif starfsfólks á vinnustöðum,
koma I veg fyrir skaðleg áhrif af
völdum iðnvæðingar á náttúru
landsins og umhverfi,tryggja t'or-
ræði landsmanna yfir Islensku at-
vinnullfi og auðlindum og stuðla
aö æskilegri dreifingu og jafn-
vægi I byggðaþróun.
Tillaga þessi var lögð fyrir þing
i maimánuði s.l. en þá var
skammt til þingloka og varð hún
ekki rædd. Er I tillögunni gerð
grein fyrir þvi hvernig náð skuli
framangreindum markmiðum
meö áætlunargerð ogtaki áætlan-
irnar til einstakra iöngreina og
verkefna I nýiönaði.
Gert er ráð fyrir að iðnaðar-
ráðuneytið hafi forystu um að
samræma aðgerðir hins opin-
bera, stofnana iðnaöarins og
samtaka hans til að greiða fyrir
framgangi þessarar stefnu.
Með tillögunni fylgja umsagnir
nokkurra aðila. I umsögn Iðn-
þings, sem haldið var á vegum
Landssambands iðnaðarmanna i
byrjun þessa mánaðar er tillög-
unni fagnað og segir: „Þingiö
fagnarsérstaklega aðnú skuli Al-
þingi gefast kostur á að marka
samræmda heildarstefnu um iðn-
aöhéráIandi.”Tekiöerfram aði
áliti Samstarfsnefndar um iðn-
þróun og i þingsályktunartillög-
unni sé tekið meira mið af grund-
vaflarstefnu Landssambands iðn-
aðarmanna en áöur heftir verið
gert og itrekuö sú skoðun sam-
bandsins að eigi aðgerðir til efl-
ingar iðnaði að bera nægilegan
árangur megi ekki einskoröa þær
við svokallaðan samkeppnisiðn-
að.
Þá hefur Samband sveitarfé-
laga i Austurlandskjördæmi og
Fjórðungsþing Norðlendinga
einnig fagnað tillögunni og lagt
áherslu á mikilvægi opinberrar
stefnumótunar i iðnaðarmálum.
— AI
RÁÐSTEFNA
um kjördæma- og kosningaskipan
Gils Guðmundsson
Hjalti Kristgeirsson
Álfheiður Ingadóttir
Eins og auglýst var í Þjóðviljanum í síðustu viku efna
Alþýðubandalagið i Reykjavik og kjördæmisráð Alþýðu-
bandalagsins á Reykjanesi til ráðstefnu um kjördæma- og
kosningaskipan helgina 14. október n.k. í Þinghóli í Kópa-
vogi. Ráðstefnan hefst kl. 9.30 á laugardag og lýkur um
kvöldmatarleytið á sunnudag. Ráðstefnan er opin félags-
mönnum í Alþýðubandalaginu.
Framsögumenn verða Gils Guðmundsson sem fjallar
um kjördæma- og kosningaskipan í nokkrum nágranna-
löndum, Hjalti Kristgeirsson sem talar um kosningaskipan
í Ijósi lýðræðisbaráttu sósíalista og Svanur Kristjánsson
sem ræðir annmarka núverandi kjördæma- og kosninga-
skipunar og leiðir til úrbóta. Þá mun ólafur Ragnar Grfms-
son gera grein fyrir störfum stjórnarskrárnefndar.
Á ráðstefnunni munu starfa þrir umræðuhópar sem
fjalla um eftirfarandi viðfangsefni:
1. Á að breyta núverandi kjördæmaskipan í grundvallar-
atriðum?
2. Hvernig á að tryggja jafnari atkvæðisrétt landsmanna?
3. Er æskilegt að gera val þingmanna persónubundnara?
Fundarstjórar ráðstef nunnar verða Álfheiður Ingadótt-
ir, Benedikt Daviðsson oq Jóhann Geirdal.
Umræðustjórar á ráðstefnunni verða Bergljót
Kristjánsdóttir, Guðrún Hallgrímsdóttir, ólafur R. Einars-
son, Adda Bára Sigfúsdóttir, Hilmar Ingólfsson og Baldur
óskarsson, og stýra þau hver sínum umræðuhópi sem
starfa mun á ráðstefnunni.
Skráning þátttakenda fer fram á skrifstofu Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík að Grettisgötu 3, sími 17500.
Ólafur Ragnar Grlmsson Svanur Kristjánsson
Benedikt Daviösson
Jóhann Geirdal