Þjóðviljinn - 13.10.1979, Síða 19
Íþróttamenn
í Stundinni
okkar
— Hugmyndin er aö hafa
alltaf eitthvert eitt aöalþema I
hverjum þætti, — sagöi
Bryndís Schram, nýr umsjón-
armaöur barnatima sjón-
varpsins, — og i þættinum á
sunnudaginn verö ég meö eitt-
hvaö fyrir strákana: Iþróttir.
— Við fórum á æfingu hjá
1R, Islandsmeisturunum I
fimmtaflokki, og röbbuðum
við þjálfarann og nokkra
stráka úr liöinu. Svo er viðtal
við atvinnuknattspyrnumann-
inn, Martein Geirsson.
— En við tókum lika þá
stefnu að hafa efnið i Stund-
inni okkaralltaf blandað, bæði
fræðandi (þaö efni veröu þó
alltaf að vera skemmtilegt
lika) og svo algjört grin. í
fyrsta þættinum fyrir viku
kom fram ný persóna,
bankastjóri brandarabank-
ans, og var auglýst eftir
bröndurum frá krökkum. Nú
hef ég fengiö svo mikiö af
bröndurum, að ég er alveg að
kafna!
— Ég er búin að fá hóp af
tólf ára krökkum úr Reykja-
vik, sem ætla aö undirbúa ára-
mótaþáttinn. Þau eru byrjuö
að vinna i þessu, og ég ætla að
rabba við þau I þættinum. Þau
hafa lika fundið sér óska-
persónu, sem þau vilja leggja
spurningar fyrir, og fyrir val-
inu varð Ómar Ragnarsson.
Þau sömdu spurningar, sem
ég mun leggja fyrir ómar.
— Þetta starf leggst alveg
Bryndfs Schram: Ógurlega
gaman aö stjórna Stundinni
okkar.
vO/ Sunnudag
18.00:
ágætlega i mig. Þaö er mikil
hjálp að hafa mann einsog
Andrés Indriðasontilað vinna
með, við byrjuöum á þvi að
planleggja allt haustiö og
ákveöa efni i hvern þátt. Mér
finnst ég hafa alveg óbundnar
hendur og yfirleitt finnst mér
þetta ógurlega gaman. Þetta
er alveg fullt starf, maður er á
kafi i þessu allan daginn, en
það er verulega skemmtilegt,
— sagði Bryndis að lokum.
— ih
Robinson
Sögur og ljóö að
sunnan
Crusoe
Laugardagsmynd sjón-
varpsins aö þessu sinni er
Robinson Crusoe, bresk sjón-
varpsmynd, gerö eftir hinni
sigfldu sögu Daniels Defoes.
Leikstjóri er James
MacTaggart og aöalhlutverk
leikur Stanley Baker.
Margar kvikmyndir hafa
verið gerðar um einbúann
Robinson Crusoe. Ein þeirra
frægustu er vafalitið Ævintýri
Robinsons Crusoe sem
meistari Luis Bunuel gerði i
Mexico 1953. Rússar hafa lika
kvikmyndaö þessa frægu
sögu, og Bandarikjamenn
hafa gert margar útgáfur af
henni. Kannski verða menn
aldrei leiðir á þessu róman-
Stanley Baker i hlutverki einbú-
ans Robinson Crusoe.
Sjónvarp
CF kl. 21.40:
tiska ævintýri nýlenduskeiðs-
ins? —-ih
Guöbergur Bergsson rit-
höfundur sér um þátt I útvarp-
inu kl. 20.45 I kvöld og nefnist
hann Sögur og ljóö aö sunnan.
— Ég fór einu sinni til borg-
ar á Kastiliuhásléttunni, sem
heitir León, sagöi Guðbergur i
stuttusamtali viö Þjóðviljann,
og þar fann ég litinn vikinga-
bikar á safni. Það veit eigin-
lega enginn hvaðan þessi bik-
ar er kominn eöa hvernig hann
lenti þarna uppi á hásléttunni.
— Ég fór að athuga þetta og
rekja sögu þessa bikars. Ég
leitaði lengi i Heimskringlu og
tslendingasögum, og einnig
leitaði ,ég I söfnum um allan
Spán. Úr þessu varð ansi mikil
saga, sem ég fléttaöi inni ljóð
og ýmislegt sem ég fann i bók-
um. Það er reyndar aöeins ör-
litiö brot af þeirri sögu, sem
kemur fram I þættinum, enda
er hann bara 35 minútna lang-
ur.
— Þessi bikar er náttúrlega
tengdur okkar menningar-
sögu, og reyndar mannkyns-
sögunni, og þessvegna finnst
Guöbergur: Fann vikingabik-
ar á spönsku safni.
Útvarp
20.45:
mér saga hans nokkuö merl
leg, sagði Guöbergur. _
'Laifgárdagúr okt'óber 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 19
Fyrir
40
árum
„I gærkvöldi bar mjög á þvl,
að inn I tal þeirra, sem lásu
fréttir I útvarpið, blönduðust
annarlegar og ósamstæöar
raddir.Kvaðsvoramtað, þegar
Jón Eyþórsson hafði þulið
veöurfréttir i nokkra stund,
heyrðist más i móðum kven-
manni: „Fyrirgefið þér, fyrir-
gefiö þér. Þaö heyrist ekkert —
heyrist ekkert siðan þér byr juö-
uð”. Þaö rumdi i Jóni og svo
heyrðist brak og læti, eins og
hann stympaöist við kvenlik-
amninginn. Stóö þaö nokkra
stund, en að þvi loknu hóf Jón
veðurfréttir á ný, og var nú llka
orðinn móður. En hlustendur
spyr ja : Er veriö aö framkvæma
miðilstilraunir I útvarpinu?
Og væri ekki hægt að hafa þær
sérstakan liö á dagskránni?”
Þjóöviljinn,
13. október 1939.
,,Ef Morgunblaðinu er alvara
meö ,,að láta eitt yfir alla
ganga”, þá verður að kenna
hálaunamönnunum aö spara, og
ekki nóg meö það, heldur verður
aö sjá til að laun þeirra lækki,
og laun óbreyttra verkamanna
hækki.
Lciöari Þjóövilj aHs.
l.október 193S
lesendum
svo mœlir Svmthöíði
fra
r
Omerki-
leg skrif
í Vís i
Ekkiiitégoft I dagblaöiö V'isi,
en á þriöjudaginn varö hann
fyrir mér á vinnustaö mlnum og
rak ég þá augun i grein eftir
Svarthöföa. Oft hef ég nú séö
þaö svart i blaöaskrifum en
sjaidnast jafn svart og I þessari
grein. Þarna var aö finna frum-
stætt og hrátt ofstæki sem ég
hélt aö tilheyröi liöinni tiö i is-
lenskri blaöamennsku. Satt aC
segja átti ég von á einhverjum
skrifum I Þjóöviljann um þessa
grein en þar sem þau hafa ekki
komiö get égekki oröa bundist.
Grein Svarthöföa fjallar um
sovéska andófsmanninn Bu-
kovsky og þá „ósvinnu” að Arni
Bergmann ritstjóri skyldi leyfa
sér sem blaðamaður að fara á
almennan fund meö Bukovsky
og skýra frá fundinum i Þjóð-
viljanum. Ja, heyr á endemi.
Fyrir þetta athæfi er Arni kall-
aöur fyrrverandi KGB agent i
Moskvuogmaðurinn sem stóð á
bak viö óhróður sovésku stjórn-
arinnar gegn ungversku flótta-
mönnunum erhingaðkomu eftir
blóðbaðið i Ungó ’56. Mér þykir
Svarthöfði segja fréttir.
Nú er það vitað aö blaðamað-
urinn Indriði G. Þorsteinsson
skrifar þessa Svarthöfðadálka.
Er ekki til eitthvaö sem heitir
siðanefnd Biaðamannafélags-
ins. Ef einhverntima hefúr ver-
ið þörf á að kæra til þessarar
nefndar þá held ég að þaö sé
núna.
Guöm B
Kjósum á gamlársdag
og sláum tvœr flugur i einu höggi!
Nú sjá landsmenn fram á
kosningar I jólamánuöinum.
Væri þá ekki alveg tilvaliö aö
slá tværeöa jafnvel þrjár flugur
i einu höggi og sameina kosn-
ingagrlniö og áramótagleöskap-
inn? Talaö er um aö kjörfundur
standi f tvo daga . Vil ég þvl gera
þaö aö tillögu minni aö sunnu-
dagurinn 30. desember og
mánudagurinn 31., gamlárs-
dagur, veröi kjördagar næstu
alþingiskosninga.
Hugmyndin finnst mér nokk-
uð snjöll, þvi ef af þessu yrði,
þyrfti sjónvarpiö ekki að leggja
i neinn kostnað vegna áramóta-
skaups. Kosningavakan yrði
jafnframt áramótaskaup og
spennandi I ofanálag. Með hæfi-
legri kampavlnsdrykkju i sjón-
varpssal mætti liöka um mál-
bein snillinganna sem þangað
yrðu kallaðir. Einnig mætti
blanda grlni i kosningakoktelinn
alla nóttina, þannig aö áhorf-
endur vissu aldrei hvort tölurn-
ar væru sannar eöa lognar.
Gaman væri lika aö fá Jón Sól-
nes til að taka aö sér banka1
stjórn veðbanka i sjónvarpssal
á kosninganóttina. Agóöa ef
einhver yröi, fengju flokkarnir
siöan sem sárabætur i öfugu
hlutfalli viö þingmannafjölda.
Þessi ráöstöfun gæti lika
reddað blööunum, þvi jólaaug-
lýsingarnar héldu þeim á floti i
kosningaslagnum. Já, þvi ekki
að taka lifið létt þó'móti blási?
Fyrrverandi f ramb jóöandi.
Viö bregöum á leik og drögum úr pússi gamlar myndir af þekkt-
um mönnum I þjóöllfinu. Hér birtist fyrsta myndin úr „fornmynda-
safninu” og viö spyrjum: Hver er maðurinn? Svariö birtist hér á
þessum staö á þriöjudaginn.
Hver er maöurinn?