Þjóðviljinn - 13.11.1979, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 13.11.1979, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 13. nóvember 1979 ÞJöÐVlLjÍN'N — SÍÐA Gitarinn hefur löngum notib hylli ungra sem aldinna. Gítar í Tónhorni Útvarp kl. 16.35 Sverrir Gauti Diego hefur tekiB viö af Guörúnu Birnu Hannesdóttur, sem sá um tónlistarþáttinn Tónhorniö i útvarpinu um nokkurra ára skeiö. Sverrir Gauti sér um þennan þátt i dag kl. 16.35. — Þaö stendur ekki til aö gera miklar breytingar á þættinum — sagöi hann. —Viö sleppum poppinu og þungri klassiskri tónlist, en tökum eiginlega allt þar á milli. 1 fyrsta þættinum sem ég sá' um, fyrir viku, var ég meö kynningu á gitarleik, bæöi klassiskum og öörum. Þessu mun ég halda áfram i dag. Þaö veröur sem sé eingöngu gitarleikur I þættinum I dag. -ih. Útvarp kl, 21.00: Greindar- hugtakið Jónas Páisson skólastjóri flytur erindi f útvarpiö i kvöld, og nefnist þaö „Fáein orö um greindarhugtakiö”. Erindi þetta er liöur I þemaviku rikisfjölmiölanna og fram- kvæmdanefndar barnaárs, sem aö þessu sinni fjallar um afburöa greind börn. Asta Ragnheiöur Jóhannes- dóttir hefur yfirumsjón meö þessum þemavikum, sem hafa vakiö veröskuldaöa athygli. Einkum hefuo mikiö veriö rætt um sjónvarpsþáttinn um börn meö sérþarfir, og stendur til aö endursyna þann þátt. Sjón- varpiö tekur hinsvegar ekki þátt í þemavikunni um af- buröagreind börn, og sagöi Asta ástæöuna vera þá, aö sjónvarpiö væri nú oröiö mjög aökreppt vegna kosninganna og þess sem þeim fylgir. Tveir þættir veröa I útvarpinu um Jónas Pálsson, skólastjóri Æf ingadeildar Kennara- háskólans, flytur erindi um greindarhugtakiö. þetta efni, erindi Jónasar Pálssonar i kvöld og annaö er- indi á morgun. Tvær þemavikur eru enn eftir, og fjalla þær um efnin „Barnamenning” og „Óhæfir foreldrar”. Asta sagöi einnig, aö lftiö sem ekkert heföi veriö fjallaö um aöstööu afburöagreindra barna hér á landi áöur, en mikiö heföi veriö rætt um þetta viöa erlendis, og þá einkum um þaö hvaö skólarnir gætu gert fyrir þau börn sem skara fram úr. — ih Framboðs- kynningar Sjónvarp kl. 21.45: Nú byrjar balliö. Allir komnir á sinn staö á listunum, prófkjörin blessunarlega aö baki og pólitikin hætt aö snúast um þaö, hver á aö vera fyrir ofan eöa neöan hvern. Nú veröur væntanlegar fariö aö kljást viö hin stærri mál. Framboöskynnigar eru á dagskrá sjónvarps i kvöld. Fulltrúar þeirra aöila, sem bjóöa fram til alþingiskosn- inga 2. og 3. desember. svara spurningum Sigrúnar Stefáns- dóttur fréttamanns. Rætt veröur viö fulltrúa hvers flokks I 15 minútur. Dagskrárliöur þessi stendur yfir I tæpa tvo tima, enda eru framboösaöilarnir sjö talsins: þingflokkarnir fjórir, Fylkingin og Sigrún Stefánsdóttir ræöir viö frambjóöendur I kvöld. Ihaldsbrotin tvö. Er ekki aÖ efa aö þarna munu mörg fögur orö fjúka. Ekki spillir þaö ánægjunni aö framboöskynningarnar koma I kjölfariö á öörum bráöspennandi dagskrárliö: franska sakamálaflokknum Hefndin gieymir engum. -ih 1 C lo blöðín Hafnfirðingar sem vinna í Reykjavik 1040 krónur á dag í strætó íhaldið felldi afslátt til lifeyrisþega Landleiöir h.f. sem hafa sér- leyfi áætlunarferöa milli Hafnarfjaröar og Reykjavikur hafa nýlega sótt um enn eina hækkun á gjaldskránni og verö- lagsyfirvöid mæit meö 13% hækkun. Fariö aöra leiöina nú kostar 370 krónur, en mundi fara uppi 420 kr. ef hækkunin veröur staöfest. Frá þessu segir i „Vegamdt- um” blaöi Alþýöubandalagsins I Hafnarfiröi og er bent á til samanburöar, aö eitt far meö strætisvögnum Kópavogs eöa Reykjavlkur kostar nú 150 kr. Þó eru ýmsar leiöir þessara vagna engu styttri en Hafnar- fjaröarleiöin, einstaka jafnvel lengri. Þeir sem búa I Hafnarfiröi en stunda vinnu i Reykjavik eöa öfugt veröa flestir aö taka vagn I Reykjavik einnig til aö komast milli heimilis og vinnustaöar og veröur þvi daglegur kostnaöur viö aö sækja vinnu milli bæj- anna á núgildandi verölagi um 1040 krónur, sem aö visu má lækka nokkuö meö aö kaupa farmiöakort, en veröur þó aldrei minni en um 20 þús. kr. á mánuöi. Skýringin á mismuninum fyrir Hafnfiröinga er einföld, segja „Vegamót”: Vagnarnir, sem ganga um Reykjavík og Kópavog eru reknir af bæjarfélögunum og þau greiöa kostnaöinn niöur á stórum hluta. Tilgangurinn meö þvi er auövitaö sá, aö gera þeim, sem ekki geta feröast á eigin bll, kleift aö komast leiöar sinnar án óheyrilegra útgjalda. Hafnarfjaröarvagnarnir eru hins vegar reknir af einkafyrir- tæki, sem auövitaö hugsar fyrst og fremst um eigin hag og gróöa. Hafnarfjaröarbær á þar engan hlut aö máli, og leggur ekkertféfram, til þess aö draga úr óhóflegum kostnaöi fólks, sem nota veröur þessi al- menningsfarartæki. Ihalds- meirihlutinn I bæjarstjórn Hafnarfjaröar telur sllkt sér óviökomandi. Hann er greini- lega þeirrar skoöunar, aö fólk sem ekki hefur aöstæöur til aö aka um á eigin bíl, sé ekkert of gott til aö borga 20-30 þúsund á mánuöi til aö komast i og úr vinnu. Sömu afstööu viröist hafn- firska Bæjarstjórnarihaldiö (bæöi þaö háöa og óháöa) hafa til elli- og örorkulífeyrisþega, þvi aö fyrir nokkru báru minni- hlutafulltrúarnir I bæjarstjórn fram tillögu um aö greiöa elli- og örorkullfeyrisþegum far- gjaldastyrk ef þeir feröuöust meö Hafnarfjaröarvögnunum. Auövitaö kolfeiidi Ihaldiö þessa tillögu. Þaö veröur sifellt dýrara aö notfæra sér þjónustu einka- framtaksins þegar fólk bregöur sér milli bæja. Það veröur sifellt dýrara fyrir Hafnfirðinga að notfæra sér þjónustu einkaframtaksins við að komast milli bæja. Tillitsleysi bíleigenda Vesturbæingur sendi okkur þessar myndir og sagðist vilja vekja at- hygli bilaeigenda á þvi ófremdarástandi sem þeir sköpuðu oft með þvl að leggja biium slnum þvers og kruss yfir gangstéttir. Það er ekkert grin að vera þarna á ferðinni meö barnavagn og þurfa að fara út á götu til að komast ieiðar sinnar, einsog giöggt má sjá á þessum myndum. Þessu fylgir mikil siysahætta. Munið það, blielg- endur!!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.