Þjóðviljinn - 24.11.1979, Qupperneq 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. nóvember 1979
UOBVIUINN
Máigagn sósialisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóðfrelsis
Otgefandi: CJtgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Arni Bergmann, Einar Karl Haraldsson.
Fréttastjóri: Vilborg Haröardóttir
Umsjónarmaöur Sunnudagsbiaós: Ingólfur Margeirsson
Kekstrarstjóri: Ulfar Þormóösson
Auglýsingastjóri: Rúnar Skarphéöinsson
Afgreiöslustjóri: Valþór Hlööversson
Blaöamenn: Alfheiöur Ingadóttir, Einar Orn Stefánsson, Guöjón Friöriks-
son, Ingibjörg Haraldsdóttir, Magnús H. Gislason, Sigurdór Sigurdórsson.
Erlendar fréttir: Jón Asgeir Sigurösson
iþróttafréttamaöur: Ingólfur Hannesson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Jón Ölafsson
C'tlit og hönnun: Guöjón Sveinbjörnsson, Sævar Guöbjörnsson
Handiita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Ellas Mar.
Safnvöröur: Eyjólfur Arnason
Auglýsingar: Sigrlöur Hanna Sigurbjörnsdóttir, Þorgeir ölafsson.
Skrifstofa: Guörún GuÖvarÖardóttir.
Afgreiösla: Einar Guöjónsson, Guömundur Steinsson, Kristin Péturs-
dóttir.
Simavarsla: ólöf Halldórsdóttir, SigriÖur Kristjánsdóttir.
Bflstjóri: Sigrún Báröardóttir
Húsmóöir: Jóna Siguröardóttir
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir
Ctkeyrsla: Sölvi Magnússon, Rafn Guömundsson
Ritstjórn, afgreiösla og auglýsingar: Siöumúia 6, Reykjavík.slmi 8 13 33.
Prentun: Biaöaprent hf.
Hœtta til hœgri
• Ýmis sólarmerki benda nú til þess að andstæðingum
vinstristjórna í Alþýðuf lokknum sé nú að takast sú f yrir-
ætlan sín að leiða Sjálfstæðisf lokkinn til valda í landinu á
ný. Sjálfir ætla þeir sér ráðherrastóla að launum. Þar
með væri draumastjórn Vilmundanna komin á laggirn-
ar, stjórnin sem efndi til hins hatrammasta stríðs við
verkalýðshreyfinguna i byrjun síðasta áratugs, gerði
svikasamninga i lanc-aelgismálum og efndi til mesta
landflótta sem sögur fara af i lok áratugsins.
• Það hefur komið skýrt í Ijós að forystumenn Sjálf-
stæðisf lokks og Alþýðuflokks áforma viðtæka aðför
að kjörum og réttindum launafólks að afloknum kosn-
ingum og hyggjast auka hlutdeild erlends fjármagns i
íslensku atvinnulífi stórlega. Kjaraskerðing sem numið
gæti 20 til 30% er það sem liggur í loftinu ef ihaldsöf lin
ráða ferðinni eftir kosningar.
• Það sem við blasir ef Alþýðuf lokkur og Sjálfstæðis-
f lokkur taka höndum saman um stjórn landsins er þetta:
1. Kauplækkun hjá öllu almennu launafólki með því að
afnema eða skerða til muna vísitölubætur á laun og
greiða þær aðeins tvisvar á ári.
2. Samtök launafólks verða svipt ýmsum núgildandi
réttindum til kjarabaráttu með breytingum á stjórnar-
skránni og aðstaða atvinnurekenda styrkt með því að
færa vinnulöggjöf ina i það horf sem þeir hafa sett fram
kröfur um.
3. Atvinnuleysi verður gert að stjórntæki atvinnurekenda
og ríkisvalds svo auðveldara verði að brjóta launaf ólk og
samtök þess á bak aftur. Atvinnuöryggi opinberra
starfsmanna verður afnumið og Sjálfstæðisflokkurinn
boðarslíkan niðurskurðað búast má við uppsögnum 2000
manna í þjónustu hins opinbera.
4. f stað viðleitni til þess að koma á jafnrétti lands
manna í reynd til heilsugæslu, trygginga, lífeyris og
menntunar verður kraftur peninga og auðs látinn ráða
ferðinni á þessum sviðum. Félagsleg þjónusta verður í
auknum mæli seld á markaðsverði og þeir látnir hafa
forgang sem mesta f jármuni hafa með höndum. I nafni
markaðshyggjunnar á að rífa niður velferðarkerfi og
menningarstarfsemi sem efld hafa verið alþýðu til
hagsbóta.
5. Afnema á skatta á eignamönnum og fyrirtækjum og
auka þannig möguleika til gróðamyndunar á kostnað
hins almenna skattborgara. Blekkingar um afnám
skatta á launamönnum felast aðeins í tilfærslu og naf na-
skiptum á skattstofnum, en tilgangurinn er fyrst og
fremst að létta byrðar hátekjumanna og atvinnu-
rekenda.
6. Álagning heildsala og kaupmanna á að vera eftirlits-
laus og efla á lögmál frumskógarins í viðskiptalíf inu til
haqsbóta fyrir 2000 heildsala og einkaaðila í margföldu
viðskiptabákni íslendinga.
7. Stórlega á að draga úr niðurgreiðslum á búvöru og
verð á lífsnauðsynjum almennings mun því stórhækka.
8. Arðsöm fyrirtæki í eigu almennings verða afhent f jár-
sterkum aðilum til ráðstöf unar en ríkið látið reka áf ram
ýmis tapfyrirtæki.Þannig verða skattar almennings not-
aðir til að borga tapið á sama tíma og eignamönnum
verða afhent gróðafyrirtækin.
9. Verð á þjónustu hins opinbera mun stórhækka vegna
krafna um að hún standi undir sér, og eru til að mynda
horfur á því að taxtar Rafmagnsveitna ríkisins hækki
um allt að 54% og raf magn úti á landi verði allt að 184%
dýrara en á Reykjavíkursvæðinu.
10. Erlendar lántökur fyrirtækja verða heimilaðar án
eftirlits og þannig stuðlað að samtvinnun erlends
f jármagns og innlendra fyrirtækja. í stað fslenskrar at-
vinnustefnu verður kappkostað að fá fleiri erlend stór-
iðjufyrirtæki inn í landið. Efnahagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar á að fórna á altari erlendra stóriðjufursta.
• Allt þetta á að framkvæma með leiftursókn í nafni
baráttunnar gegn verðbólgu og Sjálfstæðisflokkurinn
mun fá til fulltingis við sig annaðhvort Alþýðuf lokk eða
Framsóknarflokk. Það er hinsvegar fullljóst af reynsl-
unni í Bretlandi og í israel og af tillögum Sjálfstæðis-
flokksins að verðbólga mun magnast nái þær fram að
ganga. Kjósendur þurfa því að sjá í gegnum blekkingar-
vefinn og snúast til varnar.
— ekh
klippi
Göfugur
klofningur
Islendingur, blaö Sjálfstæöis-
manna á Norðuriandi, er eins og
vænta mátti klofinn i heröar
niður i kosningastriöinu. D-list-
inn getur aö sönnu gefiö tóninn á
forsiöu meö uppslætti um aö
„atkvæöi til klofningslistans
falla dauö” eins og segir i
þriðjudagsblaði íslendings. En
þegar blaöinu er flett þá leggja
fulltrúar D-listans og Sólnes-
listans undir sig siöurnar á vixl.
Kjdsiö D. Kjósiö S.
Vitaskuld skirskota báðir til
mikillar þenslu einmitt i upp-
söfnun verslunar- og skrifstofu-
húsnæöis, sem hefur risið svo
ört, aö allmikið af þvi hefur
staðið autt um lengri eöa
skemmri tima.
Timaritiö Frjáls verslun er
hinsvegar afskaplega litiö hrifin
af þvi aö Svavar Gestsson skuli
hafa átt nokkra aðild aö þvi aö
dregið var úr veröbólgufjárfest-
ingu i milliliðakerfinu. I
einskonar ritstjórnargrein er sá
póll tekinn i hæöina, aö Svavar
Gestsson hafi sem viöskiptaráð-
herra stundaö dæmafáan fjand-
skap ,,I garð heillar atvinnu-
greinar”. Siöan segir Frjáls
verslun meö þeirri geöpryöi
sem þar þykir viö hæfi:
skammahrinur frá ihaldinu.
Þessi kvittun til Svavars Gests-
sonar frá jafn hatrömmu hægri-
málgagni og Frjáls verslún er
gleöilegur vitnisburöur um aö
sú vinstristjórn sem frá fór hafi
ekki verið jafn tannlaus og ýms-
ir vilja vera láta.
Hve heimskur
er Svarthöfði?
Einn af dálkahöfundum
Alþýðublaðsins lét sina
þolinmæði bresta á Svarthöföa
Visis á dögunum. Dálkahöf-
undurinn haföi séö hvernig
Ungt fólk styður Sjálfstæði
HuHilór Hlömlal. scm skipar 2. sœtu) d framhodslista SidllstæöisflokkM
L.
hins göfugustu eiginleika og
hvata. Þannig sjáum viö i þessu
sama siöasta tölublaöi á opnu
viðtal viö einn af efri mönnum
D-listans. Hann brýnir þaö fyrir
mönnum, aö „persónulegir
hagsmunir veröa að vikja fyrir
hagsmunum heildarinnar” og
mega allir skilja hvaö viö er átt.
Siöan er blaöinu flett og viö
blasir viötal viö næstefsta mann
á Sólneslistanum Sturlu
Kristjánsson fræöslustjóra.
Hann lýsir þvi strax yfir aö
kosningarnar leggist afar vel I
sig vegna þess aö — eins og
hann segir ,,ég treysti á þaö
góöa i manninum, dómgreind,
heiðarleika og mannþekkingu
kjósenda”.
Viku áöur haföi jafnvægislist-
in I blaöinu veriö enn fullkomn-
ari. A opnu birtist viötal viö
Halldór Blöndal, annan mann á
D-lista, undir fyrirsögninni:
„Ungt fólk styöur Sjálfstæöis-
flokkinn”. A næstu opnu var svo
viötal viö Jón Sólnes undir ann-
arri merkri fyrirsögn: „Ég er
ekki dauöur úr öllum æöum".
Engu likara er en aö keppinaut-
ar þessir hafi orðið ááttir viö að
deila meö sér ihaldsfylginu eftir
kynslóðum. Hve sæl, ó hve
sæl...
Fróöir menn telja sig vita, aö
allt þetta umburöarlyndi og öll
þessi göfugmennska á siöum
Islendings eigi sér ofur hvunn-
daglega skýringu. Blaöiö er gef-
iö út af hlutafélaginu Islendingi.
Einn helsti eigandi þess er sagö-
ur Jón Sólnes.
Svavar fær
kvittun
Svavar Gestsson skýröi frá
þvi fyrir skemmstu aö á undan-
förnum misserum heföi dregiö
verulega úr fjárfestingu I
verslunar- og skrifstofu-
húsnæöi. Hann taldi þetta
jákvætt mjög, enda hefur þaö
raunar veriö fast þema i um-
ræöu um litt hagkvæmar stein-
steypufjárfestingar, aö visa til
Islenskur
Idi Amin!
„Þaö er háöulegt aö 1 þjóö-
félagi sem telúr sig þróaö, geti
þvilikur Idi Amin komist { ráö-
herrastól til aö stjórna málum
sem hann sist gæti boriö
skynbragö á. Þaö er enn háöu-
legra hvernig sumir forsvars-
menn viöskiptalifsins hafa
dansaö I kringum þennan gull-
kálf einokunar og haftastefnu,
bukkandi sig og beygjandi á
meðan þeim hafa veriö brugguö
launráö. En þaö er niöurlægj-
andi fyrir embættismenn og
:// umrædu
frjájs
iHafði ckki \it á að þegja
Nýlega hældist Svavar Ges u<
sat stól viðskiptaraðherra “
stjórnihni salugu. vfir þ\ í a síðu'®—
i \ilians að i sinni ráðherratið liati náðst
efzf“B
ai
á
num hef'
frjáls ver/.li
opinberar stofnanir hvernig þær
hafa þurft aö láta nota sig til
heimskuverka og jafnvel til-
rauna til lögbrota á islenskum
fyrirtækjum og einstaklingum, I
ráöherratiö þessa manns.”
Viö upphaf verkalýöshreyf-
ingar höföu menn þaö gjarna á
oröi aö allt væri nú i lagi meöan
menn verðskulduöu
svo. En hitt er svo annað mál,
aö Svarthöföi er sá sem mest og
markvissast skirskotar til
heimsku, og lágkúrulegra for-
dóma lesenda af öllum þeim
sem i islensk blöö skrifa. Og
skiptir þá ekki máli hvort hann
er einn, þrieinn eða skiptir sér
I fleiri parta I „The Syndicate”.
ȇb
Svarthöfði reyndi meö furöuleg-
ustu tilræöum viö heilbrigöa
skynsemi aö koma einhverju
óoröi á tvo islenska listfræöinga
fyrir þá sök, aö þeir höföu á
námsárunum hlýtt á fyrirlestra
hjá prófessor sem siöan haföi
reynst bæöi hommi og njósnari.
— Hér er ab sjálfsögöu átt viö
Anthony Blunt, listaráöunaut
Bretadrottningar.
Dálkahöfundurinn komst aö
þeirri niöurstööu, að Svarthöfði
heföi unnið til aö veröa kallaöur
heimskastur allra skrifandi
manna á landinu. Þetta er þvi
miöur ekki rétt ályktun. Svart-
höfði er stundum slóttugri en
.09 skorM