Þjóðviljinn - 24.11.1979, Blaðsíða 9
Laugardagur 24. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
tesa
©
Svavar Gestsson efsti maður
G-iistans i Reykjavik hefur i
þessari kosningaiotu heimsótt
nærri fimmtiu vinnustaði i
höfuðborginni og átt viðræður
við starfsfóik um póiitikina og
kosningarnar. Vinnustaðafund-
ina hóf Svavar i raun háifum
mánuði áður en framboð var
ákveðið enda ekki tii setunnar
boðið eftir þingrofið. Blaðamað-
ur og Ijósmyndari fylgdust með
nokkrum vinnustaðafundum
Svavars í gær og fyrradag.
Fjörugur fundur var I Hraðfrystistöðinni i Reykjavik j hádeginu i gær og fékk Svavar þá ágæti,s andmælenda til þess aðskiptast
á skoðunum vio.
Hjá Landsbankamönnum:
Launin ekki
orsök verð-
bólgunnar
Einn af þeim vinnustöðum sem
Svavar Gestsson hefur heimsótt
að undanförnu er Landsbankinn.
en þar mætti mikið fjölmenni til
að hlýða á mál hans og spyrja
hann. Það er raunar eðlilegt að
margir hafi haft áhuga á fundi
með Svavari, sem, auk þess að
vera fyrrv. viðskiptaráðherra,
hefur setið i bankaráði og skoðan-
ir hans á fækkun banka að sjáif-
sögðu mjög til umræðu méðal
bankamanna.
A fundinum i Landsbankanum
byrjaði Svavar á þvi að ræða um
komandi kosningar og þau bar-
áttumál sem bera hæst I stjórn-
málum i dag.
„Það er misskilningur að sumir
flokkar séu með verðbólgu og
aðrir á móti. Það vilja allir flokk-
ar losna við verðbólguna.
Spurningin er bara á hverjum
baráttan gegn verðbólgunni á að
bitna. Á almenningur að taka á
sig stórfellda kjararýrnun eða á
að taka féð þaðan sem það er
mest. Alþýðubandalagið vill
millifærslu á fjármunum þjóð-
félaginu. Við viljum að þeir
peningar,sem nú „dansa lausir” i
þjóðfélaginu sem afleiðing af
verðbólgugróða, verði nýttir i að
byggja upp þá efnahagsþætti,
sem geta dregið úr verðbólgunni.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur að
hann geti náð verðbólgunni niður
á 6 — 9 mánuðum. Það er jafnfrá-
leitt og tillaga „Hins flokksins”
sem vill einfaldlega leggja verð-
bólguna að velli með þvi að banna
orðið verðbólga, strika það út úr
islensku máli,” sagði Svavar.
Eftir að hafa gert frekari grein
fyrir stefnu flokkanna i efnahags-
málum sagði Svavar:
„Siðustu stjórn tókst ekki nægi-
lega vel að vinna á verðbólgunni.
Til þess hefði einfaldlega þurft
betra samstarf, auk þess sem
hækkað oliuverð hafði þar veru-
leg áhrif. Að visu heitir það hjá
sumum að oliuhækkunin hafi
stafað af samanlögðum skepnu-
skap minum og Rússa Þessi sömu
menn halda þvi lika fram að
hækkun láglauna sé helsti verð-
bólguhvatinn I landinu. Þeir
halda þvi fram að verðbólgu-
vandinn verði leystur með þvi að
herða að launafólki, vegna þess
aö þjóöarbúið „þoli ekki” að
borga fólki 250 þúsund krónur á
mánuði. Ef við getum ekki hækk-
að lægstu launin i þjóðfélaginu,
þá einfaldlega missum við þetta
fólk úr landinu og þess eru þegar
mörg dæmi.”
Allmargar fyrirspurnir bárust
til Svavars Gestssonar um kjara-
mál bankamanna. F jallað var um
grunnkaupshækkanir og félags-
leg hlunnindi i samningum
bankamanna, sem Svavar taldi
að hefðu getað orðið meiri, enda
væri hluti bankamanna á mjög
lágum launum. Einhver svaraði
þvi til að þeir væru svo litill hluti
stéttarinnar og spruttu upp frá
þvi umræður um stefnu stéttar-
félaga almennt i kjaramálum:
„Stéttarfélög verða að gera það
upp við sig hvort þau vilja fórna
einhverju af hinum almennu
kröfum, t.d. um grúnnkaups-
hækkanir, til þess að fá fram
verulegar bætur fyrir þá lægst
settu innan stéttarinnar,” sagði
Svavar. Siðan var rætt nokkuð
um hlutdeild starfsmanna I
stjórnun bankanna og ýmis fleiri
mál voru rædd, en alls stóð fund-
urinn I 1 1/2 kls. ÞS
Á kennarastofunni í Árbæjarskóla:
Kjaramálin og erlend
stóriðja höfuðmálin
„Þessar kosningar snúast fyrst skatt á hátekjur og fyrirtæki. búnaðarins. En við settum lög þar
og fremst um tvö aðalmál.
Annars vegar eru kjaramálin og
lifskjör fólks I heild, en sam-
kvæmt stefnuyfirlýsingu Sjálf-
stæðisflokksins um niðurfellingu
niðurgreiðslna og gengisfeilingu
verður 25% kjaraskerðing á
nokkrum mánuðum, ef Sjáif-
stæðisflokkurinn fær að ráða
ferðinni.
Hitt málið er kannski hættu-
legasta mál kosninganna, ef litið
er leng^a fram i timann, en það er
hin erlenda stóriðja, sem Sjálf-
stæðisflokkurinn boðar að verði
stóraukin á tslandi, og mun hafa
óbætanleg áhrif á islenskt þjóðlif,
efnahag og menningu” sagði
Svavar Gestsson á fundi með
starfsmönnum i Arbæjarskóla,
þar sem hann kynnti stefnu
Alþýðubandalagsins, ræddi um
komandi kosningar og svaraði
spurningum. Svavar sagði:
„Til að raða viö verðbólguna
þarf að færa til fjármagnið i
þjóðfélaginu. Siðasta stjórn steig
fyrsta skrefið i fyrra með lækkun
söluskatts og með þvi að leggja
Sjálfstæðisflokkurinn heldur að
hann geti ráðið við verðbólguna á
6-9 mánuðum. Það er ógerlegt og
það gerist ekki með þeirri kjara-
skerðingu sem Sjálfstæðis-
flokkurinn boðar. Það gerist
aðeins með þvi að færa til fjár-
magnið frá þeim sem hafa safnað
milljörðum á verðbólgu-
gróðanum og nýta það i þágu
almennings. Þetta bið ég fólk að
ihuga nú i þessum kosningum.
Við þurfum strekan vinstri flokk,
— einn flokk launamanna.”
„Ég er sparifjáreigandi” sagði
einn fundarmanna. „Verður fé
minu best borgið, ef Alþýðu-
bandalagið kemst i stjórn?”
Svavar Gestsson svaraði
þessari spurningu með þvi að út-
skýra vaxtastefnu Alþýðubanda-
lagsins og þær trúarbragða-
kenningar sem fram hafa komið
varðandi hávexti og lágvexti.
„Með þvi aö hækka vexti stöðugt
eykst verðbólgan. Gleymum þvi
ekki að 20 kr. af hverjum
mjólkurlitra fer i vexti sam-
kvæmt verðlagsgrundvelli land-
sem afnumið var bann við verð-
tryggingu. Hún er nú heimil”,
sagði Svavar.
„Skilur Lúövik þetta?” spurði
fundarmaöur Svavar og Svavar
svaraði um hæl:
„Já, það gerir hann. Lúðvik er
mjög skýr”.
„Horfið þið ekki allir i gegnum
gleraugun hans?”
„Nei, ég nota engin gleraugu
ennþá” sagði Svavar og fundar-
menn kimdu viö.
„Hvað með hermálið — verður
þvi stungið undir stól einu sinni
enn, ef Abl. kemst i stjórn?”
„Þvi verður ekki stungið undir
stól og hefur aldrei verið stungið
undir stól. í málefnasamningi
siðustu rikisstjórnar var gert ráð
fyrir endurskoðun þessara mála
og að henni var komið þegar
Alþýðuflokkurinn hljóp á brott. t
upphafi stjórnarsamstarísins var
afstaða Alþýðuflokksins i þessu
máli óbifanleg, en við höfðum
vonast til að Framsóknar-
Framhald á bis. 17