Þjóðviljinn - 24.11.1979, Page 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. nóvember 1979
,,Ég er fln frú og á antlkbúó”, ..Fullorðinsleikrit skemmtilegust”, sagöi Steinunn Þorsteinsdóttir. „Verst að biða i forleiknum”. Hreiðar Ingi og Hermann.
sagði Halldóra Geirharðsdóttir. ^
,,I forleiknum þurfa
allir að
99
pissa
rætt við nokkra unga
leikendur í „Ovitum”
,,Ég er amma í móðurætt”, sagði
Steinunn Þórhallsdóttir.
„Ég er fin frú og á antikbúð”,
sagði Halldóra Geirharðsdóttir,
11 ára, sem leikur eitt stærsta
hlutverkið i „Óvitum” eftir
Guðrúnu Helgadóttur, sem Þjóð-
leikhúsið frumsýnir i dag.
Tökum aó okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum. Smið-
um eldhúsinnréttingar, einnig viðgerðir á
eldri innréttingum. Gerum við leka vegna
steypugalla.
Verslið við ábyrga aðila.
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33, simi 41070
Blikkiðjan
Ásgaröí 7, Garöabæ
Onnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíöi.
Gerum föst verötilboö
SIMI 53468
Happdrætti
Þjóðviljans 1979
Allir sem fengið hafa heimsenda happdrættismiða
eru hvattir til að gera skil strax.
Viðbótarmiðar fást á skrifstofu happdrættisins og
hjá umboðsmönnum.
Happdrætti Þjóðviljans 1979.
Húsráðendur athugið!
Höfum á skrá fjölda fólks sem
vantar þak yfir höfuðið.
Leigjendasamtökin Bókhlöðustig 7
Opið: Kl. 13-18 alla virka daga,simi: 27609
Halldóra var að tygja sig inn á
svið með öllum krökkunum sem
taka þátt i sýningunni.
„Er erfitt að leika þessa frú?”
„Já, frekar, en mér finnst leik-
ritið æðislega skemmtilegt.”
„Vildir þú eiga svona mömmu
eins og þessa sem þú leikur?”
„Nei, ég vil bara eiga
mömmuna sem ég á”, sagði
Halldóra.
Ægilega spennandi
„Mér finnst þetta gott leikrit”
sagði Arna Einarsdóttir, sem lika
er 11 ára. „betta eru ekki bara
söngvar og einhver vitleysa!
Þetta fjallar um fjölskyldur á
tslandi og vandamál þeirra.”
„Finnst þér erfitt að leika i sýn-
ingunni?”
„Nei, en þetta er dálitið erfitt
fyrir litlu krakkana. Mér finnst
þetta ægilega spennandi”, sagði
Arna.
Erfitt að tala hátt
Tveir herramenn voru að
leggja siðustu hönd á sminkið,
þegar við hittum þá. Þeir heita
Hreiðar Ingi Júliusson 13 ára og
Hermann Stefánsson 11 ára.
„Hvað leikið þið?”
„Við leikum báðir pabba.”
„Hafið þið leikið áöur?”
„Já, ég lék lærisvein i ösku-
busku á Akureyri”, svarar
Hreiðar Ingi.
„Ertu kannski aö hugsa um að
verða leikari?”
„Ætli ég verði nú ekki að at-
huga það aðeins betur, áður en ég
ákveö mig”, sagöi Hreiöar
hugsi...
„llefur þetta verið erfitt?”
„Það er erfitt að tala nógu hátt.
Svo er lika erfitt að sameina
æfingarnar skólanum”, sagði
Hreiðar Ingi.
„En auðveldast að læra
textann,” sagði Hermann, og
bætir viö: „Mér finnst verst að
bíða i forleiknum. Þá verður
flestum mál að pissa.”
„Hvernig finnst ykkur leikrit-
ið?”
„Ofsalega gott. Þaö segir frá
þvi hvernig fullorðna fólkið er,”
segir Hermann.
„Finnst ykkur það vera
svona?”
„Sumt”, segir Hreiðar og nú
eru þeir félagar kallaöir á sviö.
Amman er yngst
Yngst af öllum i sýningunni er
Steinunn Þórhallsdóttir, en hún er
6 ára. Hún leikur ömmu.
„Hvers konar amma ert þú?”
„Ég er amma i móðurætt,”
svarar Steinunn snögg .og bætir
við: ”Ég prjóna.”
,Þetta er gott leikrit”, sagði Arna Einarsdóttir.
Ljósm. Jón.
„Attu svona ömmu?”
,,Nei, en ég vildi alveg eiga
hana.”
Og Steinunn litla leggur sjaliö
yfir peysufötin og tritlar af stað.
Ætla ekki í leiklist
Aðra Steinunni hittum við i
búningsherberginu.. Hún er
Þorsteinsdóttir og er 10 ára.
Steinunn var að laga á sér háhæl-
uðu skðna þegar við komum.
„Hvernig finnnst þér að ganga
á þessu?”
„Það venst”, sagði Steinunn og
settist fyrir framan spegilinn.
„En ég ætla ekki að verða leik-
kona.”
„Af hverju ekki?”
„Það er svo margt annað sem
er skemmtilegt. Þetta leikrit er
alveg æðislegt. Annars finnst mér
fullorðinsleikrit yfirleitt betri en
barnaleikrit. „Stundarfriður” er
skemmtilegasta leikrit sem ég
hef séð.”
„Hvað finnst þér skemmtileg-
ast við Óvita?”
„Þegar krakkarnir eru að leika
fullorðna fólkið.”
Og nú er kallað á börnin i
hátalaranum. Allir þurfa að vera
tilbúnir á sinum stað; þegaT gefið
er „útkall” en það er „tveggja
minútna kall” og þýðir að eftir
nákvæmlega tvær minútur fer
tjaldið frá og Sýningin byrjar.
— þs
■^Auglýsið í Þjóðviljanum !
Stýrimaður
Óskum að ráða stýrimann á M.S. Odd, til
linuveiða frá Grindavik. Uppl. hjá skip-
stjóra i sima 92—8218
Bátur
14 feta plastbátur óskast til kaups með eða
án mótors. Ýmsar gerðir koma til greina.
Tilboð er greini verð og tegund, aldur og
lýsingu á ástandi, sendist i pósthólf 119
Kópavogskaupstað fyrir 30. þ.m.