Þjóðviljinn - 24.11.1979, Side 14

Þjóðviljinn - 24.11.1979, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 24. nóvember 1979 Hresst aö vanda! í DAG M.A. 1 ,,Ekki bláeygur bjartsýnis- maður” Aðalviðtal þessa Helgarbiaðs Vfsis er við Arna Bergmann, ritstjóra Þjóö- viljans. 1 spjalli við Jóninu Michaels- dóttur blaöamann, ræðir hann opin- skátt um skoðanir sinar og Ilfshlaup mr** • — \ tJr skáldsögu Aðalheiðar Þjóðkunn kona er nú aö hasla sér völl á nýjum vettvangi. Aöalheiöur Bjarn- freðsdóttir er aö senda frá sér fyrstu m skáidsögu sfna i útgáfu Arnar og \ örlygs. Helgarblaö VIsis hefur fengiö W". jf leyfi tii aö birta kafla úr bókinni. Framleiða gerviskalla Litiö er inn I förðunardeild Þjóöleikhiiss- ins og fylgst með hvernig skallar eru þar framleiddir og iltliti leikara breytt fyrir japanska einþáttunga sem frumsýndir eru um helgina. Þá má nefna............ ... kynnisferö Vfsis um geymsluhúsnæöi Rikisútvarpsins... viötal viö Thaiidomide- barn sem nú hefur eignast heilbrigt barn og sér um uppeldi þess.... ... Sælkerasiðu Sigmars og fleira og fleira atn er komin! Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins Landsráðstefna Æskulýðsnefndarínnar: Unnið að stofnun fé- lags ungra sósíalista Væntanlega boðað til stofnfundar fyrir 1. febrúar næstkomandi Á landsráðstefnu Æskulýðs- nefndar Alþýðubandalagsins var samþykkt að kjósa 8 manna undirbúningsnefnd er starfaði við hlið æskulýðsnefndarinnar við samningu laga og stefnu- skrár fyrir félag ungra sósia- lista. i lögum félagsins skal meðal annars kveöið á um að aliir geti orðið félagar séu þeir ekki f öðrum flokkspólitiskum samtökum en Alþýðubanda- iaginu. Einnig skal þar kveðið á um tengsl hins nýja félags við Alþýðubandalagið. Þá var ákveðið að Æskulýösnefnd Alþýðubandaiagsins skyldi boða tii stofnfundar félags ungra sósialista fyrir lok febrúar 1980. I umræöum á þinginu kom fram að fyrst um sinn yrði stefnt að æskulýðsfélagi á Stór-Reykjavíkursvæðinu er væri sett undir ÆN-AB. Æskulýðsnefndin starfaði áfram eins og nú en einungis sem landsnefnd. Stefnt yrði að samtökum likt og Æskulýðs- fylkingin var á timum Sósialistaflokksins. A þinginu náðist ekki samstaða um hvort félagar i félagi ungra sósialista yrðu skyldugir til að vera i Alþýðubandalaginu, en sá möguleiki var útilokaður að félagar gætu verið i öðrum flokkspólitiskum samtökum en Alþýðubandalaginu. Samkomulag varð um að póli- tiskur grundvöllur æskulýðs- samtakanna yrði stefnuskrá Alþýðubandalagsins. Framkvæmdastjórn Alþýðu- bandalagsins hefur fjallað um niðurstöður landsráðstefnu Æskulýðsnefndar og skipað nefnd til viðræðna við áður- nefnda undirbúningsnefnd, en nánar verðúr fjallað um þær hugmyndir sem fram hafa komið um stofnun félags ungra sósialista i tengslum við Alþyðubandalagið á fundum miöstjórnar og flokksráðs. 1 Æskulýðsnefnd Alþýðubandalagsins eiga sæti Snorri Styrkársson formaður, Guðbrandur Stigur Agústsson ritari, Guðlaug Gisladóttir gjaldkeri, Benedikt Kristjáns- son, Jason Steinþórsson og Sölvi Ólafsson. Nefndinheldurfundi á fimmtudögum kl. 17 að Grettisgötu 3 og eru þeir öllum opnir. Stjórnmálaályktun landsráðstefna stefnu ÆN-AB Heitið á sósíalista og vinstri menn að snú- ast gegn sókn íhaldsins Berjumst fyrir stéttarlegri reisn alþýðu, fyrir sjálfstœðu þjóðríki og fyrir sósíalísku jafnréttisþjóðfélagi A landsráöstefnu Æskulýðs- nefndar Alþýðubandalagsins sem haldin var i lok siðasta mánaðar var samþykkt stjórn- málaályktun sem hér fer á eft- ir: Landsráðstefna ÆNAB minnir á að AB fór i rikisstjórn fyrirári f þeim tilgangi að verja launþega og forða þeim frá af- leiðingum þjóðargjaldþrots, sem við blasti eftir óst jórn Geirs Hallgrimssonar, þrátt fyrir að sósialistar gerðu sér grein fyrir þvi, aðerfittkynniaðreynastað rlá fram neinum grundvallar- breytingum á þjóðfélaginu, ákváðu þeir að reyna stjórnar- þátttöku, ef takast mætti að fá Alþýðuflokkinn og Fram- sóknarflokkinn til að stjórna landinu i samvinnu og meö til- styrk verkalýðshreyfingarinn- ar, þvi miður hefur þetta ekki reynst hægt. Bæði Framsóknar- flokkurinn og Alþýðuflokkurinn hafa ekki séö aðrar leiðir út úr efnahagsöngþveitinu en að skerða kjör launafólks og þannig hefur samráöið við verkalýðshreýfinguna verið næsta lítið. Þð skal á það bent, að innan rikisstjónarinnar hafa verið i undirbúningi mörg mikilvæg mál, sem eru til mik- illa hagsbóta fyrir launafólk meðal annars i húsnæðismálum og i lífeyrismálum og um að- búnað og hollustuhætti á vinnu- stöðum. Með þvi að Alþýðuflokkurinn rauf stjðrnarsamstarfið teflir hann þessum mikilvægu málum launafólks i verulega tvisýnu. Albvðuflokkurinn hefur meö af- , stöðu sinni stefnt kjörum launa- fólks i mikla hættu með þvi að ryðja brautina fyrir hugsanlegri valdatöku Sjálfstæðisflokksins. Sá flokkur hefur þaö á stefnu- skrá sinni að endurskoða vinnu- löggjöfina með þaö fyrir augum að brjóta niöur það afl sem verkalýðshreyfingin er. Ef þetta áform þeirra tekst munu þeir óhindrað koma á kreppu- stefnu I ætt viö þá er Thatcher reynir nú að koma á i Bretlandi. Þeir munu skera niður rikisút- gjöld einkum til félags-, tryggingar- og menntamála. 1 atvinnumálum er ótrú þeirra á islenska efnahagsstefnu algjör. Erlend stóriðja i skjóli banda- rikss hers viröist eina von þeirra ásamt þvi, að láta banda- riska launþega greiða fyrir veru hersins á Miðnesheiði. Islenskum atvinnuvegum verð- ur engu sinnt og atvinnuleysi kann að bíöa fjölda mann eins og á viðreisnarárunum. t fræðslumálum virðist það vera krafa Sjálfstæðisfloksins að koma á lögum i likingu við þau er rikja i Þýskalandi og banna fólki með ákveðnar stjórnmálaskoðanir að stunda kennslu. 1 málflutningi Sjálf- stæðismanna kemur fram, að þeir vilja endurskoða skólalög- gjöfina i þá veru að það verði nú forréttindi hinna efnameiri að fá að stunda langskólanám. Sú hætta blasir viö að með niður- skurði rfkisútgjalda muni Sjálf- stæðisflokkurinn skera niður námslán og styrki til jöfnunar námsaðstöðu fólkseftir efnahag og búsetu. Landsráðstefna ÆNAB heitir á alla islenska sósialista og aðra vinstrimenn að snúast af alhug gegn þeirri hættu er nú blasir við i islensku þjóðfélagi. Fylkjum liði i vaxandi stétta- átökum gegn ihaldi með verka- lýð. Fylkjum liði gegn hug- myndum um stórfelld umsvif erlendra stóriðjufyrirtækja á islandi i skjóli erlends hers. KrefLumst brottfarar Bandarikjahers frá tslandi og úrsögn Islands úr NATÓ. Berjumst fyrir stéttarlegri reisn alþýðu, fyrir sjálfstæðu þjóðriki á islandi og fyrir sósial- isku jafnréttisþjóðfélagi. 1 þeirri baráttu sem framundan er stendur AB ásamt verkalýðs- hreyfingunni frammi fyrir fylkingu hægri aflanna. Nauð- synlegt er að efla vinstri hreyf- ingar a Islandi undir forystu Alþýðubandalagsins sem mest i komandi kosningum þvi úrslit kosninganna ásamt úrslitum i komandi stéttaátökum munu skipta sköpum um kjör launa- fólks og efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar um ókomna fram- tið. BÍLEIGENDUR Þið sem getið aðstoðað starfsmenn Alþýðubandalagsins sem starfa við utan- kjörstaðakosninguna með þvi að aka fólki á k jörstað i Miðbæjarskólanum i dag og á morgun látið heyra i ykkur i sima 17500. Þið þurfið ekki að halda til niðri á Grettis- götu heldur vera i viðbragðsstöðu heima hjá ykkur og tilbúin að fara i eina og eina ferð. Skráið ykkur i sima 17500 á milli klukk- an 9:00 og 22:00 i dag og frá klukkan 14:00 til klukkan 19:00 á morgun. Alþýðubandalagið

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.