Þjóðviljinn - 08.12.1979, Síða 1
UOÐVIUINN
Laugardagur 8. desember 1979 — 269. tbl. 44. árg.
I dag er skiladagur
t dag er skiladagur i Happdrætti Þjóðviljans. Skrif-
stofa Happdrættisins að Grettisgötu 3 verður opin í
allan dag.
Nú eru þeir sem ekki hafagreitt heim-senda miða
hvattir til að gera skil í dag. Einnig eru umboðs-
menn hvattir til að hraða uppgjörum.
Happdrætti Þjóðviljans.
Minnkandi
tollgæsla?
dregið hefur verið úr stötfum
tollgœslunnar með minnkandi
aukavinnu — mun minna hefur verið
tekið af smyglvarningi í ár
en undanfarin ár
Fróðir menn telja að
nú sé meira um smygl-
varning i gangi hér á
landi en venjulega og
hafi raunar svo verið
allt þetta ár. óneitan-
Ragnar Arnalds formaður
þingflokks Alþýðubanda-
lagsins.
Þingflokkur
Alþýðubanda-
lagsins
Ragnar
formadur
Ragnar Arnalds var i gær
kjörinn formaöur þingflokks
Alþýöubandalagsins. Aðrir i
stjórn þingflokksins voru
kjörnir Svavar Gestsson
varaformaður og Skúli Alex-
andersson ritari.
Sighvatur Björgvinsson
hefur veriö kjörinn formaður
þingflokks Alþýöuflokksins,
en þíngflokkur Framsóknar-
flokksins hefur enn ekki
kjörið sér stjórn.
— e.k.h.
lega setja menn þetta i
samband við það að
dregið hefur verið veru-
lega úr störfum toll-
varða, með þvi að skera
svo til alveg niður við þá
aukavinnu. Það er eina
af sparnaðarleiðum
yfirvalda i fyrra. Þá er
það og mál manna, að
tollgæsla viða úti á landi
sé litil sem engin, þar
sem lögreglumenn eru
látnir sjá um hana i stað
tollvarða. Kemur þar
bæði til að lögreglumenn
eru litt hrifnir af þvi
aukaálagi á þá sem
þessu fylgir og eins hitt
að lögreglumenn eru
viða fáir úti á landi og
geta einfaldlega ekki
sinnt þessu sem skyldi.
Við inntum Kristin Ólafsson
tollgæslustjóra eftir þvi hvort
hann teldi aö dregiö hefði úr toll-
gæslu við það að aukavinna toll-
varöa var skorin niður?
Kristinn sagðist ekki geta sagt
ákveðið til um það, en aftur á
móti hefði hann bent á þennan
möguleika, þegar ákveöið var að
minnka aukavinnu tollvaröa. Á
hitt væri að lita, að alltaf yrði ein-
hverju smyglaö hversu margir
sem tollverðir væru og hversu
mikið sem þeir ynnu. En álita
mætti, aö það byði auknu smygli
heim, þegar dregiö væri úr vinnu
tollvarða. Kristinn sagöi það
algerlega I höndum dömsmála-
og fjármálaráðuneytanna hversu
öflug tollgæslan væri.
Þá var Kristinn spuröur um
hvort minna magn af smyglvarn-
ingi heföi verið tekið i ár en
undanfarin ár, meðan eftirvinna
var leyfö. Hann sagði að svo væri
og að þetta ár sem nú er liða
kæmi illa út hvaö þetta varöar,
miðað við árin á undan.
Þvi vaknar sú spurning;er veriö
að draga úr tollgæslu hér á landi
og þá hversvegna? — S.dór
Formenn Alþýðubandalagsins>Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins ræddust við um stjórnarmynd-
unarviðræöurnar i gær og „var jákvæður andi á fundinum”. Ljósm.: eik.
Stjórnarmyndunarviðræður hefjast um helgina
Efnahagsmálin
fyrst á dagskrá
Alþýöubandalagiö hefur þegar skipað i viörædunefnd
Fyrsti viðræðuf undur
formanna Alþýðubanda-
lags, Alþýðuflokks og
Framsóknarf lokks um
stjórnarmyndun var i gær,
og var ákveðið að ganga til
formlegra viðræðna án
tímatakmarka og skilyrða.
Samþykkt var að afla sem
gleggstra gagna. um efna-
hagsástandjð og leggja
f yrst og f remst áherslu á að
kanna hvort samkómu-
lagsgrundvöllur er í
efnahagsmálum áður en
byrjaðar verða umræður
um aðra málaflokka.
Þingflokkur Alþýðubandalags-
ins kaus i gær þriggja manna við-
ræðunefnd og þrjá til vara til þess
að vera f forystu stjórnarmynd-
unarviðræðna af hálfu flokksins. 1
nefndinni eiga sæti Ragnar Arn-
alds, Svavar Gestsson og Guð-
mundur J. Guðmundsson. Vara-
menn þeirra eru Hjörleifur Gutt-
ormsson, Olafur Ragnar Grims-
son og Geir Gunnarsson. Um
helgina verður einnig baknefnd
og ýmsar vinnunefndir á vegum
Alþýðubandalagsins að störfum.
Fyrsti formlegi viðræöufundur
flokkanna verður i dag eða i sið-
asta lagi á mánudag.
Þingflokkur Alþýöuflokksins
hefur ekki skipað formlega viö-
ræðunefnd af' sinni hálfu,en falið
formanni og varaformanni
flokksins að annast viöræðurnar
af sinni hálfu „þar til séð verður
hvort þær leiöa ,til einhvers”,
Stjórn og samninganefnd
Verkalýðsfélagsins Einingar
ræddi daginn eftir kosningar úr-
slit þeirra og gerði eftirfarandi
samþykkt einróma:
„Fundur stjórnar og kjara-
samninganefndar Verkalýðsfé-
lagsins Einingar, haldinn 4. des-
ember 1979, telur úrslit alþingis-
kosninganna 2. og 3 desember s.l.
eins og einn þingmanna flokksins
komst að orði i gær. Formanni
F-amsóknarflokksins hefur verið
faliö að ganga frá skipan við-
ræðunefndar meö svipuöu formi
og Al.þýðubandalagið hefur þegar
gengið frá og var gærkvöldi aö
leggja siðustu hönd á skipan
hennar.
— ekh.
bera með sér ótviræða kröfu kjós-
enda um vinstri stjórn. Þvi skor-
ar fundurinn á þá stjórnmala-
flokka, er stóðu að siðustu vinstri
stjórn, að hefja nú þegar viðræð-
ur af heilindum um myndun nýrr-
ar rikisstjórnar og tryggja þar
með, að landinu verði áfram
stjórnaö i samvinnu við launa-
fólk.”
Stjórn og samninganefnd Einingar:
w
Otylræö krafa um
vinstri stjórn
1 — .. —
[Sjónvarpið Nató Nýjar bækur Vestmannaeyjar Vikuskammtur
Andófið vex Hollensku rikisstjórninni var sl. fimmtudagskvöld fyrirlagt af þinginu að standa gegn hvers- konar ákvörðunum um stað- setningu meöaldrægra kjarna- sprengjueldflauga 1 Vestur- Evrópu, en þær á að taka á ráð- herrafundi NATÓ, n.k. mið- vikudag. Andstaðan gegn fyrir- huguðum breytingum á vopna- kerfi NATÓ f Vestur-Evrópu hefur mjög magnast. Auglýsingar Viö erum mjög óánægðir með þessa löngu auglýsingatima sjónvarpsins og teljum þá til skaða.Menn taka upp á allskon- ar skripalátum til að vekja at- hygli á 20 sekdndna auglýs- ingum I 20 mindtna auglýsinga- timum, segir Halldór Guö- mundsson, formaöur Sambands Isl. auglýsingastofa í samtali við Þjóðviljann. Undirheimar Vfst eru til undirheimar I Reykjavlk, það máttu bóka, segir Jón Birgir Pétursson, áður fréttastjóri, sem nd hefur samið islenska lögreglusögu og tekur nokkurt mið af blaðamennsku reynslu sinni. Og segir að það sé versta starf sem til er að skrifa bækur. Margföld hátið 1 fyrri viku hófst margföld af- mælishátið verkalýðsfélaga I Vestmannaeyjum og Alþýðu- hdssins þar og skapaðist þar gott andrdmsloft og baráttu- legt. Frá þvl segir f máli og þó einkum myndum. Kvenþingmenn Vikuskammtur Flosa veltir upp miklu alvörumáli, sem er firna vinsælt hjá þeim sem háfa þá iðju að spyrja heimskulegra spurninga: Hvað eru konur að gera á þingi? Konur sem eru menn og þingmenn. Og ekki einu sinni kjördæmakosnar f ár, herra minn sæll og trúr!
Sjá baksiðu Sjá 3. siðu Sjá opnu Sjá opnu Sjá 2. siðu