Þjóðviljinn - 08.12.1979, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 08.12.1979, Blaðsíða 9
Laugardagur 8. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 herra veit ekki i hvorn fótinn hann á aö stiga. Meöan hann tvistigur vinna kvennasamtökin markvisst aö þvi aö gera Danners stofnunina aö nýju kvennahúsi. Vegna samstööu og baráttuvilja eru konur i Kaupmannahöfn nú á góðri leiö meö aö eignast tvö kvennahús undir starfsemi sina. Sólrún Gisladóttir. Hver var greifyn j an af Danners? Eða ævlntýrið um lióta andarungann sem varð að faliegum svani Sagna um greifynjuna af Dannerser eins og ævintýriöum ljóta andarungann sem breytt- ist skyndiiega I fallegan svan. Hún fæddist áriö 1815 utan hjónabands og hét þá einfald- lega Louise Christine Rasmussen. Hún ólst upp viö erfiö kjör hjá móöur sinni, sem var þjónustustúlka og ömmu sem var þvottakona og ekkja vinnumanns. Enþrátt fyrir basl og búraunir tókst aö koma Louise i' læri viö ballet Konung- legaleikhússins.Og eins og I öll- um góðum ævintýrum þá varö heppnin á vegi hennar, — I bók- staflegri merkingu. Hún varö nefnilega eitt sinn fyrir þvi láni, þegar hún hoppaöi dansandi út af sviöi leikhússins aö lenda mjúklega á tám manns nokkurs sem átti leið framhjá. Maöurinn var enginn annar en Friörik krónprins og auövitað geymdi hannminningunaum þessalitlu stúlku i hugskoti sinu i mörg ár, eða þar til leiöir þeirra lágu saman áný. En þó Louise hafi veriö svo heppin aö troöa prinsinum um tær, þá er ekki þar meö sagt aö hamingjuhjól hennar hafi sam- stundis tekiö aö snúast. öðru nær.lmörgáráttihún ýmislegt saman við Berling nokkurn bókaútgefanda aö sælda, og þó honum tækist aö eignast meö henni barn þá gat hann ekki bjargað mannoröi hennar meö þviaö giftasthenni. Til þessvar hún af of lágum stéttum. Eftir þetta reyndi Louise aö skapasér sjálfstæöa tilveru sem verslunarkona, en þegar til átti aö taka þá var henni neitað um verslunarleyfi. 1 þessum krögg- um var ekki um nema eitt aö ræöa.og þaö varaö leita til vin- ar Berlings sem var enginn ann- ar en Friörik krónprins. Og nú fyrst stormaöi hamingjugyöjan inn á sviöið. Louise fékk verslunarleyfiö og forretningin gekk glimrandi. Fékk hún m.a. einkaleyfi á höttum sem hægt var aöleggja saman og geyma i Greifynjan af Danners. Myndin er tekin nokkrum árum eftir aö hún giftist kónginum. flötum öskjum. Seldust hattarn- ir eins og heitar lummur. Eii ástin lætur ekki aö sér hæöa. Astir höföu tekist meö Louiseog prinsinum og auövit- aö gat hann ekki veriö þekktur fyrir aö vera i tygjum viö venju- lega verslunarkonu. Louise seldi þvi búöina sina og flutti leynilega til prinsins sins. En prinsinn varö kóngur i riki sinu og áriö 1850 geröist kóngurinn svo djarfur aö giftast Louise sinni, prestastétt og betri borgurum til mikillar armæðu og reiöi. Louise Christine Rasmussen varð greifynjan af Danners, ljóti andarunginn var oröinn aö fallegum svan. En svanurinn gleymdi ekki andarungafortíö sinni. Greif- ynjan af Danners gekk ótrauö fram i þvi aö koma á fót alls kyns stofnunum i þeim tilgangi aölétta fátækum og illa stödd- um stúlkum og konum lifiö. M.a. stofnaði hún barnaheimili sem haföi þaö markmiö aö „veita fátækum og óhamingju- sömum stúlkubörnum fram- færslu, uppeldi og menntun til að veröa duglegar þjónustu- stúlkur.” Tók Louise það skýrt fram aö óskilgetin stúlkubörn heföu þar sama rétt og skilget- in. Siðasta verk Louise áöur en hún dó, var aö setja á fót stofnun þá I Gyldenlovsgade sem í dag nefnist Stofnun greifynjunnar af Danners. Var lagt hart aö henni aö gera þetta aö heimili fyrir ekkjur konunglegra embættis- manna en hún stóö fast á sinu. Þetta átti aö veröa heimili fyrir fátækar komur úr verkalýös- stétt. (Byggt á Köbenhavn) Sóirún Gísladóttir Leikfélag Dalvíkur: Gísl eftir Behan í kvöld, 8. des., frumsýnir Leik- félag Dalvikur irska leikritiö „Gisi”, eftir Brendan Behan, i þýöingu Jónasar Arnasonar, I Samkomuhúsi Dalvikur Æfingar hófust um miðjan september og upphaflega var áætlaö aö frumsýna um miöjan nóvember, en vegna veikinda varð að fresta frumsýningu. Verkið er skrifaö 1956 og fjallar um frelsisbaráttu íra. Inn i verkiö er fléttað irskum þjóðlögum og ýmsum spaugilegum uppákom- um. Leikritið var sýnt i Þjóðleikhúsinu 1963 og hjá Leikfélagi Akureyrar 1968. Einnig hafa nokkur áhuga- leikfélög tekið þaö til sýningar. Milli tuttugu og þrjátiu manns hafa unniö viö sýninguna, þar af 14 i hlutverkum. 1 aðalhlutverk- um eru Ömar Arnbjörnsson, Svanhildur Arnadóttir, Lárus Gunnlaugsson og Lovisa Sigur- geirsd. Undirleik annast Ingólfur Jónsson á harmonikku. Kristján Hjartarson gerði leikmynd. Um lýsingu og leikhljóö sjá Helgi Már Halldórsson og Lárus Gunnlaugs- son. Leikstjóri er Sólveig Halldórsdóttir frá Akureyri. Næstu sýningar veröa mánudag, þriðjudag, föstudag og laugardag og veröa ekki feiri sýn- ingar fyrir jól. Fyrirhugaö er aö sýna milli jóla og nýárs. NY LEIKFANGAVERSLUN k)5Ó AUSTURSTRÆTI 8 TRYGGVI EMILSSON FYllI R SUNNAN Þriðja og siðasta bók þessara stórmerkilegu ævi- minninga komin út. * Mál og menning

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.