Þjóðviljinn - 08.12.1979, Síða 7
Laugardagur 8. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
NYR IRSKUR FOR-
SÆTISRÁÐHERRA
Dublin (Reuter) sambandið við Bretland
Chharles' Haughey var í
gær kjörinn formaður af
rikisstjórnarf lokknum
Fianna Fail í frlandi og
verður hann því næsti for-
sætisráðherra frlands.
A Norður-lrlandi töldu
ýmsir þeir sem aðhyllast
Nóbels-
verðlaun
1 lækna-
vísindum
afhent á
mánudag
Stokkhólmur( Reuter)
Nóbelsverðlauna-
hafarnir í læknavísind-
um á þessu ári sögðu í
Stokkhólmi i gær, að
þeir hefðu fengið
hundruð bréfa frá
sjúklingum sem segð-
ust eiga líf sitt að
þakka tölvustýrðum
röntgentækjum, sem
þeir fundu upp.
Dr. Allan Cormack frá
Bandarikjunum og Godfrey
Hounsfield frá Bretlandi
munu taka vib verölaunun-
um á mánudaginn kemur.
TölvuvæBing röntgentækja
hófst fyrir tiu árum og gerir
læknum kleift aö skoða ein-
stök liffæri i þvividd, hvort
sem þau eru umlukin beinum
eða ekki. Byggist tæknin á
þvi að örþunnar röntgen-
sniðmyndir eru skeyttar
saman af tölvubúnaði, þann-
ig að heilleg mynd fæst.
Hounsfield spáöi þvi i
Stokkhólmi aö innan
skamms muni fást myndir
úr þessum tækjum jafn
skarpar og ljósmyndir.
kosningu Charles Haughey
ill tíðindi. Forystumenn
mótmælendatrúarmanna
staðhæfðu að Haughey
hafi aldrei opinberlega
sagt styggðarorð um írska
lýðveldisherinn (IRA).
Haughey var handtekinn og
leiddur fyrir dómstól árið 1970,
ákærður um að hafa átt þátt i
samsæri um að nota 30.000
sterlingspund i eigu rikisins til að
kaupa vopn fyrir IRA. Hann var
þá fjármálaráðherra Irlands og
hélt staðfastlega fram sakleysi
sinu. Haughey var sýknaður.Jack
Lynch sem nú lætur af embætti
forsætisræaðherra, svipti Haug-
hey samflokksmann sinn em-
bætti f jármálaráðherra á þessum
tima.
Nýi forsætisráðherrann hefur
frá þvi 1970 engar yfirlýsingar
gefið um samband Norður-tr-
lands og irska rikisins, en ýmsir
telja að hann muni leggja hart að
bresku rikisstjórninni að binda
endi á hin blóðugu átök. Bretland
rikti yfir öllu trlandi til ársins
1921 og hefur nú 14.000 hermenn á
Norður-trlandi.
Að undanförnu hefur dregið úr
þeim hraða hagvexti sem Irland
átti að fagna á undanförnum ár-
um, verðbólga hefur færst i auk-
ana og verkalýðshreyfingin hefur
haldið uppi harðri baráttu.
Miljónamæringurinn Haughey
mun þvi þurfa að leggja áherslu á
lausn efnahagsvandans þegar
hann tekur við n.k. þriðjudag.
Jack Lynch fráfarandi for-
sætisráðherra sagði i gær, að
hann byggist ekki við að stefna
Fianna Fail-flokksins og
stjórnarinnar breytist, þótt
Haughey taki við. Lynch hefur i
embættistið sinni stefnt að frið-
samlegri sameiningu trlands og
Norður-trlands og ekki viljað að
breski herinn færi fyrr en sættir
hafi tekist milli deiluaðila á írsku
eyjunni.
Siðar í gær lýsti Charles
Haughey yfir að stefna írsku
rikisstjórnarinnar muni lítt
breytast hvað snertir Norður-Ir-
land. Hann sagði að einungis yrði
um að ræða áherslubreytingar,
en hann teldi friðsamlega sam-
einingu íbúa irsku eyjarinnar
meginbaráttumál sitt. Haughey
sagðist fordæma IRA og allar að-
geröir lýðveldishersins.
Frábœr frammistaða
íslenskra judomanna
Sigurður Hauksson komst i 3. umferð
Jack Lynch fráfarandi forsætis-
ráðherra trlands.
Sigurður Hauksson júdó-
maður náði frábærum
árangri á heimsmeistara-
mótinu í júdó, sem nú fer
fram í París. Hann komst i
3. umferð í millivigt (undir
85 kg) en varð þá að láta i
minni pokann fyrir
Carmona frá Brasilíu. I 2.
umferð sigraði Sigurður
Bessi frá Monaco.
Þessi árangur Sigurðar Hauks-
sonar er án efa einn sá besti sem
islenskur júdómaöur hefur náð I
alþjóðlegri keppni og verður
vafalitið júdð-iþróttinni til mikils
framdráttar hér á landi. Þess má
geta, að I 3. umferð voru einungis
16 keppendur eftir af 64 sem hófu
keppni.
Halldór Guðbjörnsson keppti i
létt-millivigt (undir 78 kg) og I 1.
umferðinni sigraði hann
Hadidjanja frá Indónesiu. t 2.
umferð beið Halldór ósigur fyrir
Sovétmanninum Kharbarelli.
Þessi árangur hans er einnig
mjög góður og undirstrikar mikl-
ar framfarir islenskra júdó-
manna.
-IngH
Sænskur
njósnari í
lífstíðar-
fangelsi
Stokkhómur 8reuter)
Fyrrverandi sænskur öryggis-
vörður var i gær dæmdur i lifstlð-
ar fangelsi fyrir að selja Sovét-
rikjunum leyndarmál um varnir
Sviþjóöar.
Stig Bergling var sakfelld-
ur fyrir að selja skjöl um sænsku
leynilögregluna, sem hann starf-
aði við og um varnarmál Sviþjóð-
ar á árunum 1973 til 1977.
Saksóknari sagði að athæfi
Berglings væri alvarleg ógnun viö
sænsku þjóöina og krafðist lifs-
tiðarfangelsis. Bergling lýsti sig
sekan um flesta ákæruliði. Hann
var handtekinn i tsrael i mars
s.l., þegar hann starfaði fyrir
Oryggissveitir Sameinuðu þjóð-
anna og framseldur til Sviþjóðar.
Dómarinn i málinu, Torsten
Cars, sagði að ævintýraþrá og
peningagræðgi Berglings hefðu
gert hann að njósnara.
Starfsmenn S.Þ.
mótmæla fangelsunum
starfsfélaga sinna
Sameinuðu þjóðirnar (Reuter)
Fjölmennur fundur starfs-
manna Sameinuðu þjóðanna I
New York skoraöi i gær á Kurt
Waldheim aöalframkvæmda-
stjóra, að veita aðstoð sex
starfsfélögum sinum sem haföir
eru I haldi i heimalöndum.
Fundur 500 starfsmanna sam-
þykkti ályktun sem fyrirmunar
öllum 6.000 starfsmönnum Sam-
einuðu þjóðanna i ýmsum rikj-
um að láta flytja sig milli
starfa. Gildir þessi ákvörðun,
þar til samband hefur náðst við
innlenda starfsmenn Sam-
einuðu þjóðanna sem fangelsað-
ir hafa verið í Póllandi, Chile,
Eþiópiu, Argentinu og
Afghanistan.
Ercam Murat, formaður
starfsmannafélags Þróunarað-
stoðar Sameinuðu þjóðanna,
sagöi fundinum, að Sameinuðu
þjóöirnar geti i samræmi við úr-
skurð Alþjóðadómstólsins frá
1949 krafist skaðabóta af rlki
sem hefur handtekið starfs-
mann Sameinuöu þjóðanna.
Iransklerkur lætur
myrda fjölskyldumann
keisarans í París
Paris, Teheran (Reuter)
Byssumaður skaut stjúpson
tviburasystur fyrrum trans-
keisara til bana á götu I Paris 1
gær. transki klerkurinn Sadeq
Khalkhali lýsti sig ábyrgan
fyrir drápinu.
Mustapha Chafik sjúpsonur
Ashraf Pahlevi fyrrum prins
essu i tran, var myrtur með
tveim skotum I höfuðið nálægt
búðstað prinsessunnar fyrr-
verandi. Morðinginn slapp á
braut.
Ashraf Pahlevi var náinn
samstarfsmaður fyrrum
Iranskeisara á valdatima
hans. Hún var um tlu ára skeið
sendiherra tran hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Núverandi
valdhafar I íran hafa þegar
reynt að fá hana framselda frá
Svisslandi.
Ayatollah Khalkhali sagði i
gærkvöldi að byssumaðurinn i
Paris væri meðlimur i
islömsku skæruliðasamtökun-
um Fedayeen, sem hann
stjórnar.
Um aldabil var Rússland vesturlanda-
búum mikil ráðgáta.
Þetta breyttist ekki með stofnun Sovét-
rikjanna 1917.
Fjölmargar bækur hafa verið ritaðar um
sögu Sovétrikjanna, en við fullyrðum að
engin þeirra likist þessari bók.
Hún opnar okkur nýjan heim og er
dýrmætur fengur þeim, sem vill öðlast
skilning á þessari leyndardómsfullu þjóð.
Bók Arna er i senn uppgjör hans við
staðnað þjóðskipulag og ástaróður til
þeirrar þjóðar sem við það býr.
Mál og menning l|!jl
Árni Bergmann
Miðvikudagar í
Moskvu