Þjóðviljinn - 08.12.1979, Qupperneq 13
Laugardagur 8. desember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Kammersveit Reykjavikur:
18. aldar verk á
jólatónleikum
Kammersveit Reykjavíkur
heldur jólatónleika sina á sunnu-
dag 9. desember, klukkan 17 i
Bústabakirkju. A efnisskránni
eru eingöngu verk frá átjándu
öld.
Tónleikarnir hefjast á konsert i
a-möll eftir Vivaldi fyrir óbó,
tvær fiðlur, cello og sembal. Þá
verður fluttur kvintett eftir
Jóhann Wilhelm Hertel fyrir
trompett, tvö óbó og tvö fagott.
Siöan fyltja fiauta, óbó, fagott og
samball trió i g-möll eftir Vivaldi
og tónleikunum lýkur með kvint-
ett i D-dúr eftir Johann Christian
Bach og er hljóðfæraskipanin
flauta, óbó, fiðla, lágfiðla, cello og
semball.
Alls koma ellefu hljóðfæra-
leikarar fram á tónleikunum.
betta eru aðrir tónleikar
Kammersveitar Reykjavíkur á
sjötta starfsári hennar, en sú hefb
hefur skapast, að sveitin leiki
barok-tónlist i tilefni jólanna i
Bústaðakirkju.
Aðgöngumiðar verða seldir viö
innganginn.
Kammersveit á æfingu
Lokasýning „A sama
tíma að ári”
Háskólakórinn
syngurjyrir
Suðurnesjabúa
og Hajhjirðinga
Háskólakórinn heldur jólatón-
leika á Suðurnesjum og í Hafnar-
firði nú um helgina og á söng-
skránni eru gömul og ný jólalög.
Laugardaginn 8. desember
syngur kórinn i Ytri-Njarövikur-
kirkju og sunnudaginn 9. desem-
ber i Þjóðkirkjunni i Hafnarfiröi.
Tónleikarnir hefjast kl. 17 báöa
dagana.
Stjórnandi Háskólakórsins er
Rut Magnússon. Aðgangur er ó-
keypis fyrir börn 13 ára og yngri
og fyrir ellilifeyrisþega, en fyrir
fullorðna kostar miðinn 1500
krónur.
Aöventu-
kvöld í
Kópavogs-
kirkju
Nú er aðventan gengin i garð,
undirbúningstiminn undir komu
jólanna. A jólaföstu minnir kirkj-
an á konung lifsins sem stendur
við dyrnar og knýr á hug og
hjarta hvers manns til þess að
opna hann fyrir undri lifsins, seg-
irifrétt frá Kópavogskirkju, sem
boðar til aðventuhátiðar n.k.
sunnudagskvöld 9. desember.
Digranes- og Kársnessöfnuöur
efna aö þessu sinni sameiginlega
til aðventukvöldsins og hefst það
kl. 20.30 i Kópavogskirkju. Að
venju veröur boðiö upp á fjöl-
breytt dagskrárefni. Ræðumaður
kvöldsins verður dr. Gylfi Þ.
Gislason prófessor og Róbert
Arnfinnssonleikariflytur ljóð, ort
i tilefni jóla. Tónlistin verður i
höndum Þóru Guðmundsdóttur
organista og kirkjukórsins. Þá
koma fram nemendur Elisabetar
Erlingsdóttur úr Tónlistarskóla
Kópavogs og einnig syngja þrjár
stúlkur án undirleiks. Samkoman
endar með andagtog fjöldasöng.
Kvennadei/d
Skagfiröinga-
félagsins meö
basar um helgina
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins i Reykjavik heldur jóla-
basar i félagsheimili sinu að Siðu-
múla 35 sunnudaginn 9. des. kl.
ló.Þar verðurá boðstólum margt
eigulegra muna og vörur til jóla-
gjafa, sem konurnar hafa unnið
aö undanförnu. Einnig verða til
sölu kökur með jólakaffinu.
Jólafagnaður félagsins verður
á sama stað miðvikudaginn 12.
des. og hefst meö borðhaldi kl.
19.30. Flutt verður fjölbreytt
skemmtidagskrá.
Stjórnin.
A sunnudagskvöld eruallra sið-
ustu forvöð að sjá bandariska
gamanleikinn A sama tima að ári
i Þjóðleikhúsinu. Fáar leiksýn-
ingar hafa notið viðlika vinsælda
og verður lokasýningin 140,'Sýn-
ing á verkinu.
Bessi Bjarnason og Margrét
Guömundsdóttir fara með hlut-
verk skötuhjúanna sem hittast
árlega á sveitahóteli og þar eð
leikritið spannar yfir 25 ár fáum
við, auk alls grinsins, að fylgjast
með breytingum sem verða á
högum þessara tveggja persóna
og öðlumst innsýn i ýmis tísku-
fyrirbrigði i bandarisku þjóðlifi
síöasta aldarfjórðunginn.
LeikstjórierGisli Alfreðsson og
leikmyndin er eftir Birgi Engil-
berts.
Stúdiosus: Hreinn Guöbjörnsson, Charlie Brown: Sigurjón Skúlason og
Hálendingurinn: Unnsteinn Kristinsson
í Gardinum i kvöld:
Þið munið hann Jörund
Sérstök kynning á leikstarfsemi var haldin
fyrir unglinga
1 kvöld verður frumsýnt i Sam-
komuhúsinu i Garöinum leikritiö,
„Þið muniö hann Jörund” eftir
Jónas Arnason. Hefur Litla Leik-
félagið þar enn ráöist i stórt verk-
efni, en 15 leikarar taka þátt i
sýningunni, leikstjóri er Jakob S.
Jónsson.
Leikritið er eins og allir vita um
Jörund Hundadagakonung, en
höfundur kallar það ósögulegt
ævintýri með söngvum frá liöinni
tið. Er þá litið fjallað um staö-
reyndir, en sagt frá valdaráni
veikgeöja sjómanns, sem lætur
stjórnast af ævintýramanni. Inn i
þetta fléttast söngvar sem uröu
landsfleygir hér á árunum, er
Iönó sýndi þennan leik og ölllögin
voru gefin út á hljómplötunni
„Eitt sumar á landinu bláa” með
Þrem á palli.
4. desember var opin æfing
fyrir Leikfélag Gagnfræðaskól-
anna i Keflavik og Garðinum og
mættu 30 unglingar sem var sýnt
allt sem að undirbúningi leiksýn-
inga viðvikur. Voru tvær stúlkur
úr hópnum farðaðar og vakti það
að vonum mikla hrifningu. Einnig
var þeim sýnt hvernig búningar
veröa til en flestir búningar eru
saumaðir af konum úr Leikféiag-
inu. Hafa þær þurft að leggja nótt
við dag að undanförnu við að
klára þá. Krakkarnir sáu siðan
part úr leikritinu. Er þetta ný-
mæli sem fleiri leikfélög mættu
taka upp til að auka áhuga barna
og unglinga á leikstarfsemi.
Litla Leikfélagið er einnig að
hefja æfingar á Barnaleikriti.
Það heitir „Spegilmaðurinn”
eftir Brian Way og er það þýtt af
félögum leikfélagsins og verður
þvi frumflutt hér á landi. Leikrit-
ið er hins vegar mjög auðvelt i
uppsetningu og er nýstárlegt að
þvi leyti að það er leikið á gólfinu
á meðal áhorfenda, sem fá að
taka þátt i leiknum og er þá mið-
að við áhorfendur á aldrinum 4ra
—10 ára. Ætla félagsmenn sjálfir
að leikstýra þessu verki i hóp-
vinnu og er stefnt að frumsýningu
i febrúar.
Ein Chagall-myndanna á sýningunni — Ljósm. GEI
Myndkynning á Kjarvalsstöðum:
Grafík margra meistara
Chagall, Miró, Picasso,
Vasarely — allt fræg nöfn, en
flestir hafa þó aöeins séö myndir
þeirra i bókum eöa i besta falli
eitt og eitt verk á söfnum erlend-
is. Þaö er þvi ekki ónýtt aö fá aö
sjá orginal grafik eftir þessa
meistara og fyrir þá fjársterku —
geta meira aö segja fest kaup á
sliku.
Það er Myndkynning sem
stendur nú i fjórða sinn fyrir
grafiksýningu á Kjarvalsstööum
og eru á henni verk eftir alls 33
listamenn, þ.á.m. einn islenskanf
Erró. Verkin hafa verið gerö i frá
50uppi 220 eintök og verðlagið frá
70 þúsundum allt uppi 5 miljónir
sem er dýrasta myndin eftir
Chagall.
Sýningin veröur opnuð kl. 2 i
dag, laugardag og stendur I
i.m.k. tvær vikur.
— vh
HAUSTROKKRIÐ YFIR MER
eftir Snorra Hjartarson
Stærsti viðburður á íslenskum bókamarkaði
Hauströkkur sem fer að ! lifi manns og heims,
temprað af unaði náttúrunnar og heiðríkju og
kyrrð hins fyrsta vors i endurminningunni.
Fyrsta bók þessa listfenga skálds eftir 13 ára hlé.
Mál og menning