Þjóðviljinn - 15.12.1979, Page 1
UOWIUINN
Laugardagur 15. desember 1979 — 275. tbl. 44. árg.
Ólafur Ragnar Grímsson um herstöðina í Keflavík
• •
LYKILSTOÐ í
E-3A Awacs, Keflavlk, september I fyrra.
kjarnorku-
yopna
kerfi
USA
„Eftir þvl sem meiri
upplýsingum er safnað, veröur
það ljósara að Bandarlkin hafa
smátt og smátt á siðari árum gert
herstööina hér að lykilstöð I
kjarnorkuvopnakerfi sinu á N-
Atlantshafi”, sagði Ólafur
Ragnar Grimsson alþingismaður
um þá frétt Þjóðviljans I gær að
E-3A herflugvélarnar á Kefla-
vikurflugvelli eru fljúgandi
stjórnstöövar fyrir kjarnorku-
styrjöld og staðsetning þeirra hér
á iandi er sönnun fyrir árásar-
hlutverki herstöövarinnar á Mið-
nesheiði.
„Megineinkenni hernaðar-
uppbyggingar stórveldanna á slö-
ustu tveimur áratugum er þróun
viðtæks kjarnorkuvopnakerfis og
vopnin sjálf, þ.e. sprengjurnar,
eru aðeins hluti af þvi kerfi”,
sagði Ólafur. „Tækniþróunin
hefur gert ýmsan annan búnað
jafn mikilvægan og I sumum til-
fellum mikilvægari en sjálfar
sprengjurnar. A þessum tlma
hefur herstöðin i Keflavik breytt
um eöli i grundvallaratriðum og
hún er nú að þvi virðist orðin
lykiltenging i þvi kjarnorku-
vopnakerfi sem Bandarikin hafa
smátt og smátt byggt upp hér á N-
Atlantshafi. Hér er þvi greinilega
um kjarnorkuvopnastöð aö ræða,
þó enn hafi ekki fengist nein skýr
svör um það frá bandarlskum
yfirvöldum hvort hér hafi veriö
eða séu hreyfanlegar kjarnorku-
sprengjur, en eins og kunnugt er
hafa bandarisk stjórnvöld ætið
neitað að gefa skýr svör viö
slikum spurningum.
Islensk stjórnvöld hafa til
skamms tima ekki reynt á sjálf-
stæðan hátt aö afla upplýsinga
um þessar breytingar á eðli her-
stöðvarinnar i Keflavik. Þáttaskil
urðu hins vegar að þessu leyti i
upphafi þessa árs, þegar svo-
kölluð öryggismálanefnd tók til
starfa i samræmi viö samkomu-
lag flokkanna þriggja, sem
mynduöu siðustu vinstri stjórn. A
Framhald á bls. 17
LIF
OG
FJÖR
Þaö var mikiö um að vera á torginu og I Austurstræti I gær þegar hundruð Reykvlkinga notuðu bliö-
viðrið til þess að versla fyrir jólin. í dag verða allar verslanir opnar fram til kl. 22 og eflaust verður llf og
fjör Ibænum fram til þess tlma. — Ljósm.gel.
Minnkandi
tollgæsla
segir til sín:
Hvers-
konar
smygl fer
vaxandi
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá
fyrir nokkrum dögum, hefur
veriö dregið verulega úr fjárveit-
ingum til tollgæslu i landinu með
þeim afleiðingum að skera hefur
þurft niður aukavinnu tollvarpa,
en aukavinna þeirra stafar fyrst
og fremst af þvi að þeir eru of fá-
ir. Kristinn Ólafsson tollgæslu-
stjóri sagði I samtali við Þjóðvilj-
ann á dögunum, að margfalt
minna hefði verið tekiö af smygi-
varningi I ár en undanfarin ár,
þar kæmi samanburöur ekki til
greina. En það var einmitt á
þessu ári, sem aukavinna toll-
varða var skorin niöur.
I viðtali viö eitt dagbiaöanna i
gær segir Guömundur Gigja lög-
reglufulltrúi viö fikniefnadeild
lögreglunnar að smygl á eitur-
lyfjum hér á landi fari vaxandi,
jafnvel heróin sé farið að nota
hérlendis, islensk ungmenni hafi
látist af eiturlyfjaneyslu og að 4
þúsund ungmenni hafi komið við
sögu i fikniefnamálum hér á landi.
Fólk hlýtur þvi að spyrja, hvaö
er að gerast hér? Erum viö svo
fátækir Islendingar að við höfum
ekki efni á eðlilegri tollgæslu?
— Að visu svara ég ekki fyrir
tollgæsluna, hún heyrir undir
fjármálaráöuneytið, en það er
alveg ljóst að þetta getur ekki
gengiö til svona, hér er á ferðinni
mál sem veröur að skoða alveg
niöur i kjölinn og ef minnkandi
aukavinna tollvaröa er hér meiri-
háttar vandamál, verður að
reyna að fá þvi breytt, sagði Vil-
mundur Gylfason dómsmálaráð-
herra er viö spurðum hann álits á
þessu máli i gær. Hann bætti þvi
við aö úlfakreppa i þessum mál-
um mætti ekki eiga sér stað, mál-
iö yröi að taka fyrir.
Þvi miöur náðum við ekki i Sig-
hvat Björgvinsson fjármálaráö-
herra i gær, en tollmálin heyra
undir fjármálaráöuneytiö, sem
fyrr segir og það hefur skorið
hættulega mikið niöur fjárfram-
lög til tollgæslunnar. _ s
-
■ .: B23EBSE1HHB mtáT^ssúmm
Fristundamálarar A Akureyri sem og viöar f jölg- ar þvi fólki óðum sem fæst við myndlist, en til þessa hefur al- menningsþátttaka I listum mest beinst aö kveöskap og leiklist. Hópur sllkra áhuga- manna hefur efnt til sýningar fyrir norðan. Sjá viðtal viö Guöjón Alberts- son Hresst sögufélag Sögufélagið er með eldri út- gáfufélögum og hefur kastað ellibelg með óvenju miklum umsvifum. M.a. kemur út bók eftir Einar Laxness um Jón Sigurðsson. Ragnheiöur Þor- láksdóttir framkvæmdastjóri segir frá félaginu. Jól sungin inn Jólanánd setur mikinn svip á tónlistarlifiö um þessa helgi. Flýtt er fyrir komu þeirra með söng og annarri tónlist hjá Háskólakórnum, Tónskóla Sigursveins og I tveim kirkj- um. Nánar á siðunni Um helg- ina. Breskt auðmagn Rikisstjórn Ian Smith lokaði all- ar breskar fjárfestingar inni i landinu eftir að lýst var yfir við- skiptabanni áriö 1966. Mis- munandi hagsmunir breskra fjármagnseigenda hafa togast á um lausn Ródesiu-deilunnar. Óvissa Nýju skattframtalseyðublöðin eru á leiöinni og „vona” menn að almenningur átti sig á þeim. Margt er enn I óvissu um framkvæmd nýju skatt- laganna. Sérsköttun hjóra mun aðeins ná til hluta af tekj- um þeirra.
Sjá opnu Sjá opnu Sjá 13. siðu Sjá siðu 5 Sjá baksiðu