Þjóðviljinn - 15.12.1979, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 15.12.1979, Blaðsíða 7
Laugardagur 15. desember 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 Sjö stelpur á E Reyðarfirði Leikstjóri, leikarar og leiksviösmenn. Leikfélag Reyöarfjaröar sýnir Sjö stelpur eftir Erik Thorstensson Leikstjóri: Kristfn Anna Þór- arinsdóttir. Leiksýning úti á landsbyggö- inni er ævinlega meö mestu menningarviöburöum þar, stund- um sá eini raunar, en þvi meiri þá og eftirtektarveröari. Uppskeran hlýtur ætlö aö vera misjöfn, en hitt fer ekki milli mála, aö á bak viö leiksýninguna liggur mikiö og óeigingjarnt starf margra, unniö af áhuga og leikgleöi og sem beturferoftastaf ærinni Iþrótt, ef viö áhugafólk er miöaö og stund- um þarf þá viömiöun ekki. Sveitungar minir sýndu nýlega vandasamt og umhugsunarvert verkefni, Sjö stelpur eftir Erik Thorstenson, leikrit, sem ég haföi séö hér I Þjóöleikhúsinu og sem ég sá aö kraföist mikillar vinnu og styrkrar og nærgætinnar leik- stjórnar, ef takast ætti aö koma þvi vel til skila. Vandamál stúlkn- anna á upptökuheimilinu er miklu nær okkur en viö viljum vera láta, og þó mér þyki höfundurinn ekki sýna nógu vel undirrót hvers vandamáls, þá má lesa milli lln- anna, og nakinn raunveruleikinn getur endurspeglast I næsta nágrenni okkar, ef viö gætum vel aö. Drykkjusýki, eiturlyfja- neysla, hippasöfnuðir, heimilis- vandi, sem bitnar á börnunum, svo dæmi séu tekin, nálægöin er meiri en svo aö viö getum meö góöu móti sagt, þetta á ekki viö okkur, þessu erum viö svo fjarri. Þó hafa leikendur sagt mér, að þessi hafi verið viöbrögö margara leikhúsgesta. Þaö kem- ur I engu á óvart, tilhneiging okk- ar er sterk til aö lúta þvl sem meistarinn sagöi forðum : sjáandi sjá þeir ekki og heyrandi heyra Steinunn Þ. Guömundsdóttir. Nidur fljótsins - safn smásagna Niöur fljótsins heitir safn smá- sagna eftir Steinunni Þ. Guö- mundsdóttur sem nýlega er kom- iö út. Höfundursegir svo frá, aö smá- sagan haf i oröiö sér kær af þvl aö „hún er llk stuttri ferð þar sem huldir atburðir gerast fyrirvara- laust. Hún dregur upp svipmynd- ir minninga og reynslu.” Bókin geymir nítján smásögur. Tvær þeirra hafa hlotiö verölaun. Onnur I Eimreiöinni; sú heitir „Bláa skelin”og fjallar um göm- ul hjón sem eru „fyrir skipu- laginu” einsogþaö heitir; borgin er aö stækka, kofinn þeirra verö- ur aö vikja. Hin verölaunasagan kom fyrst I Heima er best, hún heitir „Myndir minninganna’ og fjallar um jól bernskunnar og hugblæ þeirra. þeir ekki. A sama hátt höfum viö vanrækt samhjálp og raunverulegan náungakærleik, þannig aö vanda- málin hafa oröiö verri og meiri en annars heföi þurft aö vera. Sjálfs- elska okkar blindar okkur og þegar ár fatlaöra gengur nú I garö mættum viö viö gjarnan llta okkur nær og framkvæma I staö fagurra oröa, sem oft eru látin nægja sem allsherjar friöþæging okkur til handa, sem viö góöa heilsu og góö kjör búum. — En þetta var útúrdúr. — Leikdóm ætlaði ég ekki aö skrifa, en svo undarlegt lán var þaö, aö mitt I sautján funda framboösbaksi gat ég verið laus eitt kvöld og þaö kvöld frumsýndu Reyöfiröingar einmitt Sjö stelpur. Þaö var mér óblandin ánægja aö sjá þetta verk svo vel unnið, svo heilsteyptan leik og sannfær- andi, svo ágæta leikstjórn, sem skilaöi aö mlnu mati þvl besta hjá hverjum og einum. Kristln Anna lagöi jafnmikla alúö viö heildar- svipinn sem hvert einstakt atriöi, hvern einstakling. Þaö fór ekki framhjá neinum aö þaö haföi veriö hugaö aö öllu, smáu sem stóru,og þaö var aðal þessarar sýningar, en mjög leiftrandi til- þrif leikenda glöddu auga og eyra sannarlega. Hlutverkin eru mörg og marg- visleg og erfiö I túlkun. Ég hlýt aö segja þaö aö meö öll var vel farið og af skilningi og nærfærni. Af mörgu væri aö taka, ef segja ætti frá hverjum einstökum, en aöeins minnt á þau hlutverk, sem mest tilefni gáfu til leiks og þess getið, hvernig meö var fariö. Hæst ber leik Bryndlsar Steinþórs I hlut- verki Barböru, dópistans, sem var svo framúrskarandi aö ég hefi tæpast séö betur gert af áhugaleikara. Innlifun og tilþrif, sem og túlkun öll var sllk. Þórir Gíslason I Svegasi er marg- reyndur leikari, sem oft áöur hef- ur sýnt þaö, aö hann gefur I engu atvinnumönnum eftir, geröi slnu hlutverki einstaklega trúveröug og góö skil. Þá er aö geta þeirra sérstaklega: Helgu Guömunds- dóttur, Sigrlöar ólafsdóttur og slöast en ekki slst Margrétar Traustadóttur, sem allar léku meö ágætum, hver á sinn hátt. Margrét hefur einkar góöa rödd, og hafi menn ekki áöur séö ósvik- inn hippa undir áhrifum frá einhverjum fjarlægum guöi, þá sýndi Margrét hann vel. Rúnar Sigurjónsson geröi erfiöu hlutverki hin bestu skil, og sýndi sannfærandi leik, og sama má um aöra segja: Alfheiöi Hjaltadóttur og Hörö Þórhalls- son, sem túlkuöu sín hlutverk vel, en bæöi hafa áöur sýnt hin ágæt- ustu leiktilþrif og eru meö traustustu leikurum okkar, hvort sem um er aö ræöa gaman eöa alvöru.. Þá er aö geta tveggja nýliöa með lítil hlutverk, sem skiluöu sér meö prýöi mikilli, þær Guölaug Metúsalemsdóttir og Geröur Ósk Oddsdóttir. Af þeim" má mikils vænta. Oft er um þaö rætt, þegar leikdómar af þessu tagi koma á prent, aö þar ráöi lofið eitt feröinni. Hér er um veröskuldaö lof aö ræöa, en hinu er I engu gleymt þar fyrir, aö óneitanlega má margt aö finna, margt mætti betur fara, en svo má gjarnan segja um margar atvinnumanna- sýningarnar og á þessari sýningu voru svo sára fáir hnökrar miðað viö áhugafólk, aö ég er ekki maður til aö finna þar aö. Slik áhrif haföi sýningin I heild á mig, vakti mér gleöi, umhugsun og oft á tiöum hreina unun. Til hamingju, kæru sveitungar og ágæti leikstjóri, öll þiö sem á leiksviöi sem utan lögöuö hönd aö og geröuö þetta aö ótviræöum leiksigri á tuttugu ára leikfélags- afmælinu. Veröug afmælisgjöf og vekurupp marga gamla minning, sem i muna geymist. Heill og hamingja fylgi ykkur. örlitil viðbót við leikdóm Hugurinn hverfur til baka. Tuttugu ár eru liðin slöan lítill, samstilltur hópur kom saman I gamla skólanum heima og stofn- aöi Leikfélag Reyöarfjaröar. Kveikjan var sýning voriö 1959 á Delerium bubonis eftir þá bræður Jónas og Jón Múlá Arnasyni, sýning sem tókst meö ágætum miöaö viö aöstæöur. 1 tuttugu ár hefur svo margt veriö gert, ágætar leiksýningar, góöar kvöldvökur fyrir eldra fólk, en fyrst og síöast mikil og óeigin- gjörn vinna margra. Ég nefni leiksýningar eins og Júpiter hlær, Grátsöngvarann, Allra meina bót, Drauglestina, Forrikan fátækling, Járnhausinn og Sólar- ferö. Innlend og erlend leikrit til skiptis, misjöfn aö gæöum og meöferö allri, að sjálfsögöu, en engu aö síöur merkileg afrek, hvert á sinn hátt. Og nú er starfiö I blóma og menn hyggja á nýtt verkefni. En þegar rétt er skyggnst til baka þá verða tvö nöfn svo yfir- þyrmandi sterk I huga mér, aö ég hlýt aö staldra þar viö. Fyrsti formaöurinn, eldhuginn og félagsmálafrömuöurinn minn kæri vinur og félagi Sigfús heitinn Jóelsson, skólastjóri, llfiö og sálin I öllu skipulagi og starfi fyrstu fjögur árin, þegar alls kyns erfiðleikar dundu á, þá var bjart- sýnin og áhuginn öllu æöra og allt var yfirstigiö. Og Þórey heitin Björnsdóttir, blessuð Tóta min, sem geröi frú Pálinu Ægis slika, aö annar eins leikur hefur tæpast sést austur þar. Þaö er bjart yfir minningu þeirra beggja og þeirra er öörum fremur skylt aö minnast nú á þessu afmæli okkar. Hamingjuóskir flyt ég mlnum kæru félögum og vonast til aö sjá nýtt verkefni á nýju ári, um leiö og ég þakka fyrir samstarf og samvinnu oiöinna ára, sem veittu mér meiri llfsánægju en flest annaö. HelgiSeljan. »v •». Oddný Guömundsdóttir: SÍÐASTA BAÐSTOFAN I þessari raunsönnu sveitalífsfrá- sögn fylgist lesandinn af brennandi áhuga með þeim Dísu og Eyvindi, söguhetjunum, með ástum þeirra og tilhugalífi, með fátaekt þeirra og bú- hokri á afdalakoti, frá kreppuárum til allsnægta velferðarþjóðfélags eftir- stríðsáranna. Hér kynnumst við heilu héraði og íbúum þess um hálfrar aldar skeið - og okkur fer að þykja vænt um þetta fólk, sem við þekkjum svo vel að sögulokum. Við gleymum þvi ekki. Verö kr. 9.760. Frank G. Slaughter: DYRDAUÐANS Nýjasta læknaskáldsagan eftir hinn vinsæla skáldsagnahöfund Frank G. Slaughter. Þessi nýja bók er þrungin dulrænni spennu og blossar af heit- um ástriðum. Skáldsögur Slaughters hafa komiö út í meira en 50 milljónum eintaka. Verð kr. 9.760. Jónas Jónasson frá Hofdölum: HOFDALA-JÓNAS Þessi glæsilega bók skiptist i þrjá meginþætti: Sjálfsævisögu Jónasar, frásöguþætti og bundiö mál. Sjálfs- ævisagan og frásöguþættirnir eru með því bezta sem ritað hefur verið í þeirri grein. Sýnishornið af Ijóðagerö Jónasar er staðfesting á þeim vitnis- burði, að hann væri einn snjallasti Ijóðasmiður í Skagafiröi um sína daga. Hannes Pétursson skáld og Krist- mundur Bjarnason fræðimaður á Sjávarborg hafa búið bókina undir prentun. Verðkr. 16.960. Friðrik Hallgrímsson: MARGSLUNGIÐ MANNLÍF Sjálfsævisaga skagfirzka bóndans Friðriks Hallgrímssonar á Sunnu- hvoli sýnir glögglega að enn er f Skagafirði margslungið mannlíf. Verð kr. 9.760. Ken Follett: NÁLARAUGA Æsispennandi njósnasaga úr síð- ustu heimsstyrjöld. Margföld met- sölubók bæði austan hafs og vestan. Sagan hefur þegar vérið kvikmynd- uð. Verð kr. 9.760. Sidney Sheldon: BLÓÐBÖND Þetta er nýjasta skáldsagan eftir höfund metsölubókanna „Frarn yfir miðnætti" og „Andlit í speglinum". Hér er allt í senn: Ástarsaga, saka- málasaga og leynilögreglusaga. Ein skemmtilegasta og mest spennandi skáldsaga Sheldons. Sagan hefur verið kvikmynduð. Verð kr. 9.760. Ingibjörg Sigurðardóttir: SUMARVIÐ SÆINN Ný hugljúf ástarsaga eftir Ingibjörgu Siguröardóttur. Sögur Ingibjargar njóta hylli almennings á íslandi. Verð kr. 8.540. Björn Haraldsson: LÍFSFLETIR Ævisaga Áma BJömssonar tónskálds Hér er saga glæsileika og gáfna, mótlætis og'hryggðar, baráttu og sigra. Þessi bók færir oss enn einu sinni heim sanninn um það, að hvergi verður manneskjan stærri og sannari en einmitt í veikleika og mótlæti. Verð kr. 9.760. BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR ■ AKUREYRI

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.