Þjóðviljinn - 15.12.1979, Qupperneq 11

Þjóðviljinn - 15.12.1979, Qupperneq 11
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 15. desember 1979. Laugardagur 15. desember 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11 Hjalti Kristgeirsson skrifar um Hvaö er þessi bók? Er hún blaöamennska, frásöguþættir, endurminningar, fræöimennska, skáldskapur eöa veruleiki? Kannski ekkert af þessu en samt allt, og skyldi ég þó sist af öllu kalla hana grautargerö eöa ósamstæö brot. Hér er þvert á móti um heilsteypt verk aö ræöa þar sem urmull smámynda lúta strangri en þó ánægjulega sveigjanlegri reglu. Höfundur kallar bók sina „hversdagsbók”, — þaö sé ekki ætlun sin aö spá i neinar eiliföar- gátur né heldur vega og meta möguleika og takmarkanir sósialiskrar viöleitni. Aö sjálf- sögöu er þó margt rætt um sósial- isma, enda ekki vist aö fólki i fjarlægum staö finnist hvers- dagsleiki Sovétrikjanna umræöu- veröur ella. Bókarheitiö sjálft getur visaö til greinar sem AB sendi hingaö heim i Þjóöviljann fyrir 18 árum, en þar varar hann viö þvi aö „reyna aö draga væntanlejjan og æskilegan sunnu- dag inn í þann miövikudag sem viö lifum nú”. Alllöng tilvitnun i þessa grein er reyndar þaö eina i bókinni sem áöur hefur birst á prenti. Þrátt fyrir langan og starfsaman blaöamannsferil höf- undar er efni bókarinnar nýtt fyrir augum lesenda, einnig hins allra tryggasta Þjóðviljalesanda. 1 38 þáttum rekur AB kynni sin af Sovétrikjunum, allt frá þvi hann heldur þangað nýstúdent haustiö 1954 og þar til hann snýr heim 1962, og raunar einnig bókmenntrir Hvaö er langt til sunnudagsins? æfintýriö, í landi lifsgleöinnar? Aö baki þeirra bóka og annarra hliöstæöra frásagna eru hins veg- ar miklu skemmri kynni af landi og þjóö en þau sem AB hefur, auk þess sem hin sovéska landkynn- ingaraðferð, sendinefndarformiö, er ekki til þess fallin, aö kenna fólki aö spyrja og kryfja svörin. Þaö sem á milli ber er þó ekki sist þaö aö hinir fyrri höfundar voru allir á sælli sunnudagsgöngu um vonarlönd sósialismans, en amst- ur virkra daga var þeim fjarri. Vissulega er sælt aö búa i fræöi- heimi sósialismans þar sem alltaf er heilagt,gott ef ekki tviheilagt. Margir hafa sótt i þá sælu, — bæði sendinefndafólkið og viö sem á tima „miövikudaganna i Moskvu” vorum viö nám i öör- um löndum Austur-Evrópu, höf- um bakaö okkur viö yl fræöa og fyrirheita. En þaö er gifurlegur munur á kenningum mestu hugs- uöa sósialismans og þvi sem upp á er boöiö i þeirri einkennilegu samsuðu af kreddum og kynja- sögum sem gerð hefur veriö aö Árni Bergmann: Miðvikudagar í Moskvu. Mál og menning. 222 blaðsíður. stööu. Hann telur verkamenn I Sovét vera mun ánægöari meö sinn hag og þjóöfélagskerfiö en menntamenn.Þetta hygg ég aö Sé ekki svo 1 Ungverjalandi, og jafn- vel ekki i Tékkóslóvakiu heldur, en þar þekki ég raunar ekki til nema af afspurn. Þau lönd eru vitaskuld bæöi „vestræn” aö eöli, og menn muna enn þá tima þegar verkalýöshreyfingin var sjálf- stætt skipulagt afl, en nú er for- stjóravaldiö nálega óskoröaö. í Ungverjalandi hygg ég aö launa- kjör og aðbúnaöur sé þannig að menntamenn geti yfirleitt taliö sig til millistétta og tiltölulega margir til forréttindastétta, en Voskrésnik, sjálfboöavinna stúdenta voriö 1955. endurnýjuö kynni eftir þaö, bæöi i heimsóknum og á annan hátt. 1 bókinni er höfundur ekki aö rita samfellda persónusögu sina, ætl- un hans er ekki heldur aö segja sögu Sovétrikjanna á þvi skeiöi sem hann þekkti best, þvi siöur leggur hann metnaö sinn i aö gera fræöilega úttekt á munstri sósial- ískra lifshátta. t þáttunum flétt- ast saman atriöi af þessum þrennum toga, aöallega á þá lund aö höfundur hagnýtir eigin reynslu sina til aö varpa ljósi á vandamál mannlifsins i þessu mikla landi vona og vonbrigöa. Efniö er harla forvitnilegt, þvi ab einmitt á þessum tima eru Sovét- rikin aö færast frá grimmilegasta stalinisma til hinnar mestu hláku sem þar hefur verið siöan á 3. áratugnum og svo til afturhvarfs sem ekki sér enn fyrir endann á. Þó mundi þetta ekki duga bókinni til lífs ef höfundur heföi ekki haft i farteski sinu ofan af Islandi það undarlega segulstál að aliir vildu meö honum vera og viö hann blanda geði, en sjálfur hélt hann eftir áhrifum og fróðleik sem hann nú miölar af örlæti og fjöri. Sagnaskemmtun íslendingsins kemst til skila. En jafnframt er hann eins og Solzhenitsin aö þvi leyti aö honum veröur hvaöeina aö dæmisögu til aö leggja út af og koma inn i heildstæöa frásögn þar sem uppistaöan er ekki eins manns æfi heldur þjóöarörlög. Bók AB veröur ekki ein á hillu i islenskum bókasöfnum, bækur um persónulega reynslu af Sovét- rikjunum hafa tslendingar nefni- lega sett saman áöur, eöa hver man ekki Rauöu hættuna, Gerska pólitiskri rikistrú austur þar. Einnig þetta, aö AB gerþekkir hvortveggja, sósialismann sem óbrenglaöa hugsjón og „sósial- ismann” sem kreddu og yfir- breiöslu, skilur hann svo rækilega frá fyrri skýrslugeröarmönnum um lifiö eystra aö allur saman- buröur ér út i hött. Mér þætti gaman að vita, hvernig hinir ýmsu hópar fólks lesa þessa bók. Hvernig eru þau áhrif sem sanntrúaöir Ihalds- menn veröa fyrir? Eykst þeim umburöarlyndi gagnvart þvi lífi sem lifaö er I Sovétrikjunum? Viö skulum vona þaö. Hvaö munu Stalinsvinir, ef einhverjir eru, lesa út úr bókinni? (vel á minnst, þrællinn á vist 100 ára afmæli núna einhvern daginn). Hvernig gengur þessi lestur inn I gljúpan en þrjóskan hug róttækra upp- reisnarseggja af yngstu kynslóð- inni? Veröa þeir skilningsrikari á þaö, aö manngildisstefna er aöal sósialismans? Sá lesandi sem ieiöist pólitik (hve margir hljóta þeir ekki aö vera á tslandi nútim- ans!), finnst honum þetta of póli- tisk bók eöa getur hann truflunar- laust virt fyrir sér mannlifið aö baki allri pólitik? Ég get sagt fyrir mig: þarna er saman komiö flest þaö sem ég vildi sagt hafa um þjóðfélög Austur-Evrópu en þar aö auki svo miklu meira en ég hef forsendur til aö þekkja, enda er þarna nokk- ur munur á eftir löndum, þótt kerfiö sé I megindráttum hiö sama. Mér þykir merkilegt þaö sem AB segir um mun á mennta- mönnum og verkamönnum aö þvi er snertir mat þeirra á eigin hugsanafrelsi sé ekki skorinn óbærilega þröngur stakkur, aö þvi er menn telji. Meö þessu er ég auövitað ekki aö segja aö „sósial- isminn” sé eitthvað fullkomnari i Ungverjalandi, heldur hitt að stéttskiptingin er þar önnur og vestrænni heldur en I Sovét. Svo má spyrja, hvaöa þjóöskipulag þaö er sem rikir i Sovét og fylgi- rikjum. Er þaö sósialismi, kapitalismi eöa eitthvert milli- stig, og hvernig væri þá hægt að túlka þaö i marxiskum hugtök- um? Þaö má spyrja áfram: Leynist Gúlagið i hugsun Lenins, eöa verður þaö ekki rakiö lengra en til Stalins? AB oröar ekki þess- ar spurningar I sinni bók, enda heföi þá bókin orðið önnur en hún er, fræðilegri og þyngslalegri. Hins vegar hlýtur bókin aö vekja upp sllkar spurningar hjá lesend- um, og ég held þaö sé einmitt einn höfuötilgangur höfundar aö skilja eftir fleiri óleyst vandamál aö lestri loknum en lesandinn haföi I upphafinu. Fyrsti þriöjungur bókarinnar býst ég viö að mörgum þyki skemmtilegastur, en þar eru i forgrunni skólafélagar AB af báö- um kynjum, sagt frá samskiptum þeirra og margvislegum lifs- háska. Sagan af voskrésnik, sjálf- boöavinnu stúdentanna, er óborganlegt dæmi um þau form- legheit kerfisins sem grefur und- an vinnusiögæöi og ábyrgöartil- finningu unga fólksins. Og þá er þess ekki langt aö biöa aö upp vekist erfiöar spurningar sem ógreitt reynist aö fá svör viö. Launajöfnuöur — er þaö for- kastanlegur smáborgaraskapur? 20. flokksþingið— Aksel Larsen fékk kannski meira aö vita en þeir Eggert og Kristinn, en Htið var nú á honum að græöa i ölvim- unni. Furöu fljótt kemur aö fjöl- skyldumálum og annarri alvöru lifsins, og kannski eigum viö þaö húsnæöismálunum i Moskvu aö þakka aö AB skyldi gerast blaöa- maður og binda trúss sitt viö Þjóöviljann. Ef til vill ris hófstillt frásögn bókarinnar hæst þar sem greinir frá lifi tengdaforeldranna, en þau voru sek um þann óaf- plánanlega glæp aö vera af gyö- ingaættum. Getur nokkur nema listamaöur fariö höndum um svo viökvæmt efni aö hvergi sé of eöa van, en þaö viröist mér höfundin- um takast. Eftir þvi sem á bókina liður færist frásögnin lengra út i þjóöfélagiö og tengslin viö sagna- manninn veröa stopulli, en aö sama skapi veröur þjóöfélagsum- ræöan skarpari. Þættir um fyrir- greiöslupólitik, vinnumál, fram- leiösluskýrslur, uppeldismál, myndlist og hlutverk bókmennta eru fróölegir og uppfullir meö skemmtileg dæmi sem höfundur hefur kynnst sjálfur. Vandamál þjóöerna eru algengt umræöuefni i ritum um Sovétrikin, en mér viröist aö AB sjái fleiri fleti 1 sambúö þjóöanna og geri betur grein fyrir ýmsum þversögnum, svo og þvi hvernig Rússar fara að þvi aö vera yfirþjóö i rlkjasam- bandinu, heldur en almennt er I slikri umfjöllun. Hér nýtur höf- undur þess að vera af dvergþjóö sem sjálf á I ærnum vanda. Þegar ég las þáttinn „Agúst 1968” rifjaöist upp fyrir mér, af hverju AB var ekki á 100 manna listan- um okkar sem mótmæltum yfir- gangi Rússa gagnvart Tékkó- slóvakiu 3 vikum fyrir innrás, hann var nefnilega austur I Sovét á þeim tíma og gat sagt okkur margt þegar hann kom heim aö áliönum slætti. Aður en bókinni lýkur er reifaður vandi andófs- manna, en AB er i vinfengi viö ýmsa þeirra, svo sem hann skýrir frá. Barátta andófsmanna heldur athygli okkar vakandi á þeim vitahring sem valdhafar Sovét- rikjanna eru i og vilja ekki kom- ast útúr, en framvinda mannlegs lifs getur fyrr en nokkurn varir rofiö þann hring, og þá yröi skemmra til sunnudagsins i Moskvu en nú litur út fyrir. Ég vil ekki skiljast svo viö efni bókarinnar aö ég minnist ekki á Tjöruborgarkaflann, þar sem fjölskyldudrama úr yfirstéttinni er látiö varpa skæru ljósi á þaö þjóöfélag sem AB hitti fyrir aust- ur i Sovétrikjunum fyrir 25 árum. Sagan er kátleg eins og sögur af mannlegum örlögum eru oft, en hún er jafnframt hluti af mikilli sorgarsögu. Flokksritarar elska og hata eins og aörir menn, en af- leiöingarnar geta oröiö nokkuö hrikalegar þegar allt er leyfilegt gagnvart almenningi. Manngerö- in sem þjóöfélagiö bjó til og setti i æöstu stööur er eins langt frá hugsjón sóslalismans og komist veröur, og ekki á þaö siöur viö kvenpersónur þessarar sögu. Þar kemur fram háborgaralegt sniö: konurnar hafa ekkert markmiö annaö en aö vera kynverur, og þátttaka I þjóöfélagslegri önn er þeim viösfjarri. Tjöruborgarsag- an er innlegg i nútimalega um- ræöu um stallnisma og kven- frelsi. Texti AB er vandaöur og yfir- leitt hnitmiöaöur. Mjög litiö er um óþarfa visanir I þaö sem áöur hefur veriö minnst á, en einmitt þaö aö foröast slikar endur- tekningar er einn helsti galdurinn viö aö semja slika bók. Vlöa er frásögnin meö þeim tilþrifum aö Framhald á bls. 17 Þóra Siguröardóttir: Skúringakona,— Steinþrykk. „Litla smiöjan”.— Mynd úr Akureyrarmöppu Guöjóns Armanns. Alþýðulist á Akureyri Rætt við Guðmund Ármann myndlistarmann Félagsskapur myndlistar- manna á Akureyri og nágrenni sem nefnir sig „Myndhópinn”, stóö fyrir myndl istars ýningu alþýöulistamanna i Hliöarbæ viö Akureyri um miöjan nóvember sl. Blaöamaöur Þjóöviljans heim- sótti sýninguna og ræddi viö Guö- mund Armann Sigurjónsson myndlistarmann á Akureyri um „Myndhópinn” o.fl. Félagsskapurinn varö til i febrúar sl. eftir sýningu sem viö vorum meö i Iönskólanum i nóvember 1978. I félaginu eru fjórtán félagar, segir Guömundur mér. Hvers konar fólk stóö aö stofnun félagsins? Þaö voru þeir sem viö köllum hálfatvinnumenn, menn sem fást viö myndlist aö verulegu leyti. Enginn lifir jú af þessu eingöngu. Og s vo eru fristundamálarar lika ifélaginu. Félagiö er aö þvl leyti sérstætt aö viö höfum reynt aö sameina þarna I einu félagi fólk meö mjög mismunandi aöstööu. Eru hálfatvinnum ennirnir i meirihluta? Nei ætli viö séum nema fimm sem erum aö miklu leyti viö þessa iöju. Meirihlutinn er fristunda- málarar. A sýningunni hjá okkur voru ekki nema tiu félagsmenn sem sýndu af tuttugu og fimm sem tóku þáttí henni. Þar af var fólk sem aldrei haföi sýnt áöur, komiö á fulloröinsár. 1 sýngingarskrá er sýningin kölluö sýning alþýöulistamanna. Hvernig skilgreiniö þiö hugtakiö? Þaö er nú auövitaö afskaplega erfitt. En viö höfum kallaö þaö fólk alþýöulistamenn, bændur, verkamenn, iðnaöarmenn, yfir leitt vinnandi fólk sem fæst viö myndlisti fristundum sinum. Viö gáfum þeim langmesta plássiö á sýningunni. öfugt viö þaö sem gengur og gerist, þá skárum viö niöur myndirnar hjá okkur sjálf- um. Guöjón Armann: Drög aö sjálfsmynd.— Kolteikning. Efniviöurinn var aö hluta til dæmigeröur fyrir alþýöulist. Annaö hvorter þettasvona frekar vinstri sinnuö list, ef svo má segja, eöa þetta dæmigeröa is- lenska fyrirbrigði, landslags- myndirnar, svo einungis tvö sæmi séu nefnd. Ekki er þetta pólitiskt sam- stæöur hópur sem er f Myndhópn- um ? Nei, nei alls ekki. Hvernig gekk sýningin? Hún gekk ekki alveg nógu vel. Blaöamennlétuekki sjá signema þú og fréttamaður sjónvarpsins. Kynningin I upphafi fdr úr skorö- um þannig aö aösóknin framan af var mjög dræm. Viö opnuöum laugardaginn 17. nóvember og sýningin stóö i niu daga. Hins vegar var ágætis aösókn seinni helgina. Siðasta daginn komu um 130 manns. Hvernig hentar húsnæöiö i Hliöarbæ? Þetta er eina húsnæðiö sem kemur til greina hér um slóöir fyrir svona mörg verk. A Akur- eyri er ekkert húsnæöi sem getur tekiö svo stóra sýningu. Viö sýnd- um sextiu verk I Iönskólanum i fyrra og þaö var i raun og veru allt of þröngt. Okkur vantar hér á Akureyri einn almennilegan sýn- ingarsal. Þó eru tvö galleri hér i bænum. Háhóll errekinn sem galleri, en Orn Ingi veröur ekki meö sér- stakar sýningar, heldur ætlar aö hafa myndir uppihangandi af sinu verkstæöi til sölu. Þaö er ein- hverskonar millistig af verslun og gallerii. Ér algengt aö fólk sé aö fást viö myndiisti fristundum sínum? Þaö eru alveg ótrúlega margir. Ég tók eftir þvi þegar ég kenndi hérna. Yfirleitt er þetta hlédrægt fólk og vill ekki sýna verk sin. Þaðvar baralitiö brot sem sýndi á okkar sýningu og meöal þeirra var fólk sem viö þurftum aö leggja mjög aö til aö fá þá til aö sýna. Flestir segja ,,ég hef ekkert tÚ aö sýna”. Selduö þiö eitthvaö af myndum? Nei, sama og ekki neitt. Hvaö veldur? Verölagiö eöa lit- ill áhugi? Peningaleysi hjá fólki fyrst og fremst. Þaö er ekki bara hjá okkur sem þetta hefur gengiö illa. Ég veit um aörar sýningar sem hafa gengið mjög illa hvaö þetta snertir. Hverjir kaupa málverk? Þaö er misjafnt. Hér eru auö- vitaö ýmsir sem safna málverkum. Þaö er þá fyrst og fremst efnafólk. En þaö er þó nokkuö um þaö aö iðnaðarmenn og betur launaö verkafólk kaupi myndir. Hver veröa helstu verkefni Myndahópsins i framtiöinni? Viö hugsum okkur aö halda ár- lega sýningu en auk þess er áhugi hjá ýmsum fyrir aö koma upp sameiginlegu grafikverkstæöi, þar sem menn gætu skipst á aö vinna, og fleira mætti hugsa sér. Þetta er ekki fyrsta mynd- listarfélagiö sem starfar hér? Nei, nei. Hér var Myndlistar- félag Akureyrar. Þaö var form- lega lagt niöur fyrir nokkrum árum. Myndlistarmenn eiga ekki alltaf gott meö aö vinna saman. Hver vill fara sina leiö eins og gengur. Viö sjáum bara til I Myndhópnum. Framlag til menningarlífs Hvernig nýtir hinn vinnandi maöur tómstundir sinar? Hversu almenn er einhverskonar list- sköpun meöal alþýöu manna I landinu? Viö vitum, aö leiklist á miklu fylgi aö fagna um land allt. Hundruöum saman eru áhuga- leikarar aösetjauppsýningar um landiö þvert og endilangt allan veturinn og Islendingar munu vera methafar I leikhússókn. Geysilegur fjöldi fólks stundar fristundanám I tónlistarskólum og margur maöurinn getur fyrir- varalitiö gutlaö á gitar eöa munn- höirpu sjálfum sér og öörum til nokkurrar ánægju. Miklu minna hefur fariöfyrir myndlistaráhuga almennings. Þó ekki þannig aö myndlistarsýningar séu illa sótt- ar. Þvert á móti eru haldnar f jöl- margar sýningar ár hvert og fjöldi sýningargesta er mikill. Hins vegar koma verk fristunda- málara sjaldan fyrir almennings- sjónir. Þaövar þvi ekki litill feng- ur aö því fyrir áhugafólk um þetta efni aö lita verk áhugamanna i myndlistaugum á Sýningu Mynd- hópsins, i Hlíöarbæ viö Akureyri nú I nóvember. Það væri þarft verk aö gera meira af þvi aö koma verkum áhugamanna á framfæri viö al- menning. Ekki vegna þess aö vænta megi rikulegrar uppskeru óuppgötvaöra snillinga, heldur af þvi aö frlstundalistsköpun al- mennings er mikilsvert framlag til menningarlifs og þvi' meiri á- huga og dugnaö sem alþýöa manna sýnir i þvi aö fást viö list- sköpun af einhverju tagi þeim mun frjórri og kraftmeiri veröur menningarstarfsemin i landinu, einnig á þeim vettvangi sem kall- aöur hefur veriö hámenning, meö réttu eöa röngu. hágé. Sögufélagið hefur vakið athygli undan- farin ár fyrir vaxandi starfsemi og nýjan þrótt. Við slógum á þráðinn til Ragnheið- ar Þorláksdóttur framkvæmdastjóra Miðstöð sagnfræði- bókmennta félagsins til þess að spyrja nánar um þessa starfsemi. — Hvers konar félag er Sögufélagiö, Ragnheiöur? — Þetta er gamalt félag, stofnað áriö 1902 til eflingar á rannsóknum á sögu Islands og Iþvi skyni gefur þaö út bækur og timarit. Sögufélagiö er meöal elstu bókútgáfufélaga á landinu. — Er þetta aö einhverju leyti opinbert félag? — Nei. Aö visu fáum viö smástyrk frá rikinu en eigum þó allt undir áhuga félags- manna. Þeim hefur fjölgaö gifurlega á undanförnum ár- um eöa úr 4—500 i 1200. — Hvaö þarf til aö vera félagi í Sögufélaginu? — Menn þurfa einungis aö vera áskrifenduraö Sögu, sem er timarit félagsins. Félags- menn fá siöan góöan afslátt af bókum þess. — Nú starfrækið þið af- greiðslu I Fischersundi. Er það ekki nýjung i starfinu? — Jú, hún hefur nú verið starfrækt i rúm 4 ár og er það i fyrsta skipti I sögu félagsins sem þaö hefur fastan sama- staö. — Hún er dálitið óvenjuleg þessi búö. Er hún ekki eins konar samkomustaöur um leiö? — Hún er mjög vel notuð af þeim sem vinna fyrir félagiö. Þeir hafa hér sina bækistöö. — Hvað fæst annars i þess- ari búö? — Þaö eru fyrst og fremst allar fáanlegur útgáfubækur Sögufélagsins frá upphafi, en einnig höfum viö kappkostað aöhafa hér á boðstólum aðrar bækur og timarit sagnfræöi- legs eölis. Viö viöum t.d. aö okkur sögutimaritum utan af landi, sýslu- og sóknarlýsing- um, og viljum gera enn meira aö þvi. — Þessi verslun er þá eins konar miöstöö sagnfræðibók- mennta á Islandi? — Já, þaö má segja aö hún sé aö veröa þaö. — Eru útgáfubækur félags- ins mjög vfsindalegs eðlis eöa eru þær aögengilegar öllum almenningi? — Þaö er nú upp og ofan. Nú fyrir jólin gefum viö t.d út tvær bækur sem okkur finnst aö eigi erindi til ansi margra. önnur er bók um Jón Sigurös- son forseta eftir Einar Laxness. Henni er ætlað að vera alþýðlegt yfirlitsrit fyrir þá sem vilja fræöast i hæfilega löngu máli um höfuöleiðtoga islenskrar sjálfstæðisbaráttu en slikt rit hefur skort til þessa. Auk lesmáls er I bók- inni fjölbreytt myndaefni sem á aö bregða ljósi á þáþættisem varöa lif Jóns forseta, sam- ferða- og samstarfsmenn, fjöl- skyldu og vini, auk mynda af umhverfi þvisem hann lifði og hræröist i heima á tslandi og i Kaupmannahöfn. Hin bókin heitir Snorri, átta alda minn- ing, og fjallar eins og nafniö bendir til um Snorra Sturlu- son. I henni eru ritgerðir um sagnaritarann og stjórnmála- manninn Snorra eftir sex höf- Ragnheiður Þorláksdóttir framkvæmda- stjóri Sögu- félagsins unda og er hún mjög vel myndskreytt. — Hafiö þiö ekki gefið út fieiri bækur á þessu ári? — Jú, að sjálfsögöu kom Saga, timarit félagsins, út,en einnig tvær aðrar bækur. Þær eru Söguslóðir, afmælisrit til heiöurs Ölafi Hanssyni prófessori tilefni af sjötugsaf- mæli hans, og Arnessýsla, sýslu- og sóknalýsingar eftir sóknapresta þar á árunum 1839—1843. — Aö tokum, Ragnheiöur. Eruö þið ekki að selja bækur í Bernhöítstorfu nú fyrir jólin? — Jú, i tilefni af umsvifum okkar i ár höfum viö opnað markað ásamt Islenskri grafik og Galleri Langbrók i Bernhöftshúsi og veröur hann opinn fram að jólum. — GFr „/ tilefni af um- svifum okkar í ár höfum við opnað markað r ásamt Islenskri grafik og Gallerí Lang- brók í Bern- höftshási”

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.