Þjóðviljinn - 04.01.1980, Page 8

Þjóðviljinn - 04.01.1980, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. janúar 1980 Föstudagur 4. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9 á dagskrá „Megináhersla á hœkkun eða varðveislu svonefnds kaupmáttar greypir falshugmyndir i vitund alþýðu, torveldar skilning á þvi að samneyslan er einn mikilvœgastiþáttur lifskjaranna og seinkar skilgreiningu á nýjum markmiðum”. Hentistefna Alþýðu- bandalagsins í nýju Þeir sem hafa ásakað Alþýðu- bandalagið fyrir hentistefnu og svik við málstað verkalýðsins á undanförnum árum eru að likind- um hæstánægðir með þá stefnu sem flokkurinn tók í stjórnar- myndunarviðræöunum i desem- ber. Nú á semsagt ekki að fara út i makk og undanslátt heldur standa fast á kröfunum. Tillögum Framsóknarflokksins var hafnað, eins og lesendum Þjóðviljans ætti að vera vel kunnugt. Og manni skilst að tillögur Alþýðuflokksins hafi ekki komið til umræðu, enda lagöar fram sama dag og Alþýöu- bandalagið lagði fram yfirlýsingu þar sem segir m.a.: „Alþýðu- flokkurinn hefur þegar sýnt það i verki, að hann vill ekki vinstra- samstarf.” 1 upphafi viðræðnanna lögðu fulltrúar Alþýðubandalagsins Iram almennt orðað plagg til að „kynna — áhersluatriði” eins og þar segir. úr þvi hefur eftir- farandi einkum veröi hampaö: „Stefnan i efnahags- og kjara- málum verði við það miðuö a) aö sérstök áhersla verði lögö a aö auka kaupmátt lægstu launa b) að elli- og örorkullfeyrir hækki c) aö almenn laun séu verðtryggð d) að stuðlað veröi að jöfnun rétt- inda launafólks, m.a. i lifeyris- málum, húsnæðismálum og á sviði vinnuverndar og vinnuað- búnaðar.’1 Þau ráð, sem bent er á, lii aö gera þetta framkvæmanlegt, eru það almennt orðuð að þau geta tæpast talist umræðugrundvöllur, Lesendur Þjóðviljans þekkja lykilorðin: ,, — gert stórátak til aukinnar verðmætasköpunar með hagræðingu i atvinnulifi, skipulegri fjárfestingarstjórn og niðurskurði milliliðaeyðslu i sam- ræmi við fyrri tillögur Alþýðu- bandalagsins.” Þeir sem hafa áhuga á að kanna möguleika á aö fram- kvæma til lögursem þessar veröa að fá upplýst hvað átt er við með „lægstu laun”. Það hefur for- maöur flokksins skilgreint sem 390 þúsund fyrir dagvinnu (Morgunbl. 22.12). I tillögunum virðist þvi felast þaö, að kaup- máttur verði aukinn hjá þorra launþega og þeir hæstlaunuöu haldi slnu cg samhliöa verði gerö- ar úrbætur á þeim sviðum sem veröbólgan hefur gert erfiöust úr- lausnar. Vonandi finnst fleirí en mér timabært oröiö aö velta fyrir sér spurningunni um hentistefnu Alþýðubandalagsins frá öðrum sjónarhóli en getið var hér i upp- hafi. Hafa verður i huga að til- lögurnar á að framkvæma i þjóö- Ijósi félagi þar sem aukning þjóöar- framleiðslu hefur verið að nálg- ast núllpúnktinn og viðskiptakjör farið versnandi. A næsta áriverð- um viö aö veiöa minni fisk með meiritilkostnaði. Ekki þarf þvi að undrast þótt einhverjum finnist umræddar tillögur einkennast af yfirborðsmennsku. Og sé nánar að þeim hugað má raunar greina i þeim ákveðnar hættur fyrir fram- gang vinstri stefnu og sósialisma: 1. Kröfugerð án viðhlitandi skýringa á hvaða skilyrðum þarf að fullnægja til þess að hún geti talist raunhæf er til þess eins fall- in að varpa ryki i augu almenn- ings og torvelda honum skilning á þjóöfélaginu og möguleikum á að breyta þvi. 2. Miðist tillögur af þvi tagi sem hér um ræðir við óbreytt þjóð- skipulag verða þær aö teljast marklausar og einkar vel til þess fallnar að auka verðbólgu. 3. Kauphækkanirsem renna út i verðlagið og ekki leiöa til aukn- ingar á kaupmætti (sbr. reynslan af siðasta áratug), bitna á þeim lakast settu i þjóðfélaginu s.s. ellilifeyrisþegum og námsfólki og leiða þvi i raun til ójafnaðar. Hér er enn komið að tilgangsleysi kauphækkana sem samið er um i óbreyttu kerfi. 4. Með þvi að gera hækkun eða varöveislu svonefnds kaupmáttar að lykilorði, og grundvallaratriði i stefnu sinni og starfi er Alþbl. að. greypa i vitund alþýðu falshug- myndirsem verslunarauðvaldinu eru þóknanlegar, þ.e.a.s. vel- liðan og hamingju öðlast menn með þvi að kaupa. Meginvið- fangsefni sósialísks flokks er þá orðið það að tryggja að sem flest- ir geti keypt sem mest. Þetta tor- veldar almenningi að sjálfsögðu skilning á þvi að samneyslan (þjónusta og framkvæmdir á veg- um rikis og sveitarfélaga) er einn mikilvægasti þáttur lifskjaranna og seinkar nauðsynlegri skil- greiningu á nýjum markmiöum sem taka mið af.breyttum að- stæðum i þjóðfélaginu og um- heiminum. 5. Almenn viðtæk kröfugerð án þess að gera upp við sig, hvað á að hafa forgang þegar til kast- anna kemur leiðir til yfirborðs- kenndra og vélrænna vinnu- bragða, úrræða- og stefnuleysis. Nú kynnu einhverjir að vilja velta þvi fyrir sér hvað þvi veldur að Alþýðubandalagiö hefur hafn- að i þessum farvegi. Hér verður ekki reynt að fara nánar út i þá sálma. Meginskýringanna er að likindum að leita i viðleitni flokksins til að hafa samstöðu með verkalýðshreyfingunni hvað sem tautar og raular. En viöhorf og vinnubrögð af þvi tagi sem hér hefur verið lýst verða ekki lengur afsökuð meö þvi aö verkalýðs- hreyfingin sé komin skammt á veg með að endurmeta markmið, skipulag og inntak baráttu sinn- ar. Tengslin við verkalýðshreyfing- una valda sjálfsagt mestu um það aö Alþbl. notaði fyrsta tækifæri til að draga sig útúr stjórnarmynd- unarviðræðunum. Enda á flokkurinn ekki annarra kosta völ ef hann ætlar aö styðja þær kröfur sem verða settar fram i væntanlegum kjarasamningum. Og hjá þvi kemst hann vist ekki miðað við sögu sina og stöðu, hvort sem grunnkaupshækkan- irnareiga aö verða I8eða 39% svo tekið sé mið af BSRB eða „leið- réttingar” og kröfur i 22 liöum eins og ASÍ hefur mótað. Nú skal ósagt látið að áfram- haldandi viöræöur um vinstri stjórn hefu getað leitt til ein- hverra þjóðfélagsbreytinga. Aö minnsta kosti hefur fyrri stjórn- um af þvi tagi ekki einu sinni tek- ist að þjóönýta lyfjaverslunina enda þótt rikið borgi þau lyf sem notu ð e ru i la ndinu a ö mestu fram leiði stóran hluta þeirra og veiti innflutningsleyfi fyrir öðrum. Hinsvegar heföi veriö hollt og þarflegt fyrir Alþýðubandalagið aö fara nánar i saumana á tillög- um sinum og gera betur grein fyrir hvernig þær gætu komið til framkvæmda. Alþýðuflokkurinn gerði sæmilega grein fyrir þvi hvernig hann vildi tryggja hag hinna lægstlaunuðu og nefndi m.a. hækkun skattfrelsismarka, auknar stighækkandi fjölskyldu- bætur, hækkun á ellilifeyri og tekjutryggingu, umbætur i hús- næðismálum, lögleiðingu frum- varps um eftirlaun aldraðra og samræmt lifeyrisréttindakerfi fyrir alla landsmenn. Framsókn sagðist lika ætla að verja lægri laun og standa að svipuðum félagslegum umbótum. En nú gat Alþbl. ekki gengið til samstarfs um slika hluti. Það verður væntanlega að styðja allar kaupkröfur i væntanlegum kjara- samningum. Þess vegna verður að afhenda Sjálfstæðisflokknum völdin. Og senda svo frá sér harð- orð mótmæli þegar hann fer að nota þau. Vandalitið og hagkvæm lausn fyrir flokkinn. En hvernig reynist hún alþýðunni — hvað fel- ur hún i sér fyrir þá hópa sem minnst mega sln i kapitalisku þjóðfélagi á leið inn i kreppu? Dregið í happdrœtti Krabbameinsfélagsins Dregiö hefur verið i hausthapp- drætti Krabbameinsfélagsins 1979. Fjórar bifreiðar, sem voru i boði, komu á eftirtaiin niimer: 115091 Dodge Omni, 68800 Saab 99 GL, 119300 Citroen Visa Club og 46395 Toyota Starlet 1000. Sambyggö útvarps- og segul- bandstæki, Crown komu á: 25019, 49032, 60727, 71258, 103927, Og 147200. Krabbameinsfélagiö þakkar landsmönnum góðan stuðning fyrr og siöar og óskar þeim far- sældar á nýju ári. (Fréttatilk.) Ég benti á að þröngurhópur esgenda gæti haldid áfram gróðaöflun sinni erlendis en þjóðin sæti eftir með samgöngu- kerfið við um- heiminn og stærstan hiuta innanlands kerfisins í rúst I fyrra haust flutti ólafur Ragnar Grímsson alþingis- maður tillögu á alþingi þess efnis að kjörin yrði nefnd til að kanna rekstur Flugleiða h.f. og Eimskipafélagsins h.f. Þegar svo þessi tiilaga kom til umræðu á alþingi 7. desember 1978 eða fyrir rétt rúmu ári siöan, flutti ólafur ræðu, sem vægt sagt olli fjaðrafoki hér á landi. Til- löguflutningur hans varð m.a. til þess að umræðuþátt- ur var fluttur í sjónvarpinu, þar sem fram komu ásamt ólafi, óttarr Möller forstjóri Eimskips sem þá var, og Sigurður Helgason forstjóri Flugleiða. 1 þessum þætti og raunar i viðtöl- um við Morgunblaðið sagði Sigurður Helgason það allt ósannindi og áróður, sem Ölafur flutti sem rök fyrir máli sinu. Þingmenn Sjálf- stæðisflokksins og Morgunblaðið tóku undir og réðust af heift að ólafi Ragnari fyrir ræðuna. Morgunblaðið benti á sem frægt var, að Flugleiðir h.f. ásamt Eimskip og SH væru horn- steinar frjáls framtaks á Islandi og aö þessum hornsteinum væri nú veg- ið af ósanngirni og farið með rangt mál. Nú hefur aftur á móti komið i ljós að allt þaö sem Ólafur Ragnar sagöi var rétt og satt. Hann spáöi fyrir um þær ógöngur sem Flugleiöir h.f. eru nú komnar i. Vegna þessa ræddi Þjóðviljinn við Ólaf Ragnar um þetta mál. Tillagan verður endurflutt — Jú svo sannarlega fékk ég að heyra það frá forráðamönnum Flugleiða, svo og Sjálfstæðisflokkn- um og Morgunblaðinu. Sagt var að allt það sem ég sagði væri úti hött og ekkert nema árás á fyrirtækið og einkaframtakið i landinu. Voru það einu viðbrögðin sem þú fékkst við ræðunni? — Nei alls ekki. Mér bárust fjölmörg bréf, nafnlaus flest hver, frá starfsfólki Flugleiða h.f. sem greinilega höfðu náin kynni af þvi sem þar var að gerast. Þessi bréf staðfestu það sem ég hafði haldið fram. Aftur á móti notaði ég þau bréf sama og ekki neitt opinberlega, mér þótti það ekki rétt, en það lýsti vel ástandinu innan fyrirtækisins. I þessum bréfum kom i ljós óeining og óstjórn innan fyrirtækisins, sem hafa raunar magnast enn eftir að Siguröur Helgason tók einn við stjórnartaumunum. Þetta var eitt af þvi sem ég benti á i ræðu minni á alþingi og tók fram að mér þætti ótrúlegt aö fyrirtækið væri i stakk búið til að takast á við þau hrikalegu vandamál sem við blöstu eins og ástandið innan þess var og er. Og þú ert ákveðinn i að endurflytja tiliöguna? — Já, ég er það auðvitað og geri það um leið og alþingi kemur saman. Hafi verið ástæöa til að flytja þessa tillögu i fyrra, þá er hún ekki siður fyrir hendi nú. Allt hefur komið fram. Þegar tillaga min kom til umræðu á alþingi flutti ég ýtarlega ræðu, sem þótti nú heldur löng, tók um það bil 2 klukkustundir i flutn- ingi, þar sem ég geröi grein fyrir þvi sem mér þótti liggja i augum uppi varöandi Flugleiðir h.f. Það voru 5 meginþættir sem ég tók fyrir. Sá fyrsti snerti þaö, ab nútlma- samgöngur væru svo mikilvægur þáttur i þjóöfðlagi samtimans, bæði hvaö varðar atvinnuvegi, lifskjör fólks og öll samskipti við umheiminn að stjórnvöld, bæði alþingi og rikis- stjórivyrðu aö tryggja þjóðinni það að þessar samgöngur væru öruggar. Það yrði að skilja á milli alvarlegs áhættureksturs eins og N-Atlants- hafsflugið væri og þeirra samgangna sem þjóöin af öryggisástæðum yröi aö hafa við önnur lönd og þá ekki siður innanlands. Ég benti á að áhættuflugið hjá Flugleiðum h.f. væri orðið slikur þáttur i rekstri fyrirtækisins að það stofnaöi öryggisþættinum i hættu. Annar meginþátturinn i tillögu- gerðinni og framsöguræðunni var að gera greinfyrirhvernig áhættufíugið stofnaði öryggisþættinum i hættu. (Sjá rammagreinina Úr þingræðu i desember 1978 hér til hliðar). Þar benti ég á að hætta væri á þvi að einmitt flugið yfir N-Atlantshaf myndi skila svo miklu tapi að fyrir- tækið yrði gjaldþrota og þar með yrði allur flugfloti landsmanna lagður i rúst. 1 þessu sambandi benti llllÍlÉS ég á hvernig Evrópuflugið, inn- anlandsflugið og Atlantshafsflugið væri samtengt I þessu eina fyrir- tæki. Nú virðist þetta allt vera að koma fram, þótt ekki skuli fullyrt neitt um það nú, hvort Flugleiöir eru beinlinis gjaldþrota. Að taka gróðann annarsstaðar frá I þriðja þættinum benti ég á, hvernig forsvarsmenn Flugleiða h.f. sérstaklega undir forystu Siguröar Helgasonar hafa lagt á það ofur- kapp, að hefja rekstur og afla sér tengsla i flugrekstri útum allan heim. Þar hafa risið upp bæði dóttur- fyrirtæki og Flugleiðir h.f. tengst svonefndum hlutdeildarfyrirtækjum, þar sem Cargolux og Air Bahama eru kannski þekktustu dæmin. Ennfremur eignarhlutafélög eins og Hekla Holdings, sem er fyrst og fremst pappirsfyrirtæki, stofnaö til aö auðvelda fjármagnstilflutning milli fyrirtækjanna, og sem Sigurður Helgason stjórnar aleinn. Flugleiða- samsteypan hefur undir hans forystu lagt ofurkapp á það að byggja upp slik alþjóðleg fyrirtæki og einkum i löndum eins og Luxembúrg og Bahameyjum, sem eru svonefnd skattfri lönd, þ.e. fyrirtæki greiða þar enga skatta og þar sem menn geta tekiö gróðann út án þess að greiða af honum nokkra skatta. Ég spáði þvi i þessari ræðu að á sama tima og Flugleiöaþátturinn i þessari samsteypu, það er sá þáttur- inn sem að tslendingum sneri, gæti hrunið, þá gæti þröngur hópur eigenda staðið eftir með alþjóðlegu fyrirtækin eins og Air Bahama, Cargolux, og önnur slik i fullum gangi. Þeir gætu haldið áfram sinni gróðaöflun þar, en þjóöin sæti eftir með samgöngukerfiö við umheiminn og stærstan hluta innanlandskerfis- ins i rúst. Enn nýtt fyrirtæki Og mér þykir það táknrænt, að nú, þessa sömu daga og hrun N-Atlants- hafsflugsins blasir við skuli Sigurður Helgason forstjóri Flugleiöa h.f. boða komu sendinefndar frá Lúxemburg til aö vinna að stofnun nýs dótturfyrirtækis, sameign- arfyrirtækis Flugleiða h.f. og Lúxemburgara. Þaö sýnir einmitt samhengiö i þessari þróunarstefnu sem ég nefndi áöan. Þessi fyrirhug- aða stofnun nýs fyrirtækis i Lúxemburg vekur grunsemdir um að með vilja sé veriö að flýta aögerðum sem gerðu jiað kleift að halda áfram Atlantshafs- og Evrópu- flugi undir hatti nýs fyrirtækis sem væri algerlega utan yfirráðasvæöis islenskra stjórnvalda og .islensku þjóöarinnar. Nýja fyrirtækiö með Lúxemburgarmönnum ætti að auðvelda Siguröi Helgasyni og félög- um að halda áfram gróðastarfsemi þótt hundruð Islendinga missi at- vinnuna vegna þess að gamla Loft- leiðaarminum i fyrirtækjasamsteyp- unni sé slátrað. — Hvað var þaö þá fyrst og fremst sem þú vildir láta rannsaka? — Þar má m.a. nefna hver væru hin raunverulegu tengsl milli allra þessara óliku þátta þessarar fjölþjóölegu samsteypu. Ég vildi fá aö vita hver væru tengslin milli sér. islenska armsins, Flugleiöa h.f. og Air Bahama, Cargolux, Hekla Holdings og hótelania erlendis og þeirra þátta annarra sem þarna er að finna. Þaö hafa vaknaö grunsemdir um að meö bókhalds- brögðum og rekstrarsamskiptum hafi islenski hluti samsteypunnar verið látinn bera óeðlilegan kostnað, á sama tima sem gróðinn hefur verið tekinn út I þeim fyrirtækjum sem eru skráð i skattlausu löndunum. Bahamaeyjum og Lúxembúrg. islendingar greiða sifellt hærri fargjöld 1 f jórða þætti ræðu minnar benti ég á, að á sama tima og fargjöldin yfir N-Atlantshafið yrðu æ ódýrari væru Islendingar látnir greiða æ hærri fargjöld til Evrópulanda og inn- anlands. Sú stefna að hækka sifellt fargjöldin á Evrópu og innanlands- leiðum en lækka þau yfir N-Atlants- hafið vekur óneitanlega upp rökstuddar grunsemdir um að Evrópuflug Islendinga og jafnvel innanlandsfiugið hafi verið notaö til að bera óeðlilegan kostnað af almennri starfsemi fyrirtækisins. Og með þvi móti reynt að draga úr heildartapinu með þvi að verðleggja fargjöldin á Evrópuleiðinni og kannski lika innanlands of hátt, á óeðlilegum grundvelli og sem ætti að reikna i rikara mæli til N-Atlants- hafsflugsins. Nú var það svo aö á þeim tima sem ég setti þetta fram, gerðu for- ráðamenn Flugleiöa h.f. afar litið úr tapinu á N-Atlantshafsleiðinni. Siöan liðu ekki nema 3 mánuðir og tillagan var enn til umræöu i þinginu, og þá kom I ljós, að tapið 1978 var um einn miljarður króna og nú er talað um 5 til 6 miljarða króna tap á árinu 1979. Svona tap skapar margvislegar freistingar inni i fyrirtækinu til að reyna að láta þær leiðir sem hugsan- lega væri hægt að reka með hagnaöi, borga óeðlilegan hluta sameiginlegs kostnaðar. Og ég er alveg sann- færður um þaö, aö islenskur almenn- ingur hefur verið látinn greiöa alltof há fargjöld nú á siðari árum vegna þessara erfiðleika Flugleiða h.f. DC 10 kostar jafn mikiö og ein Kröfluvirkjun Loks er svo að geta 5. og siðasta þáttarins i ræöu minni, þar sem ég gagnrýndi harðlega þá fjár- festingarstefnu sem Flugleiðir hafa fylgt og raunar Eimskipafélagið h.f. lika. Hvaö Flugleiðir h.f. snertir voru það fyrst og fremst kaupin á DC 10 þotunum á sama tima og ljóst var að DC 8 vélarnar gátu dugað i mörg ár. Atburðarásin áriö 1979 hefur sýnt og sannað að kaupin á DC 10 vélun- um voru alröng. Bæöi voru þær of dýrar og of stórar og reyndust að auki gallaöar. 1 raun hafa forráða- menn Flugleiða staöfest þetta sjálfir með þvi að tilkynna aö þeir séu að hverfa frá DC 10 vélunum yfir i DC 8 vélarnar. Þegar ég setti þetta fram var taliö að það væri úti hött að halda áfram rekstri DC 8 vélanna eingöngu. Ég er alveg sannfærður um að þessi ranga fjárfestingar- stefna á stóran þátt i erfiöleikum fyrirtækisins nú. Spurningum ósvarað. 1 umræðum um málið i þinginu var varpað fram spurningum, sem hefur aldrei verið svarað, en það eru tengsl Flugleiða h.f. við bandariska flug- félagið Seabord and Western sem Flugleiðir h.f. keyptu DC þoturnar frá og sem annast alla varahluta- og viðgeröarþjónustu. Bent hefur verið á aö SW hafi fengið afar sterka gróðastööu meö sölu vélanna og viðgerðar- og varahlutaþjónustunni en þessu hefur aldrei verið svarað af hálfu forráðamanna Flugleiða hf. Mörgum þótti það skrýtið að á sama tima sem mikið framboð var á flug- vélum i heiminum, skyldu Flugleiðir h.f. alltaf skipta við sama banda- riska fyrirtækið. Þegar þetta er svo allt lagt saman, þá hefur atburðarásin sýnt, að spá- sögnin um örlög áhættuflugsins og hvernig þaö tengdist inni hugsanlegt tap fyrirtækisins hefur reynst rétt. I öðru lagi aö á sama tima myndu for- ráöamenn og eigendur fyrirtækisins leggja höfuöáherslu á aö byggja upp rekstur erlendis i tengslum við erlenda aöila i gegnum Lúxemburg og Bahameyjar, og i 3ja lagi að fjár- festingastefnan væri röng, svo sem kaupin á DC 10 vélunum. Allt hefur þetta reynst rétt, að ógleymdri stefn- unni i fargjaldamálunum. Rangar upplýsingar — Samt er það ekki fyrr en nú að viðurkennt er af Fiugleiðamönnum að alvarlega Iiorfi? — Já, það er rétt. Sigurður Helga- son byrjaöi að gefa út yfirlýsingar um þetta mál 1977 og sagöi þá ailt vera i lagi. Og allar upplýsingar sem hann hefur gefið upp siðan, þar til nú, eöa i tœp 3ár hafa reynst rangar. Þessi aðalforstjóri fyrirtækisins hef- ur hvað eftir annað orðið ber aö þvi að gefa alrangar upplýsingar um þaö i hvaöa átt þróunin stefndi i þessum málum. — Heidurðu að hann hafi ekki vit- að betur? — Ef hann hefur ekki vitaö betur er það auðvitað vitaverð vanþekking hjá manni i svo þýðingarmikilli stöðu og sem ber aðra eins ábyrgö og hefur nú alræðisvald i málefnum félagsins. Ef hann hefur hinsvegar vitaö betur, þá hefur hann visvitandi villt um fyrir islenskum ráðamönn- um og islenskum almenningi og það sem kannski er vitaverðast, starfs- fólki fyrirtækisins. 1 þvi sambandi vil ég minna á aö einn af mörgum vinnustaðafund- um, sem ég fór á fyrir siðustu kosn- ingar, var einmitt á Flugleiðum. A þessum fundi var húsfyllir. Þarna var ég gagnrýndur harðlega af ýms- um stóryrtum einstaklingum, starfs- mönnum fyrirtækisins, fyrir minn tillöguflutning og framsöguræðu. Ég benti þeim á að ég hefði talið þá, þegar ég flutti tillöguna, að það myndu ekki liða mörg ár þar til þessi rekstur gæti orðið i stórfelldri hættu og aö ég væri þeirrar skoðunar nú, að það væri jafnvel enn skemmri timi þar til menn stæðu frammi fyrir þvi hvort leggja ætti starfsemi Flugleiða h.f. á N-Atlantshafsleiðinni niður. Það var hópur starfsmanna sem hló að þessum fullyrðingum minum og sagði að allt gengi nú vel og betur en áður á Atlantshafsleiðinni. Þeir stóðu i þeirri meiningu að allt væri i lagi með rekstur fyrirtækisins, vissu sem sagt ekki um þá stórfelldu erfiðleika sem aöeins rúmum mánuði siðar voru opinberaðir af forstjóra fyrirtækisins. Raunar hef- ur hann nú sett mun fjölþættari rök undir minn málflutning á þessum fundi, en ég gat sjálfur. Gripa verður í taumana strax Ég tel, að annað sé útilokað fyrir alþingi og rikisstjórn en að gera þaö nú upp við sig hvaða ráðstafanir menn ætla að undirbúa sig undir til þess aö bjarga flugsamgöngum landsins við útlönd. Sú hætta vofir nú yfir að áframhaldandi taprekstur geri það að verkum að islenski arm- ur þessarar fjöiþjóðasamsteypu geti oröið gjaldþrota á sama tima og hún heldur áfram að starfa úti i heimi og raunar að stækka viö sig frekar en hitt, en Islendingar sitji eftir samgöngulausir við útlönd. Einnig er liklegt að þess verði krafist aö Islendingar greiði stóran hluta af þessu tapi á sama tima sem þeir er þarna eiga hlut að máli i gegnum erlendu félögin geta haldið fram að taka sinn gróða erlendis. Meöal ann- ars þess vegna ætia ég að flytja til- lögu mina aftur um leiö og Alþingi kemur saman á þessu ári. Að lokum vil ég segja þetta: Vegna spásagna á liönum árum um þróun flugsamgangna i heiminum hafa menn til aö mynda látiö teikna nýja flugstöðvarbyggingu á Keflavikur- flugvelli, fyrst i tiö Einars Agústs- sonar og nú hefur máliö veriö endur vakið i tiö Benedikts Gröndals. öll um ætti að vera ljóst aö þessar nýju aöstæður i N-Atlantshafsfluginu gera að engu þessa hugmynd. Hvaða vit væri i þvi fyrir þjóö sem stendur frammi fyrir þvi eftir örfá ár aö sinna eingöngu Evrópu- og innan- landsflugi aö ráðast i byggingu flug- stöðvar á Keflavikurflugvelli og það fyrir bandariskt fé, sem stæði kannski tóm að meginhluta? Afleiðingar af atburðunum hjá Fiugleiðum eru miklu viðtækari en bara innan fyrirtækisins sjálfs. Þar má tilnefna byggingu þessarar nýju flugstöðvar, frihöfnina á Keflavikur flugvelli og fleira sem stjórnvöld veröa að taka til endurskoðunar nú i ljósi breyttra aðstæðna. Næst liggur fyrir að alþingi og rikisstjórn fái tæmandi og nákvæmar upplýsingar um það sem i raun og veru er að gerast innan Flugleiöa h.f. Þjóðin á rétt á þvi og fulla kröfu þar um. — S.dór Rætt vid Ólaf Ragnar Grímsson I____ii—éiL..,. Flugleiðamálid og tillöguna sem hann flutti fyrir rúmu ári um Úrþingræðu í desember 1978 1 ræðu þeirri sem Ólafur Ragnar Grímsson flutti á alþingi 7. desember 1978 þegar til umræðu kom tillaga hans um skoðun á rekstri Flugleiöa h.f. og Eimskipafélagsins h.f. sagöi hann m.a. eftirfarandi: „Fyrir rösku ári bjuggust forráða- menn Flugleiöa greinilega við þvi, að þetta mikla verðstrið yrði stutt. En svo hefur ekki orðið. Það stendur enn og er i dag miklu grimmara en það var fyrir ári. 1 raun og veru eru engar likur fyrir þvi i dag, að Flug- leiðamenn muni reynast sannspárri nú um það, að þessu mikla verðstriði kunni að ljúka, en þeir voru fyrir rösku ári þegar það var að hefjast. Við getum þess vegna ekki slegið þvi föstu, að hér sé ekki stefnt i allal- varlegan og kannske stórfelldarii taprekstur á þessum áhættumarkaði heldur en nokkurn hefur grunaö, —í taprekstur sem yröi unninn upp með þvi að láta tslendinga borga hærri fargjöld á þeim flugleiðum sem þeir fyrst og fremst stunda. Sú spurning vaknar óneitaniega i hugum þeirra sem vilja meta sam- göngukerfi þjððarinnar og þann flug- rekstur sem tslendingar stunda, fyrst og fremst frá öryggis- og vel- ferðarsjónarmiðum þjóðarinnar sjálfrar, hvort þaö sé rétt stefna til lengdar að leggja allt flugkerfi landsins undir i hinu nýja og stór- fellda áhættuspili sem nú er háö á hinum alþjóölega flugmarkaði At- lantshafsflugsins, eftir að Banda- rikjastjórn breytti reglunum um þann samkeppnismarkað fyrir nokkrum misserum. Ef Flugleiðir tapa þeim leik á næstu árum, drekkir það tap ekki að- eins fjárfestingum félagsins i tengsl- um við þennan samkeppnísmarkað, heldur einnig öllum öðrum eignum félagsins. Allt flugkerfi landsins kynni að brenna i þvi báli. Það er mikil áhætta fyrir islenska þjóö og stjórnvöld landsins að láta eins og sá möguleiki sé ekki til, að útiloka al- gjörlega ósigur i verðstriöinu á At- lantshafsleiðinni sem kynni aö skilja allt flugkerfi Islendinga eftir i rúst vegna þeirrar eignarlegu samteng- ingaralls flugflotans sem ríkjandi er hjá Flugleiðum, bæði þeirra flug- véla, sem notaðar eru á Atlantshafs- leiöinni, og hinna sem notaöar eru milli íslands og Evrópu og innan- lands. Og kann sú hætta ekki að vera einnig fyrir hendi, hv. þm. að undir slikum kringumstæðum kjósi eig- endur Flugleiöa vegna þröngra eig- inhagsmuna aö bjarga sinu skinni með þviaö flytja áhersluþungann frá flugrekstrinum innaniands og færa eignirnar til hinna alþjóðlegu fyrir- tækja Air Bahama og Cargolux og flugfélagsins i Uruguay og kannski einnig i Sri Lanka, til þess aö þeir björguðu þó sinum eignum þótt þjóö- in sjálf sæti uppi flugflotalaus. 1 jafn- alþjóðlegri og flókinni fyrirtækja- samsteypu sem Flugleiöir eru nú orðnar er sá möguleiki vissuleg^ fyrir hendi og það væri blinda að úti- loka hannmeð öllu. Það þarf að svara þeirri spurn- ingu, hvort til lengdar, við hinar nýju aðstæður sem komnar eru upp á At- lantshafsmarkaðnum, eigi allt flug- kerfi þjóðarinnar innanlands og við Evrópu aö vera tengt við þetta mikla áhættuspil. Og sú spurning verður enn brýnni þegar haft er i huga að meginþunginn i fjárfestingum Flug- leiða, svo sem kaupin á DC-10 þot- unni, sem nú eru ákveöin og jafn- gilda að verömæti nánast heilli Kröfluvirkjun, og nýleg tilkynning um kaup á annarri DC-10 þotu, auk einnig nýrrar Boeing-flugvélar á næsta ári, hvort þessi markmið sem félagið kýs aö setja á oddinn i sinni fjárfestingarstefnu, eru i raun og veru rétt. Umræðan um fargjalda- stefnuna leiöir okkur þvi að þriðja meginþættinum, sem spurningarnar 15 beinast aö, þeirri fjárfestingar- stefnu sem rikjandi hefur verið hjá fyrirtækjunum tveimur á undanförn- um árum...” Þetta var þá kallaö lygi og áróður, en hvaö segja menn nú?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.