Þjóðviljinn - 04.01.1980, Qupperneq 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. janúar 1980
Föstudagur 4. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
á dagskrá
„Megináhersla á hœkkun eða varðveislu
svonefnds kaupmáttar greypir
falshugmyndir i vitund alþýðu, torveldar
skilning á þvi að samneyslan er einn
mikilvœgastiþáttur lifskjaranna og seinkar
skilgreiningu á nýjum markmiðum”.
Hentistefna Alþýðu-
bandalagsins í nýju
Þeir sem hafa ásakað Alþýðu-
bandalagið fyrir hentistefnu og
svik við málstað verkalýðsins á
undanförnum árum eru að likind-
um hæstánægðir með þá stefnu
sem flokkurinn tók í stjórnar-
myndunarviðræöunum i desem-
ber. Nú á semsagt ekki að fara út
i makk og undanslátt heldur
standa fast á kröfunum. Tillögum
Framsóknarflokksins var hafnað,
eins og lesendum Þjóðviljans ætti
að vera vel kunnugt. Og manni
skilst að tillögur Alþýðuflokksins
hafi ekki komið til umræðu, enda
lagöar fram sama dag og Alþýöu-
bandalagið lagði fram yfirlýsingu
þar sem segir m.a.: „Alþýðu-
flokkurinn hefur þegar sýnt það i
verki, að hann vill ekki vinstra-
samstarf.”
1 upphafi viðræðnanna lögðu
fulltrúar Alþýðubandalagsins
Iram almennt orðað plagg til að
„kynna — áhersluatriði” eins og
þar segir. úr þvi hefur eftir-
farandi einkum veröi hampaö:
„Stefnan i efnahags- og kjara-
málum verði við það miðuö
a) aö sérstök áhersla verði lögö a
aö auka kaupmátt lægstu launa
b) að elli- og örorkullfeyrir hækki
c) aö almenn laun séu verðtryggð
d) að stuðlað veröi að jöfnun rétt-
inda launafólks, m.a. i lifeyris-
málum, húsnæðismálum og á
sviði vinnuverndar og vinnuað-
búnaðar.’1
Þau ráð, sem bent er á, lii aö
gera þetta framkvæmanlegt, eru
það almennt orðuð að þau geta
tæpast talist umræðugrundvöllur,
Lesendur Þjóðviljans þekkja
lykilorðin: ,, — gert stórátak til
aukinnar verðmætasköpunar
með hagræðingu i atvinnulifi,
skipulegri fjárfestingarstjórn og
niðurskurði milliliðaeyðslu i sam-
ræmi við fyrri tillögur Alþýðu-
bandalagsins.”
Þeir sem hafa áhuga á að
kanna möguleika á aö fram-
kvæma til lögursem þessar veröa
að fá upplýst hvað átt er við með
„lægstu laun”. Það hefur for-
maöur flokksins skilgreint sem
390 þúsund fyrir dagvinnu
(Morgunbl. 22.12). I tillögunum
virðist þvi felast þaö, að kaup-
máttur verði aukinn hjá þorra
launþega og þeir hæstlaunuöu
haldi slnu cg samhliöa verði gerö-
ar úrbætur á þeim sviðum sem
veröbólgan hefur gert erfiöust úr-
lausnar.
Vonandi finnst fleirí en mér
timabært oröiö aö velta fyrir sér
spurningunni um hentistefnu
Alþýðubandalagsins frá öðrum
sjónarhóli en getið var hér i upp-
hafi. Hafa verður i huga að til-
lögurnar á að framkvæma i þjóö-
Ijósi
félagi þar sem aukning þjóöar-
framleiðslu hefur verið að nálg-
ast núllpúnktinn og viðskiptakjör
farið versnandi. A næsta áriverð-
um viö aö veiöa minni fisk með
meiritilkostnaði. Ekki þarf þvi að
undrast þótt einhverjum finnist
umræddar tillögur einkennast af
yfirborðsmennsku. Og sé nánar
að þeim hugað má raunar greina i
þeim ákveðnar hættur fyrir fram-
gang vinstri stefnu og sósialisma:
1. Kröfugerð án viðhlitandi
skýringa á hvaða skilyrðum þarf
að fullnægja til þess að hún geti
talist raunhæf er til þess eins fall-
in að varpa ryki i augu almenn-
ings og torvelda honum skilning á
þjóöfélaginu og möguleikum á að
breyta þvi.
2. Miðist tillögur af þvi tagi sem
hér um ræðir við óbreytt þjóð-
skipulag verða þær aö teljast
marklausar og einkar vel til þess
fallnar að auka verðbólgu.
3. Kauphækkanirsem renna út i
verðlagið og ekki leiöa til aukn-
ingar á kaupmætti (sbr. reynslan
af siðasta áratug), bitna á þeim
lakast settu i þjóðfélaginu s.s.
ellilifeyrisþegum og námsfólki og
leiða þvi i raun til ójafnaðar. Hér
er enn komið að tilgangsleysi
kauphækkana sem samið er um i
óbreyttu kerfi.
4. Með þvi að gera hækkun eða
varöveislu svonefnds kaupmáttar
að lykilorði, og grundvallaratriði
i stefnu sinni og starfi er Alþbl. að.
greypa i vitund alþýðu falshug-
myndirsem verslunarauðvaldinu
eru þóknanlegar, þ.e.a.s. vel-
liðan og hamingju öðlast menn
með þvi að kaupa. Meginvið-
fangsefni sósialísks flokks er þá
orðið það að tryggja að sem flest-
ir geti keypt sem mest. Þetta tor-
veldar almenningi að sjálfsögðu
skilning á þvi að samneyslan
(þjónusta og framkvæmdir á veg-
um rikis og sveitarfélaga) er einn
mikilvægasti þáttur lifskjaranna
og seinkar nauðsynlegri skil-
greiningu á nýjum markmiöum
sem taka mið af.breyttum að-
stæðum i þjóðfélaginu og um-
heiminum.
5. Almenn viðtæk kröfugerð án
þess að gera upp við sig, hvað á
að hafa forgang þegar til kast-
anna kemur leiðir til yfirborðs-
kenndra og vélrænna vinnu-
bragða, úrræða- og stefnuleysis.
Nú kynnu einhverjir að vilja
velta þvi fyrir sér hvað þvi veldur
að Alþýðubandalagiö hefur hafn-
að i þessum farvegi. Hér verður
ekki reynt að fara nánar út i þá
sálma. Meginskýringanna er að
likindum að leita i viðleitni
flokksins til að hafa samstöðu
með verkalýðshreyfingunni hvað
sem tautar og raular. En viöhorf
og vinnubrögð af þvi tagi sem hér
hefur verið lýst verða ekki lengur
afsökuð meö þvi aö verkalýðs-
hreyfingin sé komin skammt á
veg með að endurmeta markmið,
skipulag og inntak baráttu sinn-
ar.
Tengslin við verkalýðshreyfing-
una valda sjálfsagt mestu um það
aö Alþbl. notaði fyrsta tækifæri til
að draga sig útúr stjórnarmynd-
unarviðræðunum. Enda á
flokkurinn ekki annarra kosta
völ ef hann ætlar aö styðja þær
kröfur sem verða settar fram i
væntanlegum kjarasamningum.
Og hjá þvi kemst hann vist ekki
miðað við sögu sina og stöðu,
hvort sem grunnkaupshækkan-
irnareiga aö verða I8eða 39% svo
tekið sé mið af BSRB eða „leið-
réttingar” og kröfur i 22 liöum
eins og ASÍ hefur mótað.
Nú skal ósagt látið að áfram-
haldandi viöræöur um vinstri
stjórn hefu getað leitt til ein-
hverra þjóðfélagsbreytinga. Aö
minnsta kosti hefur fyrri stjórn-
um af þvi tagi ekki einu sinni tek-
ist að þjóönýta lyfjaverslunina
enda þótt rikið borgi þau lyf sem
notu ð e ru i la ndinu a ö mestu fram
leiði stóran hluta þeirra og veiti
innflutningsleyfi fyrir öðrum.
Hinsvegar heföi veriö hollt og
þarflegt fyrir Alþýðubandalagið
aö fara nánar i saumana á tillög-
um sinum og gera betur grein
fyrir hvernig þær gætu komið til
framkvæmda. Alþýðuflokkurinn
gerði sæmilega grein fyrir þvi
hvernig hann vildi tryggja hag
hinna lægstlaunuðu og nefndi
m.a. hækkun skattfrelsismarka,
auknar stighækkandi fjölskyldu-
bætur, hækkun á ellilifeyri og
tekjutryggingu, umbætur i hús-
næðismálum, lögleiðingu frum-
varps um eftirlaun aldraðra og
samræmt lifeyrisréttindakerfi
fyrir alla landsmenn.
Framsókn sagðist lika ætla að
verja lægri laun og standa að
svipuðum félagslegum umbótum.
En nú gat Alþbl. ekki gengið til
samstarfs um slika hluti. Það
verður væntanlega að styðja allar
kaupkröfur i væntanlegum kjara-
samningum. Þess vegna verður
að afhenda Sjálfstæðisflokknum
völdin. Og senda svo frá sér harð-
orð mótmæli þegar hann fer að
nota þau. Vandalitið og hagkvæm
lausn fyrir flokkinn. En hvernig
reynist hún alþýðunni — hvað fel-
ur hún i sér fyrir þá hópa sem
minnst mega sln i kapitalisku
þjóðfélagi á leið inn i kreppu?
Dregið í happdrœtti Krabbameinsfélagsins
Dregiö hefur verið i hausthapp-
drætti Krabbameinsfélagsins
1979. Fjórar bifreiðar, sem voru i
boði, komu á eftirtaiin niimer:
115091 Dodge Omni, 68800 Saab
99 GL, 119300 Citroen Visa Club og
46395 Toyota Starlet 1000.
Sambyggö útvarps- og segul-
bandstæki, Crown komu á: 25019,
49032, 60727, 71258, 103927, Og
147200.
Krabbameinsfélagiö þakkar
landsmönnum góðan stuðning
fyrr og siöar og óskar þeim far-
sældar á nýju ári. (Fréttatilk.)
Ég benti á að
þröngurhópur
esgenda gæti
haldid áfram
gróðaöflun
sinni
erlendis en
þjóðin sæti
eftir með
samgöngu-
kerfið við um-
heiminn og
stærstan hiuta
innanlands
kerfisins í rúst
I fyrra haust flutti ólafur
Ragnar Grímsson alþingis-
maður tillögu á alþingi þess
efnis að kjörin yrði nefnd til
að kanna rekstur Flugleiða
h.f. og Eimskipafélagsins
h.f. Þegar svo þessi tiilaga
kom til umræðu á alþingi 7.
desember 1978 eða fyrir rétt
rúmu ári siöan, flutti ólafur
ræðu, sem vægt sagt olli
fjaðrafoki hér á landi. Til-
löguflutningur hans varð
m.a. til þess að umræðuþátt-
ur var fluttur í sjónvarpinu,
þar sem fram komu ásamt
ólafi, óttarr Möller forstjóri
Eimskips sem þá var, og
Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða.
1 þessum þætti og raunar i viðtöl-
um við Morgunblaðið sagði Sigurður
Helgason það allt ósannindi og
áróður, sem Ölafur flutti sem rök
fyrir máli sinu. Þingmenn Sjálf-
stæðisflokksins og Morgunblaðið
tóku undir og réðust af heift að ólafi
Ragnari fyrir ræðuna. Morgunblaðið
benti á sem frægt var, að Flugleiðir
h.f. ásamt Eimskip og SH væru horn-
steinar frjáls framtaks á Islandi og
aö þessum hornsteinum væri nú veg-
ið af ósanngirni og farið með rangt
mál.
Nú hefur aftur á móti komið i ljós
að allt þaö sem Ólafur Ragnar sagöi
var rétt og satt. Hann spáöi fyrir um
þær ógöngur sem Flugleiöir h.f. eru
nú komnar i. Vegna þessa ræddi
Þjóðviljinn við Ólaf Ragnar um þetta
mál.
Tillagan verður
endurflutt
— Jú svo sannarlega fékk ég að
heyra það frá forráðamönnum
Flugleiða, svo og Sjálfstæðisflokkn-
um og Morgunblaðinu. Sagt var að
allt það sem ég sagði væri úti hött og
ekkert nema árás á fyrirtækið og
einkaframtakið i landinu.
Voru það einu viðbrögðin sem þú
fékkst við ræðunni?
— Nei alls ekki. Mér bárust
fjölmörg bréf, nafnlaus flest hver,
frá starfsfólki Flugleiða h.f. sem
greinilega höfðu náin kynni af þvi
sem þar var að gerast. Þessi bréf
staðfestu það sem ég hafði haldið
fram.
Aftur á móti notaði ég þau bréf
sama og ekki neitt opinberlega, mér
þótti það ekki rétt, en það lýsti vel
ástandinu innan fyrirtækisins. I
þessum bréfum kom i ljós óeining og
óstjórn innan fyrirtækisins, sem hafa
raunar magnast enn eftir að
Siguröur Helgason tók einn við
stjórnartaumunum. Þetta var eitt af
þvi sem ég benti á i ræðu minni á
alþingi og tók fram að mér þætti
ótrúlegt aö fyrirtækið væri i stakk
búið til að takast á við þau hrikalegu
vandamál sem við blöstu eins og
ástandið innan þess var og er.
Og þú ert ákveðinn i að endurflytja
tiliöguna?
— Já, ég er það auðvitað og geri
það um leið og alþingi kemur saman.
Hafi verið ástæöa til að flytja þessa
tillögu i fyrra, þá er hún ekki siður
fyrir hendi nú.
Allt hefur komið fram.
Þegar tillaga min kom til
umræðu á alþingi flutti ég ýtarlega
ræðu, sem þótti nú heldur löng, tók
um það bil 2 klukkustundir i flutn-
ingi, þar sem ég geröi grein fyrir þvi
sem mér þótti liggja i augum uppi
varöandi Flugleiðir h.f. Það voru 5
meginþættir sem ég tók fyrir.
Sá fyrsti snerti þaö, ab nútlma-
samgöngur væru svo mikilvægur
þáttur i þjóöfðlagi samtimans, bæði
hvaö varðar atvinnuvegi, lifskjör
fólks og öll samskipti við umheiminn
að stjórnvöld, bæði alþingi og rikis-
stjórivyrðu aö tryggja þjóðinni það
að þessar samgöngur væru öruggar.
Það yrði að skilja á milli alvarlegs
áhættureksturs eins og N-Atlants-
hafsflugið væri og þeirra samgangna
sem þjóöin af öryggisástæðum yröi
aö hafa við önnur lönd og þá ekki
siður innanlands. Ég benti á að
áhættuflugið hjá Flugleiðum h.f.
væri orðið slikur þáttur i rekstri
fyrirtækisins að það stofnaöi
öryggisþættinum i hættu.
Annar meginþátturinn i tillögu-
gerðinni og framsöguræðunni var að
gera greinfyrirhvernig áhættufíugið
stofnaði öryggisþættinum i hættu.
(Sjá rammagreinina Úr þingræðu i
desember 1978 hér til hliðar).
Þar benti ég á að hætta væri á þvi
að einmitt flugið yfir N-Atlantshaf
myndi skila svo miklu tapi að fyrir-
tækið yrði gjaldþrota og þar með
yrði allur flugfloti landsmanna
lagður i rúst. 1 þessu sambandi benti
llllÍlÉS
ég á hvernig Evrópuflugið, inn-
anlandsflugið og Atlantshafsflugið
væri samtengt I þessu eina fyrir-
tæki. Nú virðist þetta allt vera að
koma fram, þótt ekki skuli fullyrt
neitt um það nú, hvort Flugleiöir eru
beinlinis gjaldþrota.
Að taka gróðann
annarsstaðar frá
I þriðja þættinum benti ég á,
hvernig forsvarsmenn Flugleiða h.f.
sérstaklega undir forystu Siguröar
Helgasonar hafa lagt á það ofur-
kapp, að hefja rekstur og afla sér
tengsla i flugrekstri útum allan
heim. Þar hafa risið upp bæði dóttur-
fyrirtæki og Flugleiðir h.f. tengst
svonefndum hlutdeildarfyrirtækjum,
þar sem Cargolux og Air Bahama
eru kannski þekktustu dæmin.
Ennfremur eignarhlutafélög eins og
Hekla Holdings, sem er fyrst og
fremst pappirsfyrirtæki, stofnaö til
aö auðvelda fjármagnstilflutning
milli fyrirtækjanna, og sem Sigurður
Helgason stjórnar aleinn. Flugleiða-
samsteypan hefur undir hans forystu
lagt ofurkapp á það að byggja upp
slik alþjóðleg fyrirtæki og einkum i
löndum eins og Luxembúrg og
Bahameyjum, sem eru svonefnd
skattfri lönd, þ.e. fyrirtæki greiða
þar enga skatta og þar sem menn
geta tekiö gróðann út án þess að
greiða af honum nokkra skatta.
Ég spáði þvi i þessari ræðu að á
sama tima og Flugleiöaþátturinn i
þessari samsteypu, það er sá þáttur-
inn sem að tslendingum sneri, gæti
hrunið, þá gæti þröngur hópur
eigenda staðið eftir með alþjóðlegu
fyrirtækin eins og Air Bahama,
Cargolux, og önnur slik i fullum
gangi. Þeir gætu haldið áfram sinni
gróðaöflun þar, en þjóöin sæti eftir
með samgöngukerfiö við umheiminn
og stærstan hluta innanlandskerfis-
ins i rúst.
Enn nýtt fyrirtæki
Og mér þykir það táknrænt, að nú,
þessa sömu daga og hrun N-Atlants-
hafsflugsins blasir við skuli Sigurður
Helgason forstjóri Flugleiöa h.f.
boða komu sendinefndar frá
Lúxemburg til aö vinna að stofnun
nýs dótturfyrirtækis, sameign-
arfyrirtækis Flugleiða h.f. og
Lúxemburgara. Þaö sýnir einmitt
samhengiö i þessari þróunarstefnu
sem ég nefndi áöan. Þessi fyrirhug-
aða stofnun nýs fyrirtækis i
Lúxemburg vekur grunsemdir um
að með vilja sé veriö að flýta
aögerðum sem gerðu jiað kleift að
halda áfram Atlantshafs- og Evrópu-
flugi undir hatti nýs fyrirtækis sem
væri algerlega utan yfirráðasvæöis
islenskra stjórnvalda og .islensku
þjóöarinnar. Nýja fyrirtækiö með
Lúxemburgarmönnum ætti að
auðvelda Siguröi Helgasyni og félög-
um að halda áfram gróðastarfsemi
þótt hundruð Islendinga missi at-
vinnuna vegna þess að gamla Loft-
leiðaarminum i fyrirtækjasamsteyp-
unni sé slátrað.
— Hvað var þaö þá fyrst og fremst
sem þú vildir láta rannsaka?
— Þar má m.a. nefna hver væru
hin raunverulegu tengsl milli allra
þessara óliku þátta þessarar
fjölþjóölegu samsteypu. Ég vildi fá
aö vita hver væru tengslin milli sér.
islenska armsins, Flugleiöa h.f. og
Air Bahama, Cargolux, Hekla
Holdings og hótelania erlendis og
þeirra þátta annarra sem þarna er
að finna. Þaö hafa vaknaö
grunsemdir um að meö bókhalds-
brögðum og rekstrarsamskiptum
hafi islenski hluti samsteypunnar
verið látinn bera óeðlilegan kostnað,
á sama tima sem gróðinn hefur verið
tekinn út I þeim fyrirtækjum sem eru
skráð i skattlausu löndunum.
Bahamaeyjum og Lúxembúrg.
islendingar greiða
sifellt hærri fargjöld
1 f jórða þætti ræðu minnar benti ég
á, að á sama tima og fargjöldin yfir
N-Atlantshafið yrðu æ ódýrari væru
Islendingar látnir greiða æ hærri
fargjöld til Evrópulanda og inn-
anlands. Sú stefna að hækka sifellt
fargjöldin á Evrópu og innanlands-
leiðum en lækka þau yfir N-Atlants-
hafið vekur óneitanlega upp
rökstuddar grunsemdir um að
Evrópuflug Islendinga og jafnvel
innanlandsfiugið hafi verið notaö til
að bera óeðlilegan kostnað af
almennri starfsemi fyrirtækisins. Og
með þvi móti reynt að draga úr
heildartapinu með þvi að verðleggja
fargjöldin á Evrópuleiðinni og
kannski lika innanlands of hátt, á
óeðlilegum grundvelli og sem ætti að
reikna i rikara mæli til N-Atlants-
hafsflugsins.
Nú var það svo aö á þeim tima
sem ég setti þetta fram, gerðu for-
ráðamenn Flugleiöa h.f. afar litið úr
tapinu á N-Atlantshafsleiðinni. Siöan
liðu ekki nema 3 mánuðir og tillagan
var enn til umræöu i þinginu, og þá
kom I ljós, að tapið 1978 var um einn
miljarður króna og nú er talað um 5
til 6 miljarða króna tap á árinu 1979.
Svona tap skapar margvislegar
freistingar inni i fyrirtækinu til að
reyna að láta þær leiðir sem hugsan-
lega væri hægt að reka með hagnaöi,
borga óeðlilegan hluta sameiginlegs
kostnaðar. Og ég er alveg sann-
færður um þaö, aö islenskur almenn-
ingur hefur verið látinn greiöa alltof
há fargjöld nú á siðari árum vegna
þessara erfiðleika Flugleiða h.f.
DC 10 kostar jafn mikiö
og ein Kröfluvirkjun
Loks er svo að geta 5. og siðasta
þáttarins i ræöu minni, þar sem ég
gagnrýndi harðlega þá fjár-
festingarstefnu sem Flugleiðir hafa
fylgt og raunar Eimskipafélagið h.f.
lika. Hvaö Flugleiðir h.f. snertir
voru það fyrst og fremst kaupin á DC
10 þotunum á sama tima og ljóst var
að DC 8 vélarnar gátu dugað i mörg
ár. Atburðarásin áriö 1979 hefur sýnt
og sannað að kaupin á DC 10 vélun-
um voru alröng. Bæöi voru þær of
dýrar og of stórar og reyndust að
auki gallaöar. 1 raun hafa forráða-
menn Flugleiða staöfest þetta sjálfir
með þvi að tilkynna aö þeir séu að
hverfa frá DC 10 vélunum yfir i DC 8
vélarnar. Þegar ég setti þetta fram
var taliö að það væri úti hött að halda
áfram rekstri DC 8 vélanna
eingöngu. Ég er alveg sannfærður
um að þessi ranga fjárfestingar-
stefna á stóran þátt i erfiöleikum
fyrirtækisins nú.
Spurningum ósvarað.
1 umræðum um málið i þinginu var
varpað fram spurningum, sem hefur
aldrei verið svarað, en það eru tengsl
Flugleiða h.f. við bandariska flug-
félagið Seabord and Western sem
Flugleiðir h.f. keyptu DC þoturnar
frá og sem annast alla varahluta- og
viðgeröarþjónustu. Bent hefur verið
á aö SW hafi fengið afar sterka
gróðastööu meö sölu vélanna og
viðgerðar- og varahlutaþjónustunni
en þessu hefur aldrei verið svarað af
hálfu forráðamanna Flugleiða hf.
Mörgum þótti það skrýtið að á sama
tima sem mikið framboð var á flug-
vélum i heiminum, skyldu Flugleiðir
h.f. alltaf skipta við sama banda-
riska fyrirtækið.
Þegar þetta er svo allt lagt saman,
þá hefur atburðarásin sýnt, að spá-
sögnin um örlög áhættuflugsins og
hvernig þaö tengdist inni hugsanlegt
tap fyrirtækisins hefur reynst rétt. I
öðru lagi aö á sama tima myndu for-
ráöamenn og eigendur fyrirtækisins
leggja höfuöáherslu á aö byggja upp
rekstur erlendis i tengslum við
erlenda aöila i gegnum Lúxemburg
og Bahameyjar, og i 3ja lagi að fjár-
festingastefnan væri röng, svo sem
kaupin á DC 10 vélunum. Allt hefur
þetta reynst rétt, að ógleymdri stefn-
unni i fargjaldamálunum.
Rangar upplýsingar
— Samt er það ekki fyrr en nú að
viðurkennt er af Fiugleiðamönnum
að alvarlega Iiorfi?
— Já, það er rétt. Sigurður Helga-
son byrjaöi að gefa út yfirlýsingar
um þetta mál 1977 og sagöi þá ailt
vera i lagi. Og allar upplýsingar sem
hann hefur gefið upp siðan, þar til
nú, eöa i tœp 3ár hafa reynst rangar.
Þessi aðalforstjóri fyrirtækisins hef-
ur hvað eftir annað orðið ber aö þvi
að gefa alrangar upplýsingar um þaö
i hvaöa átt þróunin stefndi i þessum
málum.
— Heidurðu að hann hafi ekki vit-
að betur?
— Ef hann hefur ekki vitaö betur
er það auðvitað vitaverð vanþekking
hjá manni i svo þýðingarmikilli
stöðu og sem ber aðra eins ábyrgö og
hefur nú alræðisvald i málefnum
félagsins. Ef hann hefur hinsvegar
vitaö betur, þá hefur hann visvitandi
villt um fyrir islenskum ráðamönn-
um og islenskum almenningi og það
sem kannski er vitaverðast, starfs-
fólki fyrirtækisins.
1 þvi sambandi vil ég minna á
aö einn af mörgum vinnustaðafund-
um, sem ég fór á fyrir siðustu kosn-
ingar, var einmitt á Flugleiðum. A
þessum fundi var húsfyllir. Þarna
var ég gagnrýndur harðlega af ýms-
um stóryrtum einstaklingum, starfs-
mönnum fyrirtækisins, fyrir minn
tillöguflutning og framsöguræðu. Ég
benti þeim á að ég hefði talið þá,
þegar ég flutti tillöguna, að það
myndu ekki liða mörg ár þar til þessi
rekstur gæti orðið i stórfelldri hættu
og aö ég væri þeirrar skoðunar nú, að
það væri jafnvel enn skemmri timi
þar til menn stæðu frammi fyrir þvi
hvort leggja ætti starfsemi Flugleiða
h.f. á N-Atlantshafsleiðinni niður.
Það var hópur starfsmanna sem hló
að þessum fullyrðingum minum og
sagði að allt gengi nú vel og betur en
áður á Atlantshafsleiðinni. Þeir
stóðu i þeirri meiningu að allt væri i
lagi með rekstur fyrirtækisins, vissu
sem sagt ekki um þá stórfelldu
erfiðleika sem aöeins rúmum
mánuði siðar voru opinberaðir af
forstjóra fyrirtækisins. Raunar hef-
ur hann nú sett mun fjölþættari rök
undir minn málflutning á þessum
fundi, en ég gat sjálfur.
Gripa verður í
taumana strax
Ég tel, að annað sé útilokað fyrir
alþingi og rikisstjórn en að gera þaö
nú upp við sig hvaða ráðstafanir
menn ætla að undirbúa sig undir til
þess aö bjarga flugsamgöngum
landsins við útlönd. Sú hætta vofir nú
yfir að áframhaldandi taprekstur
geri það að verkum að islenski arm-
ur þessarar fjöiþjóðasamsteypu geti
oröið gjaldþrota á sama tima og hún
heldur áfram að starfa úti i heimi og
raunar að stækka viö sig frekar en
hitt, en Islendingar sitji eftir
samgöngulausir við útlönd. Einnig
er liklegt að þess verði krafist aö
Islendingar greiði stóran hluta af
þessu tapi á sama tima sem þeir er
þarna eiga hlut að máli i gegnum
erlendu félögin geta haldið fram að
taka sinn gróða erlendis. Meöal ann-
ars þess vegna ætia ég að flytja til-
lögu mina aftur um leiö og Alþingi
kemur saman á þessu ári.
Að lokum vil ég segja þetta: Vegna
spásagna á liönum árum um þróun
flugsamgangna i heiminum hafa
menn til aö mynda látiö teikna nýja
flugstöðvarbyggingu á Keflavikur-
flugvelli, fyrst i tiö Einars Agústs-
sonar og nú hefur máliö veriö endur
vakið i tiö Benedikts Gröndals. öll
um ætti að vera ljóst aö þessar nýju
aöstæður i N-Atlantshafsfluginu gera
að engu þessa hugmynd. Hvaða vit
væri i þvi fyrir þjóö sem stendur
frammi fyrir þvi eftir örfá ár aö
sinna eingöngu Evrópu- og innan-
landsflugi aö ráðast i byggingu flug-
stöðvar á Keflavikurflugvelli og það
fyrir bandariskt fé, sem stæði
kannski tóm að meginhluta?
Afleiðingar af atburðunum hjá
Fiugleiðum eru miklu viðtækari en
bara innan fyrirtækisins sjálfs. Þar
má tilnefna byggingu þessarar nýju
flugstöðvar, frihöfnina á Keflavikur
flugvelli og fleira sem stjórnvöld
veröa að taka til endurskoðunar nú i
ljósi breyttra aðstæðna. Næst liggur
fyrir að alþingi og rikisstjórn fái
tæmandi og nákvæmar upplýsingar
um það sem i raun og veru er að
gerast innan Flugleiöa h.f. Þjóðin á
rétt á þvi og fulla kröfu þar um.
— S.dór
Rætt vid
Ólaf Ragnar
Grímsson
I____ii—éiL..,.
Flugleiðamálid
og tillöguna sem hann flutti
fyrir rúmu ári um
Úrþingræðu í desember 1978
1 ræðu þeirri sem Ólafur Ragnar
Grímsson flutti á alþingi 7. desember
1978 þegar til umræðu kom tillaga
hans um skoðun á rekstri Flugleiöa
h.f. og Eimskipafélagsins h.f. sagöi
hann m.a. eftirfarandi:
„Fyrir rösku ári bjuggust forráða-
menn Flugleiöa greinilega við þvi,
að þetta mikla verðstrið yrði stutt.
En svo hefur ekki orðið. Það stendur
enn og er i dag miklu grimmara en
það var fyrir ári. 1 raun og veru eru
engar likur fyrir þvi i dag, að Flug-
leiðamenn muni reynast sannspárri
nú um það, að þessu mikla verðstriði
kunni að ljúka, en þeir voru fyrir
rösku ári þegar það var að hefjast.
Við getum þess vegna ekki slegið
þvi föstu, að hér sé ekki stefnt i allal-
varlegan og kannske stórfelldarii
taprekstur á þessum áhættumarkaði
heldur en nokkurn hefur grunaö, —í
taprekstur sem yröi unninn upp með
þvi að láta tslendinga borga hærri
fargjöld á þeim flugleiðum sem þeir
fyrst og fremst stunda.
Sú spurning vaknar óneitaniega i
hugum þeirra sem vilja meta sam-
göngukerfi þjððarinnar og þann flug-
rekstur sem tslendingar stunda,
fyrst og fremst frá öryggis- og vel-
ferðarsjónarmiðum þjóðarinnar
sjálfrar, hvort þaö sé rétt stefna til
lengdar að leggja allt flugkerfi
landsins undir i hinu nýja og stór-
fellda áhættuspili sem nú er háö á
hinum alþjóölega flugmarkaði At-
lantshafsflugsins, eftir að Banda-
rikjastjórn breytti reglunum um
þann samkeppnismarkað fyrir
nokkrum misserum.
Ef Flugleiðir tapa þeim leik á
næstu árum, drekkir það tap ekki að-
eins fjárfestingum félagsins i tengsl-
um við þennan samkeppnísmarkað,
heldur einnig öllum öðrum eignum
félagsins. Allt flugkerfi landsins
kynni að brenna i þvi báli. Það er
mikil áhætta fyrir islenska þjóö og
stjórnvöld landsins að láta eins og sá
möguleiki sé ekki til, að útiloka al-
gjörlega ósigur i verðstriöinu á At-
lantshafsleiðinni sem kynni aö skilja
allt flugkerfi Islendinga eftir i rúst
vegna þeirrar eignarlegu samteng-
ingaralls flugflotans sem ríkjandi er
hjá Flugleiðum, bæði þeirra flug-
véla, sem notaðar eru á Atlantshafs-
leiöinni, og hinna sem notaöar eru
milli íslands og Evrópu og innan-
lands. Og kann sú hætta ekki að vera
einnig fyrir hendi, hv. þm. að undir
slikum kringumstæðum kjósi eig-
endur Flugleiöa vegna þröngra eig-
inhagsmuna aö bjarga sinu skinni
með þviaö flytja áhersluþungann frá
flugrekstrinum innaniands og færa
eignirnar til hinna alþjóðlegu fyrir-
tækja Air Bahama og Cargolux og
flugfélagsins i Uruguay og kannski
einnig i Sri Lanka, til þess aö þeir
björguðu þó sinum eignum þótt þjóö-
in sjálf sæti uppi flugflotalaus. 1 jafn-
alþjóðlegri og flókinni fyrirtækja-
samsteypu sem Flugleiöir eru nú
orðnar er sá möguleiki vissuleg^
fyrir hendi og það væri blinda að úti-
loka hannmeð öllu.
Það þarf að svara þeirri spurn-
ingu, hvort til lengdar, við hinar nýju
aðstæður sem komnar eru upp á At-
lantshafsmarkaðnum, eigi allt flug-
kerfi þjóðarinnar innanlands og við
Evrópu aö vera tengt við þetta mikla
áhættuspil. Og sú spurning verður
enn brýnni þegar haft er i huga að
meginþunginn i fjárfestingum Flug-
leiða, svo sem kaupin á DC-10 þot-
unni, sem nú eru ákveöin og jafn-
gilda að verömæti nánast heilli
Kröfluvirkjun, og nýleg tilkynning
um kaup á annarri DC-10 þotu, auk
einnig nýrrar Boeing-flugvélar á
næsta ári, hvort þessi markmið sem
félagið kýs aö setja á oddinn i sinni
fjárfestingarstefnu, eru i raun og
veru rétt. Umræðan um fargjalda-
stefnuna leiöir okkur þvi að þriðja
meginþættinum, sem spurningarnar
15 beinast aö, þeirri fjárfestingar-
stefnu sem rikjandi hefur verið hjá
fyrirtækjunum tveimur á undanförn-
um árum...”
Þetta var þá kallaö lygi og áróður,
en hvaö segja menn nú?