Þjóðviljinn - 05.01.1980, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 05.01.1980, Blaðsíða 9
8 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. janúar 1980 Laugardagur 5. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 í lok nóvember og kosn- ingahelgina í byrjun desember héldu Vest- mannaeyingar mikla hátíð sem fór framhjá mörgum vegna þess hver ósköp gengu á í þjóðlífinu út af óþekktaröngunum í Alþýðuf lokknum. Vest- mannaeyingar eru vakandi fyrir f ortíð sinni ekki síður en nútíð og um þessa helgi var haldið upp á þrjú stórafmæli samtaka verkalýðsins: Alþýðuhúsið í Eyjum, það myndarlega minnismerki um mátt samtakanna, varð fimm- tugt, Sjómannaf élagið Jötunn varð 45 ára og Verka lýðsf élag Vest- mannaeyja fertugt. Það var eins og allur bærinn ætti merkisafmæli. Margt var sér til gamans gert i Eyjum þessa haustdaga. Þaö voru haldnar þrjár sýningar, málverkasýning alþýöumálara i Eyjum, sýning á málverkum i eigu Listasafns alþýöu og ljós- myndasýning úr atvinnusögu Vestmannaeyja ásamt skyggnu- sýningu um upphaf verkalýös- baráttu i Eyjum, en eintak af þeim skyggnum var gefiö Sögu- safni alþýðu á hátiöinni. Laugardaginn 1. desember var haldin baráttuskemmtun i Alþýöuhúsinu fyrir unga sem aldna, Alþýöuleikhúsið sýndi Blómarósir tvisvar hátlöisdag- ana og bæði föstudags- og laugar- dagskvöld var stiginn dans i Alþýöuhúsinu aö undangenginni dagskrá. Ráöstefna til fyrirmyndar Það merkasta sem boðiö var upp á þessa hátiöisdaga er þó enn ótaliö. Þaö var ráðstefnan Verka- fólk i sjávarútvegi, sem var haldin I Alþýðuhúsinu 29. og 30. nóv..Til hennar haföi verið boöiö fulltrúum hvaðanæva aö af land- inu og auk þess fjölda heima- manna. Kosningarnar gerðu hins vegar strik i reikninginn, margir hættu viö aö koma og þá einkum þeir sem stóöu i ströngu i þjóö- málum þessa dagana, toppmenn- irnir i verkalýöshreyfingunni létu fáir sjá sig. Sjálfsagt hefur flökraö aö Eyjabúum aö fresta öllu saman, en eins og segir i Fréttabréfi verkalýösfélaganna i Vestmannaeyjurn: „afmælis- hátiðin var löngu ákveöin áður en pólitikusarnir ákváöu aö stefna þjóðinni i nýjar kosningar. Timinn haföi veriö valinn meö hliðsjón af þvi, aö sildar- og loönuveiöum átti þá að vera lokiö og verkafólk til sjós og lands heföi þar af leiöandi tima til að njóta þess sem félögin hafa upp á aö bjóöa.” Þaö varöekkiaftur snúiö. Kannski uröu einmitt þessar aöstæöur til þess aö gera ráð- stefnuna ööruvisi en hún heföi ella oröiö, og væri óskandi aö verkalýösfélög um allt land tækju hana sér til fyrirmyndar strax á nýju ári. Langflestir ráðstefnu- gestir voru verkamenn, einmitt þeir sem máli skiptu, þvi um kjör þeirra átti aö ræöa þessa daga. Þarna voru lika skeleggir forystumenn verkalýösfélaganna i Eyjum, fulltrúar frá Menningar- og fræðslusambandi alþýöu og Alþýöusambandi tslands, en eiginlega ekki nema einn forystu- maöur landssamtaka verkafólks, Cskar Vigfússon frá Sjómanna- sambandinu. Skipulagið Þaö var vel unniö þessa ráö- stefnudaga og þó háöi tima- skortur fólki helst. Starfið var skipulagt þannig aö fyrst voru haldnar fjórar framsöguræður og voru ræöumenn allir úr Eyjum nema Þorlákur Kristinsson sem talaöi af hálfu farandverka- manna. Þaö sem eftir var fimmtudagsins voru umræöur, frjálsar umræður eftir framsögu- erindin og pallborösumræöur um kvöldiö þar sem framsögumenn og fulltrúar launþegasamtakanna sátu fyrir svörum. Næsta morgun var unniö i þrem starfshópum um bónuskerfi, kjör sjómanna og farandverkafólk, og þarf ekki að fjölyröa um þaö aö þaö var sá hluti ráöstefnunnar sem kom óbreyttum liösmönnum að mestu gagni. Fólk lætur einfaldlega miklu fremur álit sitt i ljós i fámennum hópi sem situr saman kringum boröen i stórum sal meö háborði og ræðustól. Eftir hádegiö á föstudag voru niöur- stöður hópanna kynntar og ræddar, ályktanir bornar upp og ræddar og ráðstefnunni siöan slitiö um kaffileytiö. í frásögninni af innri störfum ráöstefnunnar hér á eftir veröa tiunduö merkustu atriöin úr framsöguerindum og sagt frá störfum hópa. Bónus og vinnuálag Jóhanna Friöriksdóttir, for- maður Verkakvennafélagsins Snótar i Vestmannaeyjum, hélt fyrsta framsöguerindiö. Hún ræddi litillega helstu launakerfi i fiskiönaöi, en einbeitti sér fljót- lega aö biönduöu ákvæöi eöa svo- kölluöu bónuskerfi. Hún sagöist persónulega vera hlynnt bónus meöan annaö betra finnst ekki, en fann þó á honum ýmsa galla og þann helstan aö atvinnurek- andinn græöir sifellt meira á vinnuaflinu eftir þvi sem hraöi þess eykst. Tölurnar sem hún gaf upp voru satt aö segja ógnvæn- legar: „Þaö er til linurit frá árinu 1979 um hvaöa vinnulaunakostnaöur er aö vinna 1 kg af fiski og hver munurinn er fyrir mismunandi hraöa. Meö hraöa 100 er vinnu- launakostnaöur kr. 80.00 á hvert kfló, viö hraöa 250 er kostn- aöurinn kr. 63.00 og viö hraöa 300 er kostnaöurinn kominn niöur I kr. 58.00 á hvert kilo. Bónus- grunnurinn er nú kr. 1.247.00 svo auöséö er hver hefur mest út úr auknum hraða.” Jóhanna ræddi þetta ekki frekar en kvartaöi yfir þvi aö ekki skyldi hafa verið sett þak á bónusinn i Eyjum, þaö veldur of- boöslegu vinnuálagi sem kemur fljótlega niður á heilsu fólks — og eins og Jóhanna oröaöi þaö: Þaö er ástæöulaust aö frystihúseig- endur stórgræði á kostnað heilsu verkafólks. Hins vegar fannst henni sinar konur ekki stressaöar til muna eins og Herdis Olafs- dóttir kvartar yfir á Akranesi. Þriðji framsögumaður, Jón Kjartansson, formaöur Verka- lýðsfélags Vestmannaeyja, talaöi um efni sem stendur mjög nálægt ræöu Jóhönnu, vinnutima og vinnuálag. Hann var miklu harö- oröari en hún i garö bónussins og sagði meöal annars: „Atvinnurekendur töldu þessu nýja launakerfi það helst til ágætis fyrir verkafólk, að þaö stytti vinnutimann og bætti möguleika fólksins til hærri launa. 1 reynd hefur þetta launakerfi siöur en svo stytt hinn langa vinnutima, sem hér hefur viögengist, en bónusinn hefur aftur á móti gert atvinnurek- endum kleift aö fækka til muna verkafólki i fiskiönaöi. Það gefur þvi auga leiö aö meö tilkomu þessa launakerfis hefur vinnan færst yfir á færri hendur og aukiö þar af leiöandi vinnuálag þeirra sem þessi störf stunda. En launa- kerfi þetta er þannig byggt upp aö launagreiöslur eru ekki i réttu hlutfalli viö hin auknu afköst.” Dæmin sem Jón tók af verka- mönnum i frystihúsum i Eyjum sögöu meira en mörg orö. JÞeir tiu menn sem hann valdi af handa- hófi höföu haft um þrjár og hálfa miljón króna i tekjur aö meöaltali fyrir aö meöaltali 503 vinnudaga eöa igildi þeirra ( = 8 klst. I dag- vinnu) yfir áriö. Þaö má minna á aö I árinu eru bara 260 vinnu- dagar. Jón benti lika á hvaö viö erum aftarlega á merinni i löggjöf um vinnuvernd miöaö viö grann- þjóöir okkar. Hér er fullkomlega löglegt aö þræla fólki út nætur og daga: „Þegar kvartaö er undan hinni gegndarlausu vinnuþræikun i sjávarútveginum er þvi venju- lega svaraö meö mærðarfullu tali um veiöimannaþjóöfélagiö sem viö búum I og aö aflinn komi i hrotum, þess vegna þurfi að gera undantekningar og bjarga afl- anum undan skemmdum. Staö- reyndin er hins vegar sú að „undantekningarnar” eru orönar aö reglu og hinn óhóflega langi vinnudagur er aö nálgast vinnu- þrælkun og viö þvi veröur verka- lýðshreyfingin aö sporna meö öllum tiltækum ráöum.” I starfshópnum um bónuskerfiö uröu haröar umræöur og voru sagðar margar Ijótar sögur af vinnustöðum. Þaö er augljóst aö eitthvað verður aö gera i málinu, en það er I slæmri sjálfheldu, þvi bónusinn verður ekki lagöur niöur fyrr en dagvinnukaupiö hækkar og þaö hækkar ekki fyrr en bónus- inn veröur lagöur niöur. (Þaö má lesa nánar um þessar umræður á Jafnréttissiöu Þjóöviljans 22. des. sl.). Sjómannslíf, sjómannslíf .... Valur Valsson flutti framsögu- ræöu um hlutaskipti — kaup og kjör sjómanna. Hann benti á aö laun sjómanna á hinum ýniiSU stæröum og gerðum fiskiskipa væru svo misjöfn aö erfitt væri aö bera þau saman. Eini saman- buröurinn sem hægt væri að gera meö góöu móti væri aö bera saman laun sjómanna á stærri og smærri skuttogurum — en jafnvel þar er mismunandi launaútreikn- ingur. Stærri togararnir eru meö meiri aflaverðmæti en þeir minni en samt eru sjómenn á þeim meö lægra kaup vegna þess aö þar er fastakaupskerfi meö premiu. Valur lagði áherslu á aö þaö væri sama eftir hvaöa launakerfi sjómönnum væri greitt — þaö væri eitt sameiginlegt meö þeim öllum en þaö er aö öll eru þau háö fiskveröinu. Sjómenn veröa þvi aö taka sér stööu meö útgerðar- mönnum gegn rikisvaldinu þegar samiö er um fiskverðiö, „en bitast svo um afraksturinn hinn daginn” ,eins og Valur sagöi. Hann benti á það að á meöan hlutaskipta-fyrirkomulagiö er við lýöi byggjast laun sjómanna alltaf á fiskveröinu og taldi þaö ófært og óviöunandi ástand. Hann taldi premiukerfiö skömminni til skárra en hlutaskiptin og þá þannig aö fastakaupiö væri stór- hækkaö og premian greidd sem hreint akkorö á aðgerð og allan frágang fisksins, viss greiösla fyrir hvert kg af fiski án tillits til þess um hvaða fisktegund væri aö ræöa. Siöan sagöi Valur: „Meö þessu móti losna sjómenn viö þá þvingun sem er samfara þvi aö eiga aö semja viö tvo aöila um kjör sin. Þá er fiskveröið alfariö> mál útgeröarmanna og fiskverk- enda, sem I mörgum tilfellum eru einn og sami aöilinn. Sjómenn semja svo viö útgeröarmenn eins og annaö verkafólk viö atvinnu- rekendur.” Valur lauk slöan máli sinu á þvl,að þegar linur heföu skýrst á þennan hátt og ekki væri lengur faliö fyrir sjómönnum hver viðsemjandi þeirra er i rauninni þá gæti hin islenska sjó- ? mannastétt sameinast um kröfur sinar og fylgt þeim eftir af meiri hörku en veriö hefur. A ráöstefnunni voru lagöir fram útdrættir úr félagsfræöi- legri könnun sem Haraldur Ólafs- son geröi á togarasjómönnum og nokkrir punktar um heilbrigöi Islenskra sjómanna sem Tómas Helgason, prófessor, tók saman. Það er skemmst frá aö segja aö plögg þessi eru enginn skemmti- lestur. Hjá Haraldi Olafssyni kemur m.a. fram aö tveir af hverjum þremur sjómönnum sem spuröir voru lýstu þvi yfir aö þeir vildu helst komast I eitthvert annað starf, mjög fáir voru ánægöir en margir sögöust ekki eiga völ á ööru — sjómennskan væri þeirra hlutskipti. I könnun Haralds kemur lika fram aö flest- ir sjómennirnir eru komnir af verkamönnum og sjómönnum, þeir hafa aöeins lokiö skyldugri skólagöngu og fariö siöan beint á sjóinn. Þar hafa þeir skárri laun en þeir myndu hafa i landi sem ómenntaöir verkamenn. 1 punktum Tómasar Helga- sonar koma fram hrollvekjandi upplýsingar um „sjómannslifið, draum hins djarfa manns”. 20% af öllum vinnuslysum sem skráö voru hjá Tryggingastofnun rikis- ins 1973 voru slys á sjómönnum — þó aö þeir séu aöeins 8% af fólki á atvinnumarkaði. Nærri 10% af öllum slysum á sjó eru banaslys. t skýrslu Tómasar kemur lika fram aö aldursdreifing sjómanna er þannig aö 60% allra sjómanna eru undir 35 ára aldri, aöeins 5% stéttarinnar er yfir 55ára. Tómas segir: „Ýmsir læknarj sem stundaö hafa marga sjómenn, telja aö slitsjúkdómar, i stoövef, beinum og liöum, og æöahnútar og gyllinæð séu tiltölulega al- gengir meöal sjómanna. Einnig telja þeir, aö sjúdómar i melt- ingarfærum hafi veriö algengari hjá sjómönnum áöur. Þá geta allir um misnotkun á áfengi og aöra geösjúkdóma.” Þaö má þannig ljóst vera aö sjómennskan er bæöi mjög erfitt og hættulegt starf og um mikil- vægi þess þarf ekkert að fjölyröa. Samt er þaö einhvern veginn svo aö sjómönnum hefur gengið mun betur aö fá á sig alls konar „sjómennskurómantik” — heldur en mannsæmandi laun. Ráö- stefnan i Eyjum skoraöi á nefndina sem vann aö könnun á félags- og heilsufarslegum aðstæöum togarasjómanna og fjölskyldum þeirra — en sú nefnd lauk störfum áriö 1976 — aö birta niöurstöður sinar. Jafnframt skoraði ráöstefnan á Sjómanna- sambandiö aö hafa þá könnun til hliðsjónar viö kjarasamninga sjómanna. Þá var ályktaö um þörfina á aukinni menntun sjómanna og krafist betri aöbúnaöar á vinnustaö. Mark- veröasta niöurstaða umræöu- hópsins um málefni sjómanna var þó vafalaust sú — aö núverandi launakerfi, hluta- skiptin, sé hemill á kjarabaráttu sjómanna og aö hefja verði þegar I staö markvissar umræöur um breytt launakerfi. Farandverkafólk Þaö er vonandi ekki haílaö á neinn þótt sagt sé að málefni farandverkafólks hafi vakiö meiri athygli en önnur mál á ráö- stefnunni.Þaövar Þorlákur Krist insson — Tolla kallar hann sig þegar hann syngur — sem hélt framsöguerindi fyrir þeirra hönd og lagöi út af texta verkaiýðsfor- ystunnar um óvirkni almennra launþega I starfi verkalýös- hreyfingarinnar. Þorlákur benti á aö það ætti að vera lítill vandi aö virkja stéttarvitund farand- verkafólks vegna þess hvaö þaö er auövelt aö ná til þess: Þaö býr, étur, sefur og eyðir tómstundum sinum á sama staö og þaö vinnur, á vinnustaönum sjálfum. En þaö er ekki nóg meö aö farandverka- fólk hafi veriö afskipt innan verkalýöshreyfingarinnar, heldur er langt frá að þaö njóti almennra mannréttinda viða þar sem þaö vinnur. Verbúöir eru sums staðar fjarri þeim kröfum sem geröar eru um híbýli manna og fæöis- kostnaöur margra mötuneyta i verbúöum erhreintrán, en ef fólk kvartar yfir þvi þá á þaö á hættu aö missa vinnuna. Farandverka- fólk hefur ekki leitað til pólitiskra flokka um liösinni heldur beint málum sinum til verkalýðs- hreyfingarinnar, sagöi Þorlákur, hún virtist vera eini raunhæfi vettvangurinn fyrir þessa baráttu. Þegar forkólfar hennar sýndu málinu áhuga og velvilja héldu farandverkamenn aö nú væri vel fyrir öllu séö, en þeir áttuöu sig fljótlega á aö loforö er ekki sama og efndir. Þorlákur kvartaöi m.a. undan áhugaleysi Sjómannasam- bandsins um málefni farand- verkafólks og þvi reiddist for- maöur þess, Óskar Vigfússon. Honum fannst skritiö aö Þorlákur skyldi saka Sjómannasambandið um áhugaleysi á þeim málefnum sem hefðu verið meöal baráttu- mála sambandsins siöastliöinn aldarfjóröung. Hins vegar virtist formaöurinn ekki vongóður um aö kröfurnar næöu fram aö ganga nú fremur en endranær þvi hann treystist ekki til aö taka undir þær. I starfshópnum um farand- verkafólk voru kröfur þess ræddar og unnið út frá þeim eins og timi vannst til. Til saman- buröar var lagöur fram kjara- samningur verkafólks viö virk junarf ramkvæmdir á Tungnársvæöi. Þar er tekiö fullt tillit til þess aö þaö vinnur f jarri heimilum sinum, þaö fær fritt fæöi og gott húsnæöi og friar feröir heim reglulega. Slikir samningar eru ekki til viö farand- verkafólk i fiskiönaöi og raunar engin lög um verbúöir þótt þær hýsi árlega stóran hluta lands- manna sem vinnur viö undir- stööuatvinnugrein þjóöarinnar. Þar er viöa boöiö upp á óviö- unandi húsnæöi, margir veröa aö búa saman i herbergi þannig aö fólk getur ekki lifaö neinu einka- lifi, aðstaöa til þvotta hrak- smánarleg, kannski tvær sturtur i hundrað manna verbúö, salernis- aöstaöa i samræmi viö þaö og engin tómstundaherbergi, bóka- söfn eöa annaö sem léti þetta minna meira á heimili en fjós. Umhverfiö hefur áhrif á hverja manneskju og verbúöir viöa um land hafa þannig áhrif á verka- fólk sem þar býr aö þvi finnst það fremur vera vinnudýr en mann- eskjur. F a r a nd v er k am enn eru aökomumenn þar sem þeir vinna og margir atvinnurekendur not- færa sér þaö til aö losa sig viö fólk sem þeir þurfa ekki á aö halda lengur. Það getur t.d. kostað vinnuna aö biðja um fri til að skreppa heim (þótt maður fari ekki fram á friar feröir), og þarf ekki einu sinni slika tylliástæöu til að segja fólki upp. Hópurinn studdi eindregiö kröfuna um sér- stakan trúnaöarmann fyrir farandverkafólk þvi þaö þarf verndar við á vinnustööum umfram heimamenn. Það leiðir af sjálfu aö farand- verkafólki er ekki ætlaö aö eiga börn — amk. er ekki gert ráö fyrir þvi að þaö hafi þau með sér á ferðum sinum. Verbúðir gera ekki ráö fyrir barnafólki og ekki eru rekin barnaheimili i tengslum viö fiskvinnslustöövar, þótt þaö kæmi heimamönnum til góöa ekki siöur en aökomufólki. Þörf á meiri fræöslu Verkalýöshreyfingin var gagn- rýnd fyrir að vanrækja aö fræöa fólk um réttindi sin: Þaö er ekki nóg aö semja ef enginn kann á samningana. Raunar eru skól- arnir i slæmri sök þarna þvi fólk fær bókstaflega ekkert að vita um verkalýösfélög, hlutverk þeirra og skyldur, i grunnskólanámi og má heita furöulegt. Fólk veit ekki af sjálfu sér aö þaö þarf aö vera i verkalýösfélagi til þess aö njóta ákveöinna réttinda, til dæmis ef þaö veröur fyrir slysi, og þeir sem vinna stuttan tima á hverjum staö þurfa aö átta sig á þvi aö ef þeir eru i verkalýösfélagi i heimabyggö sinni þá njóta þeir réttinda hvar sem er — þeir þurfa bara að hafa skirteinið meö sér. Verkalýösfélagiö á staönum á lika aö fræöa fólk um réttindi þess og skyldur, þótt það sé bara sumarfólk. Þessu mætti kippa i lag með ódýrum bæklingum. Viö höfum stundum rætt um þaö hvernig vestrænar þjóðir koma fram viö erlenda farand- verkamenn, en spurningin er hvort við sitjum ekki uppi meö skömm i þessum efnum lika. Hingað koma árlega nokkur hundruö manns til aö vinna árs- tiöabundin störf, og þaö eru dæmi þess að samningar hafi veri þver- brotnir á þvi fólki i skjðli fáfræöi og málleysis. Ein krafa farand- verkafólks er sú aö samningar veröi þýddir á ensku og dreift til þeirra sem hingað koma til aö vinna. Þaö á lika að gæta þess aö erlendir verkamenn geri full- gildan samning viö vinnuveit- anda sinn áöur en þeir leggja af staö til Islands þannig aö þeir njóti fullra réttinda um leiö og hingað er komið — til dæmis ef þeir verða fyrir slysi eða veikjast skyndilega áöur en þeir hefja vinnu. Sömuleiðis þarf nauðsynlega aö fræða Islendinga sem ráöa sig til starfa erlendis um kaup og kjör, samninga og verkalýösfélög i landinu sem þeir ætla til. Umfram allt þarf verkalýös- hreyfingin aö minna á sig, fræða fólk um nauðsyn þess að ganga i stéttarfélag sitt strax og það kemur á nýjan staö. Lokaorð Um leið og við rauðsokkar úr Reykjavik þökkum fyrir gagn- lega ráðstefnu og ágæta skemmt- un i Eyjum þessa eftirminnilegu daga viljum við endurtaka hvatningu til verkafólks um land allt til að fara aö dæmi Vest- mannaeyinga og þinga um kjör sin. Baráttan ber árangur ef hún kemur frá fólkinu sjálfu. Dagný og Silja Frá vinstri: ólöf Þórarinsdóttir, ritari ráöstefnunnar, Tryggvi Þór Aöalsteinsson og Stefán ögmundsson, fulltrúar Menningar- og fræösiu- sambands alþýöu. — Ljósm. Haukur Már. Nokkrir ráöstefnumanna. Frá vinstri Oddur Júliusson, Jónas Traustason, Engilbert Jónasson, Halldór Jónsson, Konráö Einarsson, Runólfur Gislason og Agúst Helgason. Fyrir aftan þá sést i Svein Blöndal, Sigurö Agústsson og Armann Bjarnfreösson. —Ljósm. Haukur Már. Grasrótar- ráöstefna i Evium Þétt setinn bekkurinn. Fremstar sitja Snótarkonurnar Dagmey Einarsdóttir, Erla Sigmarsdóttir, ólaf- ia Siguröardóttir og Vilborg Siguröardóttir (taliö frá vinstri) — Ljósm. Haukur Már. Efni frá börnum komi jafnt og þétt í blaðinu Vilborg Dagbjartsdóttir, sem um margra ára skeiö hefur rit- stýrt barnaslöum Þjóöviljans, til- kynnti þaö nú viö áramót, aö þvi miöur sæi hún sér ekki fært aö halda áfram aö stjórna Komp- unni, barnasiöu Sunnudagsblaös- ins, en þaö hefur hún gert frá þvi aö sunnudagsblaöiö hóf göngu sina fyrir sex árum. — Ég hefði gjarna viljaö halda áfram, sagöi Vilborg, þegar viö spurðum hana um þessa ákvörö- un, — þaö er ýmislegt i gangi, sem ég heföi viljaö fylgja eftir, og ég hefi i þessu starfi komist i samband viö marga duglega krakka, sem ég hlýt aö sjá eftir. En ég er nú búin aö vera nokkuö lengi samfleytt meö Kompuna og aldrei tekiö sumarfrl frá henni, þurft aö hafa hugann viö hana á viku hverri. Og þegar svo áriö veröur mjög annasamt, eins og siöastliöiö ár varö mér, og ég er i meira en fullri vinnu viö kennslu og lendi þar aö auki I nefnda- stússi, þýöingum og fleiru, þá veröur þetta blátt áfram of erfitt. Skemmtileg vinna Mér finnst ég lika hafa fullan siöferöilegan rétt til aö hætta; ætli ég sé ekki búin aö vera viö þetta ein tólf ár — eins og forset- inn, segir Vilborg og hlær. Ég var meö Óskastundina á árunum 1956-62 eöa þar til yngri sonur minn fæddist. Þaö var nokkuö ööruvisi vinna en viö Kompuna vegna þess aö þá var önnur prent- tækni viöhöfö, og umbrotsvinna lenti mjög verulega á umsjónar- manninum. Svo þegar Vilborg Haröardóttir byrjaöi meö sunnu- dagsblaöiö 1974 og baö mig aö annast barnasiöu, þá sló ég til. Mér hefur fundist þetta svo skemmtilegt og ég hefi haft huga á þvi aö búa til svona siöur allar götur frá þvi aö ég var aö fletta gömlum dönskum barnablööum frá þvi um aldamót sem til voru heima hjá mér á Seyöisfiröi. Þaö var ljómandi falleg vinna á mörgu i þeim og einhverjar hug- myndir hefi ég sótt til þeirra blaöa þótt ótrúlegt mætti þykja. Aö örva börnin Þegar ég byrjaöi á Kompunni fannst mér sem hér heföi of lengi rikt nokkur stöönun i gerö efnis fyrir börn, miðaö við það, að allt um kring voru nýjar hugmyndir á kreiki. Mér fannst bæði vanta aö fengiö væri efni frá börnunum sjálfum, þau örvuö til aö skrifa sjálf og teikna, og svo lika aö það vantaði efni fyrir róttæk börn. Ég hefi alltaf litiö á þetta starf mitt sem pólitiskt starf og ég heföi ekki unniö það fyrir önnur blöö en Þjóöviljann blátt áfram vegna þess aö ég tel hann vera mitt mál- gagn. Ekki svo aö skilja, aö ég hafi viljaö fara með prédikanir i einhverjum þröngsýnistóni. Ég hefi aldrei ritskoöaö þaö efni sem barst, og það hefur ekki veriö af- greitt meö þvi aö setja þaö i ruslakörfuna. Ef börn hafa t.d. sent myndir, sem ekki var hægt aöbirta vegna þess aö þærvorui mörgum litum, þá hefi ég reynt aö hafa samband viö þau og biðja þau um aö teikna heldur meö blý- anti eöa tússi og þar fram eftir götum... Rætt við Vilborgu Dagbjartsdóttur, sem nú lætur af stjórn Kompunnar Fastur iiður Um leið og viö þökkum Vil- borgu kærlega fyrir samstarfiö spuröum viö hana hvaö hún helst vildi ráöleggja aö þvi er varöar meöferö barnaefnis. — Sumir hafa látið I ljós ugg um að ákveöin börn, sem sýna mest- an áhuga og dugnað I að skrifa, fyilist ofmetnaöi eða einhverju sliku. Þetta held ég að sé mis- skilningur. Þau börn, sem áhuga sýna, veröa að fá aö þjálfa sig. Annaö mál er að það er ekki vist að rétt sé að gera út sérstaka af- markaöa siöu meö barnaefni, og loka fyrir þaö aö ööru leyti. Ég held það væri best aö blaöamenn störfuöu þannig, aö þeir kynnu að tala viö börn rétt eins og annaö fólk og sæju til þess, aö það kæmi frá þeim efni jafnt og þétt. Aö minnsta kosti væri ákveöin manneskja I þvi, aö sjá til þess aö efni og myndir frá þeim og úr þeirra heimi kæmi stööugt i blaö- inu. Mér finnst lika vanta stööuga fréttaþjónustu af þvi sem er aö gerast i skólunum; þar er ai meira en nógu aö taka. — áb

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.